Morgunblaðið - 19.06.2019, Page 25
Michel Platini, fyrrverandi forseti
UEFA, hefur verið handtekinn.
Ástæða handtökunnar er heims-
meistaramótið 2022 í knattspyrnu
sem fram fer í Katar en Platini er
sagður hafa þegið peningagreiðslur
fyrir að kjósa með Katar þegar kom
að því að velja leikstað fyrir HM
2022.
Platini er 63 ára gamall en hann
var kosinn forseti UEFA árið 2007
og gegndi embættinu í átta ár eða til
ársins 2015 þegar honum voru
bönnuð öll afskipti af fótbolta af
siðanefnd FIFA. Platini, sem situr
nú í varðhaldi frönsku réttar-
farslögreglunnar í Nanterre í París,
var hliðhollur Sepp Blatter, fyrrver-
andi forseta FIFA, sem var dæmdur
í átta ára bann frá knattspyrnu fyrir
siðabrot. Árið 2010 var Katar valið
úr stórum hópi umsækjenda til þess
að halda heimsmeistaramótið en
valið var afar umdeilt á sínum tíma.
Mikið hefur verið rætt og ritað um
að Katar hafi einfaldlega „keypt“
heimsmeistaramótið þótt það hafi
aldrei verið sannað.
AFP
Spilling Michel Platini, fyrrverandi forseti UEFA, var handtekinn í gær.
Platini sagður hafa
þegið greiðslur
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. JÚNÍ 2019
FÓTBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Bolvíska markavélin Andri Rúnar
Bjarnason hefur ákveðið að takast á
við nýja áskorun á ferli sínum en
hann hefur yfirgefið sænska úrvals-
deildarliðið Helsingborg og er búinn
að semja til tveggja ára við þýska C-
deildarliðið Kaiserslautern. Andri
Rúnar, sem er 28 ára gamall fram-
herji, fór til Helsingborg haustið
2017 eftir að hafa hampað marka-
kóngstitlinum með Grindvíkingum í
efstu deild þar sem hann skoraði 19
mörk í 22 leikjum. Á sínu fyrsta
tímabili með Helsingborg skoraði
hann 16 mörk og átti stóran þátt í að
tryggja liði sínu sæti í úrvalsdeild-
inni. Í fyrstu átta leikjunum með lið-
inu í deild þeirra bestu í Svíþjóð
skoraði hann þrjú mörk en þau verða
ekki fleiri því nú er hann kominn til
Kaiserslautern, fornfrægs félags í
Þýskalandi sem á árum gerði það
gott í efstu deild en féll í C-deildina
fyrir tímabilið í fyrra eftir að hafa
fallið úr efstu deildinni árið 2012.
„Þetta gekk þokkalega hratt fyrir
sig. Ég vissi að Kaiserslautern var
eitthvað búið að fylgjast með mér og
mæta á einhverja leiki hjá mér með
Helsingborg. Um leið og við fórum í
fríið fór allt á fullt í þessum málum,“
sagði Andri Rúnar í spjalli við Morg-
unblaðið en hann hafði nýlokið æf-
ingu með liðinu.
Risastór klúbbur sem
á sér mikla sögu
Margir hafa velt því fyrir sér
hvort þessi vistaskipti framherjans
að fara úr sænsku úrvalsdeildinni og
spila í þýsku C-deildinni sé skref nið-
ur á við. En hvað segir hann sjálfur;
„Fólk þarf ekki nema að „googla“
smá til að sjá stærðarmuninn á þess-
um félögum. Að vera partur af því að
koma Kaiserslautern á þann stall
sem það á heima á er eitthvað sem
mun sitja eftir þegar ferlinum lýkur.
Þetta er risastór klúbbur sem á sér
mikla sögu. Fyrir mér var þetta allt-
af hrikalega spennandi kostur. Það
má alveg kalla Kaiserslautern sof-
andi risa og ég held að flestir vita að
þetta félag á ekki heima í þessari
deild. Ég er að koma inn í svipaða
stöðu og þegar ég kom til Hels-
ingborg. Liðið féll úr úrvalsdeildinni
sem enginn bjóst við að gæti gerst.
Ég finn fyrir miklum metnaði hjá
Kaiserslautern að koma liðinu aftur
á þann stað sem það á heima. Það er
rosalegur stuðningur á bakvið félag-
ið og það voru yfir 40 þúsund manns
á sumum leikjum liðsins á síðasta
tímabili. Þetta er miklu stærra félag
en maður gerir sér grein fyrir. For-
ráðamenn félagsins lögðu mikla
áherslu á að fá mig og auðvitað er
það eitthvað sem heillar mann að
koma inn í svona stórt félag þar sem
möguleikarnir eru miklir. Ég er
gríðarlega ánægður með það sem ég
gerði hjá Helsingborg. Mér skilst að
ég hafi komið að 30 mörkum í 38
keppnisleikjum með liðinu og ég get
ekki annað en verið sáttur með það.
Markaðurinn hér í Þýskalandi er allt
öðruvísi en í Svíþjóð. Hér hafa liðin
úr töluverðu meira að moða og það
er allt miklu stærra í sniðum hér en í
Svíþjóð,“ sagði Andri, sem er þegar
búinn að spila með sínu nýja liði en
hann lék fyrri hálfleikinn í 5:0 sigri á
móti Rodenbach í æfingaleik í fyrra-
dag. „Þegar ég var í læknisskoðun
var ég spurður hvort ég væri til í að
taka 45 mínútur. Ég ákvað að slá til
og það var fínt að fá að kynnast
strákunum beint inni á vellinum. Ég
náði ekki að skora en ég lagði upp
eitt mark. Undirbúningstímabilið er
hafið og nú er ég bara að koma mér
fyrir í borginni.“
Hef ekki afskrifað landsliðið
Andri Rúnar hefur aðeins fengið
forsmekkinn af því að spila með ís-
lenska landsliðinu en hann hefur
komið við sögu í fimm leikjum með
því og skorað eitt mark. Spurður
hvort hann hafi verið svekktur að
vera ekki valinn í síðasta landsliðs-
verkefni sagði framherjinn stóri og
stæðilegi;
„Jú, auðvitað er maður alltaf smá
svekktur en það erfitt að svekkja sig
á því svona eftir á. Allar ákvarðanir
landsliðsþjálfarans voru réttar og
liðið spilaði vel í leikjunum á móti
Albaníu og Tyrklandi. Að sjálfsögðu
hef ég metnað fyrir því að spila með
landsliðinu en sjálfur er ég með
stærri persónuleg markmið sem ég
hef meiri stjórn á sjálfur. Ég hef
ekki afskrifað það að fá tækifæri
með landsliðinu á nýjan leik. Ég ein-
beiti mér bara af því að bæta minn
leik og vera í toppstandi ef kallið
kemur. Ég hef tekið miklum fram-
förum frá því ég hélt út í atvinnu-
mennskuna og hef verið fljótur að
aðlagast sem er gott. Nú tekst ég á
við nýja áskorun sem ég er mjög
spenntur fyrir og vonandi næ ég að
stimpla mig inn í hvelli.“
Fyrir mér var þetta hrika-
lega spennandi kostur
Bolvíkingurinn Andri Rúnar Bjarnason hefur sagt skilið við sænsku
úrvalsdeildina og er kominn til Kaiserslautern sem spilar í þýsku C-deildinni
Ljósmynd/Kaiserslautern
Vistaskipti Andri Rúnar lék sinn fyrsta leik með Kaiserlautern í fyrradag.
Brasilíski knattspyrnumaðurinn
Neymar er nálægt því að ganga til liðs
við Barcelona á nýjan leik en það eru
brasilískir fjölmiðlar sem greina frá
þessu. Neymar gekk til liðs við PSG frá
Barcelona, sumarið 2017, en franska fé-
lagið borgaði 200 milljónir punda fyrir
Neymar sem er dýrasti knatt-
spyrnumaður heims í dag.
Brasilískir fjölmiðlar greina frá því að
samningaviðræður Barcelona og PSG
séu langt á veg komnar og að félögin
muni tilkynna um kaup spænska félags-
ins á næstu vikum. Neymar fór til PSG
á sínum tíma til þess að vinna Meist-
aradeildina en gengi liðsins í Meist-
aradeildinni, undanfarin tvö ár, hefur
verið langt undir væntingum.
Breiðablik mun leika í úrvalsdeild
kvenna í körfuknattleik á næstu leiktíð
en þetta staðfesti KKÍ í gær. Breiðablik
féll úr efstu deild í vor en í byrjun júní
sendi körfuknattleiksdeild Stjörnunnar
frá sér tilkynningu þar sem kom fram
að félagið myndi ekki tefla fram liði í úr-
valsdeild kvenna á næstu leiktíð.
Lucien Favre þjálfari þýska knatt-
spyrnuliðsins Borussia Dortmund hefur
skrifað undir nýjan samning við félagið.
Hann er nú samningsbundinn Dort-
mund til ársins 2021.
Undir stjórn
Favre endaði
Dortmund í
öðru
sæti í
þýsku
1. deild-
inni á ný-
afstöðnu
tímabili.
Eitt
ogannað