Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 22

Morgunblaðið - 07.06.2019, Side 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 ✝ Anna KatrínEyfjörð Þórs- dóttir fæddist 4. apríl 1958 á Akur- eyri. Hún lést á heimili sínu 28. maí 2019. Foreldrar henn- ar voru Jóna Sigurlína Alfreðs- dóttir og Þór Sigursveinn Árna- son. Systkini Önnu Katrínar eru Þröstur Sigurð- arson, Örn Þórsson, Alfreð Þórsson, Helgi Þór Þórsson, Sveinar Þórsson og Helga Stefanía Þórsdóttir. Anna Katrín giftist Halldóri G. Baldurssyni. Dætur þeirra eru: 1) Sandra Halldórsdóttir, maki Jóhann Kristján Hjalta- son. Börn þeirra: Hjalti og Halldór. 2) Karen Halldórs- dóttir, sambýlis- maður Guð- mundur Ómars- son. Barn þeirra: Katrín Tanja. Fyrir átti Guð- mundur dótturina Arnrúnu. Fyrir átti Halldór dótturina Láru, maki Valdimar S. Þórisson. Synir þeirra: Brynjar og Hall- dór. Útför Önnu Katrínar fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 7. júní og hefst athöfnin klukkan 13.30. Orð fá því ekki lýst hversu erf- itt er að kveðja þig, elsku amma Katý. Það er vegna þess að þú varst svo einstakur persónuleiki með stærsta hjarta sem nokkur manneskja getur haft. Ég er svo lánsamur að hafa fengið að kynnast þér og allt frá fyrsta degi sem ég þekkti þig varst þú sú manneskja sem ég ber mesta virðingu fyrir. Þú kenndir mér svo margt um lífsins reglur og listina að lifa. Alltaf varst þú með rétta svarið við öllu og orðið „vandamál“ var ekki til í þinni orðabók . Með þinni einstöku hlýju og jákvæðni laðað- ist fólk að þér úr öllum áttum. Þú hjálpaðir öllum og leystir vanda- mál þeirra sem til þín leituðu sama hvað það var. Við kölluðum þig oft Ofurbangsann en það orð lýsir þér vel. Þú slakaðir sjaldan á og varst alltaf að gera eitthvað al- veg sama hvað klukkan sló. Ef það voru verkefni skyldu þau klárast og að gefast upp eða leggja árar í bát var ekki til hjá þér. Eljan og dugnaðurinn var einstakur og skildi maður aldrei hvaðan þessi orka kom þrátt fyrir veikindi þín. Þú lést ekkert stoppa þig, sama hvað það var. Þú gast allt sama hvað það var. Þinn einstaki persónuleiki endurspeglaðist sérstaklega í góð- mennsku og væntumþykju. Því fengu sko strákarnir okkar Söndru að kynnast og njóta. Þar duttu þeir í lukkupottinn. Betri ömmu er ekki hægt að hugsa sér og geymum við allar góðu minningarnar um þig alla ævi. Afi Dóri var sko heppinn að hafa náð í þig. Ykkar samband var einstakt og einkenndist af mikilli samvinnu og ást. Þið voruð oft eins og ungt kærustupar sem var nýbyrjað að búa. Kossaflens með fullt af húmor, mikið af verkefnum og mörg járn í eldinum. Unnuð vel saman og vóguð hvort annað upp af einstakri list. Síðustu mánuðirnir í lífi þínu voru erfiðir. Þú háðir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm sem hafði sigur að lokum. Við munum sakna þín enda- laust en hlýjum okkur við allar góðu minningarnar um þig sem eru svo óteljandi margar. Elsku amma Katý, guð geymi þig og varðveiti. Jóhann, Sandra og strákarnir. Nýverið lá leið okkar norður yf- ir heiðar og ekki áttum við von á að þetta væri lokabarátta elsku Katý okkar en hún var búin að berjast við krabbamein undan- farna mánuði. Katý var sannköll- uð baráttukona sem kvartaði ekki og barðist af hörku en þurfti að láta í minni pokann og kveðja þennan heim. Við viljum minnast góðrar konu sem hugsaði vel um sína og lá ekki á liði sínu með að hjálpa öðrum. Stórt skarð er komið í stóran hóp systkina. Við vorum svo lánsöm að eiga með henni góðar stundir und- anfarið sem gott er að hafa í minn- ingabankanum í framtíðinni. Við trúum því að kraftar henn- ar fái að njóta sín þar sem hún er núna og að henni líði vel í faðmi fjölskyldu sinnar á himnum. Hvíl í friði, elsku systir. Elsku Dóri, Sandra, Karen, Lára og fjölskyldur, Guð gefi ykk- ur styrk til að halda áfram með líf- ið og allar góðu minningarnar sem þið eigið og engin getur tekið frá ykkur. Nú ertu leidd, mín ljúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þín hjá lambsins stól. Dóttir, í dýrðar hendi Drottins, mín, sofðu vært, hann, sem þér huggun sendi, hann elskar þig svo kært. Þú lifðir góðum Guði, í Guði sofnaðir þú, í eilífum andarfriði ætíð sæl lifðu nú. (Hallgrímur Pétursson) Örn, Mattý og fjölskylda. Elsku systir og mágkona, ekki áttum við von á því þegar við fór- um norður um þar síðustu helgi til að ganga frá íbúðinni hans pabba að sú ferð yrði líka kveðjuför. Okkur var reyndar ljóst að veik- indi þín voru alvarleg og í raun kannski ekki mikil batavon, en við vonuðumst öll eftir krafta- verki og fannst einhvern veginn að þú ættir að minnsta kosti eitt slíkt skilið. En ósk okkar um kraftaverkið rættist ekki og við sátum hjá þér síðustu daga þína í þessu lífi. Fyrstu árin ólst þú upp með okkur bræðrum á æskuheimili okkar í Höfðaborg og eftir að mamma veiktist varst þú æ oftar í fóstri hjá Helgu móðursystur og Stebba í Kringlumýrinni og al- farið frá 7 eða 8 ára aldri og til unglingsára. Samvera okkar sem barna var því minni en annars hefði orðið. En eftir að við full- orðnuðumst og stofnuðum fjöl- skyldur þá urðu samverustund- irnar fleiri og var það ekki síst þér að þakka. Í Lundskógi þar sem þið Dóri áttuð bústað og síð- ar tveir bræður okkar líka kom- um við systkinin gjarnan saman með fjölskyldum okkar og nutum samverustunda. Þér var mikið í mun að við héldum hópinn og að börnin okkar kynntust og varst duglegust okkar að skipuleggja hitting. Marga páskana var farið norð- ur og flest okkar mættu í fjallið, systkini og börn, og hóaðir þú þá öllum saman eftir góðan dag á skíðum í Fosslandið og slóst upp veislu. Við og okkar börn og fjöl- skyldur vorum alltaf velkomin til ykkar Dóra og höfðu börnin oft á orði að þau væru varla komin inn fyrir bæjarmörkin á Akureyri þegar Katý væri búin að bjóða til veislu. Mjög kært var með þér og Helgu systur og studdir þú hana dyggilega alla tíð. Helga endur- galt þann kærleika sem meðal annars birtist í því að hún flutti til þín og aðstoðaði Dóra, Söndru og Karen við að annast þig síð- ustu vikurnar. Þú hélst vel utan um fjölskyld- una þína, manninn, dæturnar og barnabörnin. Leitt er að þú fékkst bara ár með nöfnu þinni. Hlýleiki, ósérhlífni og jákvæðni einkenndu þig. Þegar þú greind- ist í vetur tókst þú tíðindunum með æðruleysi og sagðir þetta bara verkefni sem þú ætlaðir að klára. Allt fram í andlátið neit- aðir þú að gefast upp. Elsku Katý takk fyrir allar góðu samverustundirnar og minningarnar sem munu ylja okkur nú og um alla framtíð. Við vitum að það verður vel tekið á móti þér og nú færð þú að kynn- ast mömmu okkar sem er í raun bæði of seint og of snemmt. Elsku Dóri, dætur og fjöl- skyldur, mikill er missir ykkar og megi englar himins umvefja ykk- ur og hugga. Þitt hjarta geymdi gullið dýra og sanna, að gleðja og hjálpa stærst þín unun var. Því hlaust þú hylli Guðs og góðra manna og göfugt líf þitt fagran ávöxt bar. Ég blessa nafn þitt blítt í sál mér geymi, og bæn til Guðs mín hjartans kveðja er. Hann leiði þig í ljóssins friðarheimi, svo lífið eilíft brosi móti þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Guð veri með þér, Katý mín. Alfreð og Aðalheiður. Sú besta gjöf er gafst þú mér, var gleðisólin bjarta, sem skína skal til heiðurs þér, skært í mínu hjarta. (BH) Elsku Katý mín, ég kveð þig með sorg og söknuði í hjarta. Við erum mörg sem höfum misst mikið við fráfall þitt. Þú varst mér miklu meira en lítil frænka sem ég pass- aði frá tveggja ára aldri. Við urð- um góðar vinkonur og vorum það alla tíð. Níu ára gömul misstir þú móður þína og ég man að þegar þér var sagt að mamma þín væri dáin þá tókst þú utan um yngri systkini þín tvö, Sveinar og Helgu, og sagðir „Hvað verður þá um okkur?“ Þetta var svo sárt. Þá strax 9 ára gömul kom þitt ábyrga eðli í ljós. Þú hugsaðir um þín systkini fyrst og fremst, bæði eldri og yngri, og gerðir það alla tíð. Þú fórst í gegnum erfiða tíma með mörgum. Þinn viljastyrkur og dugnaður var meiri en nokkur maður skilur og aldrei var kvart- að, það var ekki til í þínum huga. „Systa, til hvers að kvarta, þetta er pakki sem ég fékk og verð að klára.“ Það var svo gaman að gleðjast með Katý. Hún var svo kát og réttsýn og fljót að sjá það besta í öllum málum. Katý var alveg ein- stök kona, kletturinn sem allir gátu leitað skjóls hjá. Æðruleysi þitt og þol í þínum veikindum var aðdáunarvert. Þú varst umvafin þínum nánustu. Elsku Dóri, Sandra, Karen, Helga Stefanía og fjölskyldur. Guð gefi ykkur og okkur öllum styrk í þessari sorg. Elsku Katý mín. Ég sakna þín nú þegar og á eftir að sakna þess að heyra ekki kallað, „Áttu tíu?“ Við tökum upp kaffibollahjalið þegar við hittumst aftur. Hvíldu í friði, elsku vina. Þín Systa, Fjóla Stefánsdóttir. Það er mikil sorg að sitja og skrifa minningarorð um Katý, eins og hún var alltaf kölluð. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar 28. maí. Þú fékkst alveg þinn skammt af veikindum, en svo greindist þú með illvígan sjúkdóm sem þú tókst á við af æðruleysi og eftir stutt en erfið veikindi varð ekki við neitt ráðið. Katý kynntist ég þegar ég fór að vera með bróður hennar og þá eignaðist ég líka eina af mínum bestu vinkonum. Hennar er sárt saknað af fjölskyldunni en það er gott að eiga góðar minningar. Við fórum saman til Spánar, vorum mikið saman í sumarbústað og áttum þar ljúfar stundir sem við nutum með mökum okkar og dætrum, sem eru á sama aldri. Einnig eru okkar menn miklir vin- ir og systkinin öll. Það var alveg sama hvaða verk- efni þú tókst að þér, það var allt svo flott og fínt og þú varst svo lausnamiðuð. Þú varst líka algjör fagurkeri og sést það best á heim- ili ykkar hjóna, sem ber vott um það. Ef eitthvað vantaði var gott að leita til þín, ekkert verkefni var of stórt. Þú varst fyrirmynd dætra þinna sem leituðu mikið til þín og það sást vel hvað þær umvöfðu þig í veikindunum og Dóri stóð þétt við bakið á fjölskyldunni. Missir þeirra er mikill. En það sem eftir lifir er minn- ing um yndislegu Katý sem allir elska svo mikið, megi hún hvíla í draumalandinu. Elsku Dóri, Sandra, Karen, Lára, tengda- synir og ömmubörnin, megi minning um Katý lifa í hjörtum okkar um ókomna tíð. Hvíl þú í friði. Kveðja frá Jónu, Helga, Hörpu og Hildi. Það er aldrei góður tími til að fá slæmar fréttir. Að heyra af andláti Katýjar var okkur mikið áfall. Við vorum á leið heim af ráðstefnu á Spáni, ráðstefnu sem hún hafði svo sannarlega ætlað að vera með okkur á. Mikið óskaplega var erfitt að meðtaka það að hún væri farin fyrir fullt og allt. 20 ára samstarf er ekkert smá- ræði og margs er að minnast og fjölmargt sem þakka þarf fyrir. Við munum aldrei eftir Katý öðruvísi en jákvæðri, hún fór oft langt út fyrir sín þægindamörk og tók viðskiptaþjálfun á ensku þegar það þurfti. Þó það hafi ver- ið henni erfiðara en á íslensku þá lét hún það ekki stoppa sig, ekki frekar en aðra hluti sem hún tók sér fyrir hendur. Fólk sem hefur ekki séð hana í eigin persónu, heldur einungis í gegnum netið, er fullt söknuðar yfir að hafa misst svona yndislegan „hauk í horni“. Fjölskyldan var Katý þó alltaf númer 1, 2 og 3! Hún var óend- anlega stolt af flottu stelpunum sínum og barnabörnum. Hún var mikill fagurkeri og smekkmann- eskja, alltaf eins og klippt út úr tískublaði og heimili hennar og Dóra svo fallega innréttað að það myndi sóma sér vel í hvaða hönn- unarblaði sem er. Það var alltaf svo þægilegt og vingjarnlegt að koma í heimsókn og jafnvel fá að gista og skrafa um alla heima og geima við þau hjón. Katý hefur ekki einungis verið einstakur samstarfsaðili heldur einstakur vinur þeirra sem unnu með henni þar sem aðrir en hún voru alltaf í fyrsta sæti. Okkur finnst þessi texti lýsa henni ein- staklega vel: „Það sem við gerum fyrir okkur sjálf, deyr með okkur. Það sem við gerum fyrir aðra og heiminn verður ódauðlegt.“ Hún Katý setti svo sannarlega sitt mark á heiminn í kringum sig. Elsku Dóri, Sandra, Jói, Kar- en og öll ykkar fjölskylda, þið hafið misst svo mikið. Okkar inni- legustu samúðarkveðjur! Guðrún og Benedikt. Þar tignartindi á ég tjald vil gera, þar góðum Guði hjá er gott að vera og ummyndast og búast björtum klæðum og öðlast eilíft skart, með andlit sólarbjart, á helgum hæðum. (Sálmur 119) Katý var persóna sem snerti okkur meira en aðrir. Það var ef- laust vegna þess að hún var svo jákvæð, dugleg og yndisleg manneskja sem við öll munum eftir og hún hafði ótrúlega góða nærveru líka. Aldrei fundum við fyrir öðru en skilyrðislausri ást og umhyggju frá henni gagnvart okkur og okkar börnum. Katý var ráðagóð og fordómalaus og hjálpaði okkur að sjá hlutina í öðru ljósi en við höfðum áður séð. Það voru heldur engin vandamál í hennar augum, þetta voru verk- efni sem þurfti að leysa. Það hef- ur alla tíð verið gott og gaman að koma í heimsókn til Dóra og Katýjar þar sem hláturinn fyllti húsið og meira en tvisvar sinnum magafylli var borðuð því setan við eldhúsborðið varð oft svo löng. Elsku Katý, takk fyrir öll ráðin og árin sem við fengum saman. Takk fyrir að hafa verið þú og takk fyrir að hafa alltaf ver- ið til staðar. Elsku fjölskylda, Guð geymi ykkur og þið vitið hvar við erum. Ykkar vinir Eydís og Hjalti. Anna Katrín Eyfjörð Þórsdóttir Elsku yndislega Ásta mín. Ekki grunaði mig að símtalið okkar á skírdag yrði það síðasta. Við töl- uðum um lífið, dauðann og fram- tíðina og þú vissir þá þegar að það væri stutt eftir en „stutt“ gæti verið tvær vikur, tveir mán- uðir eða jafnvel allt árið. Ég spurði þig hvort þú værir hrædd við dauðann en það varstu ekki og þú vissir líka að pabbi þinn og mamma myndu taka á móti þér þegar þar að kæmi. Við ákváðum að hittast sem allra fyrst en því miður náðum við því ekki. Vinátta okkar hefur varað í Ástríður K. Kristjánsdóttir ✝ Ástríður K.Kristjáns- dóttir, eða Ásta eins og hún vildi láta kalla sig, fædd- ist 17. júní 1965. Hún lést 29. apríl 2019. Útför Ástu fór fram 11. maí 2019. langan tíma og þótt stundum hafi tölu- verður tími liðið á milli þess sem við heyrðumst eða sáumst þá var alltaf eins og við hefðum heyrst deginum áður. Hugurinn reikar til baka til allra góðu stund- anna sem við höfum átt saman í gegnum tíðina. Þú varst svo brosmild, hlý og skemmtileg og hafðir yndis- lega nærveru. Þú varst líka fljót að sjá það fyndna og skemmti- lega í hlutunum og varst svo mik- ill grallari á stundum. Þegar veikindin dundu yfir varst þú frá upphafi svo sterk og tókst við þau af æðruleysi og styrk. Ég mun sakna þín, elsku yndislega vinkona mín. Elsku Sunneva og fjölskylda, ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur og Guð gefi ykk- ur öllum styrk í sorg ykkar. Viglín. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HÖRÐUR SIGURÐSSON vélstjóri og svæðanuddari, lést 19. maí á hjúkrunarheimilinu Mörkinni, Suðurlandsbraut 66, Reykjavík. Útför hans fer fram í Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. júní klukkan 15. Ásta Harðardóttir Björn Helgason Ingólfur Harðarson Berglind Líney Hafsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ARNDÍS KR. MAGNÚSDÓTTIR, hjúkrunarheimilinu Ísafold, áður Strikinu 8, Garðabæ, lést fimmtudaginn 30. maí. Útförin fer fram frá Vídalínskirkju, Garðabæ, föstudaginn 7. júní og hefst athöfnin klukkan 13. Jóhanna Kr. Hauksdóttir Örlygur Örn Oddgeirsson Magnús I. Stefánsson Guðlaugur Stefánsson Kristjana Guðjónsdóttir börn, barnabörn og barnabarnabarn Elsku hjartans mamma, tengdamamma, amma og langamma, SÓLVEIG GUÐJÓNSDÓTTIR BLÖNDAL frá Kjörvogi, Maríubakka 2, sem lést á gjörgæsludeild Landspítala að morgni sunnudagsins 26. maí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 11. júní klukkan 11. Helgi Þorbjörn Blöndal Guðmundur Blöndal Dagný Blöndal Bjarni R. Kristjánsson barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.