Morgunblaðið - 26.06.2019, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 26.06.2019, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019 Taktar Það vantaði ekki tilþrifin þegar knattspyrnumenn framtíðarinnar létu til sín taka á Norðurálsmótinu á Akranesi um liðna helgi. Þangað mæta um 1.500 keppendur hvaðanæva. RAX Áður en gert var hlé á þingstörfum var fjár- málaáætlun til ársins 2024 samþykkt. Gangi hún eftir verða heild- arútgjöld ríkissjóðs til málefnasviða um 97 milljörðum hærri á lokaárinu en á yf- irstandandi ári. Hækk- unin er 12,5% að raun- virði. Sé litið aftur til 2015 verða útgjöldin um 216 millj- örðum hærri á föstu verðlagi árið 2024 – hækkun um þriðjung. Hækk- unin er litlu minni en heildarframlög til heilbrigðismála á þessu árs sam- kvæmt fjárlögum! Vöxtur útgjalda ríkissjóðs til mál- efnasviða, svokölluð rammasett út- gjöld (utan rammans eru vaxtagjöld, ríkisábyrgðir, afskriftir skattkrafna, lífeyrisskuldbindingar, Atvinnuleys- istryggingasjóður og framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga), hefur verið fordæmalaus á undanförnum árum. Sumt á sér eðlilegar skýr- ingar. Eftir erfið ár í kjölfar falls bankanna var t.d. ljóst að auka yrði framlög til heilbrigðismála og bæta hag aldraðra og öryrkja. Nú er svo komið að nær 6 krónur af hverjum tíu fara til velferðarmála; í heil- brigðisþjónustu, í málefni aldaðra og öryrkja, til fjölskyldumála, í hús- næðisstuðning og atvinnuleys- istryggingar. Þetta hlutfall hefur hækkað á síðustu árum, þ.e. sífellt stærri hluti rammasettra útgjalda ríkisins fer til velferðarmála. Fjár- málaáætlun gerir ráð fyrir að út- gjöld til velferðarmála verði nær 143 milljörðum hærri 2024 en 2015. Hækkunin er 40% að raunvirði og jafngildir liðlega tveggja ára fram- lagi til öryrkja og fatlaðra sam- kvæmt fjárlögum þessa árs. Mest er hækkunin til málefna aldraðra eða 72%. Raunar geta útgjöld til ein- stakra málasviða orðið enn hærri þar sem yfir 37 milljarðar eru settir til hliðar árið 2024 í varasjóð og til síðari ráðstafana. Aukning án kollsteypu Gríðarleg aukning útgjalda hefur verið möguleg vegna þess að okkur hefur vegnað vel og betur en flest- um öðrum þjóðum. Aukningin hefur ekki valdið kollsteypu í efnahagslífinu – þvert á móti hefur tekist að tryggja meiri stöð- ugleika en áður og kaupmáttur launa hef- ur aukist um 25% frá árslokum 2015. Rík- issjóður hefur verið rekinn með afgangi og greitt niður skuldir. Erlend staða þjóð- arbúsins hefur aldrei verið betri. Hér skal það ítrekað sem ég hef haldið fram við umræður um fjárlög og fjármálaáætlun: Sú útgjalda- aukning sem átt hefur sér stað und- anfarin ár getur ekki haldið áfram. Fyrr eða síðar munum við rekast harkalega á vegg. Þess vegna verð- ur að breyta skipan ríkisfjármála – innleiða nýja hugsun þegar kemur að ákvörðun um útgjöld og með hvaða hætti ríkisreksturinn er skipulagður. Það dugar þingmönn- um ekki lengur að vísa aðeins til þess að þeir ætli að tryggja „nægi- lega“ fjármuni til að reka sameig- inlegt velferðar- og menntakerfi og standa undir öðrum verkefnum. Þeir verða að ganga úr skugga um að fjármunirnir séu nýttir með skynsamlegum hætti og standast þær freistingar að reyna að leysa allan vanda með auknum út- gjöldum. Pólitískt erfitt en nauðsynlegt Það er tímabært að kjörnir fulltrúar og skattgreiðendur – al- menningur – taki höndum saman og geri sameiginlega auknar kröfur til ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja um hagkvæman rekstur, skilvirka og góða þjónustu. Krafan er að farið sé vel með sameiginlega fjármuni og sameiginlegar eignir. Markmiðið er ekki að draga úr þjónustunni. Markmiðið er auka gæði hennar. Við verðum að losna úr þeim fjötr- um að geta ekki gert greinarmun á því hver greiðir og hver veitir þjón- ustuna. Ég geri mér grein fyrir því að það er pólitískt erfitt að fara ofan í ríkisreksturinn og reyna að tryggja að hann sé straumlínulagaður og eins hagkvæmur og kostur er. Auð- velda leiðin er að lofa enn auknum útgjöldum og að leggja til 115 millj- arða skattahækkun á næstu fimm árum líkt og Samfylkingin lagði til í breytingatillögum við fjár- lagaáætlun. (Hér skal það látið liggja á milli hluta hversu óskyn- samlegt það er að hækka skatta þegar efnahagslífið er í tímabund- inni niðursveiflu. Hækkun skatta virkar líkt og sandur í tannhjól at- vinnulífsins. Lækkun skatta er hins vegar nauðsynleg smurning). Það skal viðurkennt að mér líður stundum eins og það sé sérstakt markmið meirihluta þingmanna að auka ríkisútgjöld – útgjöld séu mælikvarðinn á árangur þeirra á þingi. Áskorun Áskoranir á komandi áratugum gera það enn brýnna en ella að gjör- breyta vinnubrögðum við skipulag ríkisfjármála og ákvörðun útgjalda. Íslendingar standa frammi fyrir breyttri lýðfræðilegri samsetningu. Hlutfall fólks sem er 67 ára og eldra hækkar úr 12% í 19% árið 2040. Þá verða eldri borgarar orðnir 76 þús- und. Tuttugu árum síðar verður hlutfallið 22% og fjöldi eldri borgara 97 þúsund. Eldri borgarar verða um 114 þúsund árið 2066. Frá og með árinu 2053 verða eldri borgarar sem eru utan vinnumark- aðar fleiri en þeir sem eru undir tví- tugu. Hlutfallslega verða æ fleiri ut- an vinnumarkaðar. Við þurfum sem þjóð að mæta þeirri áskorun. Við verðum að hafa kjark til þess að viðurkenna að við erum að tapa glímunni við nýgengi örorku. Vel- ferðarkerfið hefur ekki náð að rétta fólki hjálparhönd – styðja þá ein- staklinga sem glíma við geðræn vandamál eða stoðkerfisvandamál og geta ekki tekið þátt í vinnumark- aðnum. Kerfið hefur brugðist. Á tímum ótrúlegrar útgjaldaaukn- ingar höfum við orðið sinnulaus þeg- ar kemur að fjárfestingu í forvirkum aðgerðum. Nýgengi örorku heldur áfram að aukast. Ef þróun örorku verður með sama hætti í framtíðinni og á síðustu áratugum, fæðingartíðni heldur áfram að lækka og þjóðin að eldast, verða fleiri utan vinnumarkaðar árið 2060 en taka þátt í honum. Það verð- ur því stöðugt erfiðara að fjármagna velferðarkerfið og önnur þau verk- efni sem við viljum að hið opinbera sinni. Eftir því sem við látum lengur reka á reiðanum því erfiðara verður að mæta áskorunum framtíðarinnar. Afleiðingin verður verri lífskjör en ella. Boðberar aukinna útgjalda – sölu- menn auðveldra lausna þar sem aukin útgjöld leysa allra vanda – láta sér áskoranir framtíðar í léttu rúmi liggja. Það er bæði pólitískt erfitt og leiðinlegt að gerast boðberi aðhalds og hagkvæmi í ríkisrekstri. Miklu skemmtilegra að reka áróður fyrir miklu meira fyrir flesta en senda 115 milljarða reikning til skattgreiðenda. Sá reikningur mun stöðugt hækka. Eftir Óla Björn Kárason » Það dugar þing- mönnum ekki lengur að vísa til þess að þeir ætli að tryggja „nægi- lega“ fjármuni til að reka sameiginlegt vel- ferðar- og menntakerfi. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Við þurfum að stíga á bremsuna Rammasett* útgjöld ríkissjóðs 2015-2024 Á verðlagi ársins 2019 1.000 800 600 400 200 0 135 130 125 120 115 110 105 100 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 2023 2024 *Liðir sem falla utan ramma málefnasviða eru eftirfarandi: vaxtagjöld ríkissjóðs, ríkisábyrgðir, afskriftir skattkrafna, lífeyrisskuldbindingar, Atvinnuleysistryggingasjóður og framlög til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. 33% raun-hækkunMilljarðar króna Vísitala útgjalda Útgjöld samtals (milljarðar kr.) Vísitala útgjalda (2015=100) FJ ÁR LÖ G Stóraukin framlög til velferðarmála á áratug Hækkun milli 2015 og 2024 70 60 50 40 30 20 10 0 70% 60% 50% 40% 30% 20% 10% 0% Heilbrigðismál Aldraðir og öryrkjar Önnur velferðarmál Milljarðar króna Hlutfallsleg hækkun Hækkun í krónum (milljarðar kr.) Hlutfallsleg hækkun (%) 30,6% 57,5% 36,9%

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.