Morgunblaðið - 25.05.2019, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Unnið er af fullum krafti að uppsetn-
ingu stærsta gámakrana landsins á
hinum nýja Sundabakka í Sunda-
höfn. Á þessum stað verður aðal-
athafnasvæði Eimskips í framtíð-
inni. Hinn nýi gámakrani á að verða
tilbúinn í ágúst og verður hann því
reiðubúinn að þjónusta hin nýju og
stóru skip, sem verið er að smíða
fyrir Eimskip í Kína. Fyrra skipið er
væntanlegt til landsins seinnipart
ársins.
Til verksins eru notuð stórvirk
tæki, þar á meðal einn öflugasti
beltakrani sem komið hefur til
landsins. Kraninn var sérstaklega
fluttur inn frá Englandi, en hann er
100 metrar í efstu stöðu.
Sjálfur gámakraninn er gríðar-
legt mannvirki en hann mun vega
um 800 tonn samsettur. Sem kunn-
ugt er mun hann leysa af hólmi
kranann Jaka, sem kominn er til ára
sinna.
Vinnuhæð nýja „Jakans“ er um
35 metrar frá jörðu, samanborið við
25 metra á núverandi Jaka, sam-
kvæmt upplýsingum frá Eimskip.
Þegar kraninn er ekki í notkun er
hann með bómuna reista í hvíldar-
stöðu 60° og heildarhæðin er þá um
90 metrar, en er um 70 metrar á nú-
verandi krana.
Nær út í 15. gámaröð
Nýi kraninn getur þjónað breið-
ari skipum. Hann mun vinna út í 15.
gámaröð eða 45 metra. Núverandi
krani nær aðeins út í 10. gámaröð,
eða 35 metra. Nýi kraninn er raf-
væddur og skilur því ekki eftir sig
kolefnisspor í rekstri.
Gámakraninn var framleiddur í
verksmiðju Liebherr í Killarney á
Írlandi og kom hann hingað ósam-
settur 1. maí sl. Hann mun ganga á
sporteinum sem verða alls 370 metra
langir. Írskir sérfræðingar frá fram-
leiðandanum hafa yfirumsjón með
samsetningunni en starfsmenn belg-
íska fyrirtækisins Sarens vinna
verkið. Um það bil 15 manns koma
að þessu verki.
Verið er að smíða tvö gámaskip
í Kína fyrir Eimskip. Nýju skipin
eru talsvert stærri en stærstu skip
sem Eimskip er með í rekstri í dag
og þess vegna þarf félagið nú m.a. að
fjárfesta í nýjum gámakrana sem
ræður við stærri skip. Skipin hafa
hlotið nöfnin Brúarfoss og Dettifoss
og verða 26.500 brúttótonn. Þau
geta borið 2.150 gámaeiningar, en
stærstu skipin í dag taka 1.457
gámaeiningar. Þetta verða stærstu
skip íslenska flotans.
Krani í Sundahöfn
nær 100 metra upp
Ljósmynd/Eimskip-Valdimar Hannesson
Sundabakki Kraninn stóri teygir sig upp í loftið, þar sem sérfræðingar vinna við að setja upp nýja gámakranann.
Er notaður við uppsetningu stærsta gámakrana landsins
„Þetta hefur bara gengið ljómandi
vel,“ segir Valdimar O. Her-
mannsson, bæjarstjóri Blönduós-
bæjar, um hvernig hafi gengið að
taka við sýrlenskum kvótaflótta-
mönnum sem bærinn tók við nýver-
ið.
„Það hefur allt gengið samkvæmt
áætlun. Aðlögunin hefur gengið vel
þrátt fyrir að fólk sé að koma úr mis-
jöfnum aðstæðum.“ Þrjár af þeim
fjórum fjölskyldum sem bærinn tek-
ur við eru þegar komnar, en sú síð-
asta kemur líklega í júní. Í heild er
um að ræða 21 einstakling, þar af 13
börn. Þá setjast fimm fjölskyldur að
á Hvammstanga.
„Við höfum verið með sameigin-
lega móttöku og kvöldverð. Það er
samfélagsfræðsla í gangi núna og við
erum með túlk í hálfu starfi og verk-
efnastjóra í fullu starfi. Síðan hefst
íslenskukennsla sem verður í gangi
yfir sumarið,“ segir Valdimar og tek-
ur fram að fjölskyldurnar fái einnig
kynningu á skólastarfinu á næst-
unni, en stefnt er að því að börnin
sæki skólann í haust. Hann segir
hverja fjölskyldu hafa tvær til þrjár
stuðningsfjölskyldur.
Valdimar segir bæinn hafa útveg-
að öllum húsnæði og að Rauði kross-
inn hafi séð um innbúið, en nokkuð
erfitt var að ganga úr skugga um að
nægilegt magn af lausu húsnæði
væri á Blönduósi. Hann segir að um
tíma hafi verið óvíst hvort hægt yrði
að hýsa alla.
„Síðan fækkaði úr fimm fjölskyld-
um í fjórar, þannig að okkur tókst að
lenda þessu á síðustu stundu.“
gso@mbl.is
Aðlögunin hef-
ur gengið vel
Þrjár af fjórum fjölskyldum komnar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Flóttafólk Allt hefur gengið samkvæmt áætlun við móttöku fjölskyldnanna
en við komuna til landsins var byrjað á að snæða á veitingastað í Reykjavík.
TANGARHÖFÐA 13
577 1313 - kistufell.com
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ
Hjóla-
legur
Renndu við hjá okkur
í Tangarhöfða 13
M.BENZ E 250 BLUETEC
AVANTGARDE 4MATIC nýskr. 09/2015,
ekinn 51 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, glerþak o.fl.
TILBOÐSVERÐ 4.590.000 kr. Raðnúmer 257213
MAZDA CX-5 OPTIMUM AWD
nýskr. 04/2015, ekinn 63 Þ.km, bensín, sjálfskiptur,
leður, bakkmyndavél ofl. Einkabíll, einn eigandi!
Verð 3.950.000 kr. Raðnúmer 259440
VW GOLF GTE nýskráður 03/2018, ekinn
14 Þ.km, bensín/rafmagn (plug in), sjálfskiptur.
Aukabúnaður t.d. stafræntmælaborð, 18“ álfelgur,
dráttarkrókur, ACC o.fl. Verð 4.650.000 kr.
Raðnúmer 259301
RENAULT KADJAR ZEN
nýskr. 06/2016, ekinn 48 Þ.km, dísel, sjálfskiptur, drát-
tarkrókur. Einkabíll, einn eigandi!
Verð 2.790.000 kr. Raðnúmer 380406
RENAULT GRAND SCENIC BOSE
EDITION nýskr. 11/2018, ekinn 8 Þ.km, dísel,
sjálfskiptur, 7manna. Einkabíll, hlaðinn aukabúnaði!
Verð 4.690.000 kr. Raðnúmer 259171
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is