Morgunblaðið - 19.06.2019, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019
Á innan við sjö
mánuðum höfum við
Íslendingar fagnað
þremur merkum
áföngum í baráttunni
fyrir fullu frelsi. Í des-
ember síðastliðnum
voru 100 ár frá því að
Ísland varð fullvalda
ríki, í febrúar voru 115
ár liðin frá því að við
fengum heimastjórn
og síðastliðinn mánudag var haldið
upp á 75 ára afmæli lýðveldisins.
Þessir áfangar skipa mismunandi
sess í hugum okkar. Þjóðhátíðar-
dagurinn 17. júní er haldinn hátíð-
legur. Við erum hins vegar að
mestu hætt að halda upp á 1. des-
ember þótt efnt hafi verið til hátíð-
arhalda á liðnu ári til að minnast
aldarafmælis fullveldisins. Sama er
að segja um 1. febrúar. Við leiðum
yfirleitt aldrei hugann að því
hversu mikilvægt skref í átt að full-
veldi það var að höfuðstöðvar fram-
kvæmdavaldsins fluttust heim til
Íslands frá Kaupmannahöfn. Með
því styrktist staða Alþingis og þing-
ræðið var fest í sessi, eins og Davíð
Oddsson, þáverandi forsætisráð-
herra, benti á í hátíðarræðu þegar
þess var minnst 1. febrúar 2004 að
öld var frá því Hannes Hafstein
varð ráðherra Íslands með aðsetur
í Reykjavík. Og Davíð bætti við:
„Menn geta horft til helstu kafl-
anna í þjóðfrelsisbaráttunni, end-
urreisnar alþingis, þjóðfundar,
stöðulaganna, stjórnarskrár, heima-
stjórnar, fullveldis og loks lýðveldis
og spurt sig, hver þessara atburða
stóð upp úr. Að forminu til má
segja að fullveldið 1918 hafi verið
stærsti atburðurinn. En að öllu
öðru leyti var heimastjórnin 1. febr-
úar 1904 mikilvægasti atburður
sjálfstæðisbaráttunnar og reyndar
var farsæl framkvæmd á heima-
stjórninni forsenda fullveldisins. Þá
tókst tvennt í senn. Umheiminum,
og þá einkum Dönum, var sýnt
fram á að Íslendingar væru full-
færir um að fara með
eigin mál, þrátt fyrir
fámenni, fátækt og
harðbýlt lítt numið
land. Og Íslendingum
sjálfum óx ásmegin.
Ísland, þessi hjari í
norðurhöfum, var orð-
ið land tækifæranna.
Mjög snögglega dró úr
vesturförum Íslend-
inga um þessar mund-
ir, meðan straumurinn
til Ameríku annars
staðar frá jókst. Það
undirstrikar vel hið breytta hug-
arfar. Væntingar og bjartsýni höfðu
bægt burtu vonleysi og uppgjöf.
Heimastjórnin 1. febrúar 1904 var
því happafengur fyrir íslenska þjóð
á þeim degi og ætíð síðar.“
Tækifærin nýtt
Pólitískt fullveldi og fjárhagslegt
sjálfstæði eru mismunandi hliðar á
sama teningi. „Fullveldi er ágætt,
en því aðeins er það algert, að fjár-
hagslegt sjálfstæði fylgi,“ sagði
með réttu á forsíðu Morgunblaðsins
í desember 1918 þegar fullveldinu
var fagnað.
Baráttan fyrir bættum lífskjörum
hefur ekki aðeins snúist um að nýta
auðlindir lands og sjávar heldur
ekki síður að tryggja greiðan að-
gang að erlendum mörkuðum fyrir
íslenskar vörur. Baráttumenn fyrir
sjálfstæði þjóðarinnar skildu öðrum
betur hversu mikilvægt versl-
unarfrelsi er fyrir fámenna þjóð.
Líkt og í sjálfstæðisbaráttunni,
heimastjórn, fullveldi og lýðveldi,
höfum við tekið hvert skrefið á fæt-
ur öðru frá lokum síðari heimstyrj-
aldar til að treysta böndin við vina-
þjóðir og tryggja friðsamleg
samskipti við allar þjóðir. Í sam-
skiptum við aðrar þjóðir höfum við
nýtt fullveldisrétt okkar til að
byggja undir efnahagslega velmeg-
un og pólitískt sjálfstæði.
Engir þeirra sem lögðu grunninn
að fullu sjálfstæði lands og þjóðar
árin 1904, 1918 eða 1944 gátu látið
sig dreyma um þann ótrúlegan ár-
angur sem náðst hefur. Það gerðist
ekki af sjálfu sér að eitt fátækasta
ríki Evrópu varð að einu mesta vel-
megunarríki heims og raunar sög-
unnar. Til þess þurfti framsýni og
fyrirhyggju.
Við höfum nýtt auðlindir okkar af
meiri skynsemi en flestar aðrar
þjóðir. Gert sjávarútveg að arð-
bærri atvinnugrein, ólíkt flestum
öðrum þjóðum, nýtt vatnsorkuna til
raforkuframleiðslu, beislað heita
vatnið og flutt tækiþekkingu til
annarra landa.
Hreyknir af landi og þjóð
Ég er sannfærður um að Hannes
Hafstein, Jón Þorláksson, Ólafur
Thors og Bjarni Benediktsson væru
hreyknir af landi og þjóð. Stoltir af
því hvernig til hefur tekist, þótt oft
hafi gefið á bátinn og ýmis verkefni
séu óunninn. Ólafur og Bjarni væru
örugglega stoltir af því hvernig við
höfum nýtt fullveldisrétt okkar í
samskiptum við aðrar þjóðir enda
lögðu þeir flesta hornsteina utan-
ríkisstefnu okkar. EES-samning-
urinn byggir á þessum horn-
steinum.
Aðild Íslands að Sameinuðu þjóð-
unum 1946, var eðlilegt framhald af
lýðveldisstofnuninni og vilja lands-
manna að eiga friðsamleg og opin
samskipti við aðrar þjóðir. Með
sama hætti var nauðsynlegt að
tryggja pólitískt sjálfstæði þjóð-
arinnar með þátttöku í Atlantshafs-
bandalaginu. Í apríl síðastliðnum
voru 70 ár frá því að ákveðið var að
nýta fullveldið til að taka höndum
saman við aðrar lýðræðisþjóðir. Sú
ákvörðun hefur reynt okkur Íslend-
ingum og öðrum þjóðum farsæl.
Þannig hefur hvert skrefið verið
tekið. GATT, EFTA og loks EES
fyrir 25 árum. Við höfum gert
fjölda fríverslunarsamninga, bæði
beint og í gegnum EFTA og eigum
aðild að alþjóðlegum stofnunum þar
sem við höfum undirgengist
ákveðnar skyldur. Í hverju einasta
skrefi hafa forystumenn þjóð-
arinnar haft í huga að efnahagsleg
velsæld og fjárhagslegt sjálfstæði
Íslendinga, verður ekki tryggt
nema með greiðum aðgangi að er-
lendum mörkuðum og opnum og
frjálsum samskiptum við aðrar
þjóðir.
Fullveldi, EES og orka
Í samskiptum við aðrar þjóðir
fáum við ekki allt fyrir ekkert.
Þetta á við um EES-samninginn
eins og aðra alþjóðlega samninga.
Um það verður ekki deilt (þótt ein-
hverjir reyni) að samningurinn um
Evrópska efnahagssvæðið hefur
reynt okkur Íslendingum hag-
stæður – með öllum sínum kostum
og göllum. Auðvitað höfum við
þurft að gefa ýmislegt eftir með
sama hætti og samstarfsþjóðir okk-
ar. Það er eðli alþjóðlegra sam-
skipta. Mestu skiptir fyrir okkur
Íslendinga að byggt sé á þeirri for-
sendu að íslenska ríkið hafi jafna
stöðu á við önnur ríki í alþjóðlegu
samstarfi. Á stundum hefur reynt á
„þanþol“ stjórnarskrárinnar en þá
skiptir miklu að takmarkað framsal
valds hlýtur „eðli málsins sam-
kvæmt að vera afturkræft frá sjón-
arhóli íslenskrar stjórnskipunar,
enda væri önnur niðurstaða ósam-
rýmanleg fullveldi ríkisins,“ eins og
sagði í áfangaskýrslu stjórnarskrár-
nefndar 2013-2016, undir forystu
Sigurðar Líndals, lagaprófessors
emeritus.
Þær hörðu deilur sem sprottið
hafa upp vegna þriðja orkupakkans,
svokallaða, eru á margan hátt skilj-
anlegar. Sem betur fer höfum við
Íslendingar borið gæfu til þess að
standa vörð um óskorað forræði á
auðlindum lands og sjávar. Hafi
einstaka þingmenn eða almenn-
ingur áhyggjur af því að með einum
eða öðrum hætti sé verið að stefna
forræði yfir orkuauðlindunum í
hættu, er eðlilegt að brugðist sé
hart við. Samþykkt þriðja orku-
pakkans felur hins vegar ekkert
slíkt í sér.
Við erum ekki afsala okkur yf-
irráðum yfir orkuauðlindum. Við
erum ekki að undirgangast skyldur
um það hvernig, hverjir og hvenær
skuli nýta orkuauðlindina. Við mun-
um hér eftir sem hingað til stjórna
og taka ákvörðun sjálf með hvaða
hætti við nýtum auðlindina – óháð
öllu og öllum, á okkar eigin for-
sendum og út frá okkar hags-
munum. Við erum ekki að undir-
gangast skyldur eða gefa loforð um
lagningu sæstrengs. Hvort og þá
hvenær sæstrengur verður lagður
er ákvörðun sem við tökum á okkar
forsendum. Við erum ekki að skuld-
binda okkur til að breyta eignar-
haldi á helstu og mikilvægustu
orkufyrirtækjum landsins. Við er-
um ekki að færa umráðarétt eða
eignarrétt á orkuauðlindunum eða
orkufyrirtækjunum með þriðja
orkupakkanum. Það er innbyggt og
óaðskiljanlegur hluti af EES-
samningnum að skipulag eignar-
réttarins og þar með nýting hans
er og verður á forræði hvers aðild-
arríkis.
Deilan um þriðja orkupakkann
hefur hins vegar leitt til þess að
þingmenn og almenningur verður
hér eftir meira vakandi gagnvart
hagsmunum okkar innan EES. Það
veit á gott og er okkur lífs-
nauðsynlegt. Ekkert mannanna
verk er hafið yfir gagnrýni og end-
urskoðun. Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokksins, hefur
ítrekað lýst því yfir að tímabært sé
að Alþingi taki til skoðunar stöðu
EFTA-ríkjanna á grundvelli EES-
samningsins.
Það reyndist mikið gæfuspor að
taka þátt í samstarfi Evrópuþjóða
með innleiðingu EES-samningsins.
En vegurinn milli samstarfs og
varðstöðu um fullveldið verður allt-
af vandrataður.
Eftir Óla Björn
Kárason » Það gerðist ekki af
sjálfu sér að eitt fá-
tækasta ríki Evrópu
varð að einu mesta vel-
megunarríki heims og
raunar sögunnar. Til
þess þurfti framsýni.
Óli Björn Kárason
Höfundur er alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins.
Fullveldi í samskiptum við aðrar þjóðir
Kvennahreyfingin hefur í
gegnum tíðina verið óþreyt-
andi við að halda á lofti þeim
sannindum að hið persónulega
er pólitískt og hið pólitíska
persónulegt. Ákvarðanir sem
stjórnmálamenn taka geta
haft bein áhrif á daglegt líf
fólks og fært samfélagið í til-
teknar áttir. Á kvenréttinda-
deginum fögnum við réttind-
um kvenna til að kjósa og til
stjórnmálaþátttöku og þar
með formlegri aðkomu kvenna að mótun
samfélagsins.
Stjórnmálaþátttaka kvenna hefur ger-
breytt íslensku samfélagi. Almennir leik-
skólar og einsetinn grunnskóli væru varla
veruleiki ef ekki væri fyrir þrotlausa bar-
áttu kvenna innan sem utan stjórnmálanna.
Samtakamáttur kvenna skipti sköpum á
sínum tíma við uppbyggingu Landspítala
og sama má segja um ýmis önnur fram-
faramál í heilbrigðisþjónustu. Öflugir skól-
ar og öflugt velferðar- og heilbrigðiskerfi
eru undirstaða fjölbreytts atvinnulífs og
öflugs efnahagslífs og um leið grunnur að
réttlátu og góðu samfélagi.
Blikur á lofti
Sem ráðherra jafnréttismála hef ég vart
undan við að taka við viðurkenningum fyrir
góðan árangur Íslands á sviði kynjajafn-
réttis. Ég gæti þess í hvívetna að árétta að
þann árangur beri ekki að þakka einstak-
lingum og allra síst einstaka stjórnmála-
mönnum, heldur hreyfingu. Því það er
samtakamátturinn og samvinnan sem hafa
skilað mörgum af bestu breytingum Ís-
landssögunnar og saga kven-
réttinda er þar ótrúlega gott
dæmi.
Sé litið yfir söguna sést að
mannréttindabarátta er ekki
línulegt ferli þar sem sigrar
reka hver annan og vara til
frambúðar. Í nokkrum löndum
Evrópu eru réttindi kvenna til
yfirráða yfir eigin líkömum
orðin að þrætuepli á ný og
sjónarmiðum sem manni finnst
að ættu að tilheyra löngu liðn-
um tímum haldið stíft á lofti.
Skorin er upp herör gegn
kynjafræðikennslu og amast við frjálsum
félagasamtökum sem berjast fyrir kynja-
jafnrétti. Víða í Bandaríkjunum er þrengt
að réttindum kvenna til þungunarrofs. Það
er því fagnaðarefni að á sama tíma skuli
Alþingi Íslendinga stíga ákveðið til jarðar
með samþykkt nýrra en löngu tímabærra
laga um sjálfsákvörðunarrétt kvenna þegar
kemur að þungunarrofi nú á vordögum.
Ísland á margt ólært
Ísland hefur margt fram að færa í
heimsumræðunni um réttindi kvenna en
við höfum líka margt að læra. #églíka eða
#metoo-bylgjan varpaði hulunni af hinni
endalausu – og óþægilega hversdagslegu –
áreitni sem konur í öllum lögum samfélags-
ins hafa búið við. Mismununin getur marg-
faldast í tilfellum kvenna af erlendum upp-
runa, eins og sögur sem þær deildu í
bylgjunni bera vitni um. Hér á Íslandi eig-
um við margt ólært og þetta verður eitt af
lykilviðfangsefnum á alþjóðlegri ráðstefnu
um #metoo sem stjórnvöld standa fyrir í
haust í tengslum við formennsku Íslands í
norrænu ráðherranefndinni. Forvarnir og
fræðslu þarf að taka fastari tökum og er
nú unnið að stefnumótun þar að lútandi á
vettvangi forsætisráðuneytisins í samstarfi
við önnur ráðuneyti, opinberar stofnanir og
fleiri aðila sem þekkja vel til þessara mála.
Samhliða er unnið að betrumbótum á
meðferð kynferðisbrotamála innan rétt-
arvörslukerfisins, þar á meðal með full-
fjármagnaðri aðgerðaáætlun á vegum
dómsmálaráðuneytisins og með tillögum
um úrbætur á réttarstöðu brotaþola. Ný
áætlun um aðgerðir gegn ofbeldi sem Al-
þingi samþykkti á dögunum blæs einnig
byr í seglin. Hér þarf að láta verkin tala og
hér þurfum við öll sem eitt að leggja okkar
lóð á vogarskálarnar til að tryggja að kyn-
ferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni
eigi engan samastað í okkar samfélagi.
Höldum ótrauð áfram
Á kvenréttindadeginum getum við litið
stolt um öxl en þetta er líka kjörið tæki-
færi til að huga að þeim mikilvægu verk-
efnum sem framundan eru. Við höldum
ótrauð áfram á sömu braut og byggjum
upp samfélagslega innviði jöfnuðar, kven-
frelsis og mannréttinda. Til hamingju með
daginn!
Kvenréttindabaráttan, samstaðan
og verkefnin framundan
Eftir Katrínu Jakobsdóttur » Á kvenréttindadeginum
getum við litið stolt um
öxl en þetta er líka kjörið
tækifæri til að huga að þeim
mikilvægu verkefnum sem
framundan eru.
Höfundur er forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir
Nokkrir lögmenn fjalla um lagalega óvissu í
aðsendri grein í Morgunblaðinu þann 14. júní.
Að gefnu tilefni skal áréttað að þeir Stefán
Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson
(sem lögmennirnir vitna til) segja berum orð-
um að valdheimildir erlendra stofnana nái ekki
til ákvarðana um hvort sæstrengur verði lagð-
ur. Þessar valdheimildir gilda einungis þegar
slík tenging er til staðar. Ekki mun reyna á
ákvæði um þessar valdheimildir nema Alþingi
ákveði að tengja Ísland við raforkumarkað
ESB með sæstreng og því getur enginn byggt
rétt sinn á slíkum ákvæðum.
Enginn lögfræðilegur vafi er á því að sú leið
sem þeir Stefán Már Stefánsson og Friðrik
Árni Friðriksson lögðu til og lögð er til grund-
vallar í þingsályktunartillögu utanríkis-
ráðherra er í samræmi við stjórnarskrá. Í
þingsályktunartillögunni felst ekki undanþága
frá EES samningnum. Reglurnar eru inn-
leiddar og ekkert ófullkomið við það. Allt tal
um bótakröfur þeirra sem ekki fengju að
leggja hingað sæstreng byggðar á orkupakk-
anum er því hugarburður.
Að okkar mati er engin ástæða til að fresta
ákvörðun um þriðja orkupakkann á Alþingi
þar sem engin óvissa eða áhætta er til staðar
eins og málið er lagt upp.
Um lagalega
óvissu sem
fylgir orku-
pakkanum
Eftir Borgar Þór Einarsson, Diljá Mist
Einarsdóttur, Einar S. Hálfdánarson,
Einar Pál Tamimi, Guðrúnu Björgu
Birgisdóttur, Gunnar Inga Jóhannsson,
Heimi Örn Herbertsson, Kristínu Edwald
Höfundar eru hæstaréttarlögmenn.