Morgunblaðið - 07.06.2019, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 07.06.2019, Blaðsíða 37
MENNING 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 Nýræktarstyrkir Miðstöðvar ís- lenskra bókmennta voru afhentir í gær og hlutu þá tveir nýir rithöf- undar. Auður Stefánsdóttir hlaut styrk fyrir barnabókina Í gegnum þokuna og Kristján Hrafn Guð- mundsson fyrir smásagnasafnið Afkvæni. Hlaut hvort þeirra hálfa milljón króna og var það Lilja Al- freðsdóttir, mennta- og menningar- málaráðherra, sem afhenti styrkina við athöfn í Gunnarshúsi, húsi Rit- höfundasambandsins. Tekur á viðkvæmu málefni Auður Stefánsdóttir (f. 1983) er með BA-gráðu í íslensku og meist- aragráðu í íslenskum bókmenntum frá Háskóla Íslands og kennslu- réttindi á framhaldsskólastigi. Hún er íslenskukennari í framhalds- skóla og er í meistaranámi í ritlist við Háskóla Íslands meðfram kennslu. Í umsögn bókmenntaráðgjafa um verk hennar segir: „Í gegnum þokuna er fantasíubók fyrir börn um baráttu góðs og ills, dauðann og lífið. Höfundur tekur á við- kvæmu málefni á fágaðan hátt og fléttar saman við spennandi at- burðarás á flöktandi mörkum raun- veruleika og ímyndunar. Textinn er skýr og aðgengilegur, lýsingar á handanheiminum hugmyndaríkar og margar skemmtilegar skírskot- anir í hvernig er að vera krakki á Íslandi í dag.“ Andrúmsloftið létt og leikandi Kristján Hrafn Guðmundsson (f. 1979) er bókmenntafræðingur með kennsluréttindi og kennir íslensku, heimspekisamræðu og kvikmynda- læsi í grunnskóla. Kristján þýddi bók Harukis Murakamis, Það sem ég tala um þegar ég tala um hlaup, og hafði umsjón með menningar- umfjöllun DV á árunum 2007-2010. Í umsögn bókmenntaráðgjafa um bók hans segir: „Afkvæni er safn smásagna sem eiga það sam- eiginlegt að gerast í hversdags- legum íslenskum samtíma. Sög- urnar eru grípandi, persónulýs- ingar skarpar og textinn er skrif- aður á blæbrigðaríku máli. Smávægilegum atvikum er gjarnan lýst á spaugilegan hátt; andrúms- loftið er létt og leikandi en um leið tekst höfundi að miðla samspili gleði og alvöru af sérstakri næmni.“ Þetta er í tólfta sinn sem Ný- ræktarstyrkjum er úthlutað en alls hafa á sjötta tug höfunda hlotið þessa viðurkenningu. Nýræktar- styrkir eru veittir árlega vegna skáldverka höfunda sem eru að stíga sín fyrstu skref á ritvellinum, óháð aldri, og til að hvetja þá til frekari dáða á þeirri braut, að því er fram kemur í tilkynningu. Er þá átt við skáldverk í víðri merkingu; sögur, ljóð, leikrit og fleira. Smásagnasafn og barnabók hlutu styrki Morgunblaðið/RAX Styrkveiting Frá afhendingu Nýræktarstyrkja Miðstöðvar íslenskra bókmennta í Gunnarshúsi í gær.  Nýræktarstyrkir Miðstöðvar íslenskra bókmennta veittir Það er fátt nýtt undir sólinniog lögmaðurinn StellaBlómkvist er enn við samaheygarðshornið í tíundu bókinni, Morðið í Snorralaug. Sem fyrr getur konan allt og er öðrum fremri, sagan er spennandi og þráð- urinn hug- myndaríkur, en húmorinn, ef húmor skyldi kalla, og lítils- virðing gagnvart karlmönnum draga bókina verulega niður. Karlar eru oft í lykilhlutverkum í spennu- og glæpasögum, en við því hefur verið brugðist og sennilega aldrei betur en með trílógíu Stiegs Larssons um ofurkonuna Lisbeth Salander. Þar er líka blaðamaðurinn Mikael Blomkvist í stóru og góðu hlutverki. Hvort Stella Blómkvist sækir nafn sitt og orkuna í tvíeykið skal ósagt látið en himinn og haf er á milli sænsku og íslensku bókanna, þar sem Blómkvist kemur við sögu. Engu að síður hefur Stella Blóm- kvist ýmislegt gott til brunns að bera. Hún er vel að sér í samskiptum lögmanna meintra sakamanna við yfirvaldið og gætir réttar skjólstæð- inga sinna í hvívetna. Hún er fljót að átta sig á aðstæðum, er klók og les rétt í spilin. Samt sem áður er tuggan og end- urtekningin frekar þreytandi og húmor eða háð, sem felst í því að gera lítið úr öðrum og reyna að vera fyndinn á kostnað annarra, missir algerlega marks. Þegar aðstoðar- maður utanríkisráðherra er sakaður um nauðgun kemur það Stellu ekki á óvart, því í hennar huga eru flestir pólitíkusar hrægammar eða hýenur. Stórbokkar og undirlægjur þeirra stjórna mannkyninu, að sögn mömmu hennar. Auðvitað stingur lögreglan, svonefndir prúðupiltar eða prumphanar, kæru á hendur karlmanni í góðri stöðu niður í kjall- ara. Morð eru fjölskyldugaman, Perlan er pólitískt monthús og Esj- an montfjall Reykvíkinga. Þó er hvergi skotið eins hátt yfir markið og þegar staðhæft er að Skagamenn séu hættir að skora! Textinn er almennt lipur en eitt- hvað er Stellu farið að fatast flugið því hún getur enga vörn sér veitt þegar hún er sökuð um nauðgun. Engu að síður leysir hún málin með stæl. Morgunblaðið/Árni Sæberg Hulduhöfundur Enginn veit hver Stella Blómkvist er í raun og veru. Stella er enn við sama heygarðshornið Glæpasaga Morðið í Snorralaug bbbnn Eftir Stellu Blómkvist (dulnefni). Kilja. 317 bls. Mál og menning, 2019. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR Ascension MMXIX nefnist ný svart- málmshátíð sem rís úr ösku tónlistarhátíðarinnar Oration, eins og það er orðað í tilkynningu. Há- tíðin verður haldin í Hlégarði í Mos- fellsbæ í næstu viku, 13.-15. júní, og segir í tilkynningu að búast megi við fjölbreyttri tónlist og einstakri upplifun sem aðstandendur há- tíðarinnar kalli „dark arts“. Fram muni koma 30 hljómsveitir frá 13 löndum og meðal íslenskra hljóm- sveita verða Sólstafir, Kælan mikla, Svartidauði og Misþyrming. Í er- lendu deildinni verða sveitir á borð við Wolvennest, Gost, King Dude, Drab Majesty, Antaeus, Bölzer og Tribulation. Forsprakki hátíðarinnar er hljóðvinnslumaðurinn Stephen Lockhart, sem rekur hljóðverið Studio Emissary í Mosfellsbæ, en hann hefur haft mikil áhrif hvað varðar aukna athygli og vinsældir íslenskrar svartmálmstónlistar er- lendis. Lockhart hefur tekið upp tónlist fjölda þekktra hljómsveita í þeim geira og þá m.a. Svartadauða, Sinmara og Auðnar. Með honum starfar sambýliskona hans Gunn- hildur Edda Guðmundsdóttir. „Mikið verður lagt í að upplifun hátíðarinnar verði eftirminnileg og skapi sérstöðu í hugum hátíðar- gesta. Hugað verður sérstaklega að góðri þjónustu og m.a. verður boðið upp á langferðabíl eða „festival“- rútu milli miðbæjar Reykjavíkur og Mosfellsbæjar við upphaf og lok hvers tónlistarkvölds. Einnig er til- valið að nýta tjaldstæði bæjarins sem er í innan við 5 mínútna göngu- færi frá tónleikastað og þar er hægt að njóta miðnætursólarinnar í fjalladýrð Mosfellsbæjar, áhyggju- laust,“ segir í tilkynningu. Miðasala fer fram á tix.is. Ascension MMXIX rís úr ösku Oration Málmelsk Stephen Lockhart og Gunnhildur Edda Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Woda i Pustka BORGARLEIKHÚSIÐ Kynntu þér nýjan tapas-matseðil Leikhúsbarsins á borgarleikhus.is Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is Matthildur (Stóra sviðið) Fös 7/6 kl. 19:00 41. s Fim 13/6 kl. 19:00 43. s Sun 16/6 kl. 19:00 45. s Mán 10/6 kl. 19:00 42. s Fös 14/6 kl. 19:00 44. s Stundum ég þarf að vera svolítið óþekk! Elly (Stóra sviðið) Lau 8/6 kl. 20:00 218. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas. Aukasýningar vegna mikillar eftirspurnar! Kæra Jelena (Litla sviðið) Fös 7/6 kl. 20:00 22. s Lau 15/6 kl. 20:00 Lokas. Kvöld sem breytir lífi þínu. Ronja Ræningjadóttir (Stóra sviðið) Lau 8/6 kl. 13:00 Lau 8/6 kl. 16:00 Auka Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Hárið (Stóra sviðið) Fös 14/6 kl. 19:30 Lau 15/6 kl. 19:30 Áhugasýning ársins 2019 Brúðkaup Fígaros (Stóra Sviðið) Lau 7/9 kl. 19:30 Frums. Fös 20/9 kl. 19:30 3.sýn Lau 28/9 kl. 19:30 5.sýn Sun 15/9 kl. 19:30 2.sýn Lau 21/9 kl. 19:30 4.sýn Lau 5/10 kl. 19:30 6.sýn Óborganlegu gamanópera eftir meistara Mozart leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Kirkjulistahátíð stendur nú yfir í Reykjavík og í dag verður boðið upp á tónleikaspjall í Ásmundarsal, skammt frá Hallgrímskirkju. Þar munu Halldór Hauksson, tónlistar- og fjölmiðlamaður, og tenórsöngv- arinn Benedikt Kristjánsson, sem er eftirsóttur á barokksenunni í Evrópu í dag, spjalla um kantötur Bachs sem fluttar verða um hvíta- sunnuhelgina í Hallgrímskirkju. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er „Mysterium“ og er nafnið dregið af nýju tónverki sem var frumflutt á opnunartónleikum 1. júní, óratóríu eftir Hafliða Hallgrímsson. Hátíð- inni lýkur á mánudag, 10. júní, með lokatónleikum. Tónleikaspjall í Ásmundarsal Ljósmynd/Stephan Röhl Eftirsóttur Benedikt Kristjánsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.