Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 4

Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 olympium 350Nú bjóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn. 8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu. Einnig mikið úrval aukabúnaða. Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400 Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakk i - 601 Akureyr i Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is maxipodium 500 Hestakerrur frá Fautras maxipodium 500 Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Krabbameinsfélagið hefur miklar áhyggjur af vaxandi notkun ung- linga og ungs fólks á rafrettum. Þetta segir Sigrún Elva Einars- dóttir, sérfræðingur í forvörnum hjá Krabbameinsfélagi Íslands, í samtali við Morgunblaðið. Vísbending um neikvæð áhrif Hún segir algengt að fólk telji rafrettur meinlausar og skýli sér bak við þá fullyrðingu að þær séu skárri kostur en sígarettur. Sigrún bendir á að nýlegar fréttir af því að fimm einstaklingar hafi þurft að leita á Landspítalann á árinu með gat á lunga eftir rafrettureykingar gefi aldeilis vísbendingu um hversu verulega neikvæð áhrif varan geti haft á heilsuna. „Við erum ansi hrædd um að þetta séu bara fyrstu punktarnir sem séu að fara beina ljósi að því hversu mikil heilsufarsvá þetta er,“ segir Sigrún. Hún segir mikið áhyggjuefni hversu margt ungt fólk, sem hefði líklega aldrei reykt án tilkomu rafrettna, sé byrjað að „veipa“. Langtímaáhrif óþekkt Segir hún að fólk sem tali máli rafrettna hengi sig oft á það að raf- retturnar séu ekki krabbameins- valdandi en bendir á að lítið sé vitað um langtímaáhrif rafrettureykinga og því ekkert hægt að fullyrða um skaðleysi þeirra. „Það getur alveg verið að það séu einhverjar krabbameinslíkur sem fylgi þessu. Við erum dauðhrædd við þau neikvæðu áhrif á heilsuna sem þessi vara getur haft og er lík- leg til að hafa,“ segir Sigrún og bætir við að sú staðreynd að í raf- rettunum sé nikótín ætti að vera nægileg viðvörun. „Notkun þessara vara ætti að ein- skorðast við það fólk sem vill hætta að reykja sígarettur og vill nýta sér þær sem hjálpartæki til þess.“ Algengt að fólk telji rafrettur meinlausar  Göt á lungu bara fyrstu vísbend- ingar um heilsufarsvá rafrettna Morgunblaðið/Hari Veip Algengt er orðið að sjá fólk með rafrettur hér á landi og víðar. Félagar úr Eyjafjarðardeild ferða- klúbbsins 4x4 hafa lagað tjónið sem rússneski ferðamaðurinn Alexander Tikhomirov olli á svæðinu í ná- grenni við jarðböðin við Mývatn með því að aka utan vegar. Þetta kemur fram á vefsíðu klúbbsins. Þar segir ennfremur að lagfæringarnar hafi verið unnar í samráði við landeigendur í fyrra- kvöld. Ferðaklúbbur lag- færði skemmdirnar 4x4 Félagar í klúbbnum löguðu tjónið sem ferðamaðurinn olli með akstri sínum. Kjaraviðræður Starfsgreinasam- bands Íslands (SGS) og Eflingar við samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) um nýjan kjara- samning eru í hörðum hnút. Ekkert þokast í kjaradeilunni vegna alvar- legs ágreinings sem kominn er upp um jöfnun lífeyrisréttinda milli al- menna og opinbera markaðarins. Stéttarfélögin krefjast þess að sveit- arfélögin standi við samkomulag um jöfnun lífeyrisréttinda, sem feli í sér að bæta lífeyriskjör félagsmanna sem vinna hjá sveitarfélögunum um sem svarar 1,5% iðgjaldahækkun. Sveit- arfélögin kannast ekki við að það standi upp á þau að greiða hærri ið- gjöld í lífeyrissjóði þessara starfs- manna. Í fyrradag var haldinn sáttafundur sem var árangurslaus vegna tog- streitu um þetta mál. Flosi Eiríksson, framkvæmdastjóri SGS, staðfesti í gær að viðræðurnar við sveitarfélög- in væru í hnút. „Þetta var fyrsti fund- urinn hjá ríkissáttasemjara í gær og það verður haldinn annar fundur 19. júní, þar sem menn ætla að gera bet- ur grein fyrir kröfum sínum en fulltrúar sveitarfélaganna neituðu á þessum fundi að ræða þessi lífeyris- mál sem útaf standa. Við erum því ekki bjartsýn,“ segir Flosi. Að hans sögn munu verkalýðsfélögin ekki halda viðræðum um launamálin áfram fyrr en staðið hefur verið við loforðin um jöfnun lífeyrisréttinda. „Við munum ekki ræða kaup og kjör nema þetta sé leyst,“ segir Flosi. „Við viljum klára þetta mál. Það er alger- lega ófrávíkjanlegt af okkar hálfu.“ Inga Rún Ólafsdóttir, sem er í for- svari fyrir SNS, vill ekki tjá sig efn- islega um málið á meðan kjaradeilan er til sáttameðferðar en í yfirlýsingu sem SNS sendi frá sér er bent á að fé- lagsmenn stéttarfélaga í ASÍ greiði flestir í almenna lífeyrissjóði. Þau hafi á sínum tíma hafnað boði um að- ild að opinberu sjóðunum. Þó lífeyr- isréttindi geti verið lakari en í opin- beru sjóðunum þá beri stéttarfélögin sjálf ábyrgð á eigin vali. Ekki standi upp á sveitarfélögin að bæta eða bera ábyrgð á afleiðingum þess. omfr@mbl.is Kjaradeila í hörðum hnút  Alvarlegur ágreiningur milli SGS og Sambands ísl. sveitarfélaga um jöfnun lífeyris- réttinda  Sáttafundur árangurslaus  Neita að ræða launin nema leyst sé úr þessu Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Alls bárust Strætó bs. 2.778 ábend- ingar frá farþegum á síðasta ári, flestar varðandi aksturslag, fram- komu vagnstjóra og tímasetningar. 2.536 ábendingar bárust árið 2017 og 3.654 árið 2016. Þetta kem- ur fram í svari Strætó við fyrir- spurn Kolbrúnar Baldursdóttur, borgarfulltrúa Flokks fólksins. „Flestar ábend- ingarnar eru um framkomu og akst- urslag. Það finnst mér alveg ótrú- legt,“ segir hún. „Það þarf að skoða þetta betur, en engu að síður eru þarna 3.654 ábendingar á einu ári. Það hlýtur að vera eitthvað að, mér finnst þetta alveg ótrúlega mikið. Það virðist þó sem vel sé tekið á þessu, en hve margir ætli séu í starfi við það?“ segir Kolbrún. Átti von á 100-200 ábendingum Fram kemur í svari Strætó að ábendingarnar berist ýmist með tölvupósti, í gengum ábendingaform á heimasíðu, í gegnum facebooksíðu Strætó, með símtali eða með gæða- úttekt eftirlitsmanna. Alla jafna fái viðskiptavinur svar við ábendingu sinni innan þriggja daga, en krefjist hún frekari úrlausnar sé málinu jafnan lokið innan tveggja vikna. „Það er nú líklega einfalt að setja inn ábendingar inni á vefnum, en fólk hefur samt fyrir því. Ef það er satt að flestar ábendingar séu um framkomu og aksturslag, þá myndi ég heldur betur fara í saumana á því ef ég væri í stjórn í þessu fyrir- tæki eða stýra því og sjá til þess að næsta ár verði aldeilis ekki svona. Þetta þarf að vera nánast ekki neitt. Ég átti von á 100-200 ábendingum á ári en þetta er miklu meira,“ segir Kolbrún. 200 milljónir á ári Einnig beindi hún til Strætó fyr- irspurn um hvað það myndi kosta ef öll grunnskólabörn í Reykjavík fengju frítt í Strætó. Svarið hljóðaði upp á a.m.k. 200 milljónir króna miðað við hlut Reykjavíkur í heild- arfargjaldatekjum af afsláttar- fargjöldum til barna og ungmenna á árinu 2018. „Margir foreldrar grunnskóla- barna þurfa að hugsa um það að eiga fyrir strætókortum, kannski fyrir tvö grunnskólabörn. Mér finnst þetta ekki svo mikill pening- ur,“ segir Kolbrún, en Strætó nefn- ir að ómögulegt væri fyrir vagn- stjóra að gera greinarmun á því hvort barn og/eða ungmenni ættu að fá að ferðast frítt eða ekki miðað við núverandi greiðslufyrirkomulag. „Þau bera fyrir sig að þetta sé eitthvað flókið í framkvæmd. Mér finnst þetta bara ekkert flókið. Öll grunnskólabörn í Reykjavík gætu einfaldlega fengið kort. Það væri vel hægt að gera þetta,“ segir Kol- brún og bendir á að upphæðina megi setja í samhengi við við fram- úrkeyrslur borgarinnar í öðrum verkefnum sem fjallað hefur verið um undanfarin misseri. 26 börn þurftu að hætta Kolbrún beindi einnig sjónum að frístundastarfi barna og biðlistum eldri borgara eftir plássi á hjúkr- unarheimilum. Spurði hún hve mörg börn hefðu þurft að hætta á frístundaheimili vegna þess að for- eldri hefði ekki aðhafst vegna van- greiddrar vistunarskuldar við borg- ina. Í svarinu kom fram að árin 2017-2019 hefðu 26 börn verið í þessari aðstöðu. „Ég átti von á því að þetta væru eitt til tvö börn á ári og helst ekki neitt. Ég veit það geta verið ein- hverjar aðstæður að baki, t.d. að það sé komið vor og fáir dagar eftir af skólanum, en mér fannst þetta of mörg börn. Þetta er meira en helm- ingur af einum bekk,“ segir Kol- brún og bætir því við að börn eigi aldrei að líða fyrir það að foreldrar þeirra séu fátækir eða ef ekki er gengið frá samningi við borgina af einhverjum ástæðum. „Þetta er ekki risastór hópur, en þetta sló mig. Eitt barn er einu barni of mik- ið. Ég vil að barni sé aldrei sagt upp í frístund vegna skulda foreldris. Hagsmunir barnsins eiga alltaf að ráða,“ segir hún. Morgunblaðið/Eggert Strætó 200 milljónir króna kostar að grunnskólabörn fái frítt í strætó. Framkvæmdin gæti reynst þrautin þyngri. Þúsundir ábendinga berast Strætó árlega  200 milljónir kostar að grunnskólabörn í borginni fái frítt Kolbrún Baldursdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.