Morgunblaðið - 07.06.2019, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 07.06.2019, Qupperneq 35
ÍÞRÓTTIR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 2019 HANDBOLTI Umspil HM kvenna Seinni leikir: Pólland – Serbía.................................... 30:27  Serbía á HM, 60:49 samanlagt. Slóvakía – Svíþjóð................................. 24:45  Svíþjóð á HM, 78:42 samanlagt. Slóvenía – Norður-Makedónía ............ 38:27  Slóvenía á HM, 71:57 samanlagt. Ísland – Spánn ...................................... 32:31  Spánn á HM, 66:58 samanlagt. Danmörk Annar úrslitaleikur: GOG – Aalborg .................................... 31:32  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði eitt mark fyrir GOG.  Janus Daði Smárason skoraði eitt mark fyrir Aalborg en Ómar Ingi Magnússon var ekki með vegna meiðsla. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari liðsins.  Staðan er 1:1 og oddaleikur á sunnudag. Frakkland París SG – Cesson-Rennes.................. 29:20  Geir Guðmundsson lék ekki með Cesson- Rennes sem endaði í 13. sæti af 14 liðum og féll úr efstu deild. Argentína 8-liða úrslit oddaleikur: Instituto de Córdoba – Regatas......... 78:73  Ægir Þór Steinarsson skoraði 8 stig og tók eitt frákast fyrir Regatas en hann lék í 20 mínútur.  Córdoba áfram, 3:2. Úrslitakeppni NBA Þriðji úrslitaleikur: Golden State – Toronto.................... 109:123  Staðan er 2:1 fyrir Toronto en liðin mæt- ast aftur í Oakland í nótt. KÖRFUBOLTI Í HÖLLINNI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Ísland verður ekki með í úrslita- keppni HM kvenna í handknattleik í Japan í lok þessa árs en það varð ljóst eftir síðari viðureign Íslendinga og Spánverja um laust sæti á HM í Laugardalshöllinni í gærkvöld. Ís- lenska liðið kvaddi HM-drauminn á góðu nótunum en það hafði betur, 32:31, eftir að hafa tapað fyrri leikn- um á Spáni með níu marka mun, 35:26. Þetta einvígi kláraðist í fyrri hálfleiknum á Spáni fyrir viku en eft- ir hann höfðu Spánverjar 14 marka forystu og lögðu þar með grunninn að farseðli sínum á HM. Það var vit- að að íslenska liðið þyrfti á krafta- verki að halda til að vinna upp mun- inn frá fyrri leiknum en snemma leiks varð ljóst að það var ekkert slíkt á leiðinni. Það var hins vegar ánægjulegt að stelpunum okkar tókst að landa sigri og vonandi gefur hann liðinu byr í seglin fyrir næsta verkefni liðsins sem fer af stað í haust. „Markmiðið fyrir leikinn var að vinna hann og sjá til hvort við gæt- um unnið hann stórt. Það gekk því miður ekki. Við spiluðum seinni hálf- leikinn úti á Spáni virkilega vel og hefðum þurft tvo þannig hálfleiki til viðbótar til að eiga einhvern mögu- leika á að vinna þennan mun upp,“ sagði vinstri hornamaðurinn Sigríð- ur Hauksdóttir í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn en hún átti mjög góðan leik í gær, skoraði sjö mörk úr níu skotum. Sigríður á hæfileikana ekki langt að sækja en móðir hennar er Guðríður Guðjóns- dóttir, sem á sínum tíma var ein allra besta handboltakona landsins, og amma hennar og nafna, Sigríður Sigurðardóttir, var frábær hand- boltakona sem hlaut sæmdarheitið íþróttamaður ársins árið 1964, fyrst íslenskra kvenna. Slys af okkar hálfu „Fyrri hálfleikurinn á Spáni fór með þetta einvígi en við getum tekið það með okkur út úr þessu að okkur tókst að vinna seinni leikinn. Við lít- um svo á að þessi hræðilegi fyrri hálfleikur á Spáni hafi verið slys af okkar hálfu. Við komum reynslunni ríkari til leiks í undankeppni EM í haust og gerum vonandi góða hluti þar,“ sagði Sigríður. Spurð út í eigin frammistöðu sagði hún: „Ég var ánægð með sóknarleikinn hjá mér en ég hefði viljað gera betur í vörninni.“ Spánverjar voru skrefinu á undan í fyrri hálfleik og í byrjun þess síðari en eftir sjö mínútna leik jafnaði Rut Jónsdóttir í 18:18 og sextán mín- útum fyrir leikslok kom Arna Sif Pálsdóttir íslenska liðinu yfir, 22:21, í fyrsta sinn í leiknum. Liðin skiptust á um að hafa forystuna það sem eftir lifði leiks en það mátti vel greina að íslensku leikmennina langaði meira í sigurinn og þeim tókst að landa sára- bótarsigri. Arna Sif Pálsdóttir, Sigríður Hauksdóttir og fyrirliðinn Karen Knútsdóttir voru bestu leikmenn ís- lenska liðsins, sem sýndi á köflum flott tilþrif þar sem sóknarleikurinn var hraður og ógnandi. Varnarleik- urinn var hins vegar gloppóttur og sérstaklega gekk illa að loka horn- unum en Spánverjar skoruðu flest sín mörk eftir hornspil. Markvarsla íslenska liðsins var heldur ekki góð, aðeins tíu skot varin. Í undankeppni EM, sem hefst í september, leikur Ísland í riðli með Frakklandi, Króatíu og Tyrklandi og verða Króatar fyrstu andstæðingar Íslands á útivelli. Þá hefst atlaga Ís- lands að því að reyna að komast á stórmót, sem það hefur ekki verið með á síðan í EM í Serbíu 2012. Kraftaverkið leit því miður ekki dagsins ljós  Eins marks sigur dugði skammt  Einvígið tapaðist í fyrri hálfleik á Spáni Morgunblaðið/Eggert Höllin Rut Jónsdóttir reynir skot að marki Spánverja, ákveðin á svip, og þær Karen Knútsdóttir og Almudena Rodríguez fylgjast vel með. Rut kom á ný inn í landsliðið í umspilsleikjunum eftir langa fjarveru. Laugardalshöll, umspil HM, seinni leikur, fimmtudag 6. júní 2019. Gangur leiksins: 1:2, 2:5, 7:7, 8:11, 11:14, 13:15, 16:18, 19:20, 23:21, 24:24, 28:28, 29:30, 32:30, 32:31. Mörk Íslands: Arna Sif Pálsdóttir 8/3, Sigríður Hauksdóttir 7, Karen Knútsdóttir 6/1, Þórey Rósa Stef- ánsdóttir 3, Rut Jónsdóttir 3, Eva Björk Davíðsdóttir 2, Helena Rut Örvarsdóttir 1, Díana Dögg Magn- úsdóttir 1, Steinunn Björnsdóttir 1. Varin skot: Hafdís Renötudóttir 7, Elín Jóna Þorsteinsdóttir 3. ÍSLAND – SPÁNN 32:31 Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Spánar: Maitane Etxeberria 8, Nerea Pena 7/7, Jennifer Gutierrez 4, Soledad Lopez 3, Mireya Gonzalez 2, Alicia Fernandez 2, Ana Isabel Martínez 2, Almudena Rodríguez 2, Maria Nunez 1. Varin skot: Darly Zoqbi 12, Silvia Navarro 3. Utan vallar: 8 mínútur. Dómarar: Karina Christiansen og Line Hansen, Danmörku. Áhorfendur: Um 600.  Spánn á HM, 66:58 samanlagt. RÚLLUPLASTIÐ ÞITT FÆRÐU HJÁ FÓÐURBLÖNDUNNI ! FÆST Í VERSLUNUM OKKAR OG Í NETVERSLUN SKOÐAÐU NÁNAR Á WWW.FODUR.IS Hentar fyrir allar gerðir pökkunarvéla Vernd gegn útfjólubláu ljósi 100 % Endurvinnanlegt Hafðu samband og fáðu tilboð ! Rúlluplastið sem bændur TREYSTA Inkasso-deild karla Njarðvík – Fram....................................... 0:1 Staðan: Fjölnir 5 4 0 1 12:6 12 Fram 6 3 2 1 10:7 11 Keflavík 5 3 1 1 11:4 10 Víkingur Ó. 5 3 1 1 6:3 10 Leiknir R. 5 3 0 2 11:7 9 Þór 5 3 0 2 9:6 9 Grótta 5 2 1 2 9:10 7 Njarðvík 6 2 1 3 5:7 7 Þróttur R. 5 1 1 3 9:11 4 Haukar 5 0 3 2 5:8 3 Afturelding 5 1 0 4 5:15 3 Magni 5 0 2 3 5:13 2 Þjóðadeild UEFA Undanúrslit í Guimaraes: Holland – England........................... (frl.) 3:1 

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.