Morgunblaðið - 25.05.2019, Page 12

Morgunblaðið - 25.05.2019, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Fyrstu stólarnir mínir vorueinfaldlega vinnustólar,“segir Daníel Magnússonmyndlistarmaður sem hef- ur undanfarin 25 ár smíðað jafn mörg afbrigði af stólum sem hafa verið vin- sælir bæði hjá einstaklingum og fyrirtækjum. „Ég hef aldrei litið á stólana mína sem hönnunargripi beinlínis, heldur eru þetta fyrst og fremst smíðisgripir, enda geri ég þetta sjálf- ur, ég teikna, útfæri og tek áhættuna. Ég sé um allt viðartau, samsetningu og lökkun, en járnsmiðir smíða járn fyrir mig, vatnsskera, renna og sjóða. Og bólstrunin er í höndum fyrirtækis úti í bæ,“ segir Daníel og bætir við að hann leggi sig fram um að smíða góða hluti sem endast, rétt eins og þeir smiðir sem voru í nytjasmíði í gamla daga. „Kistur sem fólk ferðaðist með aleigu sína í hér áður fyrr eru gott dæmi um smíðisgripi sem mjög var vandað til smíði á, enda þurftu slíkir nytjahlutir að þola mikið álag og þeim var ætlað að endast,“ segir Daníel sem er einmitt að endursmíða einn smíð- isgrip, þriggja fóta stól sem var smíðaður í byrjun síðustu aldar af Metúsalem Metúsal- emssyni frá Burstafelli á Vopnafjarðarheiði. „Að takast á við þetta verkefni var áskorun frá félaga mínum sem er hollenskur mynd- listarmaður. Hann langaði í svona stól og langaði líka að athuga hvort væri möguleiki að framleiða þessa stóla. Ég lít á þessa vinnu sem virð- ingu við þetta gamla handverk. Ég fékk ljósmyndir af stólnum og teikn- aði hann upp á nýtt. Ég hef breytt honum örlítið og það fór mikill tími í að búa til verkfærin til að geta smíðað hann, ég þurfti að búa til skapalónin, fræsivöggurnar og ýmislegt fleira. Ég hef gefið stólnum nafn, hann heit- ir Metúsalem eftir sínum upphaflega smiði. Metúsalem fæddist árið 1894 og smíðaði þennan stól með þess tíma verkfærum, sem voru mjög frumstæð. Hann var þekktur bóndi og margir Austfirðingar rekja ættir sínar til hans. Stólnum var bjargað á sínum tíma og hann málaður, en ég nota í hann hnotu en ætla einnig að smíða hann úr eik.“ Var vélstjóri á sjó í 10 ár Daníel segir að Magnús faðir hans hafi verið vélstjóri og lögreglu- maður og að hann hafi sent alla syni sína í járnsmíði. „Hann leiðrétti kynjahallann í Þakklátur pabba að hafa rekið mig í iðnnám Myndlistarmaðurinn Daníel Magnússon er mikill hagleikssmiður og þekktur fyrir sérstaka stóla sína. Hann segir góða endingu nytjahluta á vissan hátt vera fegurð ef hún sé skynsamlega út- færð. „Í mínum huga eru nytjahlutir eitthvað sem allir listamenn ættu að hafa skoðun á.“ fjölskyldunni því það hafði alltaf pirr- að hann að systur hans höfðu ekki fengið tækifæri til að mennta sig. Hann lét því dæturnar fara í háskóla en okkur synina í verknám. Ég var vélstjóri á sjó í tíu ár með námi og fyrir vikið átti ég pening þegar ég var nýútskrifaður úr Myndlista- og handíðaskólanum, og gat keypt mér hlut í smíðaverkstæði sem hét Nýmörk og var í Skóla- stræti. Og ég hef verið viðloð- andi þann rekstur æ síðan,“ segir Daníel sem fór í ýmis verkefni, smíð- aði m.a. glugga og hurðir, setti járn utan á hús og smíðaði innréttingar. „Þannig gat ég haft tekjur sam- hliða því að sinna myndlist. En árið 1983 varð algjört hrun á bygginga- markaði og ekkert að gera hjá smíða- verkstæði okkar félaganna. Þá tók við sjálfsbjargarviðleitnin, en ég hafði verið að smíða málara- trönur fyrir listmálara og spurði hvort þá vantaði ekki vinnustóla við trönurnar. Sumir vildu það svo ég fór að smíða háa vinnu- stóla fyrir myndlistarfólk. Þetta spurðist út og fleiri listamenn pöntuðu stóla hjá mér. Svo fór þetta að rúlla og ég gat lifað á þessari smíði. Alltaf þegar lítið var að gera fór ég að smíða húsgögn, einnig borð og rúm, og fljót- lega hafði ég ágætt að gera. Ég kenndi reyndar handverk í fjóra vet- ur í Listaháskólanum en ég kunni ekki við mig þar og sneri aftur á verk- stæðið.“ Engu efni sóað í smíðinni Daníel segist fyrst og fremst vilja gera hluti sem endast, og kannski liggi það í burðarþolinu. „Útlit stólanna er í sjálfu sér klassískt en fyrst og fremst fyrir notagildið. Góð ending er á vissan hátt fegurð ef hún er skynsamlega út- færð. Nytjahlutir falla gjarnan í þann flokk að vera ekki metnir sem sjónrænir nema út frá nota- gildinu. Í mínum huga eru nytja- hlutir eitthvað sem allir listamenn ættu að hafa skoðun á. Margir listamenn hafa teiknað húsgögn og útfært í smíði, til dæmis Die- ter Roth og Donald Judd. Ég ætla samt ekki að fara að setja mig jafnfætis þessum tveimur frábæru listamönn- um, enda eru mínar lausnir kannski jarðbundnari og mið- aðar við hversdagslegri notkun,“ seg- ir Daníel og borar í nefið. „En það sem ég er að reyna að segja er að þetta ætti aldrei að vera utan þess viðfangs að búa til mynd- list. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið menntun sem gerði mér kleift að smíða og framleiða þessa nytjahluti, ég er þakklátur pabba gamla að hafa rekið mig í iðnnám og séð til þess að ég lærði eitthvað nyt- samt. Þannig að ef ég ætti að þakka einhverjum sérstaklega fyrir vel- gengni þessara húsgagna þá væri það pabbi gamli.“ Daníel leggur í húsgagnasmíð- inni áherslu á varðveislu efnisins. Tulip Pina Bausch / Phillipina „Þannig gat ég haft tekjur samhliða því að sinna myndlist. Fyrsti stóllinn sem Daníel smíðaði fékk nafnið Buck Rogers. Daníel fór að smíða háa vinnustóla fyrir myndlistarfólk sem hann hafði smíðað trön- ur fyrir. Þetta spurðist út og fleiri listamenn pöntuðu stóla hjá honum í framhaldinu. Fyrsti stóllinn sem seldist Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ———

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.