Morgunblaðið - 19.06.2019, Page 15

Morgunblaðið - 19.06.2019, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019 Á innan við sjö mánuðum höfum við Íslendingar fagnað þremur merkum áföngum í baráttunni fyrir fullu frelsi. Í des- ember síðastliðnum voru 100 ár frá því að Ísland varð fullvalda ríki, í febrúar voru 115 ár liðin frá því að við fengum heimastjórn og síðastliðinn mánudag var haldið upp á 75 ára afmæli lýðveldisins. Þessir áfangar skipa mismunandi sess í hugum okkar. Þjóðhátíðar- dagurinn 17. júní er haldinn hátíð- legur. Við erum hins vegar að mestu hætt að halda upp á 1. des- ember þótt efnt hafi verið til hátíð- arhalda á liðnu ári til að minnast aldarafmælis fullveldisins. Sama er að segja um 1. febrúar. Við leiðum yfirleitt aldrei hugann að því hversu mikilvægt skref í átt að full- veldi það var að höfuðstöðvar fram- kvæmdavaldsins fluttust heim til Íslands frá Kaupmannahöfn. Með því styrktist staða Alþingis og þing- ræðið var fest í sessi, eins og Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráð- herra, benti á í hátíðarræðu þegar þess var minnst 1. febrúar 2004 að öld var frá því Hannes Hafstein varð ráðherra Íslands með aðsetur í Reykjavík. Og Davíð bætti við: „Menn geta horft til helstu kafl- anna í þjóðfrelsisbaráttunni, end- urreisnar alþingis, þjóðfundar, stöðulaganna, stjórnarskrár, heima- stjórnar, fullveldis og loks lýðveldis og spurt sig, hver þessara atburða stóð upp úr. Að forminu til má segja að fullveldið 1918 hafi verið stærsti atburðurinn. En að öllu öðru leyti var heimastjórnin 1. febr- úar 1904 mikilvægasti atburður sjálfstæðisbaráttunnar og reyndar var farsæl framkvæmd á heima- stjórninni forsenda fullveldisins. Þá tókst tvennt í senn. Umheiminum, og þá einkum Dönum, var sýnt fram á að Íslendingar væru full- færir um að fara með eigin mál, þrátt fyrir fámenni, fátækt og harðbýlt lítt numið land. Og Íslendingum sjálfum óx ásmegin. Ísland, þessi hjari í norðurhöfum, var orð- ið land tækifæranna. Mjög snögglega dró úr vesturförum Íslend- inga um þessar mund- ir, meðan straumurinn til Ameríku annars staðar frá jókst. Það undirstrikar vel hið breytta hug- arfar. Væntingar og bjartsýni höfðu bægt burtu vonleysi og uppgjöf. Heimastjórnin 1. febrúar 1904 var því happafengur fyrir íslenska þjóð á þeim degi og ætíð síðar.“ Tækifærin nýtt Pólitískt fullveldi og fjárhagslegt sjálfstæði eru mismunandi hliðar á sama teningi. „Fullveldi er ágætt, en því aðeins er það algert, að fjár- hagslegt sjálfstæði fylgi,“ sagði með réttu á forsíðu Morgunblaðsins í desember 1918 þegar fullveldinu var fagnað. Baráttan fyrir bættum lífskjörum hefur ekki aðeins snúist um að nýta auðlindir lands og sjávar heldur ekki síður að tryggja greiðan að- gang að erlendum mörkuðum fyrir íslenskar vörur. Baráttumenn fyrir sjálfstæði þjóðarinnar skildu öðrum betur hversu mikilvægt versl- unarfrelsi er fyrir fámenna þjóð. Líkt og í sjálfstæðisbaráttunni, heimastjórn, fullveldi og lýðveldi, höfum við tekið hvert skrefið á fæt- ur öðru frá lokum síðari heimstyrj- aldar til að treysta böndin við vina- þjóðir og tryggja friðsamleg samskipti við allar þjóðir. Í sam- skiptum við aðrar þjóðir höfum við nýtt fullveldisrétt okkar til að byggja undir efnahagslega velmeg- un og pólitískt sjálfstæði. Engir þeirra sem lögðu grunninn að fullu sjálfstæði lands og þjóðar árin 1904, 1918 eða 1944 gátu látið sig dreyma um þann ótrúlegan ár- angur sem náðst hefur. Það gerðist ekki af sjálfu sér að eitt fátækasta ríki Evrópu varð að einu mesta vel- megunarríki heims og raunar sög- unnar. Til þess þurfti framsýni og fyrirhyggju. Við höfum nýtt auðlindir okkar af meiri skynsemi en flestar aðrar þjóðir. Gert sjávarútveg að arð- bærri atvinnugrein, ólíkt flestum öðrum þjóðum, nýtt vatnsorkuna til raforkuframleiðslu, beislað heita vatnið og flutt tækiþekkingu til annarra landa. Hreyknir af landi og þjóð Ég er sannfærður um að Hannes Hafstein, Jón Þorláksson, Ólafur Thors og Bjarni Benediktsson væru hreyknir af landi og þjóð. Stoltir af því hvernig til hefur tekist, þótt oft hafi gefið á bátinn og ýmis verkefni séu óunninn. Ólafur og Bjarni væru örugglega stoltir af því hvernig við höfum nýtt fullveldisrétt okkar í samskiptum við aðrar þjóðir enda lögðu þeir flesta hornsteina utan- ríkisstefnu okkar. EES-samning- urinn byggir á þessum horn- steinum. Aðild Íslands að Sameinuðu þjóð- unum 1946, var eðlilegt framhald af lýðveldisstofnuninni og vilja lands- manna að eiga friðsamleg og opin samskipti við aðrar þjóðir. Með sama hætti var nauðsynlegt að tryggja pólitískt sjálfstæði þjóð- arinnar með þátttöku í Atlantshafs- bandalaginu. Í apríl síðastliðnum voru 70 ár frá því að ákveðið var að nýta fullveldið til að taka höndum saman við aðrar lýðræðisþjóðir. Sú ákvörðun hefur reynt okkur Íslend- ingum og öðrum þjóðum farsæl. Þannig hefur hvert skrefið verið tekið. GATT, EFTA og loks EES fyrir 25 árum. Við höfum gert fjölda fríverslunarsamninga, bæði beint og í gegnum EFTA og eigum aðild að alþjóðlegum stofnunum þar sem við höfum undirgengist ákveðnar skyldur. Í hverju einasta skrefi hafa forystumenn þjóð- arinnar haft í huga að efnahagsleg velsæld og fjárhagslegt sjálfstæði Íslendinga, verður ekki tryggt nema með greiðum aðgangi að er- lendum mörkuðum og opnum og frjálsum samskiptum við aðrar þjóðir. Fullveldi, EES og orka Í samskiptum við aðrar þjóðir fáum við ekki allt fyrir ekkert. Þetta á við um EES-samninginn eins og aðra alþjóðlega samninga. Um það verður ekki deilt (þótt ein- hverjir reyni) að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið hefur reynt okkur Íslendingum hag- stæður – með öllum sínum kostum og göllum. Auðvitað höfum við þurft að gefa ýmislegt eftir með sama hætti og samstarfsþjóðir okk- ar. Það er eðli alþjóðlegra sam- skipta. Mestu skiptir fyrir okkur Íslendinga að byggt sé á þeirri for- sendu að íslenska ríkið hafi jafna stöðu á við önnur ríki í alþjóðlegu samstarfi. Á stundum hefur reynt á „þanþol“ stjórnarskrárinnar en þá skiptir miklu að takmarkað framsal valds hlýtur „eðli málsins sam- kvæmt að vera afturkræft frá sjón- arhóli íslenskrar stjórnskipunar, enda væri önnur niðurstaða ósam- rýmanleg fullveldi ríkisins,“ eins og sagði í áfangaskýrslu stjórnarskrár- nefndar 2013-2016, undir forystu Sigurðar Líndals, lagaprófessors emeritus. Þær hörðu deilur sem sprottið hafa upp vegna þriðja orkupakkans, svokallaða, eru á margan hátt skilj- anlegar. Sem betur fer höfum við Íslendingar borið gæfu til þess að standa vörð um óskorað forræði á auðlindum lands og sjávar. Hafi einstaka þingmenn eða almenn- ingur áhyggjur af því að með einum eða öðrum hætti sé verið að stefna forræði yfir orkuauðlindunum í hættu, er eðlilegt að brugðist sé hart við. Samþykkt þriðja orku- pakkans felur hins vegar ekkert slíkt í sér. Við erum ekki afsala okkur yf- irráðum yfir orkuauðlindum. Við erum ekki að undirgangast skyldur um það hvernig, hverjir og hvenær skuli nýta orkuauðlindina. Við mun- um hér eftir sem hingað til stjórna og taka ákvörðun sjálf með hvaða hætti við nýtum auðlindina – óháð öllu og öllum, á okkar eigin for- sendum og út frá okkar hags- munum. Við erum ekki að undir- gangast skyldur eða gefa loforð um lagningu sæstrengs. Hvort og þá hvenær sæstrengur verður lagður er ákvörðun sem við tökum á okkar forsendum. Við erum ekki að skuld- binda okkur til að breyta eignar- haldi á helstu og mikilvægustu orkufyrirtækjum landsins. Við er- um ekki að færa umráðarétt eða eignarrétt á orkuauðlindunum eða orkufyrirtækjunum með þriðja orkupakkanum. Það er innbyggt og óaðskiljanlegur hluti af EES- samningnum að skipulag eignar- réttarins og þar með nýting hans er og verður á forræði hvers aðild- arríkis. Deilan um þriðja orkupakkann hefur hins vegar leitt til þess að þingmenn og almenningur verður hér eftir meira vakandi gagnvart hagsmunum okkar innan EES. Það veit á gott og er okkur lífs- nauðsynlegt. Ekkert mannanna verk er hafið yfir gagnrýni og end- urskoðun. Bjarni Benediktsson, for- maður Sjálfstæðisflokksins, hefur ítrekað lýst því yfir að tímabært sé að Alþingi taki til skoðunar stöðu EFTA-ríkjanna á grundvelli EES- samningsins. Það reyndist mikið gæfuspor að taka þátt í samstarfi Evrópuþjóða með innleiðingu EES-samningsins. En vegurinn milli samstarfs og varðstöðu um fullveldið verður allt- af vandrataður. Eftir Óla Björn Kárason » Það gerðist ekki af sjálfu sér að eitt fá- tækasta ríki Evrópu varð að einu mesta vel- megunarríki heims og raunar sögunnar. Til þess þurfti framsýni. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Fullveldi í samskiptum við aðrar þjóðir Kvennahreyfingin hefur í gegnum tíðina verið óþreyt- andi við að halda á lofti þeim sannindum að hið persónulega er pólitískt og hið pólitíska persónulegt. Ákvarðanir sem stjórnmálamenn taka geta haft bein áhrif á daglegt líf fólks og fært samfélagið í til- teknar áttir. Á kvenréttinda- deginum fögnum við réttind- um kvenna til að kjósa og til stjórnmálaþátttöku og þar með formlegri aðkomu kvenna að mótun samfélagsins. Stjórnmálaþátttaka kvenna hefur ger- breytt íslensku samfélagi. Almennir leik- skólar og einsetinn grunnskóli væru varla veruleiki ef ekki væri fyrir þrotlausa bar- áttu kvenna innan sem utan stjórnmálanna. Samtakamáttur kvenna skipti sköpum á sínum tíma við uppbyggingu Landspítala og sama má segja um ýmis önnur fram- faramál í heilbrigðisþjónustu. Öflugir skól- ar og öflugt velferðar- og heilbrigðiskerfi eru undirstaða fjölbreytts atvinnulífs og öflugs efnahagslífs og um leið grunnur að réttlátu og góðu samfélagi. Blikur á lofti Sem ráðherra jafnréttismála hef ég vart undan við að taka við viðurkenningum fyrir góðan árangur Íslands á sviði kynjajafn- réttis. Ég gæti þess í hvívetna að árétta að þann árangur beri ekki að þakka einstak- lingum og allra síst einstaka stjórnmála- mönnum, heldur hreyfingu. Því það er samtakamátturinn og samvinnan sem hafa skilað mörgum af bestu breytingum Ís- landssögunnar og saga kven- réttinda er þar ótrúlega gott dæmi. Sé litið yfir söguna sést að mannréttindabarátta er ekki línulegt ferli þar sem sigrar reka hver annan og vara til frambúðar. Í nokkrum löndum Evrópu eru réttindi kvenna til yfirráða yfir eigin líkömum orðin að þrætuepli á ný og sjónarmiðum sem manni finnst að ættu að tilheyra löngu liðn- um tímum haldið stíft á lofti. Skorin er upp herör gegn kynjafræðikennslu og amast við frjálsum félagasamtökum sem berjast fyrir kynja- jafnrétti. Víða í Bandaríkjunum er þrengt að réttindum kvenna til þungunarrofs. Það er því fagnaðarefni að á sama tíma skuli Alþingi Íslendinga stíga ákveðið til jarðar með samþykkt nýrra en löngu tímabærra laga um sjálfsákvörðunarrétt kvenna þegar kemur að þungunarrofi nú á vordögum. Ísland á margt ólært Ísland hefur margt fram að færa í heimsumræðunni um réttindi kvenna en við höfum líka margt að læra. #églíka eða #metoo-bylgjan varpaði hulunni af hinni endalausu – og óþægilega hversdagslegu – áreitni sem konur í öllum lögum samfélags- ins hafa búið við. Mismununin getur marg- faldast í tilfellum kvenna af erlendum upp- runa, eins og sögur sem þær deildu í bylgjunni bera vitni um. Hér á Íslandi eig- um við margt ólært og þetta verður eitt af lykilviðfangsefnum á alþjóðlegri ráðstefnu um #metoo sem stjórnvöld standa fyrir í haust í tengslum við formennsku Íslands í norrænu ráðherranefndinni. Forvarnir og fræðslu þarf að taka fastari tökum og er nú unnið að stefnumótun þar að lútandi á vettvangi forsætisráðuneytisins í samstarfi við önnur ráðuneyti, opinberar stofnanir og fleiri aðila sem þekkja vel til þessara mála. Samhliða er unnið að betrumbótum á meðferð kynferðisbrotamála innan rétt- arvörslukerfisins, þar á meðal með full- fjármagnaðri aðgerðaáætlun á vegum dómsmálaráðuneytisins og með tillögum um úrbætur á réttarstöðu brotaþola. Ný áætlun um aðgerðir gegn ofbeldi sem Al- þingi samþykkti á dögunum blæs einnig byr í seglin. Hér þarf að láta verkin tala og hér þurfum við öll sem eitt að leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að tryggja að kyn- ferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni eigi engan samastað í okkar samfélagi. Höldum ótrauð áfram Á kvenréttindadeginum getum við litið stolt um öxl en þetta er líka kjörið tæki- færi til að huga að þeim mikilvægu verk- efnum sem framundan eru. Við höldum ótrauð áfram á sömu braut og byggjum upp samfélagslega innviði jöfnuðar, kven- frelsis og mannréttinda. Til hamingju með daginn! Kvenréttindabaráttan, samstaðan og verkefnin framundan Eftir Katrínu Jakobsdóttur » Á kvenréttindadeginum getum við litið stolt um öxl en þetta er líka kjörið tækifæri til að huga að þeim mikilvægu verkefnum sem framundan eru. Höfundur er forsætisráðherra. Katrín Jakobsdóttir Nokkrir lögmenn fjalla um lagalega óvissu í aðsendri grein í Morgunblaðinu þann 14. júní. Að gefnu tilefni skal áréttað að þeir Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson (sem lögmennirnir vitna til) segja berum orð- um að valdheimildir erlendra stofnana nái ekki til ákvarðana um hvort sæstrengur verði lagð- ur. Þessar valdheimildir gilda einungis þegar slík tenging er til staðar. Ekki mun reyna á ákvæði um þessar valdheimildir nema Alþingi ákveði að tengja Ísland við raforkumarkað ESB með sæstreng og því getur enginn byggt rétt sinn á slíkum ákvæðum. Enginn lögfræðilegur vafi er á því að sú leið sem þeir Stefán Már Stefánsson og Friðrik Árni Friðriksson lögðu til og lögð er til grund- vallar í þingsályktunartillögu utanríkis- ráðherra er í samræmi við stjórnarskrá. Í þingsályktunartillögunni felst ekki undanþága frá EES samningnum. Reglurnar eru inn- leiddar og ekkert ófullkomið við það. Allt tal um bótakröfur þeirra sem ekki fengju að leggja hingað sæstreng byggðar á orkupakk- anum er því hugarburður. Að okkar mati er engin ástæða til að fresta ákvörðun um þriðja orkupakkann á Alþingi þar sem engin óvissa eða áhætta er til staðar eins og málið er lagt upp. Um lagalega óvissu sem fylgir orku- pakkanum Eftir Borgar Þór Einarsson, Diljá Mist Einarsdóttur, Einar S. Hálfdánarson, Einar Pál Tamimi, Guðrúnu Björgu Birgisdóttur, Gunnar Inga Jóhannsson, Heimi Örn Herbertsson, Kristínu Edwald Höfundar eru hæstaréttarlögmenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.