Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
M.BENZ C350e plug in hybrid
Nýskráður 03/2018. Ekinn aðeins 14 þkm.
Gjörsamlega DREKKHLAÐINN AUKAHLUTUM
LANGBESTAVERÐIÐ! Verð kr. 5.690.000.
M.BENZ E350e plug in hybrid
Nýskráður 05/2017. Ekinn 34 þkm. Exclusive utan,
Avantgarde innan. FRÁBÆRT verð á GLÆSILEGUM
bíl. Verð kr. 6.450.000.
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
Bensín og
rafmagn
Bensín og
rafmagn
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Holtin og Landsveitin í Rang-
árþingi ytra, sveitirnar norðan og
ofan við hringveginn milli Þjórsár
og Ytri-Rangár, eru sögusviðið í
þessari grein.
Nokkuð á fjórða
hundrað manns
búa á þessu
svæði, þar sem
hefðbundinn bú-
skapur er stund-
aður á fjölda
bæja. Margar
jarðir hafa þó
verið teknar
undir til dæmis
hrossabúskap og
þar byggðar reiðskemmur og
keppnisvellir. Þá er ferðaþjónusta
á fjölda bæja, sumarhús og fleira
gott. Allt þetta hefur treyst búsetu
á svæðinu, segir Engilbert Ol-
geirsson í Nefsholti.
Dósir fyrir íþróttastarfið
„Hér eru margir sem vilja njóta
kosta dreifbýlisins en sækja svo
vinnu til dæmis á Hellu, Selfoss
eða jafnvel á Reykjavíkursvæðið,“
segir Engilbert sem lengi hefur
látið til sín taka í hagsmunamálum
íbúa á þessum slóðum. Þau Rán
Jósepsdóttir eiginkona hans reka
tjaldsvæðið á Laugalandi í Holtum.
Það er fjölsótt allt sumarið og Ís-
lendingar áberandi meðal gesta.
Nýta þeir sér þá meðal annars
leiksvæði og íþróttaaðstöðu á
Laugalandi, sem er skólasetur
þessa svæðis. Börnin, það er í leik-
og grunnskólabörn, eru um 120
talsins og fjölgar frekar en hitt.
Það veit á gott um framtíðina og
að byggð haldist, segja heima-
menn.
„Starfið í Íþróttafélaginu Garpi
er öflugt. Krökkunum stendur til
boða að æfa til dæmis frjálsar
íþróttir, körfubolta og borðtennis.
Þetta er vinsælt og engin eru æf-
ingagjöldin. Þökk sé höfðingjanum
Guðna Guðmundssyni á Þverlæk,
sem fer vítt hér um svæðið og
safnar dósum og flöskum og gefur
andvirði þess til íþróttastarfsins. Í
fyrra var þetta vel á aðra milljón
króna,“ segir Engilbert sem er
framkvæmdastjóri Héraðssam-
bandsins Skarphéðins – íþrótta-
samtaka Sunnlendinga. Neðst í
Holtunum er land mjög grasgefið
og gott undir bú. Hér eru hæðir í
landinu áberandi og víða kvosir og
spildur þar sem skógur dafnar.
Þegar svo kemur upp í Land-
sveit er gróðurinn gisnari; sand-
flákar og hraun áberandi á svæði
þar sem Hekla gnæfir yfir. Eld-
fjallið mótar svip þessarar sveitar
og enginn kemst hjá því að bera
virðingu fyrir ógn þess og afli.
Einhverjir muna líka úr fréttum að
í Heklugosum fyrri ára voru íbúar
í Landsveit jafnan lykilvitni í frá-
sögnum fjölmiðla af hamförunum.
Kóngulóarvefur
Í bókmenntum Íslendinga sér
þessa svæðis stað meðal annars í
skáldsögum Guðmundar Daníels-
sonar (1910-1990) sem var frá
Guttormshaga í Holtum og einn
mikilvirkasti rithöfundur Íslend-
inga á 20. öldinni. Drættir lands-
lagsins í þessari sveit eru skýrir í
sumum sagna Guðmundar.
Frá Landvegamótum við Suður-
landsveg liggur þjóðleiðin upp
sveitina; Landvegur og frá honum
svo alls konar tengivegir, brautir
og afleggjarar heim að bæjum.
Fyrir ókunnuga gæti þetta veg-
anet virst ruglingslegt, enda minn-
ir það svolítið á vel spunninn
kóngulóarvef. Að minnsta kosti er
til bóta að hafa kort með í bílnum
þegar hér er farið um. Ofan byggð-
arinnar liggur leiðin svo áfram inn
í Landmannalaugar og á Fjallabak,
í Veiðivötn og inn á Sprengisand.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Holt og Land
Milli Þjórsár og Ytri-Rangár Börn-
unum fjölgar Ferðaþjónusta og hest-
ar Eldfjallið mótar svip sveitarinnar
Stúfholt Byggingar frá ýmsum
tímum skapa myndræna bæjarröð.
Minjar Kambsréttir, sem eru neðst í Holtum, vekja eftirtekt þegar flogið er yfir þetta svæði. Við bæinn Húsagarð í
Landsveit eru svo þessar fjárborgir, hringlaga hlaðin byrgi sem notuð voru fyrr á öldum til að skýla sauðfé á vetrum.
Marteinstunga Kirkja í Holtunum og íbúðarhúsið í mjög dæmigerðum stíl
slíkra bygginga á Suðurlandi. Hvít- og rauðmálað, samkvæmt hefðinni.
Hestamenn Fara fetið í einni röð í rigningu í Landsveit. Úr myndasafni.
Ytri-R
angá
Yt
ri-
Ra
ng
á
1
Hella
Selfoss
La
nd
ve
gu
r
Þin
gsk
ála
-
veg
ur
Stúfholt
Hjallanes
Skarð
Leirubakki
Sk
ar
ðs
fja
ll
S K E IÐ
RANGÁR -
V ELLIR
Guttormshagi
Marteinstunga
Laugaland
Kambsrétt
Nefsholt
Þjó
rsá
Þjórsá
Vestra- og Eystra-
Gíslholtsvatn
Holtin og Landsveitin
K
or
ta
gr
un
nu
r:
O
p
en
S
tr
ee
tM
ap
Spre
ngis
and
ur
Engilbert
Olgeirsson