Morgunblaðið - 26.06.2019, Side 11

Morgunblaðið - 26.06.2019, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019 Vegur var loks lagður að Þverárkoti við rætur Esju snemma í vor en nú segir dóttir ábúandans, Kolbrún Anna Sveinsdóttir, að illa hafi verið gengið frá veginum og Vegagerðin beinlínis skemmt hann þegar starfs- fólk hennar ætlaði að ganga frá veg- inum. „Þeir lofuðu að koma um mán- aðamót apríl og maí og laga þetta en þeir hafa ekki enn látið sjá sig,“ seg- ir Kolbrún. Svanur Bjarnason, svæðisstjóri hjá Vegagerðinni, segir í samtali við Morgunblaðið að vissulega hefði mátt ganga betur frá veginum. Stefnt sé á að laga hann í vikunni. Kolbrún hefur ekki fengið neinar upplýsingar um slík áform. „Það er eins og þeir vilji að þetta verði einhver framhaldssaga. Mér þykir þetta bæði rosalega erfitt og sárt,“ segir Kolbrún. Faðir hennar hefur þurft að tína grjót úr túninu hjá sér vegna rása í veginum sem hafa rutt upp grjóti. „Hann er þarna enn eina ferðina, áttræður, að tína upp grjót í hjólbör- urnar sínar og reyna að laga þetta sjálfur,“ segir Kolbrún. Reykjavíkurborg samþykkti á síð- asta ári að taka þátt í lagningu hér- aðsvegar að Þverárkoti. Áður hafði ábúandinn, Sveinn Sigurjónsson, þurft að vaða á eða ganga á ótraust- um ís til lengri tíma til þess að kom- ast heim til sín. ragnhildur@mbl.is Segir veginn skemmdan Ljósmynd/Kolbrún Anna Grjót Kolbrún segir Vegargerðina hafa skilið eftir rásir í miðju vegarins og beggja vegna hans. Rásirnar séu hættulegar minni fólksbílum.  Áfram deilt um veg Þverárkots Mjaldrarnir Litla-Hvít og Litla- Grá nærðust vel um helgina og hafa það gott í umönnunarlaug- inni í Vestmannaeyjum. Nú búa þjálfarar mjaldranna þá undir nýj- ar aðstæður í Klettsvík í Vest- mannaeyjum, þar sem sjórinn er kaldari en þeir hafa vanist. Andy Bool, forstjóri Sea Life Trust, segir að umönnunarteymi mjaldranna sé ánægt með árang- urinn og að hvalirnir hafi komið sér vel fyrir í tímabundnu heim- kynnum sínum, í sóttkvínni. „Eftir ferðalag mjaldranna heimsóttu flugmenn Cargolux þá í sóttkvína til að ganga úr skugga um að „VIP“-farþegar þeirra væru við góða heilsu. Án þeirra hefði ferðin ekki gengið upp,“ sagði Bool. Mjaldrarnir hafa dvalið í sóttkví í sérsmíðaðri laug síðan þeir komu til Vestmannaeyja á miðvikudag. Sennilegt er að þeim verði sleppt í Klettsvík í lok júlí eða í byrjun ágúst. Bool segir að tímasetningin velti á því hvernig mjöldrunum gangi að aðlagast nýja svæðinu og heilsu þeirra. veronika@mbl.is Litla-Grá og Litla-Hvít spjara sig vel lauginni Mjaldrarn- ir við góða heilsu Ljósmynd/SEA LIFE TRUST Beluga Whale Sanctuary Saddar Litla-Grá og Litla-Hvít búa sig nú undir nýjar aðstæður í Klettsvíkinni. Þær nærðust vel yfir helgina og er umönnunarteymið ánægt með árangurinn. Ráðist verður í viðgerðir á Helgafelli fyrir ofan Hafnarfjörð fljótlega, en í berg fjallsins voru ristar stórar áletranir og myndir af getnaðarlim- um fyrr í júní. Fjallið er í Reykjanesfólkvangi en fólkvangsvörður hans, Óskar Sæv- arsson, segist ekki hafa séð annað eins síðan hann hóf störf fyrir fólk- vanginn fyrir 16 árum. Óskar hefur þó mikla reynslu af því að afmá krot í mósteini en hann segir að verkið verði vandasamt. Áletranirnar verða fjarlægðar með slípirokk með vírbursta. „Þetta er mjög flókið og erfitt verk. Það þarf að passa að fara ekki of djúpt. Það sem er hægt að gera er að eyða því sem sést en það eru alltaf ummerki og kúnstin er að þau um- merki sem eftir verða séu ekki þann- ig að þarna sjáist hvað átti sér stað,“ segir Óskar. Hann bendir á að friðun svæðisins sé veik enda heyri fólkvangurinn undir átta sveitarfélög en ekki Um- hverfisstofnun. „Þar stendur hnífurinn í kúnni. Þetta svæði sem er náttúrulega geysilega falleg náttúra er einungis í 30 mínútna fjarlægð frá höfuðborg- arsvæðinu og hefur goldið þess í gegnum tíðina þar sem umgengni á svæðinu er ekki með besta hætti,“ segir Óskar sem telur umgengnina þó hafa batnað á síðustu árum. ragnhildur@mbl.is Slípa burt ummerkin Ljósmynd/María Elíasdóttir Krot Risturnar eru þær umfangsmestu sem Óskar hefur séð á 16 ára ferli.  „Erfitt og flókið“ verk fram undan í viðgerðum á Helgafelli Kæru Vigdísar Hauksdóttur, borgarfulltrúa Miðflokksins, um ógildingu borgarstjórn- arkosninga sem fram fóru 26. maí 2018, hefur verið vísað frá á þeim for- sendum að kærufrestur hafi verið liðinn. Samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna er kærufrestur sjö dagar frá úrslitum kosninga en kæra Vigdísar barst sýslu- manninum á höfuðborgarsvæð- inu 14. febrúar 2018. Kom fram í kærubréfi Vigdísar að upphaf kærufrests ætti að miðast við 7. febrúar 2019, þann dag sem Per- sónuvernd birti úrskurð þar sem gerðar voru alvarlegar at- hugasemdir við framkvæmd og aðdraganda kosninganna. Í úr- skurði kærunefndar, sem sýslu- maðurinn á höfuðborgarsvæðinu skipaði, kemur fram að engin ákvæði séu í lögum um kosn- ingar til sveitarstjórna um að lengja megi frestinn. Ætlar að kæra úrskurðinn Í fréttatilkynningu frá Vigdísi segir hún úrskurðinn vera gríð- arlegt áfall fyrir lýðræðið í land- inu. „Ekki verður komist að ann- arri niðurstöðu en þeirri að heimilt sé að stunda kosn- ingasvindl í lögbundnum kosn- ingum, svo framarlega sem það komist ekki upp innan umrædds sjö daga ákvæðis laganna,“ segir Vigdís í fréttatilkynningunni. Segist hún jafnframt ekki sjá sér annað fært en að kæra úr- skurð kærunefndar til dómsmálaráðuneytisins. rosa@mbl.is Kærir kosningaúr- skurð til ráðuneytis Vigdís Hauksdóttir Opið hús / kynningafundur Opið hús / kynningafundur vegna fyrirhugaðra breytinga á skipulagi verður föstudaginn 28. júní frá kl. 12:00 til 16:00 á 1. hæð að Stillholti 16-18. Breyting á Deiliskipulagi Skógarhverfis 2. áfangi Breytingin felst í að fella niður nyrsta hluta svæðisins. Breyting á Deiliskipulagi Garðalundar Breytingin felst í að breyta skipulagsmörkum skipulagsins. Eftir kynningu (Opið hús) á ofangreindum skipulags- breytingum (skipulagsgögnum) verða þau lögð fyrir skipu- lags- og umhverfisráð og bæjarstjórn til frekari afgreiðslu. Ákveði bæjarstjórn að auglýsa ofangreindar skipulags- breytingar mun frestur til að gera athugasemdir við þær vera að minnsta kosti 6 vikur. Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.