Morgunblaðið - 25.05.2019, Síða 29
AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11 á degi barnsins. Prestur
er Guðmundur Guðmundsson. Börn
lesa bænir. Hin tólf ára gamla Ylfa
Marín Kristinsdóttir syngur einsöng.
Sönghópurinn Synkópa syngur. Org-
anisti er Sigrún Magna Þórsteins-
dóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta
og ferming kl. 11. Sr. Petrína Mjöll
Jóhannesdóttir þjónar. Kór Árbæjar-
kirkju syngur undir stjórn Krisztinu
Kalló Szklenár. Kaffi eftir stundina.
Uppstigningadagur. Dagur aldraðra í
kirkjunni. Hátíðarguðsþjónusta kl.
14. Sr. Kristín Pálsdóttir prédikar og
sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjón-
ar fyrir altari. Kór Árbæjarkirkju syng-
ur undir stjórn Krisztinu Kalló Szklen-
ár organista. Strætókórinn kemur í
heimsókn. Handavinnusýning og há-
tíðarkaffi í boði Soroptimista.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sigurður
Jónsson sóknarprestur prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt Kristnýju
Rós Gústafsdóttur djákna. Kór Ás-
kirkju syngur. Organisti Bjartur Logi
Guðnason. Kaffi eftir messu.
Uppstigningardagur. Sameiginleg
guðsþjónusta Ás- og Laugarnessafn-
aða í Laugarneskirkju kl. 14. Séra
Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari
og séra Sigurður Jónsson prédikar.
Kór Áskirkju syngur. Organisti Bjartur
Logi Guðnason. Veglegar kaffiveit-
ingar eftir guðsþjónustu.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl.
11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir
stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra.
Prestur er Kjartan Jónsson. Hressing
og samfélag á eftir.
BESSASTAÐAKIRKJA | Píla-
grímamessa kl. 11. Árni Heiðar
organisti leiðir söng, sr. Axel Árna-
son Njarðvík prédikar. Margrét
djákni, Margrét Eggertsdóttir, Baldur
Hans, Heiðrún Jensdóttir og sr. Hans
Guðberg leiða stundina.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Magnús Björn Björnsson
þjónar. Kór Breiðholtskirkju syngur,
organisti er Örn Magnússon.
BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Séra Eva Björk Valdimars-
dóttir messar. Félagar úr Kór Bú-
staðakirkju syngja undir stjórn Jón-
asar Þóris. Messuþjónar aðstoða.
Heitt á könnunni eftir stundina.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur Bára Friðriksdóttir. Organisti
Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Almenn-
ur söngur. Veitingar í safnaðarsal að
messu lokinni.
Dómkirkja Krists konungs,
Landakoti | Messa á sunnud. kl.
8.30 á pólsku, kl. 10.30 á íslensku,
kl. 13 á pólsku og kl. 18 á ensku.
Virka daga kl. 18, og má. mi. og fö.
kl. 8, lau. kl. 16 er vigilmessa á
spænsku og kl. 18 er vigilmessa.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11.
Prestur Elínborg Sturludóttir, Kári
Þormar dómorganisti og Dómkór-
inn. Prestsvígsla kl. 14. Biskup Ís-
lands vígir Ingu Harðardóttur guð-
fræðing til prests.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Guðmundur Karl
Ágústsson þjónar og predikar. Kór
kirkjunnar syngur undir stjórn Arn-
hildar Valgarðsdóttur organista.
Meðhjálpari Kristín Ingólfsdóttir.
Kaffi eftir stundina.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Minn-
ingarguðsþjónusta kl. 14 vegna
þeirra sem látist hafa úr alnæmi
hér á landi. Sr. Hjörtur Magni Jó-
hannesson leiðir guðsþjónustuna.
Framkvæmdastjóri HIV-Ísland, Einar
Þór Jónsson, flytur ávarp. Dr. Jón
Ingvar Kvaran flytur hugleiðingu.
Ritningarlestur verður í höndum fé-
lagsmanna. Margrét J. Pálmadóttir
og söngfuglar. Veitingar í Safn-
aðarheimili að lokinni messu.
GLERÁRKIRKJA | Laugardagur
25. maí. Fermingarmessa kl. 11.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson og sr.
Stefanía G. Steinsdóttir þjóna. Kór
Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn
Valmars Väljaots organista.
Sunnudagur 26. maí. Messa kl.
11. Sr. Gunnlaugur Garðarsson
þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng
undir stjórn Valmar Väljaots org-
anista.
GRAFARVOGSKIRKJA | Siglfirð-
ingamessa klukkan 14. Sr. Vigfús
Þór Árnason og sr. Kjartan Örn
Sigurbjörnsson þjóna fyrir altari.
Um ritningarlestra sjá sr. Arnfríður
Guðmundsdóttir og Hólmfríður
Ólafsdóttir djákni. Jóhann Heiðar
Jóhannsson læknir heldur ræðu.
Um bænalestur sjá Hermann Jón-
asson, Jónas Skúlason og Margrét
Birgisdóttir.
Kór Grafarvogskirkju syngur og
Hlöðver Sigurðsson og Þorsteinn
Sigurðsson sjá um einsöng. Org-
anisti er Hákon Leifsson. Meðhjálp-
ari er Hermann Jónasson.
GRENSÁSKIRKJA | Messa kl. 11.
Antonía Hevesi organisti og María
Ágústsdóttir, settur sóknarprestur,
þjóna ásamt félögum úr messuhópi
og Kirkjukór Grensáskirkju. Sam-
skot renna til samtakanna Öruggt
skjól, sem styðja munaðarlaus
börn og einstæðinga í Sýrlandi.
Reikningur samtakanna: kt.
610319-1490, banki 0133-26-
200062. Þriðjudaginn 28. maí kl.
12 er síðasta kyrrðar- og fyrirbæna-
stund starfsársins. Á uppstigningar-
dag, 30. maí, er guðsþjónusta kl.
11. Kaffiveitingar í boði safnaðar-
ins.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti
| Guðsþjónusta kl. 11. Prestur er
Leifur Ragnar Jónsson. Organisti er
Hrönn Helgadóttir og kór Guðríð-
arkirkju syngur. Kirkjuvörður er
Lovísa Guðmundsdóttir.
HAFNARFJARÐARKIRKJA |
Kirkjuganga á Helgafell. Lagt af
stað frá Hafnarfjarðarkirkju kl. 11.
Leiðsögn og fróðleikur um jarðfræði
og staðhætti. Bænagjörð og íhug-
un. Hressing.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl.
11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir pré-
dikar og þjónar fyrir altari. Messu-
þjónar aðstoða. Organisti er Guð-
mundur Sigurðsson. Mótettukór
Hallgrímskirkju syngur. Kaffisopi
eftir messu. Messa á ensku kl.
14. Sr. Bjarni Þór Bjarnason mess-
ar. Organisti er Guðmundur Sig-
urðsson. Kaffisopi eftir messu.
HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Kór Ísaks-
skóla syngur undir stjórn Sunnu
Karenar Einarsdóttur og fiðlusveit
Allegro tónlistarskólans í Reykjavík
leikur undir stjórn Gróu Margrétar
Valdimarsdóttur. Almennur söngur.
Organisti er Guðný Einarsdóttir.
Prestur er Helga Soffía Konráðs-
dóttir. Grillað í garði kirkjunnar að
guðsþjónustu lokinni.
HJALLAKIRKJA Kópavogi |
Helgistund kl. 11. Kór Hjallakirkju
leiðir söng undir stjórn Láru Bryn-
dísar Eggertsdóttur organista.
Prestur er Sunna Dóra Möller. Á
eftir verður safnaðarfundur þar
sem fólki gefst kostur á framboði í
kjörnefnd Hjallakirkju til næstu
fjögurra ára.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíla-
delfía | Samkoma kl. 11. Transla-
tion into English. Samkoma á
spænsku kl. 13. Reuniónes en
español. Samkoma á ensku kl.
14. English speaking service.
Lofgjörðarkvöld Fíló+ kl. 20.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam-
koma kl. 13 með lofgjörð, vitn-
isburðum og fyrirbænum. Halldóra
L. Ásgeirsdóttir predikar. Kaffi á
eftir.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 20. Vox Felix syngur undir
stjórn Arnórs Vilbergssonar. Sr.
Erla Guðmundsdóttir þjónar.
Fimmtudagur
30. maí. Guðsþjónusta kl. 14. Eld-
ey, kór eldri borgara á Suð-
urnesjum, syngur undir stjórn Arn-
órs Vilbergssonar. Prestur er Erla
Guðmundsdóttir. Kaffi og meðlæti
í Kirkjulundi að lokinni guðsþjón-
ustu. Vortónleikar Eldeyjar í Kirkju-
lundi kl. 17.
KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson
prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Kópavogskirkju syngur undir stjórn
Lenku Mátéová, kantors kirkjunnar.
LANGHOLTSKIRKJA | Vorhátíðar-
messa kl. 11. Graduale Nobili
syngur við messuna, stjórnandi er
Þorvaldur Örn Davíðsson, organisti
er Magnús Ragnarsson. Guðbjörg
Jóhannesdóttir þjónar. Að lokinni
messu er vormarkaður kvenfélags-
ins. Allur ágóði rennur til styrktar
Langholtskirkju og góðgerðarmála.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl.
11. Kór Laugarneskirkju og Harry
Ensemble frá Englandi. Sr. Davíð
Þór Jónsson þjónar fyrir altari og
prédikar. Kaffi og samvera á eftir.
Helgistund kl. 13 í Betri stofunni,
Hátúni 12 með sr. Davíð Þór og
Arngerði.
Uppstigningardagur. Eldri borgara
guðsþjónusta kl. 14. Ekkó kórinn
og Anna Sigga. Sr. Davíð Þór Jóns-
son þjónar fyrir altari. Sr. Sigurður
Jónsson prédikar. Kaffi og samvera
á eftir. Helgistund kl. 16 í Hásaln-
um Hátúni 10 með sr. Hjalta Jóni
og sr. Davíð Þór.
LINDAKIRKJA í Kópavogi |
Sunnudagaskóli kl. 11. Tónleikar
með kór Lindakirkju Kl. 20. Sér-
stakur gestur er Stefán Hilm-
arsson, aðrir einsöngvarar úr röð-
um kórfélaga. Óskar Einarsson
stjórnar kór og hljómsveit. Hljóm-
sveitina skipa auk Óskars á píanó
Páll Pálsson á bassa, Brynjólfur
Snorrason á trommur og Pétur
Erlendsson á gítar. Hljóðblöndun
Hrannar Kristjánsson. Sr. Guð-
mundur Karl Brynjarsson leiðir
stundina. Aðgangur ókeypis.
MOSFELLSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 14 í samvinnu við Hesta-
mannafélagið Hörð og verður hóp-
reið frá Tungubökkum. Margrét
Dögg Halldórsdóttir búfræðingur
flytur hugvekju, karlakórinn Stefnir
syngur undir stjórn Þórðar Sigurð-
arsonar organista. Kirkjuvörður er
Hildur Salvör Backman. Sr. Arndís
Linn leiðir helgihald.
NESKIRKJA | Messa kl. 11. Fé-
lagar úr Kór Neskirkju leiða safn-
aðarsöng. Organisti Steingrímur
Þórhallsson. Kaffisopi og sam-
félag. Aðalfundur Nessóknar eftir
messu. Venjuleg aðalfundarstörf.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Djass-
messa kl. 14. Séra Pétur þjónar
fyrir altari. Messugutti Petra Jóns-
dóttir. Kór safnaðarins undir stjórn
Kristjáns Hrannars. Ólafur Kristjáns
tekur á móti kirkjugestum.
SALT kristið samfélag | Sameig-
inlegar samkomur Salts og SÍK kl.
17 alla sunnudaga í Kristniboðs-
salnum Háaleitisbraut 58-60, 3.
hæð. Ræðuserían Ávextir: Ljós í
myrkri. Ræðumaður: Guðlaugur
Gunnarsson. Barnastarf. Túlkað á
ensku.
SELTJARNARNESKIRKJA |
Fræðslumorgunn kl. 10. Hlutverk
Skálholts. Kristján Björnsson,
vígslubiskup í Skálholti, talar.
Guðsþjónusta með léttu ívafi kl.
11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjón-
ar. Friðrik Vignir Stefánsson er org-
anisti. Eygló Rúnarsdóttir leiðir al-
mennan safnaðarsöng. Veitingar og
samfélag eftir athöfn í safn-
aðarheimilinu.
VÍDALÍNSKIRKJA | Íhugunar-
messa kl. 11. Sr. Henning Emil
Magnússon og Bylgja Dís Gunn-
arsdóttir söngkona leiða stundina.
Jóhann Baldvinsson organisti og
Kór Vídalínskirkju leiða söng og
tónlistarflutning. Áhersla á kyrrð og
einfaldleika. Kyrrðarbæn iðkuð,
orðið íhugað og einfaldir söngvar
sungnir.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði
| Guðsþjónusta kl. 11. Kór Víði-
staðasóknar syngur undir stjórn
Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur og
sóknarprestur þjónar með aðstoð
messuþjóna kirkjunnar. Hressing í
safnaðarsal að guðsþjónustu
lokinni.
Orð dagsins:
Biðjið í Jesú nafni.
(Jóh. 16)
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonEgilsstaðakirkja
MESSUR 29Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019
Dagurinn í
dag, 25. maí, er
helgaður
skjaldkirtlinum
og hefur svo
verið frá árinu
2008. Þetta er
því í tólfta
skipti sem
þessi dagur er
tileinkaður
þessu mikilvæga líffæri. Það
voru Evrópusamtök um
skjaldkirtilssjúkdóma sem
með amerísku systursamtök-
unum stóðu að því að minna á
skjaldkirtilinn og þá sjúkdóma
sem honum tengjast með al-
þjóðlegum degi. Tilgangur
þess að helga þennan dag
sjaldkirtlinum er að þakka öll-
um þeim sem lagt hafa sitt af
mörkum til að auka þekkingu
lækna og almennings á sjúk-
dómnum, með fræðslustarfi,
rannsóknum og ekki síst þeim
sem styðja við slíkt starf með
fjárframlögum. Ekki er síður
mikilvægt að dagurinn sé not-
aður til að stuðla að aukinni
fræðslu um sjúkdóma þá sem
hrjáð geta skjaldkirtilinn en
líkur er til þess að nokkur
fjöldi Íslendinga hafi þá án
þess að vita til þess. Þannig er
fólk hvatt til að láta athuga
hvort það geti verið með veik-
an skjaldkirtil sé minnsti
grunur um slíkt – en einkenni
geta verið óljós.
Ég var svo heppinn að vera
hjá heimilislækni sem upp-
götvaði líklega fljótt að ég var
með vanvirkan skjaldkirtil og
eru nú yfir 20 ár síðan það kom
í ljós. Ýmislegt bendir til að ég
hafi verið með sjúkdóminn um
nokkra hríð áður en ég fór til
læknis til að láta athuga hvað
verið gæti að mér. Einkenni
vanvirks skjaldkirtils eru í
mörgum tilfellum svo óljós að
erfitt er fyrir leikmenn að átta
sig á því hvað að getur verið.
Auk þess hefur fræðsla og
upplýsingagjöf verið takmörk-
uð um eðli þessa sjúkdóms og
einkenni hans. Að hluta til er
það vegna þess að talið er að
rekja megi allt að 300 einkenni
til sjúkdómsins og gerir það
greininguna ekki auðveldari.
Þegar ég greindist var ekki
hægt að fara á netið til að
kanna við hvaða sjúkdóm ein-
kennin pössuðu eins og nú er –
kannski sem betur fer því
stundum virðast villukenn-
ingar breiðast út með ógnar-
hraða hvað varðar sjúkdóma
og einkenni þeirra eins og um
aðra hluti. Því skyldi aðeins
láta lækna, sem best þekkja
til, um greiningu og meðferð.
Skjaldkirtillinn er gríðar-
lega mikilvægur kirtill sem
framleiðir hormón sem líkam-
anum er nauðsynlegt til þess
að starfa með eðlilegum hætti.
Hann er staðsettur neðarlega
á hálsinum og er líkur fiðrildi
að lögun. Skjaldkirtillinn
framleiðir hormón, T4 týrósín
og T3 þríjoðtýróníni, sem skilj-
ast út í blóðið og berast þaðan
um allan líkamann. Hormónin
stuðla að eðlilegri nýtingu
orku í líkamanum, viðhaldi
rétts hitastigs auk þess að
gera heila, hjartavöðvanum,
öðrum vöðvum og líffærum
kleift að starfa rétt. Starfi
skjaldkirtillinn ekki rétt getur
það því haft alvarlegar afleið-
ingar komi það ekki í ljós
þannig að hægt sé að bregðast
við. Því er mikilvægt að bregð-
ast við og láta kanna magn
skjaldkirtilshormóna í blóði sé
nokkur grunur
um að skjaldkirt-
illinn starfi ekki
eðlilega. Skjald-
kirtillinn getur
verið vanvirkur,
framleiðir of lítið
af hormónum, eða
ofvirkur, fram-
leiðir of mikið af
hormónum. Ein-
kenni vanvirks
skjaldkirtils geta
verið kulvísi,
minnkuð matarlyst, þyngd-
araukning, harðlífi, þurr og
hrjúf húð, hás og djúp rödd,
hárþynning auk þess sem
minnisleysi er algengur fylgi-
kvilli vanvirks skjaldkirtils.
Einkenni ofvirks skjaldkirtils
eru á hinn bóginn eirðarleysi,
hitatilfinning og hjartsláttur
sem og þyngdartap, þrátt fyrir
aukna matarlyst.
Séu einhver þessara ein-
kenna fyrir hendi er rétt að
láta kanna hvort um geti verið
að ræða vanvirkan skjaldkirtil.
Það þarf aðeins blóðprufu til
að skera úr um það og sé sjúk-
dómurinn fyrir hendi fást lyf
við því sem flestum gagnast
býsna vel. Nokkurn tíma getur
tekið að finna rétt magn
lyfjanna en þegar það tekst er
líðan oft sæmileg.
Hér á landi er starfandi fé-
lagið Skjöldur, félag um
skjaldkirtilssjúkdóma sem
hefur þanni tilgang að upplýsa
um sjúkdóma skjaldkirtilsins
sem og að gæta hagsmuna
þeirra sem sjúkdómana hafa.
Þannig er dagur skjaldkirtils-
ins notaður hér sem víða ann-
ars staðar til að hvetja til
reglubundinna athugana á
skjaldkirtlinum, auka fræðslu
og vitneskju almennings um
skjaldkirtilinn ásamt því að
ýta undir aðgerðir sem geta
komið í veg fyrir alvarleg áhrif
ógreinds skjaldkirtilssjúk-
dóms. Síðast en ekki síst er
dagurinn notaður til að hvetja
til aukinna rannsókna sem
aukið geta skilning okkar á
sjúkdómunum. Í tilefni skjald-
kirtilsdagsins 2019 gefur fé-
lagið út upplýsingabækling
um sjúkdómana og mun dreifa
honum á næstu dögum, auk
þess verður kaffihúsahittingur
þar sem félagsmenn geta hist
og borið saman bækur sínar
sem og fyrirlestur í Safnaðar-
heimili Seljakirkju kl. 13 á
laugardaginn, 25. maí, sem er
skjaldkirtilsdagurinn. Þar
mun athafnamaðurinn Róbert
Guðfinnsson flytja erindi um
sjúkdómana en hann er einn
margra sem eiga við sjúkdóma
í skjaldkirtli að etja og hvet ég
þá sem áhuga hafa á málefninu
að koma þangað til að hlusta.
Þeim sem áhuga hafa á að ger-
ast félagar er bent á að fara á
síðuna www.skjaldkirtill.is en
þar er hægt að skrá sig í
félagið.
Dagur skjald-
kirtilsins – hvað
er nú það?
Eftir Árna
Helgason
» 25. maí er helg-
aður skjald-
kirtlinum. Tilgang-
urinn er að þakka
þeim sem auka
þekkingu og að
stuðla að aukinni
fræðslu um sjúk-
dóma skjald-
kirtilsins.
Árni Helgason
Höfundur er fasteignasali og
ritari stjórnar Skjaldar –
félags um skjaldkirtils-
sjúkdóma.
arni.helgason@ferska.com
á morgun