Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2019, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2019, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5.5. 2019 LÍFSSTÍLL tali sín á milli kreólsku, sambland af móðurmáli herraþjóðarinnar fyrr- verandi og afrískra tungna þrælanna fyrr á tíð ... Korktappar í saltpækli ... Við stöndum á gígbarminum; komin þangað upp í rútunni, horfum niðrí gíginn, yfir innhlíðar hans, þurrar og vindsorfnar einsog allt hérna. Í gíg- botninum eru stórir saltvinnslureitir, ferhyrndir; vinnslan komin mislangt á leið. Þar sem allur sjór hefur gufað upp eru þeir þaktir hvítu saltinu en fjólubláir þar sem minna hefur gufað upp; uppgufun samt orðin talsverð. Sumstaðar eru salthraukar. Fremst er lón, brimsalt, miklu saltara en Dauðahafið, er okkur sagt. Sjór síast inn í gegnum jarðlögin. Þarna niðri eru nokkur úr hópnum okkar. Við þykjumst bera kennsl á þau þar sem þau fljóta eins og litlir korktappar í vatninu. Dásamlegt sögðu þau, eftirá. Pedra de Lume, eiginlega kveiki- steinn, heitir þessi gígur; varð til í sprengigosi fyrir milljón árum. Við höfðum komið akandi frá hót- elunum sunnar á eynni, í og við bæinn Santa Maria. Þetta er ekki langur akstur; eyjan er ekki nema 216 fer- kílómetrar; íbúar tæp 26.000. Þegar við nálgumst Pedra de Lume sjáum við annan grafreita eyjarinnar og hálfbyggða hótelsamstæðu sem Ítalir ætluðu að reisa fyrir nokkrum árum en svo kom kreppa í Evrópu. Hálf- köruð húsafylkingin minnir mann á kvikmyndarlegt virki í eyðimörk, svona úr fjarlægð, og mér flýgur Ara- bíu-Lárens í hug. Þarna er líka kirkja með hvíta útveggi, blámáluð í kring- um glugga og dyr, með bláa hurð, og lítinn kross á mæni. Þakið okkur- rautt. Það eru líka nokkrir ryðgaðir saltprammar í fjörunni. Einskonar skíðalyfta liggur úr manngerðu skarði í gígnum niðrað sjó. Þessa leið voru saltbaggarnir látnir gossa niðr- eftir. Þarna er líka yfirgefinn skóli. Flestir íbúar fluttir burt. Saltvinnslu- æðið úti, draumurinn búinn. Fyrr á tíð var þarna saltvinnsla, frá 16. öld og framum miðja 20. öld. Saltið eftir- sótt. Skip komu úr ýmsum áttum eft- ir því. Mörg lögðu upp til Brasilíu með það. Portúgalar finna Grænhöfðaeyjar um miðja 15. öld. Þær eru þá óbyggð- ar. Antonio da Noli er sagður hafa komið fyrstur manna til Salteyjar. Honum þótti saltmagnið svo mikið í gígnum að hann líkti því við snjóinn í Ölpunum. Skipulagða saltvinnslu má rekja til enda 18. aldar. Nú á dögum er framleitt lítilræði af salti, miðað við fyrri tíma. Til heimabrúks á eynni og líka í ýmsar snyrtivörur og svokallaða sjávarmeðferð á Ítalíu. Vegna saltsins heitir eyjan Ilha do Sal, þ.e. Saltey ... Sólin í Sankti Maríu ... Hitabeltissólin skín beint á skallann á manni hér á Saltey þótt maður taki varla eftir því enda vindurinn í liði með sólinni. Sífelld norðaustanáttin hefur sveigt þau fáu tré sem hjara; engu líkara en að þau líti undan, snúi höminni uppí vindinn. Saltey er ein kulborðseyja. Á þeim blæs meira en á skjólborðseyjunum. Stærst Grænhöfðaeyja er Santiago sem við getum kallað Jakobsey; tæpir 1000 ferkílómetrar, er skjólborðs- eyja, fjöllótt og all-gróðursæl. Þar er höfuðborgin Praia. Skammt undan er Fogo, þ.e. Eldey. Þar er hæsta fjall eyjanna, Pico do Fogo, sumsé Eld- tindur, 2829 metrar; eina virka eld- fjallið á þessum eyjum sem jarðeldar skópu. Síðast varð þar gos 2014-2015 En snúum aftur til Salteyjar. Þessi strönd hér við Santa Maria er hreint ótrúleg, kílómetrar og kílómetrar af hvítum sandi, og utar sést hvissandi aldan brotna og enn utar er safírblár særinn, Atlantshafið í blíðum ham. Það siglir skúta hjá þöndum seglum; tónlist um borð, fólk að njóta lífsins. Og flugbrettamennirnir svífa um við ströndina, einsog fuglager. Og svo er maður kominn á Bryggj- una, með stórum staf, því að það er bara ein bryggja í Santa Maria. Nokkrir trillukallar eru komnir að með afla. Enginn landburður af fiski en samt nokkrir tittir. Einn sjóarinn stendur þarna á bryggjunni, ungur maður á stuttbuxum og stuttermabol með hattkúf á höfði, og hefur dregið á land hinn vænsta túnfisk, svona rúm- lega eins metra langan, þykkan og glæstan. Sjómaðurinn mundar hníf; ætlar að gera að fengnum. En þetta er einhver bévítans kuti sem bítur ekki á blautan skít, og því síður á silf- urgljándi túnfiskinn. En hann sargar og sverfur og tekst loks að rista fisk- inn á kvið. Slorið vellur út. Hann þreifar um magann, ber kutann að, nær að rjúfa gat og kannar með ann- arri hendinni innhaldið. Allt í einu dregur hann höndina út, heldur á ein- hverju í lokuðum lófa en opnar hann svo framaní glápandi ferðamann sem rekur upp stór augu þegar í ljós kem- ur lítill og lögulegur sæhestur, blóð- ugur og auðvitað dauður. Sjómaður- inn bregður honum í fötu fyllta sjó, skolar af honum og gefur hann síðan túrhestinum sem veit eiginlega ekki hvað hann á að gera við hnossið/ hrossið ... Mýkt og músík ... Í Santa Maria búa ríflega 6.000 manns. Þar er eiginlega bara ein aðalgata og við hana eða í grennd við hana er allt. Þar er barinn Buddy: mannþröng við barborðið, þéttsetinn bekkurinn í litlum salnum sem er eig- inlega bara stórt herbergi; bekkir og borð utanmeð, fólk útá stétt líka í blíðu kvöldinu. Luis situr á lágum palli innst um- kringdur ýmiskonar raftólum til að flytja og magna tónlist. Hann hefur gítar í fanginu og hljóðnema næstum því uppí sér. Mér er sagt að hann sé Spánverji sem skaut hér rótum fyrir mjööög löngu, orðinn heimamaður. Náungi í kringum fimmtugt, sköll- óttur, horaður en syngur af miklum krafti. Núna er hann að syngja Don’t Worry, Be Happy og viðstaddir taka margir undir viðlagið í þessari gömlu sumarsmellu. Tvær ungar konur dansa saman á miðju gólfi þar sem varla er pláss fyr- ir fleiri. Önnur er enskuleg í fasi og fatnaði, grannvaxin, með slegið ljóst hár niðrá hálft bak, í stuttum blóma- kjól með hlýrum, hefur fengið sér í eina tána, jafnvel tvær – ekkert til- tökumál hér á þessum stað. Hún dansar með rykkjum og hnykkjum, stígur skarpt til jarðar, hvetur grund frjálsum fæti, einsog Hóras kvað, en stirðum liðamótum. Hin konan er svört, í reynd óvenju dökk fyrir heimamann að vera, hnellin ung Salt- eyjarstúlka sem látið hefur hrokkið hárið vaxa svo að það er í afróstíl hippatímans og mussan hennar er líka hippaleg. Hún dansar ljúflega, sveigir sig eftir hljómafallinu með þessari áreynslulausu mýkt og músík í kroppnum sem aðeins býr í þeim sem fengið hefur slíkt í vöggugjöf. Luis er farinn að svitna, syngur af svo miklum krafti en samt á slakan máta sem kveðst einhvernveginn á við einkunnarorð eyjarskeggja en þeir flíka þeim gjarnan á spjöldum eða á kortum handa erlendum streitubúkum að kaupa: NO STRESS! Ströndin við Santa Maria – kílómetr- ar og kílómetrar af hvítum sandi. Saltvinnsla í Pedra de Lume. „Sandlægjur“ og „sólsleikjur“ njóta lífsins á ströndinni við Santa Maria. Flugbrettamenn, eins og fuglager, í bakgrunni. Grænhöfðeyingar eru engir streitubúkar. Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Veldu betri málningu PALLAOLÍA • Allround olían er efnisrík gæðaolía sem endist lengur • Margir fallegir litir* * Litur á palli EJLINGE

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.