Morgunblaðið - 13.06.2019, Side 24

Morgunblaðið - 13.06.2019, Side 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019 Opið mánudaga til fimmtudaga kl. 7.45-17.00, föstudaga kl. 7.45-16.00 Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is Komdu til okkar og þú færð þjónustu fyrir bílinn þinn SAMEINUÐ GÆÐI Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðisbæjar, segir að orlof hús- mæðra í Árnes- og Rangárvallasýslu sé „algjör tímaskekkja“ en bærinn greiddi um þrjú hundruð þúsund kr. fyrir orlof hús- mæðra í fyrra. Samkvæmt lög- um um orlof hús- mæðra eiga þær konur rétt á að sækja um orlof sem veita eða hafa veitt heimili for- stöðu, án launa- greiðslu fyrir það starf. Í lögunum segir að til þess að standa straum af kostnaði við orlof húsmæðra skuli sveitarsjóður leggja árlega fram ákveðna fjárhæð. „Það er óeðlilegt að það skuli vera nefskattur á alla íbúa þessa lands svo ákveðinn íbúahópur komist í sumarfrí og það eru engin spurningarmerki sett við hvort viðkomandi hafi efni á sumarfríi eða ekki,“ segir Aldís. „Þetta eru bara lög frá Alþingi og við höfum á hverju einasta ári gert at- hugasemdir við þetta hér í Hvera- gerði. Það er ekki það að viljum ekki að þessar konur fari í sumarfrí og ég skil alveg að fyrir tugum ára hafi ver- ið þörf fyrir orlof húsmæðra þegar konur unnu ólaunaða erfiðisvinnu í sveitum landsins og komust aldrei í frí. Nú er árið 2019 og það eru allt aðrar aðstæður uppi,“ segir Aldís sem telur það tímaskekkju að vera með niðurgreitt ferðalag fyrir ákveðinn hóp án tillits til efnahags viðkomandi og þess hvort viðkomandi getur borg- að sín frí sjálfur. Slíkar greiðslur séu yfirleitt tekjutengdar. „Ég myndi mögulega skilja þetta ef þetta væri sumarfrí fyrir tekjulægstu íbúa þessa lands en ekki bara sumarfrí fyrir alla sem hafa forstöðu fyrir heimili sem eru velflestir fullorðnir Íslendingar í dag.“ Aldís bætir við að hún efast ekki um að þetta séu góðar ferðir, þær séu vel skipulagðar og skemmtilegar. Haustferð á Hótel Borgarnes Í fyrra fóru 66 konur í orlofsferð, 45 konur úr Árnessýslu og 21 úr Rang- árvallasýslu. Gist var á Hótel Borg- arnesi dagana 7. til 12. október 2018. Orlofsnefndum er skylt að senda ár- lega skýrslu um starfsemi sína ásamt reikningum. Samkvæmt skýrslu or- lofsnefndar húsmæðra í Árnes- og Rangársvallarsýslu kemur fram að fengin var spákona/miðill eitt kvöldið, farið var í dagsferð til Hvanneyrar á landbúnaðarsafnið á sýninguna „Kon- ur í landbúnaði í 100 ár.“ Drukkið var miðdegiskaffi í Húsafelli og síðan var hátíðarkvöldverður með skemmtiat- riði þar sem fenginn var ungur ten- órsöngvari ásamt undirleikara áður en trúbador hélt uppi stemmingu fram eftir kvöldi. „Það er í raun fullkomin linkind af Alþingi að hafa ekki viðurkennt það fyrir lifandi löngu að þetta fyrirkomu- lag er bara ekki við hæfi árið 2019. Ef við erum að borga um 296 þúsund þá er þetta 113 kr. á íbúa. Þá er landið í heild að borga um 40 til 50 milljónir,“ segir Aldís að lokum. Segir húsmæðra- orlof tímaskekkju  Hveragerðisbær greiðir um 300 þús. kr. Aldís Hafsteinsdóttir Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Daðey Albertsdóttir sálfræðinemi hélt umhverfisvæna afmælisveislu fyrir tveggja ára son sinn, Benjamín Tuma, síðustu helgi, þar sem hún og eiginmaður hennar, Tómas Guð- mundsson, lögðu til við veislugesti að gefa honum notaðar gjafir af heimili sínu eða úr nytjamörkuðum í stað þess að kaupa nýjar gjafir. Daðey segir að ákvörðunin hafi verið tekin af umhverfissjónarmiðum og sem til- raun til að minnka sóun. Hún segir umræðuna um notaðar gjafir hafa sprottið upp í vinahópi hennar eftir tilkomu Barnaloppunar, verslunar sem selur vel með farnar, end- urnýttar barnavörur. Útgjöld fyrir umhverfið „Margir eru á þeirri skoðun að það sé ekkert mál að fá eitthvað sem er notað en finnst dálítið óþægilegt að gefa eitthvað sem er notað, því þá líð- ur fólki stundum eins og það sé nískt,“ segir Daðey. „Við förum í mörg barnaafmæli á hverju ári og þetta eru alltaf einhver útgjöld, ekki endilega bara vegna peningalega þáttarins heldur eru þetta útgjöld fyrir umhverfið. Það eru til svo ótrú- lega mikið af leikföngum, flest barna- heimili eru yfirfull af dóti og börnin leika sér ekki með helminginn af þessu,“ segir Daðey. Hún segist hafa tekið eftir því að fólk sé farið að hugsa meira um að minnka sóun í kringum hana. Til að mynda margir vinir hennar séu mjög meðvitaðir um umhverfið og að svokallaður „zero waste“-lífstíll, sem snýst um að henda sem minnstu í almennt rusl, sé áber- andi í umræðum á vinnustaðnum hennar. Daðey segir afmælið hafa gengið frábærlega og að fólk hafi almennt tekið þátt í að gefa endurnýttar gjaf- ir. „Í vinahópnum okkar höfðu marg- ir orð á því hvað þetta væri frábær hugmynd. Þetta var líka frábært fyr- ir börnin þeirra að fá að fara inn í herbergi og æfa sig í að gefa eitthvað áfram sem þau ættu. Það er góð æf- ing í að deila með öðrum. Svo fóru sumir í Barnaloppuna og keyptu eitt- hvað þar og sumir gáfu bara pening,“ segir Daðey. Munur milli kynslóða „Svo tókum við eftir því, þegar við vorum að ganga frá eftir afmælið að það var nánast enginn gjafapappír eða kassar utan af dóti af því að þetta var náttúrulega ekki úr búðinni. Fólk var frekar að gefa í gjafapokum sem við getum síðan notað áfram.“ Daðey bætir við hún hafi tekið eftir augljósum kynslóðamun milli fólks. „Það voru kannski helst ömmur og afar sem gáfu eitthvað nýtt úr búð. Ég reyndi samt að ýja að þessu við þau. Ég sagði ömmunni að okkur langaði í dúkku fyrir Benjamín og að það væru fullt af dúkkum til í Barna- loppunni,“ segir Daðey. „Svo kom náttúrulega bara ný dúkka úr kass- anum. Ég held að þetta sé líka það að foreldrar okkar upplifðu kannski meiri skort í þeirra æsku. Þá var kannski önnur meining í því að gefa eitthvað notað. Manni fannst kannski leiðinlegt að vera alltaf í notuðum föt- um á þeim tíma þegar fólk átti minni pening. Það var einhver stimpill á því. En það væri frábært ef við gætum tekið þann stimpil í burtu og gert það að samfélagslegu „normi“ að allir deili hlutunum bara áfram.“ Ljósmynd/Daðey Albertsdóttir Hamingja Benjamín Tumi kippti sér ekki upp við að afmælisgjafirnar sem hann fékk voru ekki í umbúðum. Hvatti afmælisgesti til að gefa notaðar gjafir  Nýjar gjafir útgjöld fyrir umhverfið  Góðar viðtökur Sumar Gestir í afmælisveislunni gátu notið sumarblíðunnar úti í garði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.