Morgunblaðið - 07.06.2019, Síða 18

Morgunblaðið - 07.06.2019, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 Mér finnst með ólík- indum hve margt full- orðið kristið fólk, jafn- vel hámenntað og háskólagengið fólk, virðist hafa litla þekk- ingu á múhameðstrú, (islam), og heldur jafn- vel að Allah sé sami guðinn og Guð okkar kristinna manna. Ég hef lengi haft ímugust á þessum „trúarbrögð- um“; ekki síst eftir 11. september 2001. Þess vegna hef ég reynt að afla mér þekkingar á þessu málefni, m.a. með því að lesa nokkrar bækur, t.d. „Þjóðaplágan islam“ eftir norska blaðakonu og „Islam and terrorism“ eftir egypskan fv. prófessor í íslömsk- um fræðum við merkan háskóla í Kaíró, sem snerist til kristinnar trúar, og býr nú í Bandaríkjunum. Til stað- festingar á því sem ég lærði af þeim lestri fór ég á „netið“, og fann á „Wiki- pedia frjálsa alfræðiritinu“ miklar og góðar upplýsingar um Múhameð spá- mann, hadíðurnar og Kóraninn. Leyfi ég mér hér með að endurrita umsögn Wikipedia um Múhameð töluvert stytt: „Múhameð er skv. íslam síðasti spámaður Guðs á jörðinni. Hann var uppi frá 570 til 632. Markar fæðing hans einskonar nýja tíma í Miðaust- urlöndum. Múhameð er sá spámaður sem Allah sendi síðastan, en áður hafði hann sent Adam, Nóa, Móse og Jesú. Múhameð taldi sig kominn til að fullkomna verk eldri spámanna og taldi sig upphaflega til kristinna og Gyðinga … Dauða Múhameðs bar brátt að og því hafði hann ekki valið eftirmann sinn og síðan hafa staðið deilur á milli hópa múslima um hver eftirmaðurinn sé“ … Múhameð spámaður fæddist 20. apríl 570 í Mekka … Hann var af Hasjimætt, sem er hliðarætt Kúreisj- ættbálks, sem var voldugasta ættin í Mekka. Hún var voldug í krafti versl- unar og réð yfir helgidóminum Kaba. Arabía byggðist sterklega á ætt- artengslum á þessum tíma … Árið 610 fékk Múhameð vitrun frá erki- englinum Gabríel sem sagði honum að hann væri spámaður Guðs og bæri að breiða út boð- skap hans. Þrem árum seinna byrjaði Múham- eð að predika op- inberlega í Mekka. Flestir sem á hann hlustuðu virtu hann ekki viðlits, en nokkrir hlustuðu á hann og hann byrjaði að safna um sig litlum hóp fylgj- enda. Þegar fylgj- endum Múhameðs fjölgaði fóru ættbálkaleiðtogarnir í Mekka að óttast að hann gæti ógnað stjórn þeirra yfir Mekka … Árið 622 eftir fjölda hótana og of- sókna flúðu Múhameð og fylgjendur hans frá Mekka til Medína, þar sem hann aflaði sér margra fylgismanna. Óvinsemd milli Mekka og Medína óx stöðugt; árið 624 réðst Múhameð með hóp 300 múslima á úlfaldalest frá Mekka. Árásin mistókst og íbúar í Mekka ákváðu að senda lítinn her til Medína til að útrýma múslimum. Boðskapur Múhameðs féll vel að hug- myndum Gyðinga sem bjuggu í Med- ína. Það var litið alvarlegum augum hjá Aröbum að Múhameð skyldi flytja til Medína, því með því varð bræðralag trúarinnar æðra ættar- tengslum. Í þessum nýju heimkynn- um Múhameðs fóru stjórnmálahæfi- leikar hans að segja til sín og náði hann á skömmum tíma nær öllum völdum í sínar hendur. Hann kom því þannig fyrir að öllum málum skyldi skotið til Allah og spámanns hans. 15. mars 624 börðust múslimar og íbúar Mekka nálægt Badr. Þó að herlið Mekka væri tvöfalt fjölmennara tókst múslimum að vinna sigur. Þeir álitu að sigurinn hefði unnist fyrir tilskipan Allah. Eftir sigurinn rak Múhameð alla Gyðinga út úr borginni og eftir það voru nánast allir íbúar Medína múslimar. Árið 625 réðst Abu Sufyan hershöfðingi frá Mekka á Medína með 3.000 menn; þó að hann hefðli unnið bardagann missti hann of marga menn til að elta múslimana inn í Medína. 627 réðst hann aftur á Med- ína; hann fékk hjálp frá gyðingaætt- bálknum Banu Qurayza sem Múham- eð hafði rekið út úr Medína. Múhameð sigraði og nú voru allir karlmenn og táningsdrengir úr Banu Qurayza drepnir og konur og börn seld sem þrælar. Allah bauð að brjóta ætti alla til hlýðni við sig og söfnuð sinn: „Berjist við þá uns lokið er áþján og trúin á Al- lah ríkir öllum ofar …“ Árið 628 þorði Múhameð að snúa aftur til Mekka. Eftir nokkrar samningaviðræður var samningur undirritaður, sem gaf múslimum leyfi til að ferðast til Mekka í pílagrímsferðir. Samning- urinn var rofinn 630 og Múhameð réðst á Mekka með yfir 10.000 menn. Þá gáfust íbúar Mekka upp án mót- spyrnu. Múhameð dó 8. júní 632 63 ára gamall eftir skammvinn veikindi. Rúmum 100 árum eftir dauða hans höfðu múslimar lagt undir sig stór landsvæði allt frá Miðausturlöndum til Spánar og Norður-Afríku. Er múslimar lögðu undir sig lönd fóru þeir fram undir svörtum fána líkt og liðsmenn ISIS gera í dag, enda telja þeir sig vera réttkjörna arftaka Mú- hameðs.“ Nú gætu einhverjir haldið, eftir að hafa lesið þessi skrif mín, að ég hat- aðist við múslima; það er öðru nær. Ég hef ríka samúð með þeim; að þeir skuli aðhyllast þessi hræðilegu trúar- brögð, sem eru ekki einungis trúar- brögð heldur líka pólitík, sem stefnir að heimsyfirráðum. Þess vegna hef ég líka miklar áhyggjur af fjölgun músl- ima á Vesturlöndum. En ég bið fyrir múslimum að Guð okkar kristnu líti til þeirra í miskunn sinni og leiði þá frá villu síns vegar. Það ættu kirkjur okk- ar líka að gera. Seinna kemur kannski pistill frá mér um Kóraninn. Hver var Múhameð spámaður? Eftir Knút Haukstein Ólafsson »Mér finnst með ólík- indum hve margt fullorðið, kristið fólk, jafnvel hámenntað og háskólagengið fólk virð- ist hafa litla þekkingu á múhemeðstrú. Knútur Haukstein Ólafsson Höfundur er eldri borgari. Við lýðveldisstofn- unina (1944) og við lok heimsstyrjaldarinnar ári síðar tóku þeir Ís- lendingar sem gleggst sáu að óttast það að erlendar þjóðir kynnu með einum eða öðrum hætti að seilast til áhrifa hér á landi. Sá ótti fékk byr undir báða vængi þegar meiri hluti alþingismanna sam- þykkti inngönguna í NATO 1949, að vísu með loforði um það að hér yrði aldrei erlendur her á friðartímum. Samt kom hingað á Keflavíkurflug- völl amerískur her tveimur árum síðar, í tengslum við svokallaðan varnarsamning við Bandaríkin. Til að gera lengra mál styttra, þá fylktu liði andstæðingar erlends hers og um 1960 voru stofnuð „Sam- tök hernámsandstæðinga“. Burt séð frá hinum ólíku stjórnmálalegu hug- sjónum þessara manna, þá voru þetta þjóðernissinnaðir og þjóðholl- ir menn, sannir ættjarðarvinir, sem voru uppfullir af anda sjálfstæðis- baráttunnar og mátu hag Íslands of- ar öllu öðru. Hinu ber ekki að neita að vera er- lends hers á Íslandi leiddi til þess að margt þessara manna fór að kjósa Sósíalistaflokkinn og síðar Alþýðu- bandalagið og sumir stigu skrefið til fulls og gerðust þar flokksbundnir. Innganga Íslands í EFTA (1970) var skref í þá átt að skerða fullveldi Íslands. Inngangan í EES (Evr- ópska efnahagssvæðið) sem tók gildi í ársbyrjun 1994 var mikið áfall – ósigur – reiðarslag fyrir þjóðholla menn. Sá gjörningur fór ekki í þjóð- aratkvæði, því þjóðin var svo ólán- söm að eiga þá forseta, sem lét stjórnmálamenn segja sér að leggja nafn sitt við þann landráðagjörning. Þjóðræknir menn töldu sig eiga „hauk í horni,“ þar sem Alþýðu- bandalagið var, því þingmenn þess flokks stóðu einhuga gegn inngöng- unni. En það gerðu fleiri og hlýtur eindregin og ósvikin afstaða Eyjólfs Konráðs Jónssonar (þingmanns Sjálfstæðisflokksins) að verða skráð í fullveldissögu þjóðarinnar. Afleiðingar þessa landráðagjörn- ings hafa orðið margþættar; upp- kaup útlendinga á íslenskum jörð- um og nú síðast væntanlegur innflutningur á hráu erlendu kjöti, með tilheyrandi smithættu pesta í íslensk húsdýr. Stundum fáum við fréttir, með fárra daga millibili, af erlendum tilskipunum um að Ís- lendingar skuli … „þetta og hitt.“ Ég fæ ekki annað séð en að slíkur evrópskur úrskurður hafi „sett af“ einn íslensku ráðherranna, Sigríði Á. Andersen dómsmálaráðherra. Þótt sumir deili um gjörðir hennar, þá er það algjörlega fráleitt að er- lend öfl úrskurði um íslensk mál- efni. (Þetta minnir á Sturlungaöld, í aðdraganda þess að við glötuðum fullveldinu, þegar erlendur kon- ungur fór að fella úrskurði um ís- lensk málefni). Árið 1998 var stjórnmálaaflið Samfylkingin stofnuð, með samruna þriggja flokka. Fáeinir menn úr Al- þýðubandalaginu gátu ekki sætt sig við að ganga í þessi nýju stjórn- málasamtök og stofnuðu, ásamt ýmsum náttúruverndarsinnum, stjórnmálaflokkinn „Vinstrihreyf- inguna – grænt framboð“ (VG). Margir báru þá von í brjósti að VG yrði flokkur sem gætti fullveldis lands og sjálfstæðis þjóðar. Hver varð reyndin? Allir skulu njóta sannmælis og því segi ég fyrst, að þrátt fyrir mistök hafi ríkisstjórn Steingríms J. Sigfússon- ar og Jóhönnu Sigurðardóttur unnið kraftaverk við að reisa okkur upp frá hruni og þeir sem ekki viðurkenna það eru pólitískir ódrengir. En VG tók þátt í því glæpsamlega athæfi að leggja inn umsókn að Evrópusambandinu (ES). Í orði kveðnu létu þeir svo sem þeir gerðu þetta að kröfu Samfylk- ingarinnar, en eftir á að hyggja verður ekki annað séð en það hafi verið lygi. Og svo þegar einn ráðherra þeirra – Jón Bjarna- son – stendur á rétti Íslands, þá losa þeir sig einfaldlega við hann úr ríkisstjórninni. Ekki verður séð að við myndun núverandi ríkisstjórnar hafi VG samið um neitt varðandi hindrun á endurbótum á geymslurými fyrir stríðsvélar USA á Keflavíkurflug- velli og enn er viðhaldið árlegu „loft- rýmiseftirliti,“ sem er í reynd ekk- ert annað en æfingar fyrir flugmenn árásarflugvéla. Hitt er þó miklu alvarlegra fyrir fullveldi lands og þjóðar, hvernig Evrópusambandið er sífellt að teygja loppurnar lengra og lengra til áhrifa og stjórnunar á íslenskum málefnum. Nú síðast er það orku- pakki nr. 3. Þar eigum við að láta fullveldið og stjórnarskrána njóta vafans og hafna þessum orkupakka. Hér breytir engu þótt einhverjir sendimenn frá Evrópu, birti núna yfirlýsingar í gagnstæða átt. Hvaða stoð verður síðar í yfirlýsingum „einhverra“ manna fyrir þeim evr- ópsku dómstólum, sem kunna að fjalla um slíkt í framtíðinni? (Dóm- stólum sem Íslendingar virðast sí- fellt háðari.) Þriðji orkupakkinn er liður í lengra ferli – áfangi til af- náms fullveldis Íslendinga. Nú er einmitt lag fyrir þjóð sem vill sýna fullveldi sitt, að spyrna við fótum með því að hafna Orkupakka 3. Nú vil ég beina orðum mínum til fv. baráttumanna í Samtökum her- námsandstæðinga. Hér áður fyrr stóðuð þið í baráttunni fyrir brottför erlends hers frá Íslandi og fyrir full- veldi landsins. Þar stóðuð þið með fullri reisn og létuð engan bilbug á ykkur finna, þrátt fyrir sterkan mótbyr, þar sem ykkur voru gerð upp orð sem þið höfðuð aldrei sagt og ykkur voru gerðar upp skoðanir sem þið höfðuð aldrei haft. Mér þyk- ir líklegt að mörg ykkar hafi gengið í VG og það í þeirri trú, að sá flokk- ur vildi helst gæta fullveldis lands- ins. Ég vil skora á ykkur að tala máli íslensks fullveldis í flokki ykk- ar, ef það mætti verða til þess að koma vitinu fyrir núverandi forystu- sveit og alþingismenn flokksins. Ekki verður annað merkt en VG sé leiðandi afl í þeim ógæfuverknaði sem orkupakki nr. 3 kann að reyn- ast. Skv. skrifum fjölmargra sjálf- stæðismanna í Morgunblaðinu, þá er ljóst að þeir hafa notað eigin dómgreind, í stað þess að láta flokksforystuna heilaþvo sig. Af al- mennum Framsóknarmönnum heyri ég fátt í þessum efnum – þeir sem enn eru eftir í þeim flokki eru kannske orðnir svo vanir því að láta aðra hugsa fyrir sig? Um Samfylk- ingu og Viðreisn þarf ekki að ræða, því vitað var fyrirfram að slík lands- öluöfl meta einskis þjóðleg gildi. Orð til fv. baráttu- manna í Samtökum hernámsandstæðinga Eftir Gunnar Guðmundsson Gunnar Guðmundsson »Ekki verður annað merkt en VG sé leið- andi afl í þeim ógæfu- verknaði sem orkupakki númer þrjú kann að reynast. Höfundur er frá Heiðarbrún. Í umræðunni um þriðja orkupakkann hafa þingmenn Mið- flokksins og ýmsir eldri karlar í öðrum flokkum talað um ógn af mögu- legri lagningu rafork- ustrengjar milli Íslands og Bretlands. Það er furðulegt hversu miklu púðri hefur verið varið í að hræða fólk við þess- um streng. Það væri mikill kostur fyrir íslenskt þjóðarbú ef strengur sem þessi yrði lagður. Við það mætti nýta betur þá umframorku sem íslensk raforkuver búa yfir í dag til þess að geta mætt toppum í raforkuþörf landsins. Þannig mætti auka tekjur og hagnað raforku- framleiðanda með tiltölulega litlum viðbótar-fjárfestingum. Slíkur streng- ur kæmi sér líka vel ef náttúruhamfar- ir myndu stöðva rekstur stórs inn- lends orkuvers í fjölda ára og þannig koma í veg fyrir, eða a.m.k. draga úr, mögulegum raforkuskorti í landinu við þær aðstæður. Þá kæmi sér ekki síður vel að geta selt umframorku úr landi ef t.d. eitt álveranna þriggja hætti rekstri. Það að nýta auðlindir og fjár- muni vel er nokkuð sem allir ættu að geta sameinast um að teljist eftirsókn- arvert, óháð stjórnmálaskoðun eða aldri. Þrátt fyrir alla kosti þess fyrir íslenskt þjóð- arbú að leggja raforku- streng milli Íslands og Bretlands, þá er afar ólíklegt að af slíkri fram- kvæmd verði. Lagning slíks strengjar er afar fjárfrekt verkefni og þar að auki tæknilega mjög áhættusamt. Það mun því ólíklega fást fjár- magn til þessarar fjár- festingar nema að líkleg arðsemi verði nokkuð há og það getur tæplega orðið. Fyrir því eru nokkrar ástæður: 1. Það þyrfti að auka raforkufram- leiðslu á Íslandi og bæta flutningskerfi raforku samhliða lagningu strengja- rins. Slíkt kallar á samþykki fjöl- margra yfirvalda, séstaklega á sviði skipulagsmála, og reynsla síðustu ára sýnir að þar er ekki á vísan að róa. Óvissuþættir sem þessir draga áhuga úr fjárfestum. 2. Þó svo að menn séu tilbúnir að greiða eitthvað hærra verð fyrir um- hverfisvæna raforku í löndum Evrópu, þá eru því efnahagsleg takmörk sett. Það er því ólíklegt að raforka fram- leidd á Íslandi verði nógu hagkvæm til að keppa við aðra raforku, þegar búið verður að bæta háum flutningskostn- aði við hana. Þar að auki verður hún aðeins dropi í hafið í raforkuþörf ná- granna okkar. 3. Kostnaður við framleiðslu raforku með öðrum vistvænum aðferðum, svo sem beislun vindorku og vinnslu sól- arorku hefur farið hratt lækkandi á síðustu árum og áratugum. Þá má bú- ast við framförum í geymslu raforku, svo og öðrum aðferðum við vistvæna raforkuframleiðslu í framtíðinni. Mið- að við til hve langs tíma fjárfestar þyrftu að binda fjármagn í verkefni eins og raforkustreng milli Íslands og Bretlands, þá eru litlar sem engar lík- ur á að menn hafi áhuga á slíku þegar þeir horfa upp á áhrif líklegra fram- fara í framleiðslu og geymslu raforku á raforkuverð innan Bretlands og sunnar í Evrópu í náinni framtíð. Á sama hátt eins og traustar sigl- ingar og flugsamgöngur við útlönd eiga drjúgan þátt í þeirri efnahagslegu uppbyggingu sem orðið hefur á Íslandi á síðustu 100 árum, þá myndi tenging Íslands við raforkukerfi annarra landa verða landsmönnum til ávinnings. Það er hins vegar ólíklegt að af lagningu slíks strengjar geti orðið. Kostir raforkustrengjar milli Íslands og Bretlands Eftir Erlend Magnússon » Tenging Íslands við raforkukerfi ann- arra landa yrði lands- mönnum til ávinnings, líkt og siglingar og flug- samgöngur hafa verið. Erlendur Magnússon Höfundur er sjálfstæðismaður og fyrrverandi stjórnarmaður í Heimssýn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.