Morgunblaðið - 13.06.2019, Síða 63
63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019
Álfabakka 12, 109 Reykjavík • S. 557 2400 • Netverslun elbm.is
Opið virka daga kl. 8-18
Sængurverasett, dúkar,
servíettur, viskustykki,
dýnuhlífar & lök, sloppar & inniskór,
handklæði & þvottapokar.
Vörurnar fást í
Efnalauginni Björg í Mjódd
LÍN fyrir hótel, veitingahús, gistiheimili,
sjúkrastofnanir og heimili
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Kragelund stólar
K 406
Íslensku sviðslistaverðlaunin
Gríman voru afhent í gær við há-
tíðlega athöfn í Þjóðleikhúsinu og
var sýnt frá hátíðinni í beinni út-
sendingu á RÚV. Uppfærsla
Borgarleikhússins á Ríkharði III.
eftir William Shakespeare hlaut
flest verðlaun, sex talsins, var til-
nefnd til átta og var því óumdeild-
ur sigurvegari kvöldsins. Verð-
launin hlaut hún fyrir sýningu
ársins, leikstjóra, leikara í aðal-
hlutverki, leikmynd, búninga og
lýsingu. Súper eftir Jón Gnarr,
sem sýnt var í Kassanum í Þjóð-
leikhúsinu, hlaut sjö tilnefningar
en engin verðlaun en þrjár sýn-
ingar Þjóðleikhússins voru verð-
launaðar, þ.e. Samþykki, Ronja
ræningjadóttir og Einræðisherr-
ann. Hlaut hver sýning ein verð-
laun og Þjóðleikhúsið því þrenn
alls en Borgarleikhúsið hlaut níu,
sex fyrir Ríkharð III. sem fyrr
segir, tvenn fyrir Matthildi og ein
fyrir Club Romantica.
Herdís söngvari ársins
Tilnefnt var í 20 verðlaunaflokk-
um og voru þar af veitt ein heið-
ursverðlaun en þau hlaut leikstjór-
inn Þórhildur Þorleifsdóttir fyrir
starf sitt í þágu sviðslista á Ís-
landi. Þá var Sproti ársins verð-
launaður og reyndist það Matthías
Tryggvi Haraldsson leikskáld.
Dansarinn og danshöfundurinn
Bára Sigfúsdóttir mátti vel við
una því hún hlaut tvenn verðlaun,
sem dansari og danshöfundur árs-
ins fyrir The Lover en fyrir dans-
og sviðshreyfingar var það Lee
Proud sem hreppti verðlaunin fyr-
ir söngleikinn Matthildi.
Söngvari ársins að þessu sinni
er Herdís Anna Jónasdóttir fyrir
frammistöðu sína í hlutverki Vio-
lettu í óperunni La Traviata sem
sýnd var í Eldborgarsal Hörpu og
barnasýning ársins Ronja ræn-
ingjadóttir í Þjóðleikhúsinu.
Borgarleikhúsið fengsælt
Ellefu sýningar hlutu Grímuverðlaun og rötuðu níu verðlaun af 20 til Borgarleikhússins Hjörtur
Jóhann og Sólveig verðlaunuð fyrir leik Bára Sigfúsdóttir bæði dansari og danshöfundur ársins
Ánægð Bára Sigfúsdóttir hlaut verðlaun sem dansari og danshöfundur árs-
ins fyrir verkið The Lover sem sýnt var á Listahátíð í Reykjavík.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Gleði Uppfærsla Borgarleikhússins á Ríkharði III. hlaut sex Grímuverð-
laun. Borgarleikhússtjóri fagnaði með þeim sem komu að sýningunni.
Sú besta Sólveig Guðmundsdóttir hlaut verðlaun sem besta leikkona í
aðalhlutverki fyrir leik sinn í Rejúníon sem sýnt var í Tjarnarbíói.
Sýning ársins
Ríkharður III. í sviðsetningu Borgar-
leikhússins
Leikrit ársins 2019
Club Romantica eftir Friðgeir
Einarsson
Leikstjóri ársins
Brynhildur Guðjónsdóttir - Ríkhaður III.
Leikari ársins í aðalhlutverki
Hjörtur Jóhann Jónsson - Ríkharður III.
Leikkona ársins í aðalhlutverki
Sólveig Guðmundsdóttir - Rejúníon
Leikari ársins í aukahlutverki
Stefán Hallur Stefánsson - Samþykki
Leikkona ársins í aukahlutverki
Vala Kristín Eiríksdóttir - Matthildur
Leikmynd ársins
Ilmur Stefánsdóttir - Ríkharður III.
Búningar ársins
Filippía I. Elísdóttir - Ríkharður III.
Lýsing ársins
Björn Bergsteinn Guðmundsson -
Ríkharður III.
Tónlist ársins
Daníel Bjarnason - Brothers
Hljóðmynd ársins
Karl Olgeirsson, Aron Þór Arnarson og
leikmunadeild Þjóðleikhússins -
Einræðisherrann
Söngvari ársins
Herdís Anna Jónasdóttir - La Traviata
Dans – og sviðshreyfingar ársins
Lee Proud - Matthildur
Dansari ársins
Bára Sigfúsdóttir - The Lover
Danshöfundur ársins
Bára Sigfúsdóttir - The Lover
Útvarpsverk ársins
SOL
Sproti ársins
Matthías Tryggvi Haraldsson
Barnasýning ársins
Ronja Ræningjadóttir
Heiðursverðlaun Sviðslista-
sambands Íslands
Þórhildur Þorleifsdóttir
Ríkharður III. hlaut VI verðlaun
HANDHAFAR GRÍMUVERÐLAUNANNA 2019
Eftirminnilegur Hjörtur Jóhann Jónsson í Ríkharði III. Hjörtur hlaut verðlaun sem
leikari ársins í aðalhlutverki fyrir eftirminnilega túlkun sína á illmenninu fræga.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason