Morgunblaðið - 25.05.2019, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.05.2019, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019 ✝ Ársæll Egilssonfæddist á Steinanesi í Arnar- firði 2. september 1931. Hann lést á Landspítalanum Fossvogi 18. maí 2019. Foreldrar hans voru Egill Svein- björnsson, f. 13. desember 1900, d. 2. ágúst 1967, og Svava Sölvadóttir, f. 31. október 1909, d. 12. nóvember 1993. Systkini Ársæls eru Ingi Rafn, f. 1944, d. 2001, Hulda Bárðdís, f. 1946, Pálína Sólbjört, f. 1947, Sölvi Mikael, f. 1950, og Svein- björn Valgeir, f. 1954. Eiginkona Ársæls var Jó- hanna Helga Guðmundsdóttir, frá Innstu-Tungu í Tálknafirði, f. 12. febrúar 1932, d. 26. janúar 2017. Foreldrar hennar voru Guðmundur Guðmundsson, f. 10.10. 1900, d. 21.8. 1973, og Kristín Magnúsdóttir, f. 11.11. 1902, d. 25.9. 1967. Ársæll og Jó- hanna hófu búskap á Bíldudal 1954 en fluttu til Tálknafjarðar 1. janúar 1960, þar sem þau bjuggu upp frá því. Börn Ársæls og Jóhönnu eru: 1) Kristín Guðmunda, f. 1953, maki Njáll Torfason, f. 1950. Börn: Einar og Jóhanna. 2) Hrefna, f. 1954. Börn: Máni, Nökkvi, Iðunn og Ingimar. 3) Níels Adolf, f. 1959, maki Sigur- hf., á fyrsta Tálknfirðingi BA-325, síðar á Sæúlfi BA-75 þar til hann fórst á síldveiðum fyrir Austurlandi 25. nóvember 1966. Ársæll var um tíma skip- stjóri á Jörundi 3, RE-300 og tók næst við nýjum Tálknfirðingi BA-325, sem smíðaður var í Nor- egi 1968 og var með hann fram á vertíðarlok 1974. Árið 1974 stofnuðu Ársæll og Bjarni Andrésson ásamt eiginkonum á Tálknafirði útgerðarfélagið Tálkna hf. og keyptu fyrst Sléttanes ÍS-710 frá Þingeyri og hlaut skipið nafnið Sölvi Bjarna- son BA-65. Því næst keypti út- gerðin a-þýskan tappatogara sem hlaut nafnið Frigg BA-4. Tálkni hf. lét smíða 500 tonna fjölveiðiskip hjá skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts hf., sem hleypt var af stokkunum á Akra- nesi 1980. Ársæll var skipstjóri á skipum útgerðarinnar þar til fé- lagið hætti rekstri 1985. Eftir það gerði Ársæll út á línu og handfæri frá Tálknafirði þrjá smábáta sem allir fengu nafnið Frigg BA-4, árin 1984-1996, en starfaði eftir það sem hafnar- vörður á Tálknafirði. Ársæll útskrifaðist frá Stýri- mannaskólanum á Ísafirði 1958 með hið minna fiskimannapróf sem veitti 120 tonna réttindi og frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík 1966 með 2. stigs skipstjórnarpróf sem veitti ótak- mörkuð skipstjórnarréttindi á fiskiskipum. Útför Ársæls verður gerð frá Tálknafjarðarkirkju í dag, 25. maí 2019, klukkan 14. laug Guðmunds- dóttir, f. 1962. Börn: Arnar Geir, Ársæll, Egill, Guð- mundur og Styrm- ir. 4) Tryggvi, f. 1965, maki Eyrún Ingibjörg Sigþórs- dóttir, f. 1966. Börn: Birna Rán, Sæþór, Helga Krist- ín, Hafrún og Rut. 5) Hlynur, f. 1970, maki Hallveig Guðný Guðna- dóttir, f. 1967, dætur Hlyns eru Helena Hekla, Svava og Elísa. Barnabörn Ársæls og Jóhönnu Helgu eru 19 og barnabarna- börn eru 19. Ársæll gekk í Barnaskólann á Bíldudal en hóf sjóróðra eftir fermingu með móðurbræðrum sínum Eleseusi og Páli, fyrst á árabáti með legulóðir í Arnar- firði, síðan á Steinbjörgu BA-273, sex tonna dekkuðum súðbyrðingi. Með mági sínum Níelsi Adolf Guðmundssyni gerði hann út Odda BA-304, fimm tonna opinn bát, en reri einnig á handfærum eitt sumar með mági sínum Magnúsi Kr. Guðmundssyni á Þresti BA-149, 12 tonna báti frá Tálknafirði. Ársæll varð fyrst skipstjóri á Frigg BA-4 og svo á Geysi BA-140, sem voru í eigu Fisk- vinnslunnar á Bíldudal. 1. janúar 1960 tók hann við skipstjórn hjá Hraðfrystihúsi Tálknafjarðar Yfir úfna og ygglda dröfn alvalds höndin leiði skip og skipshöfn heil í höfn hættum frá þeim greiði. (Úr Leiðsögn á vegi trúarinnar eftir Karl Sigurbjörnsson) Tengdafaðir minn Ársæll Egilsson á langan og farsælan feril að baki sem sjómaður og skipstjóri, hann byrjaði ungur að sækja sjóinn og sjómennska honum í blóð borin. Á hans ferli urðu miklar breytingar á skipa- kosti landsmanna og tækninýj- ungar flæddu yfir. Mér er til efs að nokkur kynslóð muni upplifa aðrar eins breytingar til sjós og lands eins og sú sem Ársæll tilheyrði. Mér er minnisstætt símtal fyrir um 20 árum þar sem hann hringdi heim til okkar Tryggva og spurði af hverju báturinn okkar Sæli BA væri ekki í róðri, það væri blíða um allan sjó. Ég varð fyrir svörum og sagði honum að tölvan um borð væri biluð, hann átti nú ekki orð yfir aðra eins vitleysu, hann hefði nú ekki þurft annað en kompás til að fara í róður. Það er ekki langt síðan ég spurði Ársæl hvað stæði upp úr þegar hann horfði til baka yfir skipstjórnarferil sinn. Hann hugsaði sig ekki lengi um og sagði: „Það að hafa aldrei misst mann, ég skilaði alltaf allri minni áhöfn í land.“ Mér finnst þessi orð lýsa honum vel. Hann var hlýr persónuleiki og alveg einstaklega skemmtilegur mað- ur, hávær á stundum og rödd hans barst vel. Hann var eft- irminnilegur öllum sem hann hittu. Í störfum mínum á veg- um Hafnasambands Íslands fór ég víða um land og hvar sem ég kom þekktu margir Sæla og höfðu sögu að segja, sérstak- lega þeir sem höfðu kynnst honum í gegnum sjómennsk- una. Einn sagði mér frá síld- arárunum og því þegar Sæli kallaði skipanir til sinna manna úr brúarglugganum, þá hlýddu hásetar á næstu 12 bátum í kring! Ársæll hafði einstaklega gaman af því að spila og þegar hann var að vinna var hann al- gerlega óþolandi, nuddaði þeim sem var að tapa upp úr ósigr- inum og hló mikið. En þegar hann var að tapa kom á hann skeifa og oft sagði hann; hann hlýtur að spá stormi. Ég á endalausar minningar um hann tengdapabba minn sem ég var svo heppin að eign- ast. Hann og Hanna tengda- mamma reyndust mér og minni fjölskyldu vel og ég bar ómælda virðingu fyrir þeim. Enda má segja að þau hafi að hluta til alið mig upp, þar sem ég var 18 ára stelpuskott þegar ég kom inn í fjölskyldu þeirra. Ég verð þeim eilíflega þakklát fyrir samfylgdina öll þessi ár. Ég mun varðveita þessar minn- ingar og við fjölskyldan rifja upp samskipti og samtal, hlæja og gráta. Á þessum tímamótum þykir mér óendanlega vænt um að við fjölskyldan og Ársæll skyldum eyða síðustu jólunum á Tálknafirði þar sem við áttum góðar stundir saman. Blessuð sé minning míns ást- kæra og skemmtilega tengda- föður. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir. Ársæll Egilsson ✝ Sigríður Laufey Guð- mundsdóttir fædd- ist á Siglufirði 27. apríl 1928. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 23. mars 2019. Foreldrar henn- ar voru Guðmund- ur Sigurðsson, kennari, síldar- matsmaður og bú- fræðingur, f. 25. mars 1871 á Hesteyri, d. 1. febrúar 1951, og Pálína Ástríður Hannesdóttir húsfreyja, f. 1. nóvember 1883 í Aðalvík, d. 7. mars 1965. Sigríður giftist Daníel Daní- elssyni frá Bjargshóli í Miðfirði 25. júní 1949. Daníel lést 5. febr- úar 1997. Börn þeirra eru: 1) Ásgeir Guðmundur, f. 11.9. 1949, hagfræðingur. 2) Jórunn, f. 23.3. 1951, sjúkraliði. 3) Daníel Ágúst, f. 14.8. 1954, gestalt- meðferðarfulltrúi. 4) Áslaug Helga, f. 21.8. 1958, kennari. Sigríður varð stúdent frá Mennta- skólanum á Akureyri árið 1947. Næstu þrjá áratugi þar á eftir var hún húsfreyja en þá tók við nám í Handíða- og myndlistaskólanum og sjálfstætt starf við listsköpun, leirkerasmíði og vefnað. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk Sigríðar. Mamma var langyngsta barn foreldra sinna. Þegar hún fæddist voru fyrir fjögur al- systkini og ein hálfsystir, Bryn- hildur Jósefsdóttir. Ásgerður sem var næst mömmu í aldri var tæplega 14 ára þegar mamma fæddist. Guðmundur afi var menntað- ur kennari og mikill áhugi á bóknámi á heimilinu. Mamma varð læs snemma og fyrir þrá- beiðni hennar fékk hún að byrja í skóla sex ára gömul. Hún reyndist hafa góðar náms- gáfur og lauk stúdentsprófi 1947, nýorðin 19 ára. Fjórar stúlkur útskrifuðust frá mála- deild Menntaskólans á Akur- eyri þetta árið. Heimsstyrjöldinni var nýlok- ið og kjörinn tími til að láta sig dreyma um glæsta framtíð. En það var ekki auðvelt að láta drauma sína rætast á þessum árum. Tveimur árum síðar giftist hún samstúdent sínum, Daníel Daníelssyni, og verður ófrísk að fyrsta barninu af fjórum. Á sama tíma dynja áföllin yfir. Ásgerður lést 1. janúar 1949 og Jórunn rúmu ári síðar, 25. sept- ember 1950. Báðar á fimmtugs- aldri. Elsti bróðirinn, Guð- mundur Páll, lést nokkru áður, 15. desember 1940, tæplega fertugur, úr veikindum sem urðu læknanleg nokkrum árum síðar þegar byrjað var að fram- leiða sýklalyf. Af fimm alsyst- kinum voru það bara Hannes og mamma sem urðu gömul. Fráfall systkinanna hlýtur að hafa verið mikið áfall fyrir mömmu en þau mál ræddi hún aldrei. Næstu ár voru mikið basl og sífelldir flutningar. Við þurftum að vera í Reykjavík (reyndar oftast á Seltjarnarnesi) á vet- urna þar sem pabbi var í námi og á Siglufirði á sumrin þar sem nóg var um atvinnu og Pálína amma bauð upp á ókeypis húsnæði. Þeim hefði aldrei tekist þetta ef ekki hefði komið til mikill stuðningur frá systkinum og þær kjarabætur sem stríðið hafði fært þessum útkjálka sem Ísland var á þess- um tíma. Þegar pabbi hafði lokið nám- inu var haldið til Siglufjarðar og skömmu síðar til Húsavíkur þar sem pabbi var bæði héraðs- læknir og sjúkrahúslæknir í héraði sem nú er þjónað af mörgum læknum. Vinnuálagið var gífurlegt og eðlilegt að mamma kvartaði. Mamma rækti húsmóður- skyldurnar af samviskusemi en ég held að hún hafi aldrei haft mikinn áhuga á þeim. Hennar helsta áhugamál á þessum tíma var hannyrðir. Þegar hún er orðin fimmtug, börnin flutt að heiman og hún komin til Reykjavíkur sótti hún um skólavist í Handíða- og mynd- listaskólanum. Þar ætlaði hún að læra vefnað og hannyrðir. Í skólanum voru nemendur látnir prófa allar listgreinar en ekki bara þær sem þeir ætluðu að sérhæfa sig í. Þannig kynntist mamma leirkerasmíði og heill- aðist. Næstu árin vann hún myrkr- anna á milli við leirkerasmíði og lagði stóra húsið við Há- teigsveg 16 undir starfsemina, ekki bara bílskúrinn eins og fyrst heldur allt risið líka. Hún sótti námskeið erlendis og próf- aði sig áfram með efni og form. Hún tók einu sinni þátt í sam- sýningu og hélt eina einkasýn- ingu haustið 1987. Hún ætlaði að halda fleiri sýningar en hætti við. Hún hélt áfram af kappi að búa til fallega leir- muni. En það var enginn sem sinnti kynningarstarfinu, hvorki fyrir listmunina né lista- manninn. Ásgeir G. Daníelsson. Sigríður Laufey Guðmundsdóttir Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Minningargreinar Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÆMUNDUR REIMAR GUNNARSSON, lést þriðjudaginn 7. maí. Útförin fer fram frá Garðakirkju í Görðum á Álftanesi föstudaginn 31. maí klukkan 11. Þórunn Jónsdóttir börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN Þ. GUÐMUNDSSON, prófessor emeritus við lagadeild Háskóla Íslands, verður jarðsunginn frá Neskirkju við Hagatorg mánudaginn 27. maí klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Amnesty International. Þórunn Bragadóttir Guðmundur Björnsson Hekla Valsdóttir Bragi Björnsson Ragna Björk Ragnarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær mamma okkar, GUÐRÚN FJÓLA GUÐBJÖRNSDÓTTIR leikskólakennari, lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeildinni í Kópavogi. Útför hennar fer fram frá Víðistaðakirkju miðvikudaginn 29. maí klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið. Arnar Snær Hilmarsson Inga Lilja Hilmarsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÓLAFÍA KRISTRÚN HARALDSDÓTTIR, lést sunnudaginn 19. maí á líknardeild Landspítalans. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 29. maí klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið. Aðstandendur Okkar ástkæri ÆVAR S. INGÓLFSSON vélstjóri lést þriðjudaginn 21. maí á Hrafnistu. Útför hans verður gerð frá Grafarvogskirkju mánudaginn 27. maí klukkan 11. Þórir Ómar Óskar Ragnar fjölskyldur og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.