Morgunblaðið - 13.06.2019, Síða 59
mark Dana á síðustu sekúndum í síðari framleng-
ingu í 8-liða úrslitum gerði út um þær vonir.
Óskar Gumma alls hins besta
Á þessum árum var Alfreð að þjálfa Gummers-
bach samhliða og sagði á þeim tíma að það væri
ekki áskjósanleg staða. Spurður um hvort til
greina komi að taka einhvern tíma aftur við ís-
lenska landsliðinu tekur Alfreð skýrt fram að slík
umræða eigi ekki við um þessar mundir.
„Auðvitað kæmi það til greina en það er umræða
sem ég blanda mér ekki í því Gummi [Guðmundur
Guðmundsson landsliðsþjálfari] og strákarnir hafa
staðið sig vel. Í fyrsta lagi er nú aftur orðið til mjög
efnilegt lið heima á Íslandi sem á mikla framtíð
fyrir sér. Mér fannst Gummi gera frábæra hluti
með það á síðasta HM. Ég óska þess að hann haldi
þeirri stefnu áfram og liðinu gangi vel. Ég er fyrst
og fremst Íslendingur og þar af leiðandi myndi ég
aldrei segja að ekki kæmi til greina að stýra ís-
lenska landsliðinu einhvern tíma síðar en ég vil
frekar óska Gumma alls hins besta með landsliðið
og að hann haldi áfram á sömu braut.“ Alfreð fékk
hlýjar kveðjur frá stuðningsmönnum, leikmönnum
og starfsólki THW Kiel þegar Kiel tók á móti
Hannover Burgdorf í lokaumferð deildarinnar.
Hann nýtur augljóslega gífurlega mikillar virð-
ingar enda hefur árangurinn verið ævintýralegur.
Alfreð tók við THW Kiel árið 2008 og undir hans
stjórn varð liðið sex sinnum þýskur meistari, sex
sinnum bikarmeistari, sigraði tvívegis í Meist-
aradeild Evrópu og einu sinni í EHF-bikarnum. Á
nýloknu tímabili vann liðið EHF-bikarinn og
þýsku bikarkeppnina og hafnaði í 2. sæti í deild-
inni, tveimur stigum á eftir Flensburg. Liðið er á
góðum stað þegar Alfreð sleppir af því hendinni.
„Að fara í gegnum deildina með aðeins sex töp-
uð stig er í sjálfu sér frábær árangur en það nægði
því miður ekki. Ég skil eftir lið sem er tiltölulega
ungt og mjög vel spilandi núna. Lið sem á framtíð-
ina fyrir sér“ benti Alfreð á.
Úr mörgum sigrum að velja
Alfreð hefur náð árangri á fleiri stöðum en hjá
KA og Kiel því Magdeburg varð þýskur meistari
undir hans stjórn og sigraði einnig í Meist-
aradeildinni. Eftir svo glæsilegan feril er ef til vill
ekki einfalt að svara því hvaða afrek standa upp
úr.
„Hápunktarnir eru margir. Bikararnir eru yfir
þrjátíu og því úr nægu að velja. Fyrsti þýski meist-
aratitilinn í Magdeburg er eftirminnilegur en þá
var hreinn úrslitaleikur gegn Flensburg. Árið eftir
unnum við Meistaradeildina eftir úrslitaleik á móti
Veszprém. Svo nefni ég keppnistímabilið í Kiel
2012 þegar við unnum þrefalt og deildina með fullu
húsi stiga. Einu sinni unnum við deildina á síðustu
sekúndunum gegn Rhein-Neckar Löwen,“ sagði
Alfreð og jafnframt er erfitt að tína til eftir-
minnilega leikmenn umfram aðra.
„Ég er búinn að þjálfa svo ótrúlega marga af
bestu leikmönnum í heiminum að það er eiginlega
ekki hægt að velja örfáa. Ég hef þjálfað bestu
Frakkana, Þjóðverjana, Svíana, Íslendinga og ein-
hverja af bestu Dönunum. Marga góða af Balk-
anskaganum einnig og því af mörgu að taka.
Margir af þessum mönnum munu koma á kveðju-
leikinn minn. Menn sem ég þjálfaði fyrst hjá Ha-
meln og Magdeburg og síðar hjá Gummarsbach og
Kiel. Það koma um sextíu leikmenn en því miður
þurfti Gaui [Guðjón Valur Sigurðsson] að hætta
við vegna þess að PSG færði undirbúning sinn fyr-
ir næsta tímabil aðeins fram. Af Íslendingum að
telja þá verða þar Óli [Ólafur Stefánsson], Aron
Pálmars, Robbi Gunn [Róbert Gunnarsson] og
meira að segja Patti [Patrekur Jóhannesson] frá
KA-tímanum. Varaforsetinn,“ sagði Alfreð Gísla-
son og glotti en kveðjuleikurinn verður í Kiel seint
í júlí.
síðara loforðið
Ljósmynd/Sascha Klahn
ÍÞRÓTTIR 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
Gísli Þorgeir Kristjánsson var að
ljúka sínu fyrsta tímabili hjá THW
Kiel en verður án samlanda síns,
Alfreðs Gíslasonar, á næsta keppn-
istímabili.
„Þegar ég var í handboltanum í
yngri flokkum FH þá tengdi maður
Alfreð alltaf bara við THW Kiel. Ég
bara þekki ekkert annað og því
verður skrítið að sjá á eftir honum.
Mér fannst einnig skrítið þegar Ar-
on Pálmarsson fór frá Kiel á sínum
tíma því hann hafði verið þar frá
því ég var gutti. En Alfreð var
áfram en það er skrítið að hugsa til
þess að hann sé að fara. Mér líst
hins vegar vel á Filip Jicka [sem
tekur við liðinu af Alfreð] og
hlakka til að vinna með honum á
næsta keppnistímabili,“ sagði Gísli
þegar Morgunblaðið spjallaði við
hann í Kiel.
Telur Gísli að Íslendingar geri
sér almennt grein fyrir því hversu
mikillar virðingar Alfreð nýtur í
Kiel? „Nei, en ég áttaði mig heldur
ekki almennilega á því sjálfur.
Hann er kóngurinn hérna. Ekki
bara í Kiel heldur er hann kóng-
urinn í handboltaheiminum í
Þýskalandi. Tímabilið 2015-2016
fór ég til Kiel að skoða aðstæður og
þá var þetta allt miklu stærra en ég
hafði gert mér grein fyrir. Þegar
ég kom hingað út í fyrra og gekk til
liðs við Kiel þá áttaði ég mig á því
að Alfreð á „pleisið“. Þetta er bara
eins og á Akureyri. Það er í raun
ótrúlegt að sjá hversu mikillar virð-
ingar hann nýtur hérna. Alfreð er
lifandi goðsögn og í raun magnað
hvað hann hefur afrekað hjá þessu
félagi. Ég óska honum alls hins
besta í framtíðinni,“ sagði Gísli við
Morgunblaðið. kris@mbl.is
Kóngurinn í þýska
handboltaheiminum
Ljósmynd/Sascha Klahn
Stemning Gísli Þorgeir á ráðhús-
torginu í Kiel að leiktíðinni lokinni.
Það sýndi sig enn og aftur í
fyrrakvöld hve mikið vígi Laug-
ardalsvöllur er orðinn. Karla-
landslið Íslands í fótbolta hefur
ekki tapað þar í undankeppni
stórmóts síðan í júní 2013, í 15
leikjum. Síðan þá hafa Tyrkir til
að mynda mætt þrisvar í heim-
sókn og alltaf tapað.
Engu að síður verður bar-
áttan um sæti á EM hörð, við
Frakkland og Tyrkland sem líkt
og Ísland eru með 9 stig. Tyrkir
hafa til að mynda unnið útisigur
á Albönum og heimasigur á
Frökkum. Þar komu sex stig sem
afar snúið verður fyrir Ísland að
jafna.
Draumurinn er auðvitað að
Ísland nái öðru af tveimur efstu
sætum riðilsins og fari beint á
EM næsta sumar. Takist það ekki
má fullyrða að liðið fari í umspil í
mars á næsta ári. Röðunin í það
umspil fer ekki eftir stöðu í und-
anriðlum EM (3. sæti gefur sem
sagt ekkert meira en 4., 5. eða 6.
sæti) heldur fer hún eftir stöðu í
Þjóðadeildinni síðasta haust. Þar
var Ísland eitt af 12 liðum í efstu
deild, A-deild.
Já, já, þetta er voða flókið en
það sem ég vildi benda á er að ef
að Ísland kemst ekki beint á EM
og þarf að fara í umspilið, þá er
hryggilegt til þess að vita að
Laugardalsvöllur geti ekki nýst
liðinu í því umspili.
Ef Ísland verður til dæmis
annað af tveimur liðum úr A-
deild sem þurfa að fara í umspil
þá mun Ísland eiga rétt á að spila
á heimavelli í undanúrslitunum,
undir lok mars, en ég sé bara
ekki að við getum nýtt þann rétt.
Það er ástæða fyrir því að ekki er
spilað á grasvöllum á Íslandi í
mars. Hvaða leið væri þá best að
fara? Fá leyfi til þess að spila á
Þórsvelli í Færeyjum? Vonandi
reynast þessar vangaveltur
óþarfar.
BAKVÖRÐUR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
SMÁRALIND
GOLA | Barna regnbuxur Kr. 4.990.-Barna regnjakki Kr. 5.990.-