Morgunblaðið - 19.06.2019, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 9. J Ú N Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 142. tölublað 107. árgangur
VERÐ ALLTAF AÐ
HAFA EITTHVAÐ
AÐ SÝSLA
HEIMS-
FRÆGUR
PÍANÓDÚETT
APPLE PAY
NÝTUR MIKILLA
VINSÆLDA
REYKJAVÍK MIDSUMMER MUSIC 28 VIÐSKIPTAMOGGINNÖRN ÁRNASON 60 ÁRA 22
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Það hafa gefist mörg tækifæri í sumarblíðu síðustu daga til
þess að sinna útivist og öðrum áhugamálum, líkt og þessi
kajakræðari, sem undi sér vel í sjónum undir Eyjafjöllum á
dögunum.
Útlit er fyrir að veðrið verði áfram tiltölulega milt þó að
ögn muni kólna, en samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu
Íslands er gert ráð fyrir norðvestlægri átt næstu daga með
dálítilli rigningu eða súld á landinu norðan- og austanverðu.
Sunnanmegin verður skýjað með köflum og skúrir syðst á
landinu, einkum síðdegis. Gert er ráð fyrir að hitinn verði á
bilinu 4 til 15 stig og verður hlýjast á Suðurlandi, en öllu sval-
ara í veðri fyrir norðan.
Kajakróður undir Eyjafjöllum í sumarblíðunni
Morgunblaðið/RAX
Samdráttur
hefur orðið í sölu
á stálbitum sem
notaðir eru sem
burðarbitar í hús,
þar sem mikið
hefur dregið úr
byggingu ein-
býlishúsa. Þetta
kemur fram í
samtali við Önnu
Jóhönnu Guð-
mundsdóttur, forstjóra GA Smíða-
járns, í ViðskiptaMogganum. Anna
er dóttir Guðmundar Arasonar,
stofnanda fyrirtækisins, en hann var
kunnur hnefaleika- og skákmaður.
Samdráttur í
sölu á stálbitum
Anna segir að alltaf
sé þörf fyrir stál.
Tekjur Reykjavíkurborgar af
fasteignasköttum íbúða og atvinnu-
húsnæðis hafa aukist um tæplega
40 þúsund, reiknað á hvern íbúa
borgarinnar, á fjórum árum, frá
2014 til 2018. Samsvarar þetta
37,4% hækkun á tímabilinu.
Fasteignaskattar skiluðu Reykja-
víkurborg tæplega 146 þúsund
krónum á hvern íbúa að meðaltali á
árinu 2018. Næstu sveitarfélög eru
Hafnarfjörður með 109 þúsund á
íbúa og Akureyri með 107 þúsund.
Til samanburðar má geta þess að
fasteignaskattar skila Seltjarnar-
neskaupstað 61 þúsund krónum á
hvern íbúa og Akraneskaupstað 72
þúsund krónum. »10 og 14
37% hækkun skatts
hjá Reykjavíkurborg
Stefán Gunnar Sveinsson
Snorri Másson
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
sem Maskína lét vinna fyrir samtökin
Heimssýn dagana 12.-18. júní eru um
61,3% þeirra sem afstöðu tóku fylgj-
andi því að Ísland fái undanþágu frá
orkulöggjöf Evrópusambandsins en
um 38,7% eru andvíg. Í könnuninni
kemur einnig fram að um 53% af
þeim sem afstöðu tóku vilji þjóðarat-
kvæðagreiðslu um innleiðingu þriðja
orkupakkans, en 47% eru því andvíg.
Þá sögðust tæp 59% andvíg því að
heimila innflutning á fersku eða
ófrosnu kjöti, en um 41% var fylgj-
andi því.
Afgreiðslu þriðja orkupakkans
verður frestað fram að framhalds-
fundi núverandi þings, sem haldið
verður um mánaðamótin ágúst-sept-
ember, samkvæmt samkomulagi um
lok þingstarfa sem náðist í gær eftir
að fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Mið-
flokks ræddu óformlega saman um
helgina. Þá verður gildistöku frum-
varps um dýrasjúkdóma, sem veitir
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra heimild til að leyfa innflutning á
hráum eða lítt söltuðum kjötafurðum,
frestað um tvo mánuði.
„Þetta er einhver málamiðlun en
auðvitað snúast hlutirnir fyrst og
fremst um það þegar upp er staðið að
þau mál sem ríkisstjórnarflokkar og
meirihluti þingsins leggi áherslu á fái
eðlilegar lyktir í samræmi við afstöðu
meirihluta þingmanna,“ sagði Birgir
Ármannsson, þingflokksformaður
Sjálfstæðisflokksins, í samtali við
mbl.is í gær.
Sagði Birgir allar líkur á því að
þingstörfin næðu að klárast að öðru
leyti í þessari viku, en eftir er að ræða
breytingar á fjármálastefnu og fjár-
málaáætlun ríkisstjórnarinnar. Gerði
Birgir ráð fyrir að þinglegri meðferð
þeirra mála yrði lokið á næstu tveim-
ur dögum.
Ekki hægt annað en að gleðjast
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, sagði í sam-
tali við mbl.is í gærkvöldi að ekki væri
annað hægt en að gleðjast yfir þeirri
niðurstöðu í þinglokasamningi flokk-
anna á Alþingi, að svigrúm væri gefið
til að skoða orkupakkann betur. Sagði
Sigmundur að það svigrúm yrði nýtt.
Sigmundur Davíð telur enn raun-
hæft að ríkisstjórnin muni endur-
skoða afstöðu sína í málinu, þar sem
kannanir bendi til að umtalsverður
meirihluti stuðningsmanna allra rík-
isstjórnarflokkanna hafi efasemdir
eða sé andvígur innleiðingu orku-
pakkans. Þá sagði Sigmundur að
hann hefði helst kosið að málið hefði
verið sent aftur til EES-nefndarinn-
ar. „Hins vegar á þessi lausn að geta
skilað sama árangri að miklu leyti,
þar sem nú gefst þessi tími til að fara
betur í gegnum þetta,“ segir hann.
61,3% vilja undanþágu
frá orkulöggjöf ESB
Afgreiðslu orkupakkans frestað fram til þingfundar í haust
MÞinglok »2 og 4
Könnun Heimssýnar
» 53% þeirra sem afstöðu
tóku voru fylgjandi þjóðar-
atkvæðagreiðslu um orkupakk-
ann en 47% voru andvíg.
» 61,3% vilja undanþágu frá
orkulöggjöf ESB en 38,7% eru
andvíg því.
» 58,9% eru andvíg innflutn-
ingi á fersku eða ófrosnu kjöti
en 41,1% er fylgjandi því.
Íslenskir tónlistarmenn hafa
komið efni sínu í talsverða dreif-
ingu gegnum tónlistarveituna
Spotify. Í nokkrum tilvikum hafa
lítið þekktir listamenn fengið
milljónir manna til að hlusta á
tónlist sína. Sindri Freyr Guð-
jónsson er einn þeirra. Í samtali
við ViðskiptaMoggann í dag seg-
ir hann að sér teljist til að hann
fái um 60 aura fyrir hverja
hlustun.
Fá 60 aura fyrir
hverja spilun