Morgunblaðið - 07.06.2019, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 07.06.2019, Blaðsíða 40
Í morgunsárið nefnist fyrsta einkasýning Evu Bjarnardóttur sem opnuð verð- ur í dag kl. 17 í galleríinu Mid- punkt í Hamra- borg í Kópavogi og er hún sögð bæði yfirlitssýning og upphaf. Hvað gerist þegar lík- aminn kemst í þá rútínu að vakna á sama stað? spyr Eva m.a. Fyrir nokkrum árum settist hún að á Fag- urhólsmýri í Öræfum og hefur not- að undanfarin ár í rótun og ígrund- un, ásamt því að opna stúdíó í yfirgefnu sláturhúsi og taka þátt í vinnustofum á Íslandi. Verk sín vinnur hún upp úr munum frá gamla sláturhúsinu á Fagurhóls- mýri. Fyrsta einkasýning Evu FÖSTUDAGUR 7. JÚNÍ 158. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Albanska karlalandsliðið í knatt- spyrnu sem leikur í undankeppni Evrópumótsins á Laugardalsvell- inum á morgun er samansett á mjög svipaðan hátt og landslið Ís- lands. Fáir leikmannanna spila með stórliðum en flestir með miðlungs- liðum víða um Evrópu. Þó eru í lið- inu leikmenn frá félögum á borð við Napoli og Atalanta. »32 Svipuð samsetning Albaníu og Íslands ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Textíllistamaðurinn Randa Mulford opnar sýninguna Teppi á veggnum í dag kl. 16 í Listasal Mosfellsbæjar. Mulford er bandarísk en með sterk tengsl við Ísland og Mosfellsbæ. Hún sérhæfir sig í bútasaumslist og blandar saman í verkum sínum ýmsum aðferðum og þenur út list- formið. Verk Mulford hafa hlotið víð- tæka viðurkenn- ingu á búta- saumssýn- ingum víðsvegar um Bandaríkin og unnið til virtra verðlauna. Sýningunni lýkur 5. júlí. Teppi á veggnum í Mosfellsbæ Samsung TabA 10.5 er þunn, létt og búin vönduðum skjá. Áskrift að Sjónvarpi Símans Premium fylgir með í 30 daga*. Þú geturmeira með Símanum Sumartilboð! Spjaldtölva frá Samsung Premiumí 30 dagafylgir 24.99 0 kr. 44.99 0 kr. Verð f rá siminn.is*T ilb oð ið gi ld ir á m eð an bi rg ði re nd as t. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Bára Grímsdóttir og Chris Foster flytja þjóðlagatónlist í Hallgríms- kirkju í Saurbæ á hvítasunnudag. Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð, sem hófst í maí til styrktar viðhaldi á kirkjunni og uppbyggingu á staðnum. Tónleikaröðin er hugarfóstur Jóseps Gísla- sonar, sem er ættaður frá Graf- ardal og Drag- hálsi. Eitt sinn í fyrrasumar, þeg- ar hann vitjaði leiða ættingja og þreif legsteina í kirkjugarði Hall- grímskirkju, segist hann hafa tekið eftir því hvað kirkjan hafði látið á sjá. „Fyrir skömmu setti Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður inn mynd af kirkjunni og hafði orð á hinu sama,“ segir Jósep. „Þá kviknaði þessi hug- mynd hjá mér að setja eitthvað svona í gang til þess að lífga upp á staðinn og gera eitthvað fyrir hann.“ Jósep fékk þrjá úr sóknarnefnd- inni, Ástu Jenný Magnúsdóttur, Valdísi Ingu Valgarðsdóttur og Jón Valgarðsson, ásamt Alexöndru Chernyshovu sópransöngkonu með sér til að skipuleggja tónleikaröðina og segir að árangurinn sé framar öllum vonum. Guðmundur Sigurðs- son orgelleikari og kór Saurbæjar- prestakalls hafi riðið á vaðið 12. maí, kór Akraneskirkju hafi verið með tónleika 30. maí og fram undan séu tvennir tónleikar á mánuði út ágúst. Ragnheiður Ólafsdóttir verð- ur með tónleika 23. júní, Ásgeir Ás- geirsson og Skuggamyndir flytja balkantónlist 14. júlí og Agnar Már og Andrés Þór leika djass 28. júlí. Verið er að vinna í að Alexandra Chernyshova ásamt tveimur öðrum söngkonum og Kjartani Valdimars- syni píanóleikara verði með dag- skrá í ágúst auk þess sem vænt- anlega verða tónleikar með Kvenröddum seinni hluta ágúst. Fólkið gæfa fyrir kirkjuna „Það er frábært að sjá og finna hvað íslenskir listamenn eru til- búnir að leggja á sig til þess að koma fram launalaust og gera eitt- hvað fyrir samfélagið í leiðinni,“ segir Jósep. Sr. Þráinn Haraldsson, settur sóknarprestur í Garða- og Hval- fjarðarstrandarprestakalli, segir erfitt verkefni fyrir minni söfnuði að viðhalda kirkjum sínum, svo sómi sé að. Aðeins séu um 130 manns í söfnuðinum og sóknargjöld hrökkvi rétt fyrir hita, rafmagni og kostnaði við helgihald og stundum nægi þau hreinlega ekki einu sinni til þess. „Það er mikil gæfa fyrir okkur að fólk eins og Jósep og allir listamennirnir er tilbúið til að leggja á sig mikla vinnu til styrktar kirkjunni og sýnir þann góða hug sem margir bera til hennar,“ segir hann. Þráinn leggur áherslu á að sókn- arnefndin leggi líka á sig mikla sjálfboðavinnu fyrir kirkjuna, sem hafi verið skilgreind sem ein af höf- uðkirkjum þjóðkirkjunnar ásamt dómkirkjum landsins og Hallgríms- kirkju í Reykjavík. „Allt viðhald og allar framkvæmdir hafa verið háðar styrkjum og við höfum fengið góða styrki úr jöfnunarsjóði kirkna en þurfum að safna meira fé og tón- leikaröðin er sem himnasending.“ Í Saurbæ Frá hægri: Valdís Inga Valgarðsdóttir, Þráinn Haraldsson, Ásta Jenný Magnúsdóttir og Jón Valgarðsson sóknarnefndarformaður. Gluggann prýðir listaverk eftir Gerði Helgadóttur og verður skipt um hann í sumar. Himnasending í Hallgrímskirkju  Tónleikaröð til styrktar endurbótum á kirkjunni í Saurbæ Jósep Gíslason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.