Morgunblaðið - 19.06.2019, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 19.06.2019, Qupperneq 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019 ✝ Ásdís Einars-dóttir Frímann fæddist í Neskaup- stað 15. september 1925. Hún andaðist á Landspítalanum í Fossvogi 9. júní 2019. Foreldrar henn- ar voru Brynhildur Jónsdóttir verka- kona, f. 10. febrúar 1888, d. 21. janúar 1978, og Einar Sveinn Frímann kennari Eiðaþinghá, Neskaup- stað og víðar, f. 7. desember 1883, d. 4. apríl 1948. Alsystkini Ásdísar voru þau Elín, Sigríður, Jóhann og Hildur sem öll eru látin. Hálfsystkini sammæðra voru þau Matthildur, Gunnar, Skarphéðinn og Njáll, sem öll eru látin. Hinn 12. ágúst 1955 giftist Ásdís Ingólfi Snorra Ágústssyni, verkfræðingi, f. 2. júlí 1917, d. 7. ágúst 1997. Börn þeirra eru Sig- ríður Ágústa, f. 28. september 1953 í Reykjavík, gift Kristjáni Óskarssyni. Þeirra börn eru Guðmunda Ósk, f. 2. september 1976, maki Frosti Reyr Rún- arsson, þau eiga þrjú börn. Ás- dís, f. 28. september 1978, maki Agnar Tómas Möller, þau eiga maður Sveinn Óskar Hafliðason, þau eiga eitt barn. Sonur Önnu er Jóhannes Örn, f. 22. febrúar 1976. Einnig ól Ásdís upp Krist- ínu Sighvatsdóttur, f. 25. sept- ember 1942, d. 26. október 2012, stjúpdóttur Ingólfs frá 12 ára aldri. Ásdís varð gagnfræðingur frá Gagnfræðaskóla Neskaup- staðar 1942. Hún lauk námi í hjúkrun frá Hjúkrunarskóla Ís- lands 1948 og stundaði fram- haldsnám í geðhjúkrun við Kleppsspítala frá október 1948 til mars 1949. Ásdís vann sem hjúkrunarkona á Kleppsspítala og Sjúkrahúsi Vestmannaeyja frá mars 1949 til maí 1951. Á ár- unum 1951-1953 starfaði Ásdís sem hjúkrunarkona á ýmsum sjúkrahúsum á Norðurlöndum, m.a. á sjúkrahúsinu í Fredriks- berg í Kaupmannahöfn, á Ulle- val sjúkrahúsinu í Ósló, á Haukeland og Neevengarden sjúkrahúsunum í Bergen og á Karolínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. Hún starfaði á handlækningadeild Landspítala frá október 1953 til október 1954. Á árunum 1969-1978 starfaði hún á ýmsum lyflækn- ingadeildum Borgarspítala og á Grensásdeild frá 1978 til 1986. Síðustu starfsárin starfaði Ásdís á Hvítabandinu, öldrunarlækn- ingadeild. Útför Ásdísar fer fram frá Laugarneskirkju í Reykjavík í dag, 19. júní 2019, og hefst at- höfnin kl. 13. þrjú börn, og Ing- ólfur Snorri, f. 9. desember 1980, maki Margrét Hauksdóttir, þau eiga tvö börn. Þór- dís Ágústa, f. 24. október 1955 í Reykjavík, gift Gísla R. Ragnars- syni. Börn þeirra eru Vigdís Svava, f. 15. mars 1983, sam- býlismaður Jens Otto Broby Madsen, þau eiga eitt barn. Snorri, f. 2. september 1986, sambýliskona Nanna Lára Sig- urjónsdóttir, og Ásdís Hrund, f. 28. júlí 1989, sambýlismaður Einar Már Birgisson. Sonur Gísla er Halldór Ragnar, f. 16. nóvember 1976. Einar Sveinn, f. 28. febrúar 1957 í Reykjavík, kvæntur Ingibjörgu Hauks- dóttur. Þeirra synir eru Haukur Ingi, f. 9. september 1980, maki Berglind Steinþórsdóttir, eiga þau þrjú börn, og Kári, f. 29. júlí 1986, sambýliskona Hjördís Sveinbjörnsdóttir, eiga þau eitt barn. Björn, f. 8. september 1958 í Reykjavík, sambýliskona Anna María Jóhannesdóttir. Þeirra dóttir er Tanja Dögg, f. 30. september 1988, sambýlis- Í dag kveðjum við elskulega móður mína og tengdamömmu, Ásdísi Einarsdóttir Frímann. Margs er að minnast frá uppvaxt- arárunum innan úr Rafstöð og síð- ar af Rauðalæknum. Yfir Rafstöð- inni var alltaf ákveðinn sjarmi, þar var yndislegt að alast upp, sem á mínum yngri árum var talin vera sveit. Elliðaárnar runnu í túnfæt- inum og fannst mömmu það eina ógnunin í uppeldi okkar barnanna. Mamma rak heimilið af myndar- skap og var oft fjörugt heimilislífið með okkur fjögur systkinin. Rauðalækurinn og síðar Dal- braut tók við af Rafstöðinni. Þar undi mamma sér vel, hafði mikið fyrir stafni eftir að pabbi féll frá og var mjög virk í félagsstarfi eldri borgara. Á mínum yngri ár- um er ljúft að rifja upp veiðitúrana sem ég fór með foreldrum mínum norður í Miðfjörð. Oft var það þannig að við mamma vorum ein við bakkann á meðan pabbi fór á veiðistaði þar sem ekki var bíl- fært. Oft settum við í laxa sem við náðum að landa og er mér sér- staklega minnisstætt þegar flækt- ist á veiðihjólinu og laxinn dreginn að landi með handafli. Hjá mömmu var ekki komið að tómum kofunum þegar um var að ræða ættartengsl og sagnir frá því í gamla daga. Það var yndislegt að geta boðið henni til okkar Önnu í sumarhús- ið, þar sem hún undi hag sínum vel, lagði kapal og náði góðri slök- un í fögru umhverfi. Einnig var ómetanlegt þegar hún aðstoðaði okkur við að passa um tíma Tönju Dögg þegar hún var barn. Þar fékk hún óskipta athygli og lærði svo margt hjá afa og ömmu enda var sambandið sterkt milli þeirra. Móðir mín var hafsjór af fróðleik og gátum við Anna oft setið hjá henni tímunum saman og hlustað á sögur af ættinni og öðrum at- burðum sem áttu sér stað í gamla daga. Gott er að minnast mömmu fyrir kærleik og ást sem hún sýndi allri fjölskyldunni. Það sýndi sig í því hve margir voru hjá henni síð- ustu dagana sem hún lifði. Ég veit að núna er hún komin í faðm Ing- ólfs föður míns. Elsku mamma, takk fyrir allt og allt og megir þú njóta þín á nýj- um slóðum. Björn og Anna María. Elskuleg tengdamóðir mín, Ás- dís Einarsdóttir Frímann, er látin á 94. aldursári. Löngu og gæfu- ríku ævistarfi er lokið. Þótt ljóst hafi verið um nokkra hríð að það kæmi að kveðjustundinni fyrr en seinna er hún alltaf jafn sár. Á slíkum stundum koma upp í hug- ann ótal minningar frá liðnum tíma. Ég kom inn í líf Ásdísar og hennar fjölskyldu þegar ég kynnt- ist konu minni fyrir 48 árum og tók að venja komu mína á heimili þeirra sem var þá í stöðvarstjóra- húsinu í rafstöðinni við Elliðaár. Þau hjónin Ásdís og Ingólfur tóku mér einstaklega vel allt frá fyrstu kynnum og fannst mér fljótt eins og ég væri einn af fjölskyldunni. Sigríður Ágústa (Síá), konan mín, missti móður sína á fyrsta aldursári. Ásdís gekk henni í móðurstað þegar hún flutti inn á heimilið og giftist Ingólfi. Síá er Ásdísi ævarandi þakklát fyrir að hafa gengið sér í móðurstað og bú- ið sér, ásamt Ingólfi föður sínum, gott og kærleiksríkt æskuheimili. Gott var að eiga þau að, Ásdísi og Ingólf, þegar við ungu hjónin hófum búskap og byggðum upp okkar fjölskyldu. Eins þegar unga fjölskyldan dvaldi í Texas um tveggja ára skeið og þau hjónin komu í langþráða heimsókn til okkar en þá voru löng ferðalög ekki eins tíð og nú. Saman fórum við, fjögur fullorðin og þrjú börn, í einum bíl í eftirminnilega ferð um suðurhluta Texas og norðurhluta Mexíkó. Þegar við síðan í kjölfarið fluttum til Kaupmannahafnar kom Ásdís með okkur til að að- stoða ungu fjölskylduna við að koma sér fyrir og var það vel þeg- ið. Ásdís ferðaðist með okkur seinna erlendis og eigum við fjöl- skyldan ljúfar og góðar minningar frá þeim tíma með henni. Við eigum einnig margar góðar minningar frá veiðiferðum okkar í Skugga, við ármót Grímsár og Hvítár, en Ásdís og Ingólfur komu að jafnaði með okkur einu sinni á ári þangað. Eftir að Ingólfur lést kom Ásdís með okkur árlega á meðan hún treysti sér til. Margar aðrar góðar og dýrmætar minn- ingar koma upp í hugann nú þegar að leiðarlokum er komið sem ekki er hægt frekar að tíunda hér. Ásdís var fram á síðasta dag með skýra hugsun og fylgdist vel með þótt líkaminn væri farinn að gefa sig. Gaman var að spjalla við hana um menn og málefni. Hún var ótrúlega minnug og athugul. Ásdís fylgdist vel með sínu fólki og miðlaði fréttum á milli fjölskyldna. Barnabörn og barnabarnabörn löðuðust að henni og þótti gott að koma í heimsókn því hún sýndi þeim áhuga og kærleika. Vænt- umþykja þeirra var greinileg og einlæg eins og sást berlega þegar að kveðjustundinni kom. Að leiðarlokum vil ég þakka tengdamóður minni innilega fyrir samfylgdina, stuðninginn og kær- leikann sem hún hefur sýnt mér og minni konu sem og okkar fjöl- skyldu. Guð blessi minningu Ásdísar. Kristján Óskarsson. Það er með sorg í hjarta sem ég kveð ástkæra tengdamóður mína Ásdísi Einarsdóttur Frímann, en hún lést að morgni hvítasunnu- dags á nítugasta og fjórða aldurs- ári. Það er mér því bæði ljúft og skylt að taka saman nokkur minn- ingarorð, þó fátækleg séu, í virð- ingar- og þakklætisskyni nú þegar Ásdís hefur kvatt. Ásdís giftist eiginmanni sínum, Ingólfi Snorra Ágústssyni, verk- fræðingi, árið 1955. Ingólfur lést árið 1997 og var það henni mikill missir. En Ásdís sýndi minningu Ingólfs ætíð mikla og einlæga ræktarsemi. Hjúkrun var það fag sem Ásdís lagði fyrir sig en hún lauk námi í hjúkrun eftir framhaldsnám í geð- hjúkrun árið 1949. Ásdís var sigld kona eins og gjarnan var sagt um þá sem búið höfðu erlendis, og þá ekki síst í Kaupmannahöfn, við nám eða störf en strax árið 1951 hleypti hún, ásamt vinkonu sinni, heimdraganum og sigldi til Dan- merkur. Næstu árin starfaði Ás- dís við hjúkrun í Danmörku, Nor- egi og Svíþjóð. Þetta var á miklum umbrota- tímum í Evrópu skömmu eftir seinna stríð og skipaði fólk sér gjarnan í fylkingar eftir stjórn- málaskoðunum og hugsjónum. Var þessi tími henni afar minnis- stæður og ánægjulegur og naut hún þess að rifja upp skemmtileg og áhugaverð atvik sem tengdust henni og því fólki sem hún kynnt- ist ytra og ekki síst þeirri þjóð- félagslegu gerjun sem átti sér stað í Evrópu á þessum tíma. Þess má geta í þessu sambandi að þær vinkonur lögðu land undir fót og ferðuðust um Evrópu. Fóru í svokallaða interrailferð frá Kaupmannahöfn suður eftir álf- unni til Rómar. Á þessum árum var ekki algengt að ungt fólk héð- an færi slíkar ferðir en síðar átti þetta eftir að verða vinsæll ferða- máti um Evrópu meðal ungra Ís- lendinga. Hún tengdamamma var félags- lynd og skemmtileg kona sem naut þess að blanda geði við aðra og þá ekki síst fjölskylduna. Hún unni lestri, hvort sem það voru skáldverk, fréttaefni eða ýmis fróðleikur. Alltaf var bók á nátt- borðinu. Það var því ætíð tilhlökk- unarefni að hitta Ásdísi. Umræðu- efnin skorti ekki; bókmenntir, stjórnmál líðandi stundar eða menn og málefni og liðinn tími. Kímnin aldrei langt undan en auð- velt var að gantast við Ásdísi því hún bjó yfir góðri kímnigáfu sem gerði henni auðvelt að koma auga á hinar kómísku hliðar tilverunn- ar. Ég minnist Ásdísar sem góðrar tengdamóður, en þó fyrst og fremst sem góðrar ömmu og á seinni árum langömmu. Alla tíð lét hún sér velferð afkomendanna sig miklu varða. Fylgdist af áhuga með uppvexti og þroska barna- barnanna og svo langömmu- barnanna eftir að þau fóru að koma. Og þessa umhyggjusemi fékk hún margfalt endurgoldna því barnabörnin löðuðust að henni. Alltaf var tilhlökkunarefni að fara til ömmu og það breyttist ekki þó ömmubörnin væru komin á unglings- eða fullorðinsár. Heimsókn til ömmu var aldrei kvöð, heldur innihaldsrík ánægju- stund. Nú þegar ég kveð tengdamóður mína hinsta sinni vil ég þakka fyr- ir ánægjulegar samverustundir og alla þá hlýju og umhyggjusemi sem hún gaf af sér. Blessuð sé minning Ásdísar Einarsdóttur Frímann. Hvíli hún í friði. Gísli. Ásdís Einarsdóttir Frímann  Fleiri minningargreinar um Ásdísi Einarsdóttur Frí- mann bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Sálm. 16.1-2 biblian.is Varðveit mig, Guð, því að hjá þér leita ég hælis. Ég segi við Drottin: „Þú ert Drottinn minn, ég á engin gæði nema þig.” Pabbi minn, tengdapabbi og afi, ATLI MAGNÚSSON þýðandi og sjentilmaður, lést á heimili sínu föstudaginn 14. júní. Útförin fer fram frá Neskirkju mánudaginn 24. júní klukkan 13. Grímur Atlason Helga Vala Helgadóttir og barnabörn Okkar ástkæra SJÖFN GUÐMUNDSDÓTTIR lést á Landspítalanum 14. júní. Útförin fer fram í Seltjarnarneskirkju þriðjudaginn 25. júní klukkan 15. Innilegar þakkir til starfsfólks Grundar V-3 fyrir einstaka umönnun og hlýju. Theódóra Þórarinsdóttir Árni Jóhannsson Sigurður Þórarinsson Elín María Hilmarsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir færum við öllum fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HULDU ÓSKAR SKARPHÉÐINSDÓTTUR, Baughóli 8, Húsavík. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki krabbameinsdeildar Landspítalans, deild 11E, fyrir einstaka umönnun. Ómar Sigurvin Vagnsson Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir Pétur Guðmundsson Skarphéðinn Ómarsson Linda Arilíusdóttir Sólveig Ómarsdóttir Jón Helgi Vigfússon Ómar Gunnar Ómarsson Hulda Rósa Þórarinsdóttir Birkir Vagn Ómarsson barnabörn og barnabarnabörn Elskaður eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, STEFÁN YNGVI FINNBOGASON tannlæknir, Boðagranda 6, Reykjavík, lést 14. júní á hjúkrunarheimilinu Eir. Útför hans fer fram frá Neskirkju þriðjudaginn 25. júní klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, Hólmfríður Árnadóttir Ástkær móðir okkar, amma og langamma, SIGRÚN SIGURÐARDÓTTIR frá Möðruvöllum í Hörgárdal, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík 17. júní. Jarðsett verður frá Grensáskirkju þriðjudaginn 25. júní klukkan 13. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Sigfússon Ólafur Bragi Bragason barnabörn og langömmubörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÚN ÁSTA BJÖRNSDÓTTIR frá Þórukoti, Ytri-Njarðvík, sem lést á Hrafnistu Nesvöllum 3. júní, verður jarðsungin frá Ytri-Njarðvíkurkirkju þriðjudaginn 25. júní og hefst athöfnin klukkan 13. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin. Hreinn Óskarsson Gróa Hreinsdóttir Sigurður Hreinsson Sigrún Júlíusdóttir Karen Öder Magnúsdóttir ömmubörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.