Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 10

Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tilgangurinn með því að setja milli- landaflugvellina fjóra undir sömu stjórn og á fjárhagslega ábyrgð Isavia er að stuðla að uppbyggingu aðstöðu á varaflugvöllunum og þar með auknu flugöryggi. Nefnd um efl- ingu innanlandsflugs og rekstur flugvalla lagði þetta til og hefur Al- þingi lýst yfir stuðningi við að það verði gert um áramót og samgöngu- ráðherra vill koma tillögunum í framkvæmd. Reykjavíkurflugvöllur, Akur- eyrarflugvöllur og Egilsstaðaflug- völlur eru skilgreindir sem milli- landaflugvellir og varaflugvellir fyrir Keflavíkurflugvöll. Með margföldun flugs til og frá Keflavík á síðustu ár- um hefur þörf fyrir góða aðstöðu á varaflugvöllum aukist. Auk þess er áhugi fyrir því að hafa fleiri gáttir ferðafólks inn í landið og hefur verið unnið að því að markaðssetja Akur- eyrarflugvöll sem áfangastað í beinu flugi frá Evrópu. Tvær erlendar ferðaskrifstofur standa nú fyrir beinu leiguflugi þangað frá Bret- landi og Hollandi. Snýst um flugöryggi Þær aðstæður geta komið upp, ef Keflavíkurflugvöllur lokast skyndi- lega vegna veðurs eða af öðrum ástæðum, að fjöldi flugvéla verði í lausu lofti, ef svo má að orði komast. Sumar gætu snúið til sama lands, aðrar hugsanlega lent í Skotlandi en ekki er víst að allar geti það og þurfi að nota varaflugvöll á Íslandi. Slíkir dagar hafa komið upp og þotur þurft að nýta alla varaflugvellina. Aðstaðan á Akureyri og Egilsstöð- um býður ekki upp á að hægt sé að taka við mörgum þotum í einu. Ís- lensku flugfélögin og öryggisnefndir flugmanna hafa varað við þessari stöðu, meðal annars í umsögnum þegar nýjasta samgönguáætlun var kynnt. Í umsögn Icelandair kom fram það mat félagsins að smæð flughlaða og skortur á flugstæðum á flugvöllunum á Akureyri og Egils- stöðum væri stærsta ógn við öryggi flugs til og frá Íslandi. Aðstaða á varaflugvöllunum hefur ekki verið byggð upp samhliða þeirri miklu aukningu sem orðið hefur á flugumferð til landsins. Í skýrslu starfshóps um innanlandsflug og flugvelli, flugvallanefndarinnar, kemur fram að gera þurfi aksturs- brautir meðfram flugbrautum og fjölga flugvélastæðum á Akureyri og Egilsstöðum. Einnig sé nauðsynlegt að byggja upp nýjar flugstöðvar í Reykjavík og á Akureyri. Þjónustugjöld hafa áhrif Ljóst er að framkvæmdakostnað- ur hleypur á milljörðum. Ekki er fyllilega ljóst hvernig eigi að fjár- magna verkefnin. Flugvallanefndin lagði til að þjónustugjöld á milli- landaflugvöllum yrðu samræmd og hóflegt þjónustugjald lagt á hvern fluglegg til að standa straum af upp- byggingu og rekstri flugvallanna. Njáll Trausti Friðbertsson alþingis- maður sem var formaður flugvalla- nefndarinnar segir að þjónustugjöld sem lögð yrðu á alla flugfarþega, 100 til 300 krónur á hvern farþega, myndu fara langt með að fjármagna kostnað við varaflugvellina. Það þýð- ir að millilandaflugið myndi greiða megnið af kostnaðinum því þar eru flestir farþegarnir. Samkvæmt út- reikningum sem nefndin lét gera má gera ráð fyrir að farþegum til og frá Íslandi fækki við hækkun gjalda. Erfitt er að áætla hversu mikið. Ljóst má vera að hækkun fargjalda í innanlandsflugi vegna samræmingar þjónustugjalda í flugingu myndi sömuleiðis grafa undan þeim sam- göngumáta. Njáll segir eðlilegt að millilanda- flugið greiði þetta gjald enda séu varaflugvellirnir nauðsynlegt örygg- isatriði fyrir alþjóðaflugið. Hann bendir á að þannig hafi fyrirkomu- lagið verið til ársins 2011 þegar farþegasköttum var breytt í þjón- ustugjöld. Þá hafi tekjur varaflug- vallanna hrunið en Keflavíkurflug- völlur fljótlega orðið sjálfbær fjárhagslega. Þótt Njáll Trausti svari því ekki beint er ljóst að horft er til þess að hluti af tekjum Isavia af Keflavíkurflugvelli verði færður til baka og notaður til að efla varaflug- vellina. Þarf að semja Ekki er alveg einfalt að koma þessum breytingum í framkvæmd. Meirihluti umhverfis- og samgöngu- nefndar Alþingis tók undir niður- stöður flugvallanefndarinnar og gerðar voru breytingar á tillögu að samgönguáætlun í samræmi við þá stefnumörkun. Þingið styður því breytinguna. Sigurður Ingi Jó- hannsson samgönguráðherra segist vinna að framgangi málsins í sam- ræmi við það. Hann segist jafnframt vinna að endurskipulagningu á notk- un þess fjármagns sem ríkið hafi veitt til flugvallanna þannig að stuðningurinn verði til að efla innan- landsflugið. Samgönguráðherra þarf væntanlega að gera samning við Isavia um þessar breytingar og fjár- mögnun þeirra. Isvia er opinbert hlutafélag og fer fjármálaráðherra með hluthafavald- ið. Í gildandi fjármálaáætlun er hug- myndin um sameiningu flugvallanna tekin upp. Stefnt er að því að fastar verði kveðið að orði um það í breyt- ingum á fjármálaáætlun sem nú er unnið að. Isavia taki yfir rekstur flugvalla  Varaflugvellirnir hafa ekki verið byggðir upp í takt við alþjóðaflugið  Aðstaðan talin alvarleg ógn við flugið  Lagt er til að hækkun þjónustugjalda á flugfarþega standi undir milljarða fjárfestingu Morgunblaðið/ÞÖK Keflavíkurflugvöllur Alþjóðaflugvöllurinn í Keflavík lokast sjaldan. Sigurður Ingi Jóhannsson Njáll Trausti Friðbertsson Flugvellirnir í Reykjavík, á Akur- eyri og Egilsstöðum eru skil- greindir sem varaflugvellir fyrir Keflavíkurflugvöll. Vellirnir á Ak- ureyri og Egilsstöðum hafa þann meginkost að vera á öðru veður- svæði en Keflavík. Aftur á móti er helsti ókostur Akureyrarflugvallar erfitt aðflug fyrir þá sem ekki þekkja til aðstæðna þar. Í Sögu flugvalla og flugleiðsögu á Íslandi sem Arnþór Gunnarsson skrifaði og Isavia gaf út á síðasta ári segir að þótt slæm veðurskil- yrði séu aðalástæðan fyrir því að millilandaflugvélar þurfi að lenda á varaflugvöllum hér á landi sé þó tiltölulega sjaldgæft að ólendandi sé á Keflavíkurflugvelli vegna veð- urs og yfirleitt aðeins hluta úr degi. Flugvélar Icelandair hafi þurft að lenda á varaflugvelli utan Keflavíkur í 29 skipti á tíu ára tímabili frá 2005 til 2014, eða um það bil þrisvar á ári að meðaltali. Þrettán sinnum urðu Egilsstaðir fyrir valinu en í átta skipti var lent í Reykjavík og jafnoft á Akur- eyri. Tekið er fram að með ört vaxandi flugumferð á síðustu ár- um reyni meira á getu vara- flugvalla hér á landi en aðeins eru stæði fyrir fjórar farþegaþotur á Akureyri og Egilsstöðum. Þá er þess getið að flugbrautirnar á Akureyri, Egilsstöðum og Reykja- vík séu of stuttar fyrir farþega- þotur af stærstu gerð og er Prestwick í Skotlandi því vara- flugvöllur fyrir þær. Fáar lendingar á varaflugvöllum ÖRT VAXANDI FLUG KALLAR Á BETRI AÐSTÖÐU Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þetta áttu upphaflega bara að vera nokkur brugghús en hátíðin hefur stækkað og stækkað. Að undanförnu höfum við þurft að segja nei við nokkra veitingastaði og matarvagna sem vildu koma og vera með. Við stefnum á að hafa hátíðina enn stærri á næsta ári,“ segir Jóhann Guðmundsson, bruggari og einn eig- enda The Brothers Brewery í Vest- mannaeyjum. Bræðurnir halda mikla bjór- og götumatarhátíð í Eyjum á morgun, laugardag. Kallast hún Street Food and Beer Festival og verður á bíla- stæði gegnt ölstofu The Brothers Brewery við Bárustíg. 20 brugghús í heimsókn „Við hertökum þetta bílastæði með 200 fermetra tjaldi en inni í því verða 20 brugghús að kynna bjór sinn. Fyrir utan tjaldið verða svo sölubásar fyrir veitingastaði og borð og bekkir fyrir gesti,“ segir Jóhann. Hann segir að allt í allt verði um 300 manns á hátíðinni en miðar seldust upp fyrir nokkru. „Okkur hefur lengi langað til að vera með viðburð í Eyjum sem sam- einar þessa frábæru matar- og bjór- menningu sem er á Íslandi. Það eru örbrugghús að spretta upp um allt land sem er frábær þróun og færir okkur meira úrval af góðum bjór í stað þess að vera alltaf með sama bjórinn. Við fengum svo þrjá frá- bæra veitingastaði, Einsa kalda, Slippinn og Gott, til að útbúa street- food-mat sem passar við.“ Gestir frá Bandaríkjunum Eins og áður segir mæta 20 brugghús á hátíðina. Þar á meðal eru Malbygg, Gæðingur, Kaldi, Öl- verk og Jón ríki. Þá mæta fjögur er- lend brugghús til leiks; Lone Pine Brewing frá Maine í Bandaríkj- unum, Mondo frá London, Braw frá Kaupmannahöfn og Oslo Brewing. Félagarnir í Brothers Brewery hafa kynnst aðstandendum þessara brugghúsa á ýmsum bjórhátíðum og með þeim tekist góð kynni og sam- starf. „Það er gaman að hitta fólk sem er á svipaðri línu og maður sjálfur, vill hafa gaman af þessu og læra hvað af öðru,“ segir Jóhann. Halda veglega matar- og bjórhátíð í Vestmannaeyjum  200 fermetra tjald og sölubásar  300 gestir væntanlegir Ljósmynd/Óskar Pétur Friðrikson Hátíð Jóhann Guðmundsson og Hlynur Vídó Ólafsson hjá The Brothers Brewery unnu að því að setja upp 200 fermetra tjaldið í Eyjum í vikunni. Álfabakka 12, 109 Reykjavík • S. 557 2400 • Netverslun elbm.is Opið virka daga kl. 8-18 Sængurverasett, dúkar, servíettur, viskustykki, dýnuhlífar & lök, sloppar & inniskór, handklæði & þvottapokar. Vörurnar fást í Efnalauginni Björg í Mjódd LÍN fyrir hótel, veitingahús, gistiheimili, sjúkrastofnanir og heimili Norðurlandamót í brids hefst í dag í norska bænum Kristiansand. Keppt er bæði í opnum flokki og kvennaflokki og tekur Ísland þátt í þeim báðum. Í íslenska liðinu í opnum flokki spila Aðalsteinn Jörgensen, Bjarni H. Einarsson, Jón Baldursson, Sig- urbjörn Haraldsson, Gunnlaugur Sævarsson og Kristján Már Gunn- arsson. Í kvennaflokki spila Anna Ívarsdóttir, Guðrún Óskarsdóttir, Anna Guðrún Nielsen og Helga H. Sturlaugsdóttir. Í opnum flokki spila lið frá Ís- landi, Noregi, Danmörku, Finn- landi, Svíþjóð og Færeyjum. Fær- eyingar eru ekki með í kvenna- flokki en þar spila tvö norsk lið. Spiluð er tvöföld umferð í báðum flokkum og hægt er að fylgjast með mótinu á heimasíðu Bridge- sambands Íslands, bridge.is, og á vefnum bridgebase.com. Norðurlandamót í brids hefst í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.