Morgunblaðið - 25.05.2019, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 25.05.2019, Blaðsíða 39
ÍÞRÓTTIR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019 SKECHERS PARALLEL DÖMUSANDALAR. STÆRÐIR 36-41 11.995.- DÖMUSANDALAR. Þó að Íslandsmótinu í hand- knattleik sé nú lokið er af og frá að íslenskir handknattsleikmenn séu komnir í sumarleyfi. Fyrir ut- an þá sem eru enn í eldlínunni utan lands með sínum fé- lagsliðum þá eru landsleikir á næstu grösum, bæði hjá kvenna- og karlaliðinu. Kvennalandsliðið hefur æft af miklum móð að unda- förnu undir styrkri stjórn Axels Stefánssonar. Á föstudaginn leikur kvennalandsliðið fyrri leik- inn við spænska landsliðið þar sem bitist verður um sæti í loka- keppni HM. Liðin mætast öðru sinni hér heima nokkrum dögum síðar. Samanlögð úrslit leikjanna skera úr um hvort landsliðið tryggir sér farseðilinn á HM í Japan. Fyrir fram er spænska lands- liðið metið sterkara en það ís- lenska enda verið í hópi 16 sterkustu landsliða heims um árabil. Íslenska landsliðið hefur hinsvegar sótt í sig veðrið und- anfarið og getur þess vegna far- ið alls óhrætt í leikina. Miklu máli skiptir fyrir íslenska liðið að ná hagstæðum úrslitum í fyrri leiknum sem háður verður í Málaga í næstu viku til að geta stillt upp fyrir úrslitaleik um HM- sæti í Laugardalshöllinni fimmtudagskvöldið 6. júní. Síðar í júní leikur karlalands- liðið tvo síðustu leiki sína í und- ankeppni EM, gegn Grikkjum ytra og við Tyrki í Laugardals- höll. Íslenska liðið er komið með annan fótinn inn í lokakeppni EM. Það dugar skammt ef tveir síðustu leikirnir vinnast ekki. Áður en að þeim leikjum kem- ur getur Aron Pálmarsson orðið Evrópumeistari í handknattleik í þriðja sinn á ferlinum. Hann verður í eldlínunni með Barce- lona í úrslitahelgi Meistara- deildar Evrópu í Köln eftir viku. BAKVÖRÐUR Ívar Benediktsson iben@mbl.is EM 2020 Víðir Sigurðsson vs@mbl.is „Gekk annars vel hér úti og flaug í gegn. Aldrei verið betri, til Íslands á sunnudag og þá byrjar undirbún- ingur fyrir stóru leikina í sumar. Þetta verður veisla.“ Þannig hljóðuðu skilaboð lands- liðsfyrirliðans Arons Einars Gunn- arssonar á Twitter í fyrrakvöld en hann hefur síðustu dagana dvalið hjá sínu nýja félagi í Katar, Al- Arabi, þar sem hann verður form- lega leikmaður í sumar undir stjórn Heimis Hallgrímssonar. Veislan sem Aron vísar til er að sjálfsögðu landsleikjatvennan á Laugardalsvelli 8. og 11. júní. Þar leikur Ísland sannkallaða lykilleiki í undankeppni EM 2020. Fyrst gegn Albaníu laugardaginn 8. júní, þar sem spilað er á óvenjulegum tíma, klukkan 13, og svo gegn Tyrklandi á þriðjudagskvöldið 11. júní þar sem um hefðbundinn leiktíma er að ræða, klukkan 18.45. Frá því Ísland vann Andorra 2:0 og tapaði 4:0 fyrir Frakklandi í Par- ís í fyrstu tveimur umferðum und- ankeppninnar í lok mars hefur Erik Hamrén landsliðsþjálfari fylgst með sínum mönnum. Hann hefur af og til sést á meðal áhorfenda á leikjum fé- lagsliðanna þeirra og nú styttist í að hann tilkynni hópinn fyrir leikina mikilvægu. Þegar liggur fyrir að Alfreð Finn- bogason og Jón Daði Böðvarsson taka ekki þátt í leikjunum vegna meiðsla og vonir um að Kolbeinn Sigþórsson yrði tilbúinn eru úr sög- unni eftir að hann meiddist hjá AIK í vor. Aðrir ættu að vera tilbúnir en eins og gengur og gerist um þetta leyti lýkur keppnistímabilinu ekki á sama tíma hjá landsliðsmönnunum, og nokkrir eru á fullri ferð á sínu tíma- bili, og annaðhvort ljúka því eða koma í landsleikjafrí sex dögum fyr- ir Albaníuleikinn. Ari hefur beðið síðan í mars Skoðum betur stöðuna á þeim hópi leikmanna sem hefur skipað liðið undanfarna mánuði eða gætu verið nálægt hópnum hjá Hamrén.  Ari Freyr Skúlason hefur þurft að bíða lengst án þess að spila. Lokeren féll úr belgísku A-deildinni án þess að fá að fara í umspil og spil- aði lokaleik sinn 17. mars.  Ögmundur Kristinsson mark- vörður lauk keppni með Larissa í Grikklandi 5. maí en þá lauk deild- inni.  Sverrir Ingi Ingason lauk keppni með PAOK í Grikklandi 11. maí með úrslitaleik bikarkeppn- innar.  Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson og Jóhann Berg Guðmundsson léku með Cardiff, Everton og Burnley í lokaumferð- inni á Englandi 12. maí.  Sama dag lauk Eggert Gunn- þór Jónsson keppni með Sönder- jyskE í Danmörku.  Albert Guðmundsson lauk tímabilinu með AZ Alkmaar í Hol- landi 15. maí.  Helgina 18.-19. maí spiluðu lið Kára Árnasonar í Tyrklandi, Rú- riks Gíslasonar og Guðlaugs Vic- tors Pálssonar í Þýskalandi og Kjartans Henry Finnbogasonar í Danmörku sína lokaleiki á tíma- bilinu.  Samúel Kári Friðjónsson lék síðasta leik fyrir landsleikjafrí með Viking í Noregi í fyrrakvöld.  Rúnar Már Sigurjónsson spilar lokaleikinn með Grasshoppers í Sviss í dag.  Hjörtur Hermannsson spilar í lokaumferðinni í Danmörku í dag en gæti farið í úrslitaleik með Bröndby um Evrópusæti á fimmtudaginn kemur.  Arnór Smárason og Matthías Vilhjálmsson mætast í norsku úr- valsdeildinni í dag og síðan er þriggja vikna hlé á deildinni.  Lokaumferðin í Rússlandi er á morgun og þar spila Ragnar Sig- urðsson, Hörður Björgvin Magn- ússon, Arnór Sigurðsson, Björn Bergmann Sigurðarson og Jón Guðni Fjóluson sína síðustu leiki.  Emil Hallfreðsson lýkur tíma- bilinu með Udinese á Ítalíu á morg- un.  Theódór Elmar Bjarnason gæti lokið tímabilinu í Tyrklandi á morgun en væri annars á leið í úr- slitaleik um sæti í efstu deild á mið- vikudaginn kemur.  Birkir Bjarnason lýkur tíma- bilinu á Englandi á mánudag með úrslitaleik Aston Villa og Derby um úrvalsdeildarsæti á Wembley.  Rúnar Alex Rúnarsson mark- vörður er á leið í umspil með Dijon í Frakklandi 30. maí og 2. júní.  Jón Dagur Þorsteinsson spilar úrslitaleiki með Vendsyssel um sæti í dönsku úrvalsdeildinni 30. maí og 2. júní.  Viðar Örn Kjartansson, Arnór Ingvi Traustason, Guðmundur Þór- arinsson og Andri Rúnar Bjarnason spila í sænsku úrvalsdeildinni til 2. júní.  Hannes Þór Halldórsson og Birkir Már Sævarsson spila með Val til 2. júní. Tyrkir og Frakkar mætast Eftir tvær umferðir af tíu í riðl- inum eru Frakkland og Tyrkland með 6 stig, Albanía og Ísland með 3 stig, Andorra og Moldóva eru án stiga. Þann 8. júní leikur Tyrkland við Frakkland og Moldóva við Andorra. Hinn 11. júní leikur Albanía við Moldóvu og Andorra við Frakkland. Fimmta og sjötta umferð eru síð- an leiknar 7. og 10. september. „Þetta verður veisla“  Styttist í leikina mikilvægu við Albaníu og Tyrkland á Laugardalsvelli  Aron kemur heim á morgun  Landsliðsmennirnir í frí fyrir leikina á misjöfnum tíma AFP Varnartengiliðir Aron Einar Gunnarsson og N’Golo Kanté verða á ferðinni með Íslandi og Frakklandi 8. og 11. júní og báðir mæta þeir Tyrkjum. Gary Martin og knattspyrnufélagið Valur hafa komist að samkomulagi um starfslok enska framherjans sem gekk í raðir Vals í vetur og skrifaði undir samning til þriggja ára. Í yfirlýsingu segir að báðir að- ilar séu sáttir með málalok. „Gagnvart mér var staðið við allt og auk þess var öll aðstaða og bún- aður fyrsta flokks. Það er bara stundum þannig að menn eiga ekki skap saman. Þannig var það með okkur Óla [Ólaf Jóhannesson]. Og þá þarf að taka á því,“ er m.a. haft eftir Martin. Nánar á mbl.is. Sátt náðist hjá Val og Martin Morgunblaðið/Ómar Málalok Gary Martin í búningi Vals. Valdís Þóra Jónsdóttir komst í gegnum niðurskurðinn á Jabra- mótinu í Frakklandi á Evr- ópumótaröðinni í gær og leikur síð- asta hringinn í dag. Er hún á sex höggum yfir pari í 31.- 46. sæti. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn á Pure Silk mótinu á LPGA í Bandaríkjunum. Hún var á átta yfir pari samtals. Guðmundur Ágúst Kristjánsson er einnig úr leik á Made in Den- mark á Evrópumótaröðinni. Lék samtals á tíu yfir pari. Valdís Þóra komst áfram Morgunblaðið/Hari +6 Valdís leikur lokahringinn í dag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.