Morgunblaðið - 26.06.2019, Side 10

Morgunblaðið - 26.06.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019 VILTU TAKAVIÐ GREIÐSLUMÁNETINU? KORTA býður uppá fjölbreytta þjónustu sem hentar bæði minni og stærri fyrirtækjum. Kannaðu málið. Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, 558 8000 / korta@korta.is / korta.is Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Aukning hefur orðið á varpi skúms á Ingólfshöfða í Austur-Skaftafells- sýslu á meðan töluverð fækkun hefur orðið á varpi á Breiðamerk- ursandi. Þetta staðfestir dr. Lilja Jóhannesdóttir, vistfræðingur hjá Náttúrustofu Suðausturlands, en Náttúrustofan rannsakaði varpút- breiðslu skúms á Ingólfshöfða snemma í mánuðinum í samstarfi við Fuglaathugunarstöð Suðaust- urlands. Er rannsóknin hluti af stærra verkefni þar sem varpút- breiðsla skúms frá Salthöfða vest- ur að sýslumörkum verður kort- lögð. Lilja segir að niðurstöður rann- sóknarinnar liggi ekki fyrir sem stendur en segir skúmshreiðrin í Ingólfshöfða hafa verið á milli 120 og130 talsins í talningunni. Til samanburðar var önnur rannsókn gerð á sama svæði á árunum 1984- 1985, þar sem aðeins 4-6 pör voru talin verpa á höfðanum. Skúmurinn í bráðri hættu Skúmurinn er metinn í bráðri hættu samkvæmt válista Nátt- úrufræðistofnunar Íslands og því segir Lilja jákvætt að sjá að honum gangi vel á Ingólfshöfða. Segir hún að erfitt sé að segja til um ástæður á bak við fjölgunina en getur sér til um að ferðamannastraumur á Ing- ólfshöfða veiti skúmnum nokkra vernd gegn tófu, sem er einn helsti óvinur hans. Kortlagning á hreiðrum skúms á Breiðamerkursandi var lokið síðasta sumar og var skýrsla þess efnis birt í mars á þessu ári þar sem fram kom að fækkun hefði orðið á skúm á svæðinu. Í skýrslunni kemur fram að aðeins 175 virk skúmshreiður hafi fundist á Breiðamerkursandi sumarið 2018 en árið 1991 var metið að 2.820 pör verptu á svæðinu. Lilja segir að helsta ástæða fyrir fækkun skúms megi líklega rekja til fæðu- skorts fyrir unga en hrun í sandsíla- stofninum virðist hafa haft neikvæð áhrif á stofninn. Skúmi fjölgar á Ingólfshöfða  Mannaferðir á Ingólfshöfða hugsanlega jákvæðar fyrir skúminn  Fækkun á Breiðamerkursandi Morgunblaðið/RAX Skúmur Vegna mikillar fækkunar skúms hér er hann metinn í bráðri hættu skv. válista Náttúrufræðistofnunar Miklar breytingar á varpi skúms á landinu » Milli 120 - 130 virk skúms- hreiður fundust á Ingólfshöfða snemma í júní. Er það töluverð fjölgun á svæðinu en í síðustu talningu á árunum 1985-6 voru aðeins 4 - 6 pör talin verpa á svæðinu. » 175 virk skúmshreiður fund- ust á Breiðamerkursandi sum- arið 2018. Er það töluverð fækkun frá 1991 þegar metið var að 2.820 pör verptu á svæðinu. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Við erum að bregðast við lélegum loftgæðum í átta stofum í Hagaskóla og minnka koltvísýring í þeim. Und- irbúningur þeirra framkvæmda hófst í byrjun júní. Loftræstikerfið verður lagað og stillt, auk þess verða settar viftur og ný opnanleg fög í stofurnar til þess að hægt sé að hleypa súrefni inn og minnka koltví- sýring í skólastofunum. Þessar fram- kvæmdir koma vonandi í veg fyrir vanlíðan nemenda og kennara í Hagaskóla,“ segir Bjarni Brynjólfs- son, upplýsingafulltrúi Reykjavíkur- borgar, spurður um gagnrýni Ingi- bjargar Jósefsdóttur, skólastjóra Hagaskóla, í Morgunblaðinu í gær. Of margir nemendur í litlu rými Bjarni segir að það sé ekkert laun- ungarmál að of margir nemendur í litlu rými hafi gert ástandið erfiðara og framkvæmdir verði búnar löngu áður en frestur Vinnueftirlitsins til úrbóta 1. október rennur út. Varðandi kvörtun um skort á upp- lýsingum um stöðu mála segir Bjarni það í höndum skrifstofu fram- kvæmda og viðhalds að bæta úr og tryggja að upplýsingar um fyrirhug- aðar framkvæmdir berist til stofn- ana. Bjarni segist ekki geta svarað fyr- ir umkvartanir vegna erfiðleika við að ná fundi með borgarstjóra. Varð- andi fimmskólaskýrsluna, sem Kol- brún Baldursdóttir borgarfulltrúi gagnrýndi að fá ekki aðgang að, sé hún vinnuplagg tengt fjárfestinga- áætlun og slík plögg sé ekki skylt að leggja fram. Bjarni segir að skólarn- ir í skýrslunni, Hagaskóli, Melaskóli, Austurbæjarskóli, Laugarnesskóli og Háteigsskóli, eigi það sameigin- legt að vera börn síns tíma og huga þurfi sérstaklega að viðhaldsmálum í þeim. Bjarni segir það ekkert laun- ungarmál að viðhald hafi verið sett á bið eftir efnahagshrunið og sú bið hafi verið lengri en góðu hófi gegndi. Varðandi gagnrýni skólastjóra Hagaskóla að það sé röng forgangs- röðun að leggja fé í uppbygginu Mat- hallarinnar við Hlemm í stað við- halds í skólum segir Bjarni að Mathöllin á Hlemmi auki lífsgæði borgarbúa. Það hafi komið í ljós við framkvæmdir á Hlemmi sem sé í eigu borgarinnar að þak húsins hafi verið ónýtt og það lagfært með til- heyrandi aukakostnaði. Bjarni segir að verið sé að að meta heildstætt þörf fyrir skólahúsnæði í borginni og Hagaskóli sé hluti af því. Hagaskóli lagfærður  Bið á viðhaldi eftir hrun lengra en góðu hófi gegndi Viðhald Melaskóli er einn þeirra skóla sem telja má barns síns tíma og fjallað er um í fimmskólaskýrslu Reykjavíkurborgar í tengslum við viðhald. Vorleysingar á vatnasviðum afl- stöðva Landsvirkjunar á hálendinu komu snemma í ár. Seinni hluta apr- ílmánaðar hækkaði talsvert í miðl- unarlónum og var staðan þá með allra besta móti. En frá byrjun maí hefur verið þurrt og fremur kalt á hálendinu og innrennsli því undir meðallagi. Frá þeim tíma hafa miðlunarlón staðið í stað eða lækkað aftur eins og t.d. Blöndulón. Þetta er ekki áhyggju- efni því staða lóna í lok vetrar var góð, að því er Magnús Þór Gylfason upplýsingafulltrí Landsvirkjunar tjáði Morgunblaðinu. Innrennsli í miðlunarlón frá byrj- un júlí byggja að miklu leyti á leys- ingu af jöklum og í eðlilegu árferði má búast við að lónin fyllist í haust, segir Magnús. Landsvirkjun mun eins og venju- lega fylgjast grannt með rennsli og tíðarfari það sem eftir lifir sumars og of snemmt er að segja til um að- stæður í rekstri orkuvinnslunnar næsta vetur, að hans sögn. sisi@mbl.is Hálslón Í hlýindunum eystra í vor var öflug vatnssöfnun en hægt hefur á. Hægir á rennsli í miðlunarlónin

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.