Morgunblaðið - 25.05.2019, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.05.2019, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019 ✝ Ragna KristínKarlsdóttir fæddist 3. mars 1928 í Garði á Ólafsfirði. Hún lést á hjúkrunar- heimilinu Horn- brekku Ólafsfirði 12. maí 2019. Foreldrar Rögnu voru Karl Guðvarðarson, f. 20.9. 1887, d. 24.3. 1967, og Sólveig Rögnvalds- dóttir, f. 11.2. 1889, d. 15.7. 1958. Ragna var yngst sjö syst- kina og eru þau nú öll látin. Systkin hennar voru Aðal- Hulda Gerður Reykjalín, maki Aðalsteinn Gunnar Friðþjófsson. Þau eiga þrjár dætur, átta barnabörn og tvö barnabarnabörn. 2) Magnús Símon Reykjalín, maki Sylvía Putta. Magnús á þrjú börn og níu barnabörn. 3) Hólm- fríður Sólveig Reykjalín, maki Gísli Heiðar Jóhanns- son. Þau eiga fjögur börn, 11 barnabörn og þrjú barna- barnabörn. 4) Helena Reykja- lín, maki Vilhjálmur Sigurðs- son. Þau eiga þrjú börn og átta barnabörn. 5) Rögnvald- ur Karl, maki Björg Trausta- dóttir. Þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn. 6) Harpa Hlín, maki Magnús Rúnar Ágústsson. Þau eiga þrjú börn. Útför Rögnu Kristínar fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju í dag, 25. maí 2019, og hefst athöfnin klukkan 14. heiður, Óskar, Ísól, Kristinn, Fjólmundur og Guðlaug Rósa. Eiginmaður Rögnu var Jón Stefán Reykjalín Magnússon frá Grímsey, f. 6.10. 1926, d. 18.11. 2012. Foreldrar Jóns voru hjónin Magnús Stefán Símonarson, d. 1969, og Sig- gerður Bjarnadóttir, d. 1993. Þau eignuðust sjö börn sem öll eru látin nema Bjarni Reykja- lín, f. 1930 og býr í Grímsey. Börn Jóns og Rögnu eru: 1) Ömmu þótti svo gaman að ferðast. Hún og afi fóru margar ferðir saman, innan- jafnt sem utanlands. Þegar amma varð ekkja hélt hún áfram að ferðast, skaut laumulega að sínum nánustu að þeir væru velkomnir með en ef enginn tók undir það fór hún bara ein. Ég dáðist að þessari hörku í henni að hafa kjarkinn til að fylgja eftir draumum sínum því sumar áhyggjuraddir töldu að best væri heima setið á þessum aldri. Hún undirbjó sig vel fyrir hverja ferð, pakkaði niður, tók upp úr töskunni og pakkaði aft- ur niður og eftir nokkur svona skipti var taskan klár. Amma kom svo með fulla tösku af föt- um til baka því hún náði að prútta svo vel þarna úti og svo átti hún fullt í fangi með að nota allt það sem hún keypti. Svo kom að því að amma bók- aði sig í sína hinstu ferð, til- kynnti okkur ættingjunum að hún væri tilbúin að fara og svo hófst biðin sem henni fannst orðin óþarflega löng. Hún var löngu búin að pakka og var sennilega betur undirbúin fyrir þessa ferð en nokkra aðra. Og svo lagði amma af stað aðfara- nótt sunnudagsins 12. maí. En það sem var öðruvísi við þessa ferð var að hún átti ekki far- miða til baka og það er mjög erfitt að venjast þeirri stað- reynd. Ég finn fyrir sorg og söknuði en á sama tíma minni ég mig á að amma var virkilega tilbúin að yfirgefa þetta jarðlíf og þá er ekki annað hægt en að samgleðjast henni og þakka fyrir að hafa átt hana svo lengi að. Góða ferð, elsku amma, takk fyrir allt sem þú varst og takk fyrir allt sem þú gafst mér. Linda Aðalsteinsdóttir. Ragna Kristín Karlsdóttir ✝ Hilmar PéturÞormóðsson fæddist í Reykjavík 19. mars 1942. Hann lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 10. maí 2019. Foreldrar Hilm- ars Péturs voru hjónin Steinunn Bergþóra Péturs- dóttir húsmóðir, f. á Eyrarbakka 7. október 1912, d. 20. september 2001, og Þor- eldrar hennar voru Ólafía Kristín Gísladóttir húsmóðir, f. 29. ágúst 1920, d. 23. októ- ber 2008, og Atli Már Árna- son, teiknari og listmálari, f. 17. janúar 1918, d. 9. febrúar 2006. Synir Hilmars Péturs og Bjargar eru Atli Örn, f. 20. janúar 1960, og Steinþór Óli, f. 28. apríl 1962. Börn Stein- þórs Óla eru Hilmar Ársæll, f. 31. desember 1994, og Stein- unn Helga, f. 5. september 2002. Móðir þeirra er Hjördís Hrönn Backmann, f. 3. desem- ber 1971. Unnusta Hilmars Ársæls er Katrín Ósk Bald- vinsdóttir, f. 26. desember 1992. Útför Hilmars fór fram í kyrrþey 22. maí 2019. móður Jónasson húsgagnasmíða- meistari, f. 1. ágúst 1908, d. 3. júní 1989. Börn þeirra eru Hilm- ar Pétur, f. 19. mars 1942, Ás- geir, f. 20. sept- ember 1945, og Áslaug, f. 14. mars 1953. Eiginkona Hilmars Péturs er Björg Atla- dóttir, f. 17. mars 1942. For- Við Hilmar kynntumst í þriðja bekk Menntaskólans í Reykjavík haustið 1959 og vor- um sessunautar lengst af þar. Við urðum strax vinir og hefur sú vinátta varað í þau 60 ár sem síðan eru liðin. Vináttan við Hilmar var með einhverj- um hætti svo sjálfsögð. Hann var hnyttinn og skemmtilegur en umfram allt leyndi sér ekki umhyggjan og hlýjan sem hann sýndi mér og öðrum. Á þessum árum höfðu Hilm- ar og kona hans, Björg, þegar bundið sitt trúss saman og við útskrift voru þau komin með tvo myndarlega drengi, þá Atla og Steinþór. Aldrei heyrði ég þó æðruorð frá þeim um mikið álag og erfiði, sem hlýtur þó að hafa fylgt því að vera komin með fjölskyldu. Þau áttu líka góða að þar sem voru foreldrar þeirra, en þau bjuggu í risinu á Grettisgötu 43 hjá foreldrum Hilmars, á gestkvæmu og annáluðu rausnarheimili. Að loknu stúdentsprófi tóku Hilmar og Björg að sér kennslu og skólastjórn á Drangsnesi við Steingríms- fjörð og að því loknu kenndi Hilmar í Vestmannaeyjum í nokkra vetur. Að því búnu réðst hann til Morgunblaðsins sem prófarkalesari. Nokkru eftir dvöl þeirra á Drangsnesi tók ég við skóla- stjórn í litla skólanum þar og vorum við Kolbrún, kona mín, þar við kennslu einn vetur. Við Hilmar höfðum því um margt að spjalla þegar við minntumst veru okkar fyrir vestan og þess ágæta fólks sem þar bjó. Síðan gerðist ég kennari við barnaskólann á Stokkseyri en á útmánuðum 1970 hringdi Hilmar í mig og hvatti mig til að sækja um starf prófarkales- ara á Morgunblaðinu. Úr því varð og er mér næst að halda að Hilmar hafi sjálfur gengið frá flestu varðandi þá ráðn- ingu. Þegar breytingar urðu á fyrirkomulagi prófarkalesturs- ins gerðumst við blaðamenn í erlendum fréttum en Hilmar fór fljótlega í önnur störf, sá um Velvakanda og síðar minn- ingargreinar. Naut hann sín þar vel enda átti hann mjög auðvelt með samskipti við ann- að fólk. Veit ég að margir sem þurftu á liðsinni hans að halda minnast hans enn fyrir alúð og skilning sem hann sýndi þeim. Vorum við Hilmar samstarfs- menn á Morgunblaðinu vel á fjórða áratug. Þar tókum við þátt í göngu- hópi, gleyptum í okkur matinn í hádeginu og notuðum síðan tímann til að taka hring um Öskjuhlíð þegar við vorum í Kringlunni og síðar kringum Rauðavatn eftir að flust var í Hádegismóa. Brutu þessar göngur upp daginn og urðu til- efni alls kyns vangaveltna. Nokkrum sinnum veiddum við í Stíflisdalsvatni í boði gamals skólafélaga. Hefðu samveru- stundir okkar af þessu tagi mátt vera fleiri. Heimili Hilmars og Bjargar einkenndist af hlýleika og myndarskap og dáðist ég að handverki Hilmars þegar þau endurbættu og fegruðu gamla húsið á Kárastígnum. Hilmar var völundur og ekki skemmdi fyrir listfengi Bjargar. Alltaf var skemmtilegt að spjalla við Hilmar um þjóðmál eða annað og minnisstæð eru góð tök hans á íslensku máli. Hafði hann áhuga á tungumál- um almennt, var frábær lat- ínumaður í skóla og komst síð- ar vel niður í ítölsku. Þá hafði hann áhuga á íslenskum fræð- um og eftir að glíma hans við sjúkdóminn hófst sóttum við fyrirlestra hjá Miðaldastofu um þau efni, okkur til ánægju. Við fráfall Hilmars syrgi ég traustan vin en ég vil trúa þeim orðum höfundar Sólar- ljóða að við munum hittast aft- ur hressir og kátir á því „feg- inslandi fira“, sem við höfum fyrirheit um. Mestur er þó missir Bjargar, Atla, Stein- þórs og annarra ástvina Hilm- ars. Öllu er afmörkuð stund en aldrei verður tekin frá okkur minningin um þann góða dreng sem Hilmar Pétur Þor- móðsson var. Sveinn Sigurðsson. Hilmar P. Þormóðsson FALLEGIR LEGSTEINAR Verið velkomin Á góðu verði Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Opið: 10-17 alla virka daga Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar móður okkar, dóttur, systur og frænku, ÍRISAR BJARKAR HLÖÐVERSDÓTTUR, sem lést mánudaginn 29. apríl. Útför hennar fór fram í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 9. maí. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að styrkja Píetasamtökin. Finnbogi Ernir Ægisson Emilía Karen Ægisdóttir Hlöðver Kjartansson Herdís Jónsdóttir Hulda Kristín Hlöðversdóttir Brynja Dröfn Ingadóttir Kjartan Arnald Hlöðversson Sveinbjörg Júlía Kjartansd. Pálmar Þór Hlöðversson David Anthony Noble Okkar ástkæri JÓN REYNIR HILMARSSON, Jónsi, lést á Landspítalanum föstudaginn 10. maí. Útför hans fer fram frá Lindakirkju miðvikudaginn 29. maí klukkan 15. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á fjárvörslureikning barnanna hans: 515-14-582, kt. 630810-0350. Fyrir hönd barna hins látna, Arna Margrét Erlingsdóttir Hilmar Kristberg Jónsson Sigurður Þór Kristjánsson og aðrir aðstandendur Elsku faðir minn, tengdafaðir, afi, sonur, bróðir og mágur, ÞÓRÐUR HAFSTEINSSON, lést á dvalarheimilinu Ási í Hveragerði 1. maí. Útförin hefur farið fram. Innilegar þakkir til starfsfólks Áss. Hafsteinn Þór Þórðarson Lara Ruiz Prados Þorbjörg Una Hafsteinsdóttir Hafsteinn Erlendsson Eyrún Hafsteinsdóttir Neil Clark Jón Grétar Hafsteinsson Sigrún Hafsteinsdóttir Úlfar Finnbjörnsson og systkinabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GÍSLI GUÐMUNDSSON húsasmíðameistari, Bergsmára 13, Kópavogi, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 21. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sólveig Margrét Ásmundsdóttir Aron Freyr Gíslason Katla Sif Friðriksdóttir Ásmundur Óli Gíslason Guðmundur Garðar Gíslason Erla Guðrún Gísladóttir Finnur Dellsén Lilja Björg Gísladóttir Jón Baldvin Jónsson Hafdís Gerður Gísladóttir Bjartmar Ingi Sigurðsson Elskulegur eiginmaður minn og besti vinur, faðir okkar, tengdafaðir, besti afi og bróðir, ALBERT SIGURJÓNSSON, Ásvöllum 2, Grindavík, lést í faðmi stórfjölskyldunnar miðvikudaginn 22. maí. Útförin fer fram frá Grindavíkurkirkju mánudaginn 3. júní klukkan 14. Svanhvít Daðey Pálsdóttir Þórkatla Sif Albertsdóttir Þorleifur Ólafsson Þórey Tea, Albert, Jóhann Daði, Sif Margrét Albertsdóttir Steinn Freyr Þorleifsson Þorleifur Freyr Sigurpáll Albertsson Katarzyna Kujawa Hallgrímur Sigurjónsson Rúnar Sigurjónsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.