Morgunblaðið - 13.06.2019, Qupperneq 57
DÆGRADVÖL 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Frábært úrval af
sundfatnaði
„ÉG VEIT AÐ ÞAÐ ER FRAMORÐIÐ, EN ÉG
BARA VERÐ AÐ TALA VIÐ EINHVERN.”
„EF ÞÚ HEFÐIR SAGT MÉR AÐ ÞÚ ÆTTIR
ALLAR ÞESSAR BÆKUR HEFÐI ÉG HAFT
HANA STERKBYGGÐARI!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann lítur upp
til þín.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ER TILBÚINN FYRIR STEFNU-
MÓTIÐ! HVAÐ FINNST ÞÉR? SKELL
Ó,
JÁ!
EÐAL! ÞÚ ERT
AÐALGAURINN!
URRDANN!
FLOTTUR!
ER ÞETTA NOKKUÐ
YFIRDRIFIÐ?
TELURÐU AÐ ÞÚ GETIR
LÆRT AÐ ELSKA MIG?
JÁ, ÉG GÆTI LÆRT
AÐ ELSKA ÞIG …
ÉG ÆTLA AÐ ÆFA MIG MEÐ ÞESSUM!
nauðsynlegri líkamsrækt og fer í
nokkrar veiðiferðir á sumrin. Ég hef
verið að leika mér öðru hverju við að
yrkja ljóð og smásögur í leyni sem er
eingöngu fyrir mig. Er virkur félagi í
Oddfellow-reglunni sem er mjög gef-
andi.“
Fjölskylda
Eiginkona Rúnars er Aðalheiður
Svava Hólmgeirsdóttir, f. 27.2. 1968,
flugfreyja hjá Icelandair. Foreldrar
hennar eru hjónin Hólmgeir Hólm-
geirsson, f. 24.4. 1949, rafvirki og fv.
starfsmaður Hitaveitu Suðurnesja,
og Ásthildur Eydís Eiríksdóttir
Kúld, f. 3.10. 1950, fv. verslunarkona
og starfsmaður Samkaupa.
Börn Rúnars og Aðalheiðar eru 1)
Árni Geir Fossádal Rúnarsson, f.
10.10. 1999, nemi og starfsmaður
Blue Car Rental; 2) Eydís Ásla
Fossádal Rúnarsdóttir, f. 15.10.
2009, snillingur.
Bróðir Rúnars er Atli Georg Árna-
son, f. 27.3. 1974, framkvæmdastjóri,
bús. í Aberdeen í Skotlandi, giftur
Jóhönnu Björg Guðmundsdótturog
eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Rúnars eru hjónin Árni
Valur Þórólfsson stýrimaður, f.
12.12. 1949 á Skagaströnd, og Ásla
Fossádal, sjúkraliði og fv. skrif-
stofumaður, f. 3.1. 1951 í Halldórsvík
á Straumey í Færeyjum. Þau eru bú-
sett í Hafnarfirði.
Rúnar
Fossádal
Árnason
Petra Hansen
húsfreyja í Klaksvík
Sören Kristian Hansen
járnsmiður og símafrumkvöðull í Klaksvík í Færeyjum
Alice María Elenora Fossádal
húsfreyja í Halldórsvík og
Grindavík, Íslandi
Gutti Fossádal
útgerðarmaður, bóndi og póstur í Halldórsvík í Færeyjum
Ásla Fossádal
sjúkraliði og fv. skrifstofum. í Hafnarfi rði
Jóhanna Johansen
húsfreyja í Halldórsvík
Georg Johansen
skipasmiður og póstmaður
í Halldórsvík
Halldóra Stefanía
Þorkelsdóttir
verkakona í Hafnarfi rði
Kristinn Bermann Jónasson
skipstjóri og sjómaður í
Reykjavík
Alma Sigríður
Kristinsdóttir Normann
húsfreyja og fi skmatsmað-
ur, fósturforeldrar: Almar
Viktor Normann og Sigríður
Árnadóttir
Þórólfur Sveinsson
útgerðarmaður, skipstjóri, vélstjóri og neta-
gerðarmaður í Rvík, á Skagaströnd og í Grindavík
Kolfi nna Magnúsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Sveinn Sveinsson
útgerðarmaður og stofnandi netagerðarinnar Höfðavíkur
Úr frændgarði Rúnars Árnasonar
Árni Valur Þórólfsson
stýrimaður og sjómaður í Hafnarfi rði
Sveinn Torfi Þórólfsson byggingaverk-
fræðingur og prófessor í Þrándheimi í Noregi
Aðalgeir Jóhannsson, (Alli á Eyri)
netagerðarmaður, stofnandi og
eigandi Möskva netagerðar og kaffi -
hússins Bryggjunnar í Grindavík
Jóhann Johansen
sjómaður í Grindavík
Sámal Johansen kennari
og rithöf. í Vogi í Suðurey
Marita Petersen formaður Jafnað-
arfl okksins og fyrsta konan til að
gegna embætti lögmanns Færeyja
Helgi Fossádal útgerðarmaður, bankamað-
ur og fv. forstöðumaður Listasafns Færeyja
Hér er „smá dýrafræði“ eftirHelga R. Einarsson:
Haninn á hólnum galar,
högninn í stólnum malar,
hundurinn urrar,
æðurin kurrar,
en miðflokksmaðurinn talar.
Davíð Hjálmar Haraldsson í Dav-
íðshaga skrifaði í Leirinn fyrir viku
rúmri: „Nú geta bændur sótt um
bætur vegna ágangs álfta og gæsa“:
Vaki ég um vorkvöld löng,
vaki ég um nætur.
Andvaka af svanasöng
sæki nú um bætur.
Sama dag orti Pétur Stefánsson:
Norðankul í lofti liggur,
þó land sé baðað morgunsól.
Situr fugl á hreiðri hryggur
hræðslugjarn og nokkuð styggur
og veitir ungum öruggt skjól.
Brátt mun koma betra veður,
blæs þá sunnangola hlý
og þrösturinn sín kvæði kveður
kátur hér og mannfólk gleður
og flýgur út um borg og bý.
Gústi Mar svaraði að bragði:
Þegar bráðum sýna sig
sunnanþeyr og lygna.
Þá mun eflaust angra þig
ef að fer að rigna.
En Fía á Sandi minntist þess, að 2.
júní gerðist þetta:
Fugl upp stekkur frekar styggur,
fellur aldan hvít, á sjó.
Dauður ungi lítill liggur
lágt í götu á nýjum snjó.
Starfsfólk skrifstofu Sveitarfé-
lagsins Skagafjarðar á Sauðárkróki
fór í hreinsunarátak og sópaði rusli
af gangstéttunum og mokaði burtu
óhreinindum. Birtist mynd af þessu
framtaki í héraðsblaðinu Feyki. Af
þessu tilefni orti Hilmir Jóhann-
esson:
Í bændur hnýta víst ei vil,
við þó skrítið fréttum.
Mæta í bítið margir til
að moka skít af stéttum.
Páll á Hjálmsstöðum segir frá því
að reiðskjóti hans Apall, þrekmikill
skaphestur, hafi aldrei brugðist á
ferðalögum hvernig sem annað velt-
ist. Sýndi hann þá oft knáleg tilþrif:
Séð hef ég Apal fáka fremst
frísa, gapa, iða.
Ef að skapið í hann kemst
er sem hrapi skriða.
Halldór Blöndal
alldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Smávegis af
hinum ýmsu fuglum