Morgunblaðið - 13.06.2019, Síða 47

Morgunblaðið - 13.06.2019, Síða 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019 Nú er Silla frænka dáin – ég mun ekki hitta hana meira nema bara þegar ég kveð þessa jörð eins og hún. Þá verða örugglega fagnaðarfundir. Hún var mér góð frænka, systir pabba míns. Við vorum líka nöfnur. Ég man fyrst eftir Sillu þegar mamma og pabbi með allan barnahópinn sinn keyrðu Hvalfjörðinn og fóru í mat til Sillu frænku á Háaleitis- brautinni. Einhverjum fannst þetta ólíkleg minning – en þegar þetta gerðist þá var ég bara 4 ára. Minning mín um matarboð- ið er enn ljóslifandi – meira að segja man ég að ég var í hvítum háum sokkum og fínum kjól. Nokkrum árum seinna missti ég heyrnina alveg og þá kom sér Sigurlín Margrét Gunnarsdóttir ✝ Sigurlín Mar-grét Gunnars- dóttir fæddist 16. febrúar 1927. Hún lést 25. maí 2019. Útförin fór fram 7. júní 2019. vel að eiga Sillu að – svo var hún líka hjúkrunarfræðing- ur og forstöðukona á stórum spítala, það mátti segja í fljótu bragði að hún hefði öll svörin. Ég man líka eftir sam- tali okkar, ég var nýorðin heyrnar- laus og hafði króað hana af til eintals, maður var búin að safna tölverð- um kjarki til að eiga þetta sam- tal við hana – spurning var hvort hún þekkti ekki bara einhvern lækni á spítalanum sínum sem gæti lagað heyrnina mína. Hún vandaði sig við að svara, hún þekkti engan lækni sem gæti það. Það var mögulega svarið sem ég bjóst líka við – nokkurs- konar staðfesting að ég yrði allt- af heyrnarlaus og yrði bara að „hafa þetta svona“. Ég var samt ekki alveg að kaupa þetta svar á þeim tíma, hún hlyti að geta gert eitthvað og ég benti henni á að ég yrði að geta hlustað á út- varpið. Hún sagði við mig 8 ára stelpuna að það væri svo leið- inlegt að hlusta á útvarpið. Eftir þetta samtal voru tárin í aug- unum bara þurrkuð og málið var útrætt á góðan hátt. Hún studdi mig í öllu sem ég gerði og var bara stolt af mér og því sem ég hafði gert. Mér fannst gaman að segja henni frá öllu sem hafði á daga mína drifið þegar ég hitti hana og ég veit að henni fannst það líka. Hún var börnum mínum góð frænka. Við hittumst ekki mikið síðustu misserin en ég frétti alltaf af henni og hennar líðan. Ég veit hún spurði líka um mig. Hún gerði mikið á sinni ævi og var trú sjálfri sér. Fyrir mér var hún ein af mínum fyrir- myndum. Maður sér svo margt eftir á. Ég þakka af heilum hug fyrir að hafa kynnst henni vel og átt hana að þegar ég þetta ung fór „að heiman 10 ára“ í skóla fjarrri fjölskyldunni. Með broti úr ljóði kveð ég hana Sillu frænku. Ég þakka allt er enginn sér. Og þúsundfalt alla lífsins leið með þér. (Stefán Finnsson, 1947) Þín frænka, Sigurlín Margrét Sigurðardóttir. kynntist tengdamóður minni Fríðu árið 1991. Ekki fór á milli mála að þar var kominn mætur maður í fjölskylduna. Ró og yfir- vegun einkenndi allt fas hans og okkur var tekið fagnandi. Hann tók þátt í áhugamálum okkar og barnabörnum Fríðu var hann afi af lífi og sál. Hann var með síungan huga þó hann héldi mikið upp á hefðir og væri nýtinn með eindæmum. Segja má að hann hafi ekki tekið þátt í því feilspori mannkyns að fylla jörðina af drasli og hann vildi nýta hvern hlut í botn. Þarna átti hann samleið með nýrri hugsun um sjálfbærni. Jakob var einstakt góðmenni sem hlúði að öllu smáu sem stóru. Það fannst vart það smá- barn sem slakaði ekki á í fangi hans og sóttist í manngæsku hans og hreinan huga. Hann hafði líka einstakt lag á dýrum og hændi þau að sér, allt frá hundum til villtra fugla, s.s. tjaldi sem settist að við sum- arbústaðinn hans ár eftir ár. Jafnvel köngulærnar fengu grið hjá honum og fylgst var með þeim við spuna og veiðilist. Jakob var náttúrubarn og veiðimaður sem naut þess jafn mikið að vinna úr veiðinni og lifa af því sem náttúran gefur. Hann ræktaði alltaf kartöflur og oft grænmeti við sumarbústaðinn. Þrátt fyrir að hann vissi í vor að stutt væri eftir hafði hann áhuga á að grasflötin yrði slegin og settar niður kartöflur. Hefðir voru í hávegum hafðar og Þorláksmessa var alltaf stór dagur. Þá buðu Jakob og Fríða í skötuveislu í hádeginu og heitt hangikjöt um kvöldið. Jakob hafði sterkar skoðanir á því hvernig skatan væri best en helst vildi hann vel kæsta tinda- bikkju. Á þorranum var líka haldið þorrablót með öllu til- heyrandi. Veitingarnar voru margar hverjar heimalagaðar, svo sem sviðasultan, súrmatur- inn og rúgbrauðið. Svo mikil var gleðin yfir þessum þjóðlegu rétt- um að hann náði að hrífa flesta með sér, bæði unga og aldna. Jakob var mikill verkmaður og einkar hagur. Hann naut sín við smíðar og að dytta að ýmsum hlutum. Þegar heilsunni hrakaði sat hann við að fúaverja grind- verkið og ekkert var gefið eftir. Hann naut þess líka að planta trjám og sjá þau vaxa. Honum þótti það vænt um hríslurnar sínar að svolítið tók á að þurfa að grisja reitinn sinn við sum- arbústaðinn þegar trén voru far- in að taka helst til mikið pláss. Síðast en ekki síst var Jakob ákaflega góður vinur. Alltaf var gott að leita ráða hjá honum og hann stóð með sínum í gegnum þykkt og þunnt, traustur, áreið- anlegur og úrræðagóður. Jakob var lengst af mjög heilsuhraustur en síðustu árin einkenndust af veikindum og betri tímum inn á milli. Við sögðum að hann væri eins og kötturinn með níu líf. Hann naut þess að hafa góða lækna sem önnuðust hann og Fríða stóð með honum eins og klettur og hjúkraði honum heima af lífi og sál. Þannig gerði hún honum kleift að búa heima allt þar til hann lagðist inn á líknardeildina sex vikum fyrir andlátið. Það var falleg stund að verða vitni að friðlátum viðskilnaði hans við þetta jarðlíf á fögrum sumardegi. Út um gluggann sást iðandi lífið í fjöruborðinu. Báran kyssti ljúflega fjörugrjótið og æðar- fuglinn barðist fyrir lífi unga sinna smáu. Hringrás lífsins þar sem sjór, land og himinn mæt- ast. Við þessar aðstæður gekk náttúrubarnið Jakob á vit feðra sinna. Ég og fjölskylda mín þökkum Jakobi fyrir samfylgdina. Við vottum Fríðu, sonum hans og fjölskyldum okkar dýpstu sam- úð. Elín Erna Steinarsdóttir. Hún Arndís Magnúsdóttir, eða Dísa eins og hún var alltaf kölluð, kom inn í líf okkar fyrir 10 árum þegar hún kynntist föður okkar. Þá voru þau bæði búin að missa maka sína. Saman eyddu þau ævikvöldinu og var það mikið gæfuspor fyrir pabba að hitta hana Arndísi sína, hún var honum góður lífsförunautur þessi efri ár. Þau höfðu bæði fest kaup á íbúð í Jónshúsi í Garðabæ sem þá var nýbyggt. Kynnin hófust þegar þau tóku tal saman á göngustíg við húsið og hafa líklega einnig rekist hvort á annað í félagsmiðstöðinni við bridsspil en Dísa var mikill brids- spilari og átti sitt pláss við spila- borðið alveg fram í andlátið. Dísa reyndist okkur systkinum af- skaplega vel, varð góð vinkona okkar allra. Hún var börnum og barnabörnum okkar eins og amma en hún var mjög barngóð og nutu þess einnig börn henni ótengd. Eftir að hún vistaðist á hjúkr- unarheimilinu Ísafold var hún beðin að taka að sér að aðstoða börn innflytjenda við lestur og ís- lenskunám. Dísa var greind kona og víðsýn og börnunum hefur ekki verið í kot vísað hjá henni. Dísa var fastur punktur í sam- verustundum fjölskyldunnar, fór Arndís Kr. Magnúsdóttir ✝ Arndís Kr.Magnúsdóttir fæddist 20. júlí 1927. Hún lést 30. maí 2019. Útförin fór fram 7. júní 2019. m.a. með okkur til Danmerkur í ferm- ingu Önnu, sonar- dóttur pabba, og minnumst við syst- ur alltaf náttfata- partís okkar kvennanna eitt kvöldið í sumarhús- inu þegar við sátum langt fram á nótt og drukkum hvítvín og Dísa var í sínum föl- bleiku silkináttfötum og í gull- skónum, alltaf eins og drottning, einnig í náttfötunum. Það voru sagðar sögur bæði úr nútíð og fortíð og við hlógum allt kvöldið og hlógum okkur stundum alveg máttlausar, allt var skemmtilegt. Og það kom auðvitað í hlut Dísu að hjálpa fermingarbarninu að klæðast íslenska búningnum fyr- ir athöfn. Dísa sagði okkur oft frá upp- vaxtarárunum í sveitinni sinni í Reykhólahreppi og lífsbaráttunni gegnum tíðina. Ljóst er að hún byrjaði snemma að axla ábyrgð fullorðinnar konu. Hún hefur ver- ið hörkudugleg og samviskusöm og á vinnumarkaði voru henni fal- in ábyrgðarstörf. Frásagnir hennar báru vott um að þar fór sjálfstæð, stolt kona sem bar höfuðið hátt, naut virðingar, bar hag fjölskyldunnar mjög fyrir brjósti og var sátt við sitt hlutskipti. Og hún sofnaði sátt. Við systkin og fjölskyldur vilj- um að leiðarlokum þakka Dísu fyrir ómetanleg kynni og góðsemi í okkar garð og fyrir hve hún reyndist föður okkar góður sam- fylgdarmaður þessi síðustu ár. Einnig þökkum við fjölskyldu hennar ágæta viðkynningu og sendum þeim samúðarkveðjur. Dísa var farin að heilsu þetta síðasta ár og þráði hvíldina enda með reisn búin að skila sínu ævi- starfi og gott betur. Góðrar konu verður sárt saknað. Ragnhildur Þorgeirsdóttir. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa TRAUSTA SIGURÐSSONAR frá Hæli í Vestmannaeyjum, Kirkjusandi 5, Reykjavík, sem lést 22. maí. Herborg Sigurðsson Soffía Traustadóttir Skúli Bergmann Bára Traustadóttir Björn Elíson Sóley Traustadóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSDÍS HANSEN LÚÐVÍKSDÓTTIR frá Skálum á Langanesi, til heimilis að Ljósheimum 22, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 11. júní. Jarðarförin verður auglýst síðar. Elías Pétursson Jóhanna Soffía Hansen Svava Þóra Bell Lúðvík Pétursson Sölvi Leví Pétursson tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HILMAR PÁLSSON, fv. forstjóri Brunabótafélags Íslands, lést miðvikudaginn 5. júní. Útför hans verður föstudaginn 14. júní klukkan 15 frá Vídalínskirkju í Garðabæ. Hannes Hilmarsson Dóra Berglind Torfadóttir Páll Hilmarsson Kolbrún Jónsdóttir Björn Hilmarsson Guðrún Björk Gunnarsdóttir barnabörn og barnabarnabarn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HEIMIR BJÖRN INGIMARSSON Hjallalundi 22 Akureyri lést föstudaginn 7. júní. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn 18. júní klukkan 13.30. Sigríður Benjamínsdóttir Sigþór Heimisson Hildur Óladóttir Lára Ósk Heimisdóttir Björn Kristinn Björnsson Hafþór Ingi Heimisson Jenný Valdimarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Eiginmaður minn og faðir okkar, HAUKUR EGGERTSSON, Kirkjulundi 6, Garðabæ, áður Ísafirði, lést mánudaginn 3. júní. Útförin hefur farið fram. Þökkum samúð og hlýhug. Sérstakar þakkir fær starfsfólk hjartadeildar Landspítala við Hringbraut og heimahjúkrun heilsugæslunnar. Herdís Þorsteinsdóttir Sigurlaug, Vala Dröfn, Þorbjörg Elfa Hauksdætur og fjölskyldur Innilegar þakkir færum við öllum fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför hjartkærs eiginmanns, föður og afa, SVANS ELÍSSONAR lögreglufulltrúa, Frostaskjóli 69. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, Jakobi Jóhannssyni krabbameinslækni, starfsfólki Heru og líknardeildarinnar fyrir frábæra umönnun. Anna Margrét Jóhannsdóttir Einar Orri Svansson Fríða Jónsdóttir Páll Örvar Svansson Erla Guðrún Ingimundardóttir Markús Orri Pálsson Móðir okkar, tengdamóðir og amma, BIRNA SOFFÍA KARLSDÓTTIR, lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn 9. júní. Útför hennar fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 20. júní klukkan 13. Kolbrún Anna Jónsdóttir Ólafur William Hand Hjördís Unnur Jónsdóttir Eiríkur Magnússon Karl Pétur Jónsson Guðrún Tinna Ólafsdóttir og barnabörn Elskuleg móðir okkar, amma og langamma, GEIRÞRÚÐUR FINNBOGADÓTTIR HJÖRVAR sjúkraliði, Furugrund 52, sem lést fimmtudaginn 6. júní, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 14. júní klukkan 11. Finnbogi Rútur Þormóðsson Sigrún Lára Shanko Tryggvi Þormóðsson Anna Sigríður Sigurðardóttir Jóhanna Þormóðsdóttir Karl Ragnarsson Þormóður Þormóðsson barnabörn og barnabarnabörn Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.