Morgunblaðið - 19.06.2019, Síða 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019
Laugavegi 29 • sími 552 4320 • www.brynja.is • verslun@brynja.is
Opið virka daga frá 9-18 og laugardaga frá 10-16
Öxi Carpenters
19.910 kr.
AXIR FYRIR KRÖFUHARÐA
MIKIÐ ÚRVAL
Öxi Ekelund
9.910 kr.
Öxi Hatc
mini
16.770 kr
1
et
.
Öxi Hultan
17.820 kr.
Öxi Qvarfot
20.960 kr.
Vefverslun brynja.is
Fagmennska í 100 ár
Öxi Splitting
22.530 kr.
8. UMFERÐ
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Þegar átta umferðum er lokið í úr-
valsdeild karla í knattspyrnu er
óhætt að segja að það stefni í
spennandi toppbaráttu. KR-ingar
unnu útisigur á spútnikliði Skaga-
manna og þar sem Breiðablik, sem
var á toppnum fyrir umferðina, tap-
aði fyrir Fylki komust KR-ingar í
toppsætið í fyrsta sinn í sumar, hafa
þar 17 stig og eru stigi á undan
Blikum og Skagamönnum.
Það er áhugavert að skoða stöð-
una nú miðað við hvernig hún var
eftir átta umferðir í fyrra. Eftir
hana komust Valsmenn á toppinn í
fyrsta sinn það sumarið og voru ein-
mitt aðeins stigi á undan næstu
tveimur liðum, sem þá voru Breiða-
blik og Grindavík. Framhaldið er
flestum ljóst þar sem Valsmenn
urðu Íslandsmeistarar og gæti það
gefið góð fyrirheit fyrir KR-inga
miðað við stöðuna sem nú er uppi.
Strax má gera ráð fyrir því að
hvergi megi þó misstíga sig, því á
eftir toppliðunum þremur koma
Fylkir, KA, FH og Stjarnan öll með
12 stig. Þau tvö síðastnefndu gerðu
jafntefli sín á milli í þessari áttundu
umferð, niðurstaða sem hvorugt lið-
ið var ánægt með, sem kom í veg
fyrir að þau stimpluðu sig af krafti
inn í toppbaráttuna.
Í neðri hlutanum sitja ÍBV og
HK í fallsætunum tveimur með
fimm stig, en Íslandsmeistarar Vals
spyrntu sér hressilega frá botninum
með 5:1-sigri á Eyjamönnum. Það
var aðeins annar sigur Vals í sumar.
Öll liðin í deildinni hafa nú unnið
leik eftir að Víkingur R. fagnaði sín-
um fyrsta sigri í sínum fyrsta leik á
nýjum gervigrasvelli, 2:1 gegn HK.
Fjögur mörk í fjórum leikjum
Ólafur Karl Finsen, sóknarmaður
Vals, var besti leikmaður 8. umferð-
ar að mati Morgunblaðsins. Ólafur
Karl skoraði tvö mörk þegar Ís-
landsmeistararnir, sem voru í botn-
sætinu fyrir umferðina, hrukku í
gang og unnu 5:1-sigur á ÍBV.
Hann fékk tvö M fyrir frammistöðu
sína í leiknum og er nú efstur Vals-
manna í einkunnagjöf blaðsins.
Ólafur Karl er 27 ára gamall og
er á sínu öðru tímabili með Vals-
mönnum eftir að hafa komið þangað
frá Stjörnunni, en hér á landi hefur
hann einnig spilað sem lánsmaður á
Selfossi sumarið 2012. Hann var á
mála hjá unglingaliði AZ Alkmaar í
Hollandi á árunum 2008-2010 og var
í láni hjá Sandnes Ulf í Noregi árið
2015. Árið áður en hann fór til Nor-
egs hafði Ólafur Karl verið í lyk-
ilhlutverki þegar Stjarnan varð Ís-
landsmeistari í fyrsta sinn, en hann
missti svo nánast af öllu tímabilinu
2016 eftir að hafa slitið krossband.
Á sínu fyrsta tímabili á Hlíð-
arenda var Ólafur Karl í vara-
hlutverki og byrjaði aðeins þrjá
deildarleiki. Eftir brotthvarf Gary
Martin frá Val hefur Ólafur Karl
risið upp í sókninni, skorað fjögur
mörk í fjórum leikjum og er marka-
hæsti leikmaður Vals í sumar.
Sló í gegn á móti toppliðinu
Valdimar Þór Ingimundarson,
miðjumaður Fylkis, var besti ungi
leikmaðurinn í umferðinni. Hann
skoraði tvö mörk og lagði upp ann-
að í 4:3-sigri Fylkis á Breiðabliki,
sem var á toppnum fyrir leikinn, og
fékk tvö M fyrir frammistöðu sína.
„Valdimar Þór Ingimundarson var
frábær í liði Fylkismanna og nýtti
tækifærið í byrjunarliðinu vel,“
skrifaði Bjarni Helgason í umfjöllun
sinni um leikinn í Morgunblaðinu.
Valdimar Þór er tvítugur og spil-
aði sína fyrstu leiki í meistaraflokki
Fylkis sumarið 2016, þá 17 ára
gamall. Hann var svo í stærra hlut-
verki í liðinu sumarið 2017 þegar
Fylkir vann 1. deildina og kom svo
við sögu í 15 leikjum í efstu deild í
fyrra. Í ár hefur hann leikið alla
deildarleikina, fjóra í byrjunarliði
og fjóra sem varamaður, og skorað
þrjú mörk.
Lennon fyrstur í 60 mörk
Steven Lennon, framherji FH,
skoraði sitt 60. mark í efstu deild í
umferðinni þegar FH og Stjarnan
gerðu 2:2 jafntefli. Lennon varð
með því fyrsti erlendi leikmaðurinn
sem skorar 60 mörk í efstu deild
hér á landi, en hann er jafn þeim
Kristni Jörundssyni og Guðmundi
Þorbjörnssyni í 28.-30. sæti yfir
markahæstu leikmenn efstu deildar
frá upphafi.
Haukur Páll Sigurðsson, fyr-
irliði Vals, spilaði sinn 200. leik í
efstu deild þegar Íslandsmeist-
ararnir unnu 5:1-sigur á ÍBV.
Haukur Páll hefur leikið 165 þeirra
fyrir Val, en áður hafði hann leiki
35 leiki í efstu deild með Þrótti R.
áður en hann gekk í raðir Vals árið
2010.
Arnar Sveinn Geirsson lék sinn
100. leik í efstu deild þegar Breiða-
blik tapaði fyrir Fylki, 4:3. Arnar
Sveinn spilaði 92 leiki fyrir Val og
hefur svo spilað alla átta leiki Blika
í sumar.
Felix Örn Friðriksson, leik-
maður ÍBV, lék sinn 50. leik í efstu
deild þegar Valur vann 5:1-sigur á
Eyjamönnum. Felix hefur alla tíð
leikið með ÍBV hér á landi, en hann
var lánaður til Vejle í Danmörku
um mitt sumar í fyrra en sneri aftur
heim í vetur.
Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019
Þessir eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir
góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik.
Óskar Örn Hauksson, KR 9
Tryggvi Hrafn Haraldsson, ÍA 8
Damir Muminovic, Breiðabliki 7
Hallgrímur Mar Steingrímsson, KA 7
Óttar Bjarni Guðmundsson, ÍA 7
Ásgeir Marteinsson, HK 6
Brandur Olsen, FH 6
Helgi Valur Daníelsson, Fylki 6
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 6
Jónatan Ingi Jónsson, FH 6
Ólafur Karl Finsen, Val 6
Stefán Teitur Þórðarson, ÍA 6
Andri Rafn Yeoman, Breiðabliki 5
Aron Bjarnason, Breiðabliki 5
Ásgeir Eyþórsson, Fylki 5
Einar Logi Einarsson, ÍA 5
Elias Tamburini, Grindavík 5
Eyjólfur Héðinsson, Stjörnunni 5
Hilmar Árni Halldórsson, Stjörnunni 5
Ólafur Karl Finsen, Val 4
Thomas Mikkelsen, Breiðabliki 4
Pálmi Rafn Pálmason, KR 4
Markahæstir
Breiðablik 45
ÍA 44
KR 41
KA 40
Fylkir 38
Stjarnan 37
FH 36
Valur 35
Víkingur R. 34
Grindavík 32
HK 31
ÍBV 24
Lið:
Leikmenn:
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
8. umferð í Pepsi Max-deild karla 2019
3-4-3
Kristijan Jajalo
KA
Brandur Olsen
FH
Andri Adolphsson
Val
Valdimar Þór
Ingimundarson
Fylki
Atli Hrafn
Andrason
Víkingi R.
Hilmar Árni
Halldórsson
Stjörnunni
Ólafur Karl Finsen
Val
Finnur Tómas
Pálmason
KR
Helgi Valur
Daníelsson
Fylki
Óskar Örn Hauksson
KR
Alexander Groven
KA
Guðmundur Kristjánsson, FH 5
Hannes Þór Halldórsson, Val 5
Kolbeinn Þórðarson, Breiðabliki 5
Marcus Johansson, ÍA 5
Sölvi Geir Ottesen, Víkingi R. 5
2
2
3
3
2
Góð fyrirheit fyrir KR?
Aðeins eitt stig skilur að efstu þrjú liðin í deildinni og fjögur eru jöfn þar á eftir
Sama staða uppi í fyrra sem lofar góðu fyrir toppliðið Öll lið nú unnið leik
Morgunblaðið/Ófeigur
Valur Ólafur Karl Finsen er orðinn
markahæstur Valsmanna í sumar.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fylkir Valdimar Þór Ingimundarson
fór á kostum gegn Breiðabliki.
Pepsi Max-deild karla
Stjarnan – Breiðablik............................... 1:3
Staðan:
Breiðablik 9 6 1 2 19:10 19
KR 8 5 2 1 14:7 17
ÍA 8 5 1 2 15:10 16
Fylkir 8 3 3 2 14:11 12
KA 8 4 0 4 10:9 12
FH 8 3 3 2 14:15 12
Stjarnan 9 3 3 3 12:15 12
Grindavík 8 2 4 2 7:8 10
Valur 8 2 1 5 13:13 7
Víkingur R. 8 1 4 3 11:14 7
HK 8 1 2 5 8:12 5
ÍBV 8 1 2 5 7:20 5
HM kvenna í Frakklandi
C-RIÐILL:
Ítalía – Brasilía ........................................ 0:1
Marta 74. (víti).
Jamaíka – Ástralía .................................. 1:4
Havana Solaun 49. – Sam Kerr 11., 42., 69.,
83.
Lokastaðan:
Ítalía 3 2 0 1 7:2 6
Ástralía 3 2 0 1 8:5 6
Brasilía 3 2 0 1 6:3 6
Jamaíka 3 0 0 3 1:12 0
Ítalía, Ástralía og Brasilía eru öll komin
áfram í 16-liða úrslitin.
Ameríkukeppnin
C-riðill:
Japan – Síle ............................................... 0:4
Evrópukeppni 21-árs liða karla
C-riðill:
Rúmenía – Króatía ................................... 4:1
England – Frakkland............................... 1:2
Staðan: Rúmenía 3, Frakkland 3, Krótaía 0,
England 0.
KNATTSPYRNA
Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin:
Meistaravellir: KR – Valur...................19.15
1. deild karla, Inkasso-deildin:
Eimskipsvöllur: Þróttur – Fjölnir .......19.15
1. deild kvenna, Inkasso-deildin:
Norðurálsvöllur: ÍA – Haukar .............19.15
Í KVÖLD!
Knattspyrnumaðurinn Kristófer
Ingi Kristinsson gekk í gær í raðir
Grenoble Foot 38. Liðið leikur í
frönsku B-deildinni. Kristófer kem-
ur til félagsins frá Willem II í hol-
lensku A-deildinni. Hann skoraði
eitt mark í ellefu leikjum á síðustu
leiktíð.
Kristófer til
Frakklands