Morgunblaðið - 25.05.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 25.05.2019, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fyrir þremurárum varblásið til átaks um að stytta biðlistana í heil- brigðiskerfinu. Átakið átti að standa í þrjú ár og hefur því miður ekki gengið upp. Vand- inn er einkum aðkallandi þegar kemur að liðskiptaaðgerðum. Á fimmtudag var kynnt skýrsla Embættis landlæknis um átak- ið og sagði Alma Möller land- læknir að vissulega hefði bið- tími styst, en ekki eins og vonir hefðu staðið til. Fyrir því eru margar ástæð- ur. Ein þeirra er óbeit á einka- framtaki. Það er ekki orðað með þeim hætti, en sú er niður- staðan. Þess í stað er talað um að gæta verði að því að vega ekki að innviðum opinbera kerfisins. Þetta eru engin rök í málinu. Þannig er komið fyrir innviðum opinbera kerfisins að það hefur ekki undan þörfinni fyrir að- gerðir. Fyrir liggur að hægt er að leita út fyrir opinbera kerfið til þess að saxa á biðlistana. Þá er einnig undarlegt að bera við fráflæðisvanda. Sjúk- lingar sem fara í liðskiptaað- gerðir utan hins opinbera kerf- is létta frekar á vanda en að þyngja hann. Átök eru hluti af pólitík og yfirleitt er ekkert við því að segja. Það er viðbúið að flokkar starfi samkvæmt þeirri hug- myndafræði og stefnu, sem þeir voru kosnir til að fylgja. Humgyndafræði getur þó ekki alltaf ráðið för þegar taka á slaginn. Stundum má skynsemin fá að komast að. Það á sérstaklega við þegar al- menningur verður leiksoppur í hinum pólitíska slag. Þá kárnar gamanið. Það getur haft afdrifaríkar afleiðingar þegar liðskiptaað- gerðir dragast svo misserum skiptir. Hætt er við því að vandinn ágerist og eftir því sem lengra líður verður erf- iðara að ná sér aftur á strik. Þannig getur einstaklingur, sem hefði fljótt komist aftur í vinnu, hefði hann komist strax í aðgerð, endað sem öryrki þurfi hann að bíða of lengi. Það gengur ekki að láta sjúk- linga bíða á meðan verið er að ráða fram úr vandamálum heil- brigðiskerfisins, sérstaklega ekki þegar um annan kost er að ræða. Átakið til að skera niður biðlistana átti að taka þrjú ár. Hversu langan tíma mun næsta átak taka? Hversu víst er að það muni ganga upp? Hversu margir munu á meðan þurfa að bíða kvaldir og þjáðir langt um- fram eðlileg mörk eftir að kom- ast að, vitandi að hægt væri að leysa úr vanda þeirra? Hagur sjúklinganna hlýtur að vega þyngra en hugmyndafræðin. Hagur sjúklinganna hlýtur að vega þyngra en hug- myndafræðin} Gamanið kárnar Heilbrigðisyf-irvöld víða um heim eru ugg- andi út af hraðri útbreiðslu bakt- ería, sem eru ónæmar fyrir öll- um sýklalyfjum. Ísland hefur notið nokkurrar sérstöðu í þessum efnum vegna þess að hér er minna notað af sýkla- lyfjum í landbúnaði auk þess sem lega landsins býður upp á varnir, sem ekki standa flestum öðrum til boða. Nú stendur til að höggva skarð í þessar varnir með lagabreytingu, sem gæti leitt til aukins innflutnings á kjöti. Ekki hefur verið hlustað á rök gegn þessari breytingu og virðist sem viðskiptahags- munir standi framar heil- brigðissjónarmiðum. Nú hefur Læknafélag Ís- lands varað við afnámi frysti- skyldu á kjöti. Í umsögn fé- lagsins um frumvarpið um lagabreytinguna segir enn fremur að nái breytingin fram að ganga verði að tryggja að afnám frystiskyldunnar verði ekki víðtækara en þörf krefji. Þá megi hún ekki öðl- ast gildi fyrr en nýr meðferðar- kjarni og bráða- móttaka Landspít- ala hafi verið tekin í notkun. Nauðsynlegt sé að hafa full- nægjandi aðstöðu til að bregðast við útbreiðslu sýk- inga af völdum fjöl- eða aló- næmra baktería. Reynir Arngrímsson, for- maður Læknafélagsins, sagði í frétt um umsögn þess í Morgunblaðinu í gær að sýklalyfjaónæmi væri „eitt af stærstu vandamálunum sem við stöndum frammi fyrir í heilbrigðisþjónustunni ef við lítum á heiminn í heild“. Það er athyglisvert að Læknafélagið skuli líta svo á að samþykkt þessa frumvarps gæti haft svo alvarlegar af- leiðingar að þær gætu orðið heilbrigðiskerfinu ofviða í nú- verandi mynd. Það er óskilj- anlegt að opna eigi með lög- um dyrnar fyrir slíkum vágesti. Heilbrigðiskerfið vanbúið breiðist úr sýkingar vegna alónæmra baktería} Vara við afnámi frystiskyldu S tjórnmálin eru í krísu og ástandið kemur fram í vantrausti til Alþingis. Aðeins 18% treysta Alþingi. Það vantraust hefur áhrif á allt kerfið, þegar traust á þeirri stofnun hverfur þá sekkur allt annað með. Við vinnum okkur inn traust, smám saman, með samvinnu allra. Hvað við gerum og hvernig við bregðumst við vanda- málum hefur áhrif á það traust. Það er til dæmis hægt að bregðast illa við en spinna það vel út á við. Dæmi um það finnst mér vera lífs- kjarasamningarnir. Ekki lífskjarasamningarnir sjálfir heldur aðkoma stjórnvalda að þeim. Það var mikið gert úr því þegar samningar voru að nást að nú þyrfti myndarlega aðkomu stjórnvalda og boltinn gefinn yfir til þeirra. Stuttu seinna kom tilkynning um lífskjarasamn- ingana, með 45 aðgerðum til stuðnings lífs- kjarasamningum. Nokkurn veginn allt atriði sem þegar voru komin fram í áætlun stjórnvalda. Hver var þá við- bótin? Því hefur enginn getað svarað skilmerkilega ennþá um tveimur mánuðum seinna. Vinnuumhverfið sem við búum við í stjórnmálum á Ís- landi er umlukið vantrausti af ýmsum ástæðum. Af því eru afleiðingar sem sjást til dæmis í umræðu á Alþingi undan- farið þar sem þingmenn sem fóru mikinn á bar fyrir áramót slá sig og hver annan til riddara í sýndarmennsku úr ræðu- stól Alþingis, og tekst á sama tíma að sá efa í huga fólks um það þingmál sem þar er fjallað um. Ástæðan fyrir því að þeim tekst það er sú að það er vantraust, því innihald máls- ins er allt annað en þeir halda fram. Með því geri ég ekki lítið úr efa fólks um það þingmál, áhyggjur fólks eru skiljanlegar. Ekki út af efn- isatriðum málsins heldur stöðu stjórnmála á Ís- landi. Það er sama hvað hver segir eða leið- réttir, það er auðveldara að vantreysta. Í þessu máli, sem og svo mörgum öðrum; akstursgreiðslumálinu, siðanefndarmálunum, kjararáðsmálinu, landsréttarmálinu, er rík- isstjórnin einfaldlega búin að klúðra tækifæri til þess að byggja upp traust. Í staðinn er notuð klassísk þrjósku- og samtryggingarpólitík. Stundum er nefnilega leiðin til þess að vinna leikinn að spila ekki sama leik og hinir því ef það er eitthvað sem ég hef lært inni á Alþingi þá er það að leikurinn er í fyrsta sæti hjá allt of mörg- um sem ráða ferðinni. Leikurinn sem fer fram í ræðustól Alþingis sem og í bakherbergjum og hliðarherbergjum. Leikurinn þar sem allir vita að umræðan er bara sýndarmennska, sama hvaða digurbarkalegu orð eru notuð. Ég á ekki við að sú pólitík sé sjálfkrafa slæm. Ég á frekar við að það er hægt að svindla og helsta vandamálið er að greina á milli hver er að svindla og hver ekki. Oftast er það orð á móti orði en í vantraustsumhverfi vinnur sá sem sáir efa. Því meira vantraust, því auðveldara er að sá efa vegna þess að sannleiksgildið skiptir minna og minna máli. bjorn- levi@althingi.is Björn Leví Gunnarsson Pistill Ástandið Höfundur er þingmaður Pírata. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Þ að er vel þekkt að grjót- hrun getur fylgt stórum skjálftum, en þeir geta einnig sett af stað snjó- flóð, ef snjóalög eru veik, þótt ólíklegt sé að það fari sam- an – þó það geti auðvitað gerst,“ seg- ir Harpa Grímsdóttir, fagstjóri of- anflóðavár á Veðurstofu Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Hópur alþjóðlegra vísinda- manna sótti dagana 21.-24. maí sl. jarðskjálftaráðstefnuna Northquake 2019 sem haldin var á Húsavík. Þar flutti fjöldi sérfræðinga erindi, m.a. Harpa, en þetta er í þriðja sinn sem ráðstefna þessi er haldin á Húsavík og byggist hún á fyrri ráðstefnum sama efnis þar sem vísindamenn víðsvegar að kynna niðurstöður rannsókna sinna frá Norðurlandi. Rúmlega 40 ár eru liðin frá síð- asta stórskjálfta, 6 til 7 stig, á Norð- urlandi og er það, samkvæmt upp- lýsingum frá Veðurstofunni, lengsta hlé á milli slíkra atburða á svæðinu í um 200 ár. Frásagnir fólks og gögn um fyrri stórskjálfta, s.s. í námunda við Kópasker árið 1976, í mynni Skagafjarðar 1963 og við Dalvík 1934, gefa hugmynd um hvers vænta megi á komandi árum. „Þessir stóru skjálftar og stöð- ug smáskjálftavirkni úti fyrir Norð- urlandi á svæði sem oft er kallað Tjörnesbrotabeltið eru áminning til vísindamanna og yfirvalda um að jarðskjálftavá á Norðurlandi er mik- il og ámóta þeirri vá sem er á Suður- landsundirlendinu,“ segir á heima- síðu Veðurstofu Íslands. Afleiddar hættur víða Harpa segir stóran skjálfta og afleiddar hættur vegna hans geta haft mikil áhrif á stóru svæði lands. „Stór skjálfti á þessu belti getur haft áhrif á Flateyjarskaga, Trölla- skaga og Skagafirði. Í jarðskjálfta sem varð árið 1755 er til að mynda vitað að hrun varð í eyjum á Skaga- firði. Þetta getur því haft áhrif nokk- uð víða,“ segir hún og bendir á að stórir skjálftar á þessu svæði hafi flestir orðið í kjölfar skjálftahrinu. „Það kemur því hrina sem þá endar með stórum skjálfta, en það þýðir þó ekki að allar hrinur þurfi að enda þannig. En ef við fáum hrin- urnar þá erum við komin með aukn- ar líkur á stórum skjálfta og þá er um leið hægt að gera ráðstafanir ef aðstæður eru óstöðugar, s.s. vegna hættu á snjóflóðum,“ bætir hún við. Skoða flóðbylgjuhættu Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvár á Veðurstofu Íslands, fór fyrir hópi sem skipulagði tvær jarð- skjálftaæfingar, annars vegar fyrir hrinu jarðskjálfta og hins vegar fyrir stóran jarðskjálfta með upptök í ná- grenni Húsavíkur. Var æfingin svo- kölluð skrifborðsæfing, en í henni tóku þátt sérfræðingar á Veðurstof- unni og fulltrúar Almannavarna- deildar ríkislögreglustjóra, ásamt fulltrúum Vegagerðarinnar og Nátt- úruhamfaratrygginga Íslands. Kristín segir æfinguna hafa gengið vel. „Við lærðum í raun margt af þessu, einkum um afleiddar hættur. En við erum nú í fyrsta skipti farin að geta skoðað flóð- bylgjuhættu af skjálftum fyrir norð- an. Við vitum af flóðbylgjum í ann- álum, s.s. 1755 og 1872. En við vitum ekki hvernig þær breiddust út eða af hverju þær komu nákvæmlega. Það eru þessir hlutir sem við erum að skoða núna, en til þess þarf að hafa réttu tækin og góða vitneskju um hvernig hafsbotninn lítur út,“ segir hún. Mikil jarðskjálftavá á Norðurlandi Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvár á Veðurstofu Íslands, segir margt geta valdið flóðbylgjum í kjölfar stórskjálfta, s.s. skriður úr fjöll- um eða neðansjávarskriður. Aðspurð segir hún sérfræðinga þurfa að skoða nánar nokkra staði fyrir norðan með tilliti til flóðbylgjuhættu í kjölfar jarðskjálfta. „Það er mikilvægt að það sé unnið vel og af yfirvegun,“ segir hún, en að sögn Kristínar er mikilvægt að íbúar á jarðskjálftasvæðum séu með- vitaðir um hættuna og kynni sér viðbrögð við jarðskjálfta, en ekki síst ýmsar gagnlegar varnir og viðbúnað sem Almannavarnadeild ríkislög- reglustjóra mælir með. Þörf á frekari skoðun FLÓÐBYLGJUHÆTTA Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Suðurlandsskjálfti Mikið tjón getur orðið í skjálftum, en árið 2008 varð skjálfti upp á 6,3 stig á Suðurlandi með tilheyrandi tjóni á mannvirkjum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.