Morgunblaðið - 25.05.2019, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019
Fagleg og persónuleg húsfélagaþjónusta
Eignarekstur leggur áherslu á að einfalda
og hagræða málin fyrir húsfélög
Traust - Samstaða - Hagkvæmni
eignarekstur@eignarekstur.is • www.eignarekstur.is • Sími 566 5005
Ráðgjöf
Veitum faglega ráðgjöf
til húsfélaga
Bókhald
Höfum umsjón með
bókhaldi fyrir húsfélög
Þjónusta
Veitum persónulega þjónustu
sem er sérsniðin að hverju
og einu húsfélagi
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Á mánudag afhenti evrópski flug-
vélaframleiðandinn Airbus flugfélag-
inu Delta Air Lines nýja vél af gerð-
inni Airbus A220-100. Afhendingin
væri ekki í frásögur færandi nema
fyrir þá staðreynd að vélin er tólfþús-
undasta vélin sem Airbus afhendir
viðskiptavinum sínum vítt og breitt
um heiminn. Þykja það allnokkur
tímamót, ekki síst þegar litið er til
þess að síðar á þessu ári fagnar félag-
ið því að 50 ár eru liðin frá stofnun
þess.
Þótt 12 þúsund vélar hljómi mikið
þegar litið er yfir framleiðslu eins
fyrirtækis hefur þeim vélum sem fé-
lagið afhendir á ári hverju fjölgað
gríðarlega á allra síðustu árum.
Þannig afhenti félagið um 800 vélar í
fyrra og í ár telja stjórnendur þess að
hægt verði að auka framleiðsluna um
ríflega 10% og að vélarnar verði 880
eða fleiri þegar árið verður gert upp.
37 þúsund farþegaþotur
Ekki er talin vanþörf á hinni auknu
framleiðslu enda liggja fyrir pantanir
á mörgum tegundum úr smiðju Air-
bus mörg ár fram í tímann og hið
sama á við í tilfelli Boeing sem í raun
er eini raunverulegi keppinautur fé-
lagsins á markaði með stórar far-
þegaþotur.
Gera áætlanir ráð fyrir því að fram
til ársins 2039 þurfi að framleiða tæp-
lega 37 þúsund farþegaþotur til að
mæta vaxandi eftirspurn á flugmark-
aði um heim allan. Gríðarleg umsvif
fylgja vexti fluggeirans og benti Rémi
Maillard, framkvæmdastjóri hjá Air-
bus, á það á fundi fyrr í þessari viku
að á næstu tveimur áratugum væri
þörf á að þjálfa 540 þúsund nýja flug-
menn til þess að hægt yrði að halda
uppi því þjónustustigi sem eftirspurn
yrði eftir í flugheiminum.
Mikill sóknarhugur
Sá mikli meðbyr sem Airbus hefur
á markaðnum þessi dægrin veldur
því að fyrirtækið leitar nú allra leiða
til að auka framleiðslugetu sína, m.a. í
verksmiðjum sínum í Toulouse í
Frakklandi og Hamborg í Þýska-
landi. Þar er ekki síst unnið að því að
sjálfvirknivæða hluta framleiðsl-
unnar þar sem róbótar hafa fengið
það hlutverk að bora tugi þúsunda
gata í hvern og einn flugvélarskrokk
sem síðan eru nýtt til þess að festa
einstaka hluta vélanna saman með
viðhlítandi hætti. Félagið siglir nokk-
uð lygnan sjó, ekki síst í ljósi þess
ölduróts sem keppinauturinn,
Boeing, er nú í vegna 737-MAX-
hneykslisins sem valdið hefur því að
allar vélar þeirrar tegundar hafa set-
ið kyrrar á flugvöllum vítt og breitt
um heiminn frá 12. mars síðast-
liðnum.
Samkeppnin á sér takmörk
Forsvarsmenn Airbus fara þó var-
lega í að nýta sér þær aðstæður sem
upp eru komnar hjá Boeing og í sam-
tali við blaðamenn í Toulouse fyrr í
þessari viku sagði Guillaume Faury,
nýráðinn forstjóri Airbus, að félagið
stæði í harðri samkeppni við Boeing
en ekki þegar kæmi að málum er
vörðuðu flugöryggi. Benti hann á að
tvö hræðileg flugslys tengd 737-
MAX-vélunum, sem kostuðu á fjórða
hundrað manns lífið, væru þess eðlis
að Airbus myndi aldrei af siðferð-
islegum ástæðum nýta sér slíka at-
burði til að styrkja stöðu sína á mark-
aðnum.
Ekki allt sem gengur upp
Þrátt fyrir afar gott gengi margra
þeirra véla sem Airbus hefur kynnt
til leiks á síðustu áratugum hafa ekki
allar áætlanir félagsins gengið upp.
Árið 2000 ákvað félagið að ráðast í
hönnun og framleiðslu risa-
farþegaþotu sem keppt gæti við hina
gríðarstóru 747-breiðþotu frá Boeing.
Hafði félagið þá raunar um langt ára-
bil leitað leiða til að koma sér inn á
þann markað en ekkert gengið.
Árið 2005 tók fyrsta vélin sem
hlaut heitið A380 á loft í Toulouse.
Hún er stærsta farþegaþota í heimi,
sú eina sem er heilt yfir á tveimur
hæðum og hún getur tekið allt að 853
farþega í sæti.
En þróunarkostnaður í tengslum
við vélina fór langt fram úr öllum
áætlunum og telja sérfræðingar að
hann standi í dag í 25 milljörðum
evra, jafnvirði 3.500 milljarða ís-
lenskra króna. Miklar væntingar
voru til vélarinanr og hlutverks henn-
ar í að leysa sívaxandi ferða-
mannastraum milli stærstu borga
heimsins. Pantanir hafa hins vegar
látið á sér standa og nú stefnir í að
Airbus muni aðeins framleiða 251 vél
af þessari tegund því í febrúar síðast-
liðnum tilkynnti félagið að sökum
dræmrar eftirspurnar hygðist það
hætta framleiðslu á þessum risa há-
loftanna árið 2021.
Fimmtán flugfélög hafa tekið
A380-þotuna í sína þjónustu allt frá
árinu 2007 þegar Emirates fékk
fyrstu vélina afhenta. Japanir veðja á
risann.
Þrátt fyrir þá staðreynd að ákveðið
hafi verið að hætta framleiðslu A380-
vélarinnar er hún sveipuð miklum
ljóma hvar sem henni bregður fyrir.
Því ræður hin mikla stærð vél-
arinnar. Og enn á Emirates eftir að fá
14 vélar af þessari tegund afhentar.
Þá á All Nippon Airways eftir að fá
eina vél af þremur afhenta en fyrr á
þessu ári fékk félagið tvær fyrri vél-
arnar í hendurnar.
Beint milli Havaí og Tókýó
Og þær vélar eru nú talsvert í op-
inberri umræðu. Því veldur sú stað-
reynd að í gær, föstudag, hóf All Nip-
pon beint flug milli höfuðborgar
Japans, Tókýó, og Honolulu á Havaí.
Er það í fyrsta sinn sem A380-
breiðþotunni er beint til eyjaklasans
sem árið 1959 varð formlega hluti af
Bandaríkjum Norður-Ameríku.
Flugið milli þessara staða tekur um
sjö klukkustundir. Ekki mun þó væsa
um farþegana, alla vega ekki þá sem
kjósa að kaupa sér aukaþjónustu um
borð. Í raun verður hægt að velja
milli fjögurra fargjaldaflokka í vélum
félagsins sem samtals munu taka 520
farþega í sæti. Hefðbundið farrými
mun rúma 383 farþega og betri útgáf-
an af því taginu mun taka 73 farþega í
sæti. Viðskiptafarrými verður fyrir
56 manns en þá verða í vélinni, fremst
á efri hæðinni, átta klefar þar sem
fólk getur látið fara vel um sig, farið í
sturtu eða notið annarra lystisemda
sem þar verða í boði. Forsvarsmenn
All Nippon hafa farið óvenjulega leið í
því að markaðssetja flugið milli Jap-
ans og Havaí. Hafa þeir fetað sig inn
á slóðir sem eru íslenskum neyt-
endum nokkuð kunnugar því félagið
hefur fengið gríðarlega athygli út á
ytra útlit vélanna. Fyrsta A380-vélin
sem félagið fékk afhenta fyrr á árinu
er sæblá að lit og hefur sterka skír-
skotun til skjaldbökutegundar sem
lifir við strendur Havaí. Önnur vélin
var máluð í sægrænum lit og þar
bregður skjaldbökunni sömuleiðis
fyrir. Hún mun einnig leika lykil-
hlutverk í þriðju vélinni sem verður
appelsínugul að lit með vísan til óvið-
jafnanlegs sólarlags sem íbúar og
ferðalangar á Havaí geta oft notið
þegar aðstæður bjóða upp á.
Hafa afhent 12 þúsund flugvélar
Flugvélaframleiðandinn Airbus fagnar 50 ára afmæli á þessu ári Stefnir að metframleiðslu í ár
upp á 880 flugvélar Hætta framleiðslu flaggskipsins Japanir taka stærstu þotuna í sína þjónustu
A380-þotan er engin smásmíði.
Fullhlaðin í flugtaki getur hún
vegið allt að 560 tonn. Þá getur
hún borið 320 tonn af eldsneyti
sem tryggir henni drægni upp á
allt að 15 þúsund kílómetra.
Hún er búin fjórum gríðar-
stórum hreyflum úr verk-
smiðjum Rolls-Royce.
Hún er 72,7 metrar á lengd,
24,1 metri á hæð og þá er væng-
hafið hvorki meira né minna en
79,8 metrar. Í flugtaki svigna
vængendarnir upp um ríflega
fjóra metra.
Farþegarými vélanna, á tveim-
ur hæðum, er 550 fermetrar eða
á stærð við þrjá tennisvelli. Á
henni eru að jafnaði 220 gluggar
og sextán hurðir.
320 tonn af
eldsneyti
560 TONN FULLHLAÐIN
Skemmtileg Útlit fyrstu A380-breiðþotunnar af þremur sem All Nippon tekur í notkun vekur mikla athygli.
Lúxus Stærð A380-vélanna býður upp á marga möguleika. Viðskipta-
farrýmið hjá Emirates er ekkert slor. Barinn styttir gestum stundirnar.