Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2019, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 05.05.2019, Blaðsíða 15
5.5. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 er þörfin enn óuppfyllt að því gefnu að við vær- um með grunnsamning, sem rann út í vikunni.“ Þægilegast að segja nei Jónmundur segir oft hátt flækjustig þegar kem- ur að samskiptum við hið opinbera og oft virðist ekki vera vilji til þess að finna lausnir á einföld- um málum. „Við erum að reyna að bæta ferla í kerfinu en af því að menn eru ekki á sömu forsendum í kerfinu er viljinn takmarkaður. Það er því mið- ur erfitt að hreyfa við hlutum hérna. Sem dæmi þá er landlæknir það framsýnn að embættið samþykkti að setja í gang mikilvægt verkefni sem felst í að koma reikningum rafrænt í hend- ur á fólki í gegnum heilsuveru.is,“ segir Jón- mundur og hann segir að málið sé í ágætum far- vegi og segist vona að aðrir hagsmunaaðilar í kerfinu stöðvi ekki slíkt framfaraskref. „Síðan er önnur birtingarmynd í þessu kerfi okkar; ójafn leikur. Til dæmis þurfum við að rukka sjúklinginn að fullu fyrir ákveðnar mynd- greiningar því það hefur ekki verið gerður samningur við okkur um það. Sami sjúklingur fer á Landspítala í sama tæki og dettur þá það inn í endurgreiðslukerfi Sjúkratrygginga,“ seg- ir Jónmundur og bendir á að þeir séu að keppa við opinbera geirann, en á allt öðrum for- sendum. Nefnir Jónmundur að þeir þurfi til að mynda að greiða virðisaukaskatt af tækjum sem ekki sé gert af tækjum sem gefin eru fyrir söfnunarfé inn á ríkisreknar stofnanir en slíkt hefur verið algengt í gegnum tíðina. „En ríkið fær skattinn af fjárfestingu í einkageiranum og þau fara brúttó með virðisauka í bækurnar hjá okkur og þannig myndast 24% hærri stofn til af- skrifta í gegnum rekstur. Sama á við um ýmsan rekstrarkostnað þar sem heimild er fyrir end- urgreiðslu í lögum til opinberra aðila en ekki okkar. Þetta bjagar allan samanburð á kostn- aðartölum einkareksturs og ríkisrekstrar.“ Tvöfalt heilbrigðiskerfi Jónmundur segir ýmsu ábótavant í heilbrigð- iskerfinu og telur hann að þjónustustigið þurfi að batna til muna. Ekki er ásættanlegt að bíða í á annað ár eftir augasteinaaðgerð að hans mati. „Fólk með ský á auga býr við skert lífsgæði. Þetta eru oft aldraðir einstaklingar og þeir eiga betra skilið en þetta. Oft er ekkert mikið eftir af ævinni og að þurfa að sóa fimmtán mánuðum í að bíða er bara alveg hræðilegt,“ segir Jón- mundur. Honum finnst einnig að fólk eigi að fá val um það hvert það leitar með sín sjónvanda- mál. „Fólk segir að það vilji ekki tvöfalt heilbrigð- iskerfi, annað fyrir efnaminni og hitt fyrir efna- meiri, og ég deili þeirri skoðun. En við erum því miður í dag að búa til þannig kerfi. Út af þess- um biðlistum,“ segir hann. „Svo er tvöfalt kerfi þegar þú leggst inn á dvalarheimili, því þá dettur þú út hjá Sjúkra- tryggingum. Tökum dæmi af sjúklingi hjá okkur sem leggst inn á Hrafnistu og kemur svo aftur til okkar. Þegar hann borgar reikninginn kemur höfnun frá Sjúkratryggingum af því hann er inniliggjandi á Hrafnistu sem á þá að borga þessa þjónustu. Hrafnista þarf að ákveða fyrirfram hvort þú fáir þjónustuna eða ekki,“ segir hann og bendir á að þetta viti gamla fólkið ekki og reki sig ítrekað á. „Við getum því miður ekkert gert og þurfum þá að segja sjúklingnum að borga reikninginn sjálfur. Svo þarf viðkomandi að athuga hvort hann getur fengið hann endurgreiddan og þarf þá leyfi frá lækni á Hrafnistu. Er þetta fólk þá orðið annars flokks þegnar á Íslandi? Ósjúkra- tryggt? Ég held að þetta sé staða sem gengur ekki upp. Það eru svo margir svona gallar í kerfinu og ég hef reynt að fá Sjúkratryggingar að borðinu til að laga þennan feril því hann er ekki í lagi. Þetta er kostað af sama aðilanum, af hverju erum við að valda svona vandræðum hjá gamla fólkinu. Þetta er sorglegt.“ Það má enginn græða „Það væri mjög áhugavert að skoða heildar- kostnaðinn við að eyða biðlistum og hversu hátt hlutfall það yrði af kostnaðinum í heilbrigðis- kerfinu. Ég held að það mætti hagræða helling, laga til og spara mikið. Við getum gert svo miklu betur, við erum með hæfa lækna og hæft starfsfólk,“ segir Jónmundur sem segist hafa boðið heilbrigðisráðherra í heimsókn, án árang- urs. „Okkar upplifun er að ráðuneytið vilji ekki af þessari starfsemi vita. Hvar eigum við að stoppa í þessari vegferð? Ætlum við, eins og ég nefndi áðan, að setja alla tannlækna á ríkis- reknar einingar? Hvað með vegagerðina, á Vegagerðin að sjá um allar vegalagnir á Ís- landi? Á enginn jarð- vinnuverktaki að koma þar að verki? Svo sjá all- ir ofsjónum yfir því að einhvers staðar mynd- ast arður. Það er al- gjörlega bannað. Í mín- um augum er arður ekki þjófnaður. Arður kemur til af því þú stendur þig vel, þú ert búinn að hag- ræða, þú hleypur hratt og ert að gera góða hluti. Það er hvati að framþróun, en það má enginn græða,“ segir hann. „Sumir vilja meina að ríkisrekið sé eina lausnin. Ég segi nei, alfarið ekki. Það er jafn vit- laust að segja að ríkisrekið sé eina lausnin og að segja að einkarekið í heilbrigðisgeiranum sé eina lausnin. Það verður að vera sambland af hvoru tveggja og menn þurfa að vinna meira saman,“ segir Jónmundur. „Það er eitthvað að kerfinu, því þarf að breyta. Ríkið á að huga að fjölbreytileika til að tryggja framþróun og halda þjónustuveitendum á tánum. Greiðandi þjónustunnar á að horfa á gæði, magn og verð.“ Borga frekar en að bíða Þar sem ekki hefur verið samið við Sjónlag um augasteinaaðgerðir þarf fólk að greiða fyrir þær úr eigin vasa. Velja margir að taka skellinn frekar en að bíða að sögn Jónmundar. Vill fólk koma og borga sjálft nú þegar ekki fæst endurgreitt? „Já, það er það sem er að gerast, það er þetta tvöfalda kerfi. Fólk sem vill ekki bíða á annað ár kemur unnvörpum. Það er haugur af fólki sem segist afþakka styrkinn frá ríkinu því það ætli sér ekki að bíða. Fólki finnst sjónin vera grunnþörf og setur þetta í forgang,“ segir hann. Hvað kostar svona aðgerð? „Einfókus-augasteinn eins og ríkið skaffar kostar staðgreitt 219.450 krónur, og við stönd- umst fyllilega samanburð við slíkar stöðvar er- lendis í reynslu, tækni og verði. Bið í slíka að- gerð hjá okkur fyrir þá sem greiða sjálfir er talin í dögum, mest nokkrum vikum. Biðlistinn í ríkisrekna kerfinu er tilkominn vegna þess að fjármunir eru skammtaðir í kerfið.“ Hvað er fjölfókus-augasteinn? „Stöðugt eru í þróun nýjar tegundir gervi- augasteina sem eiga það sameiginlegt að gera einstaklinga minna háða gleraugum. Þessir gerviaugasteinar eru spennandi valkostur við hefðbundna gerviaugasteina fyrir þá sem eru með ský á augsteini og vilja geta séð sem mest án gleraugna eftir augasteinsaðgerð. Þeir eru ekki síður spennandi kostur fyrir þá sem eru þreyttir á gleraugunum og vilja geta séð bæði nálægt sér og frá sér gleraugnalaust. Kynning á þessum valkosti ætti að vera skilyrði áður en augasteinaaðgerð er gerð,“ segir hann. Jónmundur segir að margir íslenskir læknar sem eru enn erlendis eftir nám hafi verið að banka upp á hjá þeim þar sem Sjónlag býr yfir miklum tækjabúnaði og góðri aðstöðu. „Það er ekki gott að vera einn úti í bæ, kostnaðarlega. Það sem sérfræðilæknar hafa gert er að koma heim og jafnvel starfa utan kerfis, og þeir rukka þá allt 100%, því þeir fá ekki samninga. En þeir hafa nóg að gera. Þetta er til skoðunar hjá okkur, því þörfin er svo mikil. Í dag er eng- inn sérfræðingur með samninga, þeir kláruðust um síðustu áramót, og það er lítið að gerast í þeim samningum skilst manni,“ segir hann. Jónmundur vonast til þess að hlutirnir muni batna en til þess þarf að ræða málin. „Ég er hlynntur jákvæðri gagnrýni. Samtal er alltaf af hinu góða. Maður skilur ekki af hverju heilbrigðisráðherra vill ekki tala við að- ila eins og okkur. Það er sorgleg staða.“ Jónmundur Gunnar Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Sjónlags, skilur ekki hvers vegna heilbrigðisráðherra vill ekki tala við aðila eins og þá. Morgunblaðið/Ásdís ’ Fólk segir að það vilji ekkitvöfalt heilbrigðiskerfi,annað fyrir efnaminni og hittfyrir efnameiri, og ég deili þeirri skoðun. En við erum því miður í dag að búa til þannig kerfi. Út af þessum biðlistum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.