Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 68
68 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019 Verslun - Snorrabraut 56 Vefverslun - feldur.is +354 588 0488 Sinfóníuhljómsveit Íslands (SÍ) til- kynnti í gær ráðningu finnska hljómsveitarstjórans Evu Ollikainen í stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda hljómsveit- arinnar. Ollikainen er ráðin til fjög- urra ára og mun hún stjórna hljóm- sveitinni að jafnaði í átta vikur á hverju starfsári og einnig mun hún stýra hljómsveitinni á fyrirhuguðum tónleikaferðum innanlands sem ut- an. Hún er fyrsta konan sem gegnir þessari stöðu hjá hljómsveitinni. Ollikainen tekur við stöðunni í byrjun starfsársins 2020/21 og mun stjórna tvennum tónleikum með hljómsveitinni á næsta starfsári, þ. á m. 70 ára afmælistónleikum SÍ í mars 2020. Innblásin hljómsveitarstjórn „Eva Ollikainen hefur vakið verð- skuldaða athygli víða um heim fyrir innblásna hljómsveitarstjórn. Hún nam hljómsveitarstjórn hjá Jorma Panula og Leif Segerstam í Sibelius- ar-akademíunni. Hún hreppti fyrstu verðlaun í Panula-keppninni fyrir unga hljómsveitarstjóra árið 2003 og var um skeið aðstoðarstjórnandi hjá Kurt Masur og Christoph von Dohnányi,“ segir í tilkynningu frá SÍ og að Ollikainen hafi m.a. stjórn- að útvarpshljómsveitunum í Finn- landi og Svíþjóð, Fílharmóníusveit- unum í Stokkhólmi og Turku, Tapiola-sinfóníettunni og Sinfón- íuhljómsveitunum í Helsingborg, Lahti og Þrándheimi. Hún hefur einnig stjórnað Sinfóníuhljómsveit- inni í Vínarborg og Þýsku sinfón- íuhljómsveitinni í Berlín og fyrir skömmu stjórnaði hún í fyrsta sinn Fílharmóníusveitinni í Helsinki, í flutningi á Níundu sinfóníu Beetho- vens og nýrri uppfærslu á óperunni Turandot eftir Puccini í Dönsku óp- erunni. Þá stjórnar hún Beethoven- hring með Jönköping Sinfonietta og ballettunum Hnotubrjótnum og Svanavatninu við Semperoper í Dresden. Ollikainen kom fyrst til Íslands haustið 2005 og stjórnaði framhalds- skólatónleikum Sinfóníuhljómsveit- arinnar með nær engum fyrirvara, að því er fram kemur í tilkynning- unni. Hún stjórnaði hljómsveitinni þrisvar á áskriftartónleikum á ár- unum 2007–10 og síðast tvennum tónleikum í Hörpu á þessu ári. „Ég hef fundið til djúprar teng- ingar við meðlimi Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands frá því ég stjórnaði henni í fyrsta sinn. Þeir eru ekki að- eins hljóðfæraleikarar á hæsta al- þjóðlega plani, heldur er skilningur þeirra og miðlun á tónlistinni ein- stök. Ég hlakka mjög til samstarfs okkar í nýrri og gamalli tónlist, og er viss um að við munum eiga eft- irminnilegar stundir með hinum frá- bæru íslensku áheyrendum. Mig langar að halda áfram hinu lofs- verða starfi hljómsveitarinnar hvað varðar fjölbreytni í verkefnavali og mun ganga enn lengra í þá átt, til dæmis með því að láta verk tón- skálda með ólíkan bakgrunn hljóma. Ég hlakka einnig mjög til að starfa með faglegu starfsliði hljómsveit- arinnar, en ég varð strax mjög hrifin af orku þeirra og þeirri ákefð sem þau sýna við það að gera Sinfón- íuhljómsveit Íslands enn betri,“ er haft eftir Ollikainen. Nýr og spennandi kafli Lára Sóley Jóhannsdóttir, fram- kvæmdastjóri SÍ, segir að með ráðningu Ollikainen hefjist nýr og spennandi kafli með óteljandi tæki- færum. „Eva hefur í gegnum starf sitt með hljómsveitinni á liðnum ár- um náð góðu sambandi bæði við hljóðfæraleikara og áheyrendur með sinni hrífandi orku og eldmóði. Hún skilur hversu mikilvæg hljóm- sveitin er okkar samfélagi og hvern- ig samtalið við þjóðina getur eflst enn frekar. Hún hefur allt sem þarf til þess að halda áfram að þróa list- ræn gæði og gera okkur mögulegt að flytja hágæða tónlist hérlendis sem erlendis. Við erum full eft- irvæntingar og tilhlökkunar fyrir samstarfinu og framtíðinni með Evu,“ er haft eftur Láru í tilkynn- ingu. Morgunblaði/Arnþór Birkisson Ráðning Lára Sóley Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri SÍ, og hljómsveitarstjórinn Eva Ollikainen rituðu í gær und- ir samning um ráðningu Ollikainen í stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda sinfóníuhljómsveitarinnar. Eva Ollikainen ráðin í stöðu aðalhljómsveitarstjóra SÍ  Tekur við í byrjun starfsársins 2020/21  Fyrsta konan sem gegnir stöðunni Þungarokkshátíðin Ascension MMXIX hefst í Hlégarði í Mos- fellsbæ í dag og stendur yfir í þrjá daga. Fram koma 30 hljómsveitir frá 13 löndum og af íslenskum má nefna Sólstafi, Kæluna miklu, Svartadauða og Misþyrmingu og af erlendum Wolvennest, Gost, King Dude, Drab Majesty, Antaeus, Böl- zer og Tribulation. Miðasala á há- tíðina fer fram á tix.is. Þungarokk í Hlégarði í þrjá daga Málmsveit Svartidauði kemur fram í Hlégarði á Ascension MMXIX. Kristín Geirs- dóttir opnaði á hvítasunnudag sýningu í Galleríi göngum í Há- teigskirkju sem hún nefnir Óður til jarðar, blá jörð, græn jörð. Þar sýnir hún málverk máluð á striga, pappír og MDF-plötur. Ragna Sigurðardóttir, rithöf- undur og myndlistarmaður, skrifar í sýningarskrá og segir m.a. að Kristín hafi um árabil markað sér sérstöðu í íslensku málverki þar sem hún bregði sér í ýmis hlutverk í rannsóknum sínum og sköpun. „Það má að einhverju leyti líkja málverkum Kristínar við nátt- úrufyrirbæri sem gjarnan kalla fram innri íhugun eins og streym- andi vatnsyfirborð, logandi eld,“ segir þar m.a. Kristín hefur tekið þátt í fjölmörgum sýningum bæði á Íslandi og erlendis og er virkur þátttakandi í bæði alþjóðlegum og innlendum listahópum. Óður til jarðar Kristín Geirsdóttir Tónleikaröðin Freyjujazz hefst í dag og verður alla fimmtudaga út sumarið í Listasafni Ís- lands. Íslenskar djasskonur eru þar að vanda í fararbroddi og nokkrar erlend- ar taka einnig þátt. Á opnunartónleikunum koma fram fjórar þýskar djasskonur og tvær íslenskar og eru tónleikarnir haldnir til heiðurs þeim 240 þýsku konum sem fluttu til Íslands eftir seinna stríð. Fulltrúar Íslands eru söngkonan Stína Ágústsdóttir og píanistinn og skipuleggjandi tón- leikaraðarinnar, Sunna Gunnlaugs- dóttir, og frá Þýskalandi eru það Theresia Philipp sem leikur á saxó- fón, Julia Hülsmann á píanó, Clara Däubler á bassa og Lizzy Schar- nofske á trommur. Á efnisskrá verða verk eftur Sunnu, Hülsmann og standardar með textum Stínu af plötunni Jazz á íslensku. Fjórar þýskar og tvær íslenskar Sunna Gunnlaugsdóttir Listafólk frá Austurlandi mun frumflytja óperu, The Raven’s Kiss eftir Evan Fein og Þorvald Davíð Kristjánsson, í Herðubreið á Seyðisfirði 23. ágúst næstkom- andi. Berta Dröfn Ómarsdóttir söngkona og Þorvaldur Davíð Kristjánsson áttu hugmyndina að því að setja upp óperu fyrir aust- an en þau eru bæði ættuð þaðan og hafa látið sig dreyma um að fara austur með metnaðarfullt verkefni, eins og segir í tilkynn- ingu, og er markmiðið að gefa þeim fjölmörgu listamönnum sem eiga rætur að rekja til Austur- lands vettvang til að vinna saman og mynda tengslanet sem vonandi leiðir af sér blómlegt samstarf. The Raven’s Kiss er ópera í tveimur þáttum og samdi Fein tónlistina en Þorvaldur samdi sögu og líbrettó. Þeir kynntust í listaskólanum Julliard í New York þegar þeir voru þar í námi og sameiginlegur áhugi þeirra á norrænum þjóðsögum varð kveikjan að samstarfinu. Óperan er skrifuð fyrir fimm einsöngvara og litla hljómsveit og sögusviðið er lítið sjávarþorp þar sem dul- arfull kona, framandi og fögur, birtist og við það breytist líf, hegðun og hugsun heimamanna. Söngvarar verða Bergþór Páls- son, Berta Dröfn Ómarsdóttir, Egill Árni Pálsson, Hildur Evlalía Unnarsdóttir og Ólafur Freyr Birkisson. Ópera frumflutt á Seyðisfirði í ágúst Samstarf Þorvaldur, Berta og Evan Fein.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.