Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019 Fríform ehf. Askalind 3, 201 Kópavogur. 562–1500 Friform.is Mán.–Fös. 09–17 Glæsilegar danskar innréttingar í öll herbergi heimilisins Ýmsir horfa til síðasta sumarsþegar grallarinn umturnaði hendingu góðskáldsins og sagði: „Þegar saman safnast var, sumarkvöldin fjögur...“ ef þau voru þá svo mörg. En nú er sum- arsólin í akkorði, yfirvinnu og upp- mælingu og hefur varla undan.    Og svo er ekki þverfótað fyrirflottum fréttum, víðar en af veðri. Íslenska landsliðið með fanta- leik og jafnvel varnarjálkurinn mikli, Ragnar Sigurðsson, breytti sér í Beckham markakóng. Ragnar var svo sannarlega „okkar maður“ og reyndar þeir allir drengirnir.    Enda enginn vafi á því að sam-heldnin er sterkasta hlið þessa liðs sem á þó margar hliðar. Þetta geta Staksteinar frætt ykkur um þótt þeir sparki ekki öðru en grjóti og séu af því marðir á öllum tám.    Og svo var það hin góða fréttin aðÞjóðleikhúsið okkar ætlar að setja upp Kardimommubæinn og þrátt fyrir framangreind fótamein dönsuðu Staksteinar um gólfið við fréttina, sungu textana meira og minna vitlaust og hugsuðu til stór- leikara allt frá Róberti, Ævari, Bessa, Emelíu og þeirra sem spreyta sig nú.    Ræningjarnir, góðkunningjarlögreglunnar, en þó fyrst og síðast okkar barnanna í þessu landi, frá 80 árum og niður úr, eru aufúsu- gestir. Staksteinar og klíkubræður þeirra sem eru fyrir löngu gengnir í barndóm og fá nú loks að njóta þess nýja þroskastigs til fulls. Húrra fyrir þessum fínu fréttum. Fréttaúrval STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Nýr Formula student-kappakstursbíll, RU19, sem smíðaður er af nemendum í Háskólanum í Reykjavík var afhjúpaður í HR í gær. Hópur nemenda Háskólans í Reykjavík mun keppa á bílnum í Hollandi í sumar. Hópurinn heitir RU Racing og var stofnaður árið 2015. Liðið hefur tekið þátt í Formula Student- kappaksturskeppninni þrisvar sinnum, með nýj- um bíl á hverju ári, og er þetta í fjórða sinn sem haldið er út til keppni. Best náði liðið 15. sæti á Silverstone-brautinni árið 2017. Í Hollandi í sum- ar mun liðið keppa við 70 lið frá háskólum hvað- anæva . RU Racing hefur hingað til gengið mjög vel í keppninni og hefur alltaf komist í gegnum allar öryggisprófanir og í aksturskeppni. Með sam- starfi við nokkur af stærstu tæknifyrirtækjum landsins, meðal annars Össur, Marel og CCP, hafa liðsmenn aflað sér mikillar þekkingar og reynslu í hönnun og smíði. Liðið hefur betrum- bætt bílinn mikið frá því í fyrra, meðal annars með því að bæta við fram- og afturvængjum, end- urbæta kælikerfið og létta bílinn á ýmsan hátt. Afhjúpuðu nýjan kappakstursbíl  Nemendur í HR keppa í Formula Student í sumar Kynning Hópurinn RU Racing og nýr kappakst- ursbíll í HR í gær. Þau keppa í Hollandi í sumar. Á morgun, föstudag, verður gerð söguleg breyting á akstursstefnu bíla um Laugaveg. Fram á haust munu bílar aka upp Laugaveginn, þ.e. til austurs, frá Klapparstíg upp að Frakkastíg. Einstefna niður Laugaveg var tekin upp haustið 1932 og því verður nú ekið upp Laugaveg í fyrsta sinn í 87 ár. Fram kemur í frétt á heimasíðu Reykjavíkurborgar að eins og áður verði ekið niður Laugaveg frá Hlemmi, en nú má aðeins aka niður að Frakkastíg og þaðan er ein- stefna niður á Hverfisgötu. Fram til þessa hafa þeir sem óku niður Laugaveginn þurft að beygja niður Vatnsstíg þar sem göngugötusvæð- ið byrjaði. Í sumar er göngugötu- svæðið á Laugavegi minnkað frá fyrra ári og nær nú aðeins upp að Klapparstíg. Með breytingu á akstursstefnu um hluta Laugavegar sé verið að jafna umferðarflæðið um miðborg- ina og draga úr neikvæðum áhrif- um bílaumferðar. Betra sé að beina umferð frá Laugavegi niður Frakkastíg að Hverfisgötu en að fá hana upp Klapparstíg að Skóla- vörðustíg. Minni hætta sé á að öku- menn aki í ógáti inn á göngusvæðið. Til að vekja athygli á breytingunni hefur verið málaður litríkur hring- ur á gatnamót Laugavegar og Frakkastígs. sisi@mbl.is Ekið upp Laugaveginn í fyrsta sinn síðan 1932 Ljósmynd/Reykjavíkurborg Litríkt Búið er að mála hring á gatnamót Laugavegar og Frakkastígs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.