Morgunblaðið - 25.05.2019, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019
H
a
u
ku
r
0
1
.1
6
Viðskiptatækifæri á www.kontakt.is
• Rótgróin heildsala með sérhæfðar vörur fyrir byggingariðnað. Velta
100mkr. Góður hagnaður.
• Trésmiðja með 40 ára rekstrarsögu sem sérhæfir sig í innréttinga-
smíði fyrir heimili, fyrirtæki og stofnanir. Fyrirtækið er vel tækjum
búið og í eigin húsnæði. Velta 130 mkr.
• Fyrirtæki sem framleiðir ákveðnar tegundir einfaldra matvæla fyrir
aðra aðila á markaði. Töluverð sjálfvirkni þannig að kostnaði er
mjög stillt í hóf. Velta 100 mkr. og afkoman sérlega góð.
• Lítið ferðaþjónustufyrirtæki í góðum vexti sem býður fjölbreyttar ferðir
á Suðurlandi. Eigið húsnæði og góður búnaður. Velta 50mkr. Góður
vöxtur.
• Heildverslun sem flytur inn ýmsan tæknibúnað til hitunar, kælingar og
loftræstingar. Velta yfir 200 mkr. og góð afkoma.
• Blikkiðjan ehf. í Garðabæ. Um er að ræða rekstur og fasteign að
Iðnbúð 3. Velta um 80 mkr.
• Lítil heildverslun með sterkan fókus í árstíðabundinni vöru. Tilvalinn
rekstur fyrir einstaklinga eða sem viðbót við aðra heildsölu. Stöðug
rekstrarsaga. Velta 45 mkr.
• Þjónustufyrirtæki á mjög sérhæfðu sviði sem hefur eftirlit með
hreinlæti á vinnustöðum, gerir tillögur að kerfum og sér um úttektir.
Velta 100 mkr. og góð afkoma.
• Hádegisverðarþjónusta þar sem bæði er sent í fyrirtæki og neytt á
staðnum í hádeginu. Tilvalið fyrir samhenta fjölskyldu og kokka. Velta
100 mkr. Töluverðir möguleikar fyrir duglega aðila að auka veltuna.
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Þórarinn Arnar Sævarsson
fasteignaráðgjafi,
thorarinn@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
brynhildur@kontakt.is
Sigurður A. Þóroddsson
hæstaréttarlögmaður,
sigurdur@kontakt.is
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Búist er við harðri baráttu um leið-
togastöðuna í Íhaldsflokknum í
Bretlandi, með óvæntum vendingum
og jafnvel bakstungum, eftir að
Theresa May forsætisráðherra til-
kynnti í gær að hún hygðist segja af
sér. Að sögn breskra dagblaða hafa
allt að átján þingmenn hug á að
bjóða sig fram en fæstir þeirra eru
taldir eiga raunhæfa möguleika á að
fara með sigur af hólmi. Talið er að
sumir þeirra gefi kost á sér með það
fyrir augum að hætta við framboðið
síðar og lýsa yfir stuðningi við lík-
legan sigurvegara í von um að
hreppa virðulegt ráðherraembætti.
Theresa May tilkynnti í tilfinn-
ingaþrunginni ræðu í gær að hún
hygðist láta formlega af störfum
sem leiðtogi Íhaldsflokksins 7. júní.
Hún verður áfram í embætti for-
sætisráðherra þar til nýr leiðtogi
stjórnarflokksins tekur við.
Brandon Lewis, formaður Íhalds-
flokksins, sagði að fresturinn til að
tilnefna leiðtogaefni rynni út í vik-
unni sem hefst 10. júní. Þingmenn
flokksins myndu síðan kjósa á milli
leiðtogaefnanna og fyrirkomulagið
yrði þannig að í hverri atkvæða-
greiðslu félli einn frambjóðandi úr
baráttunni, þ.e. sá sem fengi fæst at-
kvæði. Þingmennirnir halda at-
kvæðagreiðslunum áfram þar til tvö
leiðtogaefni verða eftir og félagar í
flokknum kjósa síðan á milli þeirra
tveggja í póstatkvæðagreiðslu. Fé-
lagar flokksins eru um 120.000.
Lewis sagði að stefnt væri að því
að atkvæðagreiðslunum í þing-
flokknum lyki ekki síðar en í lok júní
og að niðurstaða leiðtogakjörsins
lægi fyrir áður en sumarhlé þingsins
hefst, 20. júlí.
Margir kallaðir
Á meðal þeirra sem hafa gefið
kost á sér í leiðtogastöðuna eru Bor-
is Johnson, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra, Dominic Raab, fyrrver-
andi brexit-ráðherra, Michael Gove
umhverfisráðherra, Jeremy Hunt
utanríkisráðherra, Sajid Javid
innanríkisráðherra og Andrea Lead-
som, fyrrverandi leiðtogi neðri deild-
ar þingsins.
Bresk dagblöð telja Boris John-
son vera sigurstranglegastan vegna
þess að hann er vinsælasta leiðtoga-
efnið meðal félaga í flokknum. Dag-
blaðið The Times hefur birt skoð-
anakönnun sem bendir til þess að
37% þeirra myndu vilja að Johnson
verði næsti leiðtogi flokksins og
næstur kom Dominic Raab með
13%. Talið er þó að margir þing-
menn flokksins hafi efasemdir um að
Boris Johnson sé rétti maðurinn til
að fara fyrir flokknum og gegna for-
sætisráðherraembættinu.
Johnson er fyrrverandi borgar-
stjóri Lundúna og tók þátt í barátt-
unni fyrir því að Bretland gengi úr
Evrópusambandinu fyrir þjóðar-
atkvæðið í júní 2016 þegar útgangan
var samþykkt með 52% atkvæðanna.
Hann varð utanríkisráðherra í
stjórn May í júlí 2016 eftir að hún
var kjörin leiðtogi flokksins og varð
forsætisráðherra. Hann sagði sig úr
ríkisstjórninni tveimur árum síðar
eftir að hún samþykkti brexit-
samning May við Evrópusambandið.
Óttast um sætin sín
Johnson er mjög umdeildur í
þingflokki breskra íhaldsmanna.
Hann nýtur stuðnings Jacobs Rees-
Moggs, sem fer fyrir hópi harðra
brexit-sinna í þingflokknum, og
margra annarra andstæðinga Evr-
ópusambandsins. Hann er þó einnig
talinn hafa eignast marga óvini í
þingflokknum eftir að hafa reitt þá
til reiði með framgöngu sinni í
stjórnmálunum.
Johnson þykir gæddur miklum
persónutöfrum og stuðningsmenn
hans segja hann best til þess fallinn
að fara fyrir Íhaldsflokknum í næstu
kosningum til að afstýra því að hann
missi mikið fylgi til Brexit-flokksins
undir forystu Nigels Farage. Talið
er að þingmenn, sem hafa óbeit á
Johnson, gætu þurft að velja á milli
þess að fallast á hann sem flokks-
leiðtoga og þess að missa sæti sitt á
þinginu í næstu kosningum.
Komist Johnson í gegnum at-
kvæðagreiðslurnar í þingflokknum
er talið líklegt að hann fari með sig-
ur af hólmi í póstaatkvæðagreiðsl-
unni vegna vinsælda hans meðal fé-
laga flokksins.
Verða úrslitin óvænt aftur?
Saga leiðtogakosninga Íhalds-
flokksins sýnir hins vegar að vara-
samt er að veðja á sigurstrang-
legasta frambjóðandann, eins og
stjórnmálaskýrandi fréttaveitunnar
AFP bendir á. Hann segir að frá því
að núverandi fyrirkomulag við val á
leiðtoga var tekið upp árið 1965 hafi
sá sem talinn var sigurstrangleg-
astur í upphafi baráttunnar aldrei
farið með sigur af hólmi.
Boris Johnson var álitinn sigur-
stranglegastur í síðasta leiðtoga-
kjörinu árið 2016 þar til einn af
helstu stuðningsmönnum hans,
Michael Gove, stakk hann í bakið
með því að tilkynna á síðustu stundu
að hann hygðist sjálfur bjóða sig
fram og kvaðst hafa komist að þeirri
niðurstöðu að Johnson væri ekki
rétti maðurinn til að fara fyrir
flokknum og stjórna landinu. John-
son ákvað þá að hætta við framboð
og svo fór að Gove beið ósigur fyrir
May og Andreu Leadsom. Fé-
lagarnir í flokknum fengu ekki tæki-
færi til að kjósa á milli þeirra
tveggja vegna þess að Leadsom dró
framboð sitt til baka eftir að hafa
verið gagnrýnd fyrir að ýja að því í
viðtali að hún væri betur til þess fall-
in að stjórna landinu vegna þess að
hún væri móðir, ólíkt May sem gat
ekki eignast barn af heilsufars-
ástæðum.
BORIS JOHNSON
Nokkur leiðtogaefni Íhaldsflokksins í Bretlandi
Fyrrverandi utanríkisráðherra
MICHAEL GOVE
54 ára
Tók þátt í baráttunni fyrir brexit
Umhverfisráðherra
Tók þátt í baráttunni fyrir brexit
51 árs
SAJID JAVID
Innanríkisráðherra
JEREMY HUNT
49 ára
Greiddi atkvæði með aðild að ESB
Utanríkisráðherra
Greiddi atkvæði með aðild að ESB
52 ára
Fyrrv. leiðtogi neðri deildar þingsins
Tók þátt í baráttunni fyrir brexit
56 ára
ANDREA LEADSOM
Ljósmyndir: AFP
DOMINIC RAAB
Fyrrverandi brexit-ráðherra
Eindreginn stuðningsmaður brexit
45 ára
AFP
Tilfinningaþrungin ræða Theresa May klökknaði og rödd hennar brast þeg-
ar hún tilkynnti afsögn sína fyrir utan aðsetur forsætisráðherrans.
Johnson sigurvæn-
legur en umdeildur
Úrslit leiðtogakosninga Íhaldsflokksins hafa verið óvænt
Boðar útgöngu í október
» Boris Johnson sagði í gær
að Bretland myndi ganga úr
Evrópusambandinu 31. októ-
ber með eða án samnings yrði
hann næsti leiðtogi Íhalds-
flokksins og forsætisráðherra.
» „Leiðin til að ná góðum
samningi er að búa sig undir
stöðuna sem verður án samn-
ings,“ sagði hann.
» Leiðtogar ESB-ríkja
áréttuðu að þeir léðu ekki máls
á nýjum samningi um brexit og
sögðu líkurnar á útgöngu án
samnings hafa aukist.