Morgunblaðið - 25.05.2019, Síða 38
38 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019
36.200.000,-
Lynghagi 10, 107 Reykjavík
3ja herb. - 69,1 m2 - laus strax
Góð 3ja herbergja 69,1 fm íbúð í kjallara. Tvö svefnherbergi. Stofa.
Eldhús. Baðherb. flísar í hólf og gólf. Þvottahús á hæð. Frábær
staðsetning rétt við Háskólann. Laus strax.
✆ 585 8800
Áratuga reynsla og þekking í fasteignaviðskiptum
Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864 8800
Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865 8515
Maríubakki 12, 109 Reykjavík
3ja herb. 88,3 m2 - laus strax
Falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja, 88,3 fm útsýnisíbúð á
3. hæð. Tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús. Nýtt
harðparket á allri íbúð. Yfirstandandi viðgerð á húsi verður greidd af
seljanda.
34.900.000,-
Opið hús
sunnud. 26. maí
13:00 til 13:30
Opið hús
þriðjud. 28. maí
17:30 til 18:00
55.900.000,-
Mikið endurnýjuð 3ja-4ra herb.
Falleg og mikið endurnýjuð 3ja-4ra herbergja hæð í þríbýlishúsi við Greni-
mel. Stór og björt stofa. Tvö stór svefnherbergi. Þvottahús innan íbúðar.
Baðherbergi nýlega endurnýjað. Eldhús með nýlegri innréttingu. Góð hæð
á frábærum stað.
Grenimelur 29, 107 Reykjavík
64.900.000,-
3ja-4ra herb. 133,3 m2 + 11,5 fm sólstofa laus strax
Afar falleg og björt 3ja-4ra herbergja íbúð á 1. hæð í vönduðu og eftir-
sóttu fjölbýlishúsi fyrir 55 ára og eldri. Stórar og bjartar stofur í suður
með útgang í yfirbyggða sólstofu. Tvö góð svefnherbergi. Baðherbergi og
gestasnyrting. Þvottahús í íbúð. Laus strax.
Sléttuvegur 15, 103 Reykjavík
Brandur Olsen, færeyski landsliðs-
maðurinn í knattspyrnu, hefur fram-
lengt samning sinn við FH um tvö ár,
eða út tímabilið 2021. Hann leikur nú
sitt annað ár með Hafnarfjarðarliðinu
en Brandur er 23 ára og á að baki 23
leiki með A-landsliði Færeyja.
Roland Eradze, fyrrverandi lands-
liðsmarkvörður í handknattleik, hefur
verið ráðinn aðstoðarþjálfari karlaliðs
Fram, ásamt því að sjá um þjálfun
markmanna karla- og kvennaliða-
félagsins og stjórna ungmennaliði
karla. Roland hefur þjálfað hjá FH und-
anfarin ár en var áður hjá Fram.
Sylvía Rún Hálfdánardóttir mun
leika með Íslands-, deildar- og bik-
armeisturum Vals í körfuknattleik á
næstu leiktíð en þessi tvítugi leik-
maður hefur skrifað undir samning til
næstu tveggja ára við félagið. Sylvía
skoraði 22 stig að meðaltali fyrir Þór
Akureyri í 1. deild í vetur.
Kevin Durant verður ekki með Gol-
den State í fyrstu úrslitaleikjunum um
meistaratitil NBA í körfubolta vegna
meiðsla í kálfa. Hann hefur ekki leikið
fimm síðustu leikina í úrslitakeppn-
inni. Golden
State bíður
þess hvort
Toronto eða
Milwaukee
verði and-
stæðing-
urinn í úr-
slitunum en
Toronto er
3:2 yfir fyrir
sjötta leik-
inn sem
fram fer í
Toronto í
kvöld.
Eitt
ogannað
HM 2019
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Nú styttist í að kvennalandsliðið í
handknattleik muni glíma við Spán í
umspili fyrir HM 2019. Liðin mætast
ytra 31. maí og aftur í Laugardals-
höll hinn 6. júní.
„Það er ekkert leyndarmál að þær
eru rosalega öflugar en það er ótrú-
lega skemmtilegt að fá að spila á
móti svo góðu liði. Þær eru mjög
kvikar, harðar í vörninni og hreyf-
anlegar. Í sókninni sækja þær enda-
laust á vörnina og það verður því
gaman að mæta þessu liði. Ég held
að þessi áskorun muni kveikja svolít-
ið í okkur og vonandi getum við verið
í sama gæðaflokki en við þurfum að
skora eitt mark í einu,“ sagði Arna
Sif Pálsdóttir, einn leikreyndasti
leikmaður íslenska liðsins, þegar
Morgunblaðið ræddi við hana á
landsliðsæfingu.
Þurfa að vera skynsamar
Leikstíll Spánverja hefur stund-
um verið ólíkur stíl Norðurlanda-
þjóðanna. Gera má ráð fyrir að
krefjandi verði fyrir landsliðskon-
urnar að lenda í stöðunni maður á
móti manni í leikjunum gegn þeim
spænsku.
„Jú jú, vörnin er mjög agressíf hjá
þeim og þær eru fljótar á fótunum.
Við þurfum að vera mjög skynsamar
þegar við erum með boltann en þær
munu reyna að stela boltanum um
leið og færi gefst. Við þurfum að
halda okkur við þau atriði sem við
erum góðar í en ekki spila eins og
þær vilja. Erfitt verður að eiga við
þær í stöðunni maður á móti manni
en við erum í þessu til að spila við
sterk lið með góða leikmenn. Ég hef
engar áhyggjur af þessum leikjum í
raun og veru og held að þetta verði
skemmtilegt. Við þurfum að vera
skynsamar en samt klikkaðar á
sama tíma, ef hægt er að orða þetta
þannig,“ sagði Arna og hló að mót-
sögninni.
Aukinn stöðugleiki
Arna Sif upplifði sem ungur leik-
maður að leika á stórmóti með
landsliðinu. Liðinu hefur ekki gengið
vel í nokkur ár þar sem meiðsli hæfi-
leikaríkra leikmanna hafa sett svip á
liðsuppstillinguna. Nú eru mun
færri forföll auk þess sem Axel Stef-
ánsson er að byggja liðið upp eins og
hann vill sjá það.
„Mér finnst að við séum að nálg-
ast fyrri styrk. Fljótlega eftir stór-
mótin sem liðið komst inn á kom
tímabil þar sem leikmenn hættu og
aðrir meiddust. En nú hefur okkur
tekist að halda svipuðu liði í nokkurn
tíma auk þess sem leikmenn eru
einnig að koma inn í þetta sem hafa
glímt við meiðsli undanfarin ár. Ég
hef því trú á að við séum að ná stöð-
ugleika, sem hefur vantað undan-
farin ár. Þegar landsliðið hefur kom-
ið saman í verkefni hafa kannski
verið fimm til sex nýjar. Núorðið eru
það í mesta lagi ein til tvær ef þá ein-
hverjar. Auðvitað þurfa leikmenn að
fá tækifæri en það er rosalega gott
að geta haldið nokkurn veginn sama
leikmannahópi. Þá náum við að slípa
okkur saman og að mínu mati er lið-
ið á betri stað núna en það var fyrir
nokkrum árum.“
Var ánægð hjá ÍBV
Arna Sif söðlaði um á dögunum og
yfirgaf ÍBV eftir eitt tímabil og bæt-
ist við sterkan leikmannahóp Ís-
lands- og bikarmeistara Vals. Hvers
vegna tók hún þá ákvörðun?
„Fyrst og fremst var þetta vegna
þess að ég þarf að finna mér vinnu.
Ég er búin að ljúka námi sem graf-
ískur hönnuður og mér gekk illa að
finna vinnu við það í Vestmanna-
eyjum. Það var helsta ástæða þess
að ég skipti um félag því annars
hefði ég spilað út samningstímann
hjá ÍBV. Ég var ánægð í Vest-
mannaeyjum og er sorgmædd að
fara þaðan. Á hinn bóginn er til-
hlökkun vegna nýrrar áskorunar.
Því fylgir ákveðin pressa að fara til
liðs sem vann þrefalt því ekki vil ég
að liðinu gangi verr en í fyrra með
mig innanborðs,“ sagði Arna Sif
ennfremur.
Liðið er á betri stað
en fyrir nokkrum árum
Arna Sif Pálsdóttir hlakkar til að takast á við þær spænsku í umspilinu
Morgunblaðið/Eggert
Reynd Arna Sif Pálsdóttir fer yfir sviðið á landsliðsæfingu í Fossvoginum á fimmtudagskvöldið.
Ágúst Elí Björgvinsson átti flottan leik í marki Sävehof í
þriðja leiknum við Alingsås í gær í úrslitarimmunni um
sænska meistaratitilinn í handknattleik. Það dugði þó
skammt því Alingsås vann 25:22.
Alingsås er því komið í 2:1 í rimmunni eftir að Sävehof
vann fyrsta leikinn. Útlitið var gott hjá Ágústi og fé-
lögum þegar 10 mínútur voru til leiksloka í þriðja leikn-
um en Sävehof komst þá í 20:18. Svaraði þá Alingsås
hins vegar með fjórum mörkum í röð og skoraði sjö
mörk gegn tveimur á lokakafla leiksins.
Ágúst varði 17 af 40 skotum sem hann fékk á sig í
markinu sem gerir 42,5% markvörslu.
Liðin mætast í fjórða sinn á heimavelli Sävehof næstkomandi mánudags-
kvöld. Vinni Sävehof þann leik mætast liðin í oddaleik um titilinn á heima-
velli Alingsås hinn 30. maí. sport@mbl.is
Ágúst varði vel í tapleik
Ágúst Elí
Björgvinsson
Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsd., Vendsyssel
Hafdís Renötudóttir, Boden
Hornamenn:
Sigriður Hauksdóttir, HK
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfossi
Díana Dögg Magnúsdóttir, Val
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram
Skyttur:
Andrea Jacobsen, Kristianstad
Helena Rut Örvarsdóttir, Dijon
Lovísa Thompson, Val
Thea Imani Sturludóttir, Volda
Rut Jónsdóttir, Esbjerg
Leikstjórnendur:
Ester Óskarsdóttir, ÍBV
Eva Björk Davíðsdóttir, Ajax
Karen Knútsdóttir, Fram
Línumenn:
Arna Sif Pálsdóttir, Val
Steinunn Björnsdóttir, Fram
Axel Stefánsson þjálfar liðið og
Óskar Bjarni Óskarsson er aðstoð-
arþjálfari.
Ísland leikur vináttuleik við B-lið
Noregs á þriðjudag, mætir Spáni í
Antequera á föstudag, 31. maí, og í
Laugardalshöll 6. júní.
Sextán sem fara til Spánar
KVENNALANDSLIÐIÐ Í HANDBOLTA Í UMSPILI UM HM-SÆTI