Morgunblaðið - 26.06.2019, Side 17

Morgunblaðið - 26.06.2019, Side 17
MINNINGAR 17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019 Það tekur okkur sárt þegar við fáum af því fréttir að menn í blóma lífsins kveðji þetta tilverustig. Við fyllumst söknuði og grátum ósögð orð, ókomna tíma og hugsum um hvað hefði getað orðið. En jafnframt þökk- um við fyrir það sem var og minn- umst góðra og fallegra stunda. Mig langar nú í nokkrum fá- tæklegum orðum að minnast Rúnars Heiðmars Guðmundsson- ar. Ég hef alltaf frá því ég kynnt- ist Rúnari, litið á hann sem vin minn og vin okkar lögreglumanna sem starfað hafa á Húsavík. Þeg- ar ég flutti til Húsavíkur 1996 ásamt fjölskyldu minni kynntist ég Rúnari. Við komumst fljótt að því að við höfðum unnið saman hjá Húsiðn (Hilla og Svenna) sumarið 1985. Þar hafði ég tekið þátt í hrekkjabrögðum, hafði ver- ið ömurlegur við Rúnar en mundi ekkert eftir þeim atvikum. Rúnar mundi það hins vegar vel og sagði mér það umbúðalaust og án vífi- lengja. Ég varð heldur hvumsa en baðst afsökunar á hegðun minni og ég held að hann hafi tekið þeirri afsökunarbeiðni, en hann hló og brosti að vandræðagangi mínum. Þetta var svo ekki rætt meir. Rúnar sagði sínar skoðanir umbúðalaust og á góðan hátt. Vinur er sá er til vamms segir. Rúnar Heiðmar Guðmundsson ✝ Rúnar Heið-mar Guð- mundsson fæddist 11. mars 1972. Hann lést 8. júní 2019. Útför hans fór fram frá Ak- ureyrarkirkju 25. júní 2019. Það eru orð að sönnu og Rúnar var þannig maður ætíð, að hann launaði illt með góðu og vildi allt gott fyrir alla gera. Það skein í gegn um allt sem hann gerði, hvar sem hann var við vinnu og í leik og hafði tækifæri á að láta gott af sér leiða og tækifæri til að rétta fram hlýja hönd og aðstoð, þá gerði hann það. Hann var alls staðar vel lið- inn og það var innilegt faðmlag og þétt handtakið sem beið er hisst var. Það væri betri heimur að lifa í ef allir kæmu fram eins og Rún- ar gerði alla tíð. Rúnar var ann- álað snyrtimenni og það mátti sjá t.d. á þeim farartækjum sem hann átti og litu ævinlega út sem ný. Það að kaupa notaðan bíl af Rúnari var betra en að kaupa nýj- an, en Rúnar hafði ætíð betrum- bætt bílana þannig að þeir voru betri en frá verksmiðjunni, meiri einangrun í gólf-minna veghljóð sem dæmi. Ég þakka allar stund- irnar sem við áttum í gleði yfir kaffibolla og með því, annað hvort á lögreglustöðinni eða þá í fallega bústaðnum hans og Rannveigar í Aðaldalshrauni þar sem ýmis málefni voru rædd og reifuð. Rúnar var vinur vina sinna og er nú skarð fyrir skildi í þeim stóra hópi. Mér sem gömlum vini er þakklæti efst í huga, fyrir að hafa fengið að kynnast Rúnari, hans hlýja persónuleika og hans inni- legu nærveru. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Elsku Berta, Rannveig og fjöl- skylda, Arna og fjölskylda, Harpa og fjölskylda, allir ættingjar og vinir, mínar dýpstu samúðar- kveðjur. Þegar minningar kvikna um lífið sem var Og við tekur blákaldur dagur að nýju Vil ég biðja Guð Drottinn að gera sér far Að umfaðma ykkur með ástúð og hlýju. Þegar sorgin hún knýr bæði á glugga og dyr Og gusturinn feykir og slær okkur niður Þá er faðmurinn vinanna, opinn sem fyrr Og faðmlagi því fylgir kærleikur, friður. Ég vil biðja Guð Drottinn að blessa ykkur öll Og bið fyrir ykkur með ljósinu bjarta En hækkandi sólin og vorgola um völl Mun vonina kveikja í sálum og hjarta. Aðalsteinn Júlíusson. Aldrei hefði mér dottið í hug að það ætti eftir að koma í minn hlut að horfa á eftir vini mínum Rúnari Guðmundssyni ofan í gröfina. Þó ekki nema fyrir þá staðreynd að hann er 11 árum yngri en ég. Fæddur 11/3/1972 en svona getur nú það sem maður heldur snúist á hvolf fyrirvara- laust. Þegar við kvöddumst að loknum vinnudegi föstudaginn 7 júní 2019 var ekkert sem benti til annars en við myndum hittast hressir og kátir á þriðjudegi að lokinni langri hvíta- sunnuhelgi. En það átti ekki að gerast, Rúnar varð bráðkvaddur laugardaginn 8. júní. Þrátt fyrir langa baráttu sjúkraliðs tókst ekki að koma honum aftur í gang. Við Rúnar erum búnir að þekkjast í 25 ár, og við erum bún- ir að vera bestu vinir jafnlengi. Þegar við kynntumst var hann flutningabílstjóri á Húsavík. Hann flutti svo í bæinn þegar hann giftist og fór að búa með Rannveigu Jónsdóttur. Rúnar var alls staðar vel liðinn í vinnu enda sérlega duglegur og útsjón- arsamur. Því höfum við fengið að kynnast í Straumrás. Það er óhætt að segja að Rúnar hafi ver- ið hvers manns hugljúfi og hann var alveg ótrúlega bóngóður og hann var sannur vinur vina sinna. Rúnar var mikill fjölskyldu- maður og reyndist sannarlega dætrum Rannveigar þeim Dönu og Karen frábærlega vel. Og einnig barnabörnunum þegar þau komu hvert af öðru. Ég held að hann hafi verið hinn fullkomni afi í augum barnabarnanna. Rúnar var einn af þessum fjöl- hæfu mönnum sem hafa ekki hátt um það sem þeir geta. Hann var fantagóður trésmiður, um það ber svo sannarlega ótalmargt vitni í og við sumarbústað þeirra hjóna austur í Aðaldalshrauni. Hann var líka lagtækur rafsuðumaður og hann var magnaður veiðimað- ur á bæði fugl og fisk. Þrjóskari og þolinmóðari stangveiðmanni hef ég aldrei kynnst. “Það er samt fiskur hér“ sagði hann einu sinni þegar við vorum búnir að berja Bægisárhyl í klukkutíma. Tveim tímum síðar þegar ég var löngu hættur að reyna og búinn að pakka saman dótinu mín kippti hann upp þessari fínu bleikju. “ Ég var búinn að segja þér þetta“. Rúnar var besti kokkur sem ég hef kynnst og það var sannkölluð matarupplifun að vera boðið í mat til þeirra hjóna. Orðið grillmeist- ari gæti sem hægast hafa orðið til um hann. Ótal góðar ráðleggingar fékk ég hjá honum varðandi elda- mennsku. Rúnar var annálað snyrtimenni, maður sá til dæmis aldrei bílana hans, sleðana eða mótorhjólin öðruvísi en spegil- bónuð. Rúnar Guðmundsson mun ekki ná að lesa Í Verum eins og hann hafði á dagskránni, hann mun ekki heldur ná að mastera flug- hæfileika sína með drónanum sem hann hafði nýlega eignast. Við vinirnir munum ekki fara að veiða í Hvalvatnsfirði í haust eins og við höfum gert undanfarin ár. Ég mun ekki framar fá áramóta- kveðju frá honum kl. 00 á gaml- árskvöld. “Gleðilegt ár góði vinur, takk fyrir allar góðu samvistirnar á árinu sem var að líða“. Rúnar, takk fyrir allar stund- irnar með þér kæri vinur. Þær voru allar góðar og gefandi. Ég var svo sannarlega heppinn að einhver vísaði þér til mín með bil- aðan vélsleða fyrir tuttugu og fimm árum. Þín verður sárt sakn- að. Guðni. ✝ Gréta SigríðurHaraldsdóttir fæddist í Reykjavík 3. febrúar 1939. Hún lést á hjarta- deild Landspít- alans við Hring- braut 6. júní 2019. Foreldrar henn- ar voru Helga Guð- rún Jakobsdóttir frá Blönduósi, f. 24. desember 1915, d. 10. janúar 2011, og Haraldur Einarsson frá Brúsastöðum í Þingvallasveit, f. 26. apríl 1913, d. 10. apríl 1996. Systir Grétu er Sigrún Jakobína Haraldsdóttir, f. 24. ágúst 1940, og fósturbróðir, Friðþjófur Daníel Friðþjófsson, f. 29. maí 1947, d. 18. ágúst 2017. Hinn 24. september 1966 giftist Gréta Hrafnkeli Þor- valdssyni vélvirkja, f. 15. nóv- ember 1941. Áttu þau einn son, Þorvald Skúla, f. 6. janúar 1968, d. 5. ágúst 2001. Gréta var alin upp í Reykjavík og bjó á Skólavörðu- stíg 30 til ársins 1947 og gekk þá í Landakotsskóla einn vetur, síðan flutti fjölskyldan á Hjallaveg 21 í Kleppsholti og fór hún í Laugarnes- skóla og lauk þar barna- og unglingaskóla, var svo tvo vet- ur í Gagnfræðaskóla verknáms- ins. Gréta lauk einnig einni önn við Húsmæðraskólann í Reykja- vík. Eftir skólagöngu starfaði Gréta við verslunarstörf til að byrja með, hjá Læknastöðinni á Klapparstíg um tíma, síðan við skrifstofustörf og fleira. Útför Grétu fer fram frá Lindakirkju í Kópavogi í dag, 26. júní 2019, klukkan 13. Jarð- sett verður í Gufuneskirkju- garði. Nú eru bjartir og blíðir sum- ardagar, nóttlaus veraldar vor- öld, sem auðveldar að takast á við sorgina við ástvinamissi. Ég kynntist Grétu mágkonu minni þegar við bræður sóttum fundi í KSS, kristilegum skóla- samtökum, hópi glaðra og skemmtilegra ungmenna, sem vildu leitast við að hafa kristna trú leiðandi í lífi sínu. Þetta var úrvalsfólk og þarna var stofnað til kunningsskapar, vináttu og jafnvel langlífra sambanda. Á þessum árum kynntust þau Gréta og Hrafnkell bróðir og hafa gengið saman í gegnum súrt og sætt síðan. Þau giftust og eignuðust soninn Þorvald Skúla, sprækan og skemmtilegan strák, og allt virtist leika í lyndi. En Skúli veiktist ungur og greindist með heilaæxli, sem illa gekk að lækna þrátt fyrir heimsóknir til færustu lækna, m.a.í Bandaríkj- unum. Það tókst að hægja á meininu, en það olli ýmsum auka- verkunum eins og vaxandi blindu og óvissum lífslíkum. Þau Gréta voru að vonum slegin, en tóku á málum af stakri hugprýði, ákveð- in að nýta þann tíma sem þeim gæfist saman, sem best. Þeim þótti gaman að ferðast og gerðu víðreist til annarra landa, en einkum þó innanlands. Hjólaferð í Danmörku með tveggja manna hjól, svo Skúli gæti notið sín líka, og margar ökuferðir um Evrópu. Einn eftirlætisstaður var Walch- see í Tyrol, svo og Salzburg og Vín. Þau studdu vel við Skúla þegar hann fór að æfa sund með góðum árangri í Íþróttafélagi fatlaðra. Þegar blindan ágerðist varð starf með Blindrafélaginu æ meiri þáttur í lífi þeirra Grétu. Á ferðum um Ísland var leitast við að fara sem víðast. Oftast var gist í sumarhúsum starfsmanna- félaga og ævinlega notalegt að heimsækja þau eins og heima, enda Gréta fyrirmyndar húsmóð- ir. Það var í lok einnar slíkrar langferðar þeirra, í Brekkuskógi, að óvissu æviskeiði Skúla lauk, fyrirvaralítið. Það var mikið áfall, sem erfitt var að vinna úr. Þau héldu þó sínu striki, fóru í ferðir sem áður, til Gardavatns og Tenerife og víðar, og sumarhúsa innanlands. Tóku ástfóstri við sumarhús for- eldra Grétu við Hólmsá, sem þau hafa annast ásamt Sigrúnu, syst- ur Grétu, eftir lát foreldranna. Þau voru einkar einhuga og sam- rýnd og höfðu yndi af að hitta vini og kunnngja og spjalla. Voru næstum fastagestir í kaffi í Kringlunni til að hitta þar fólk. En heilsu Grétu hafði hrakað á þessum tíma og fyrir nokkrum árum var henni um hríð vart hug- að líf, en eftir erfiða aðgerð reif hún sig upp á ný af ótrúlegri seiglu. Í vetur kom svo í ljós að hún mundi þurfa hjartaaðgerð, sem gerð var nú í vor. Aðgerðin tókst að vísu vel, en viðnáms- þróttur Grétu var orðinn lítill, og eftir harða baráttu varð svæsin lungnabólgusýking henni um megn. Missir Hrafnkels er mikill og Sigrúnar systur einnig, en trúin á að sameinast aftur á öðru tilveru- stigi veitir huggun.Við minnumst þessarar hæglátu og ljúfu konu með söknuði og dýpstu samúð. Björn og Kristbjörg. Gréta starfaði með okkur í unglingadeild KFUK í Maríu- bakkanum í Reykjavík um margra ára skeið. Hún var traustur leiðtogi sem hafði starfsreynslu meðal barna þegar við hófum þar störf. Með hægð sinni og yfirvegun vann hún störf sín af alúð og samviskusemi. Við vorum fjórar stöllurnar sem lengst störfuðum saman í þessari deild, við undirritaðar ásamt Grétu og Ingibjörgu Gestsdóttir, sem féll frá fyrir nokkrum árum. Margt var brallað á þessum tíma og segja má að samstarf milli deilda í starfstöðinni hafi verið einstakt. Fórum við í ferðalög bæði innanlands og utan og ótrú- legt var hversu mikið var lagt á sig við undirbúning til að gera ferðirnar sem bestar og skemmtilegastar. Við minnumst sérlega góðra stunda saman í litla húsinu við Maríubakka, sem nú er horfið. Gréta átti við van- heilsu að stríða undanfarin ár. Hún lést á Landspítalanum 6. júní sl. Við biðjum Guð að blessa Hrafnkel og gefa honum styrk og kraft. KFUM og K þakka hennar góðu störf í þágu félagsins. Blessuð sé minning Grétu Har- aldsdóttur. Elín J. Elíasdóttir, María I. Aðalsteinsdóttir. Það er ótrúlega fjölbreyttur hópur fólks sem leggur leið sína í Hamrahlíð 17, hús Blindrafélags- ins, ýmissa erinda. Þar á meðal voru þau hjónin Gréta og Hrafn- kell sem áttu hann Þorvald Skúla sem var sjónskertur og vann í nokkur ár á Blindravinnustof- unni. Gréta og þau hjón bæði komu oft í Hamrahlíðina og eign- uðust þar góða vini. Þegar ég vann við Hljóðbókagerð Blindra- félagsins vantaði einu sinni manneskju til þess að sjá um fjöl- földun og fleira. Ég rakst á Grétu og spurði hana hvort hún væri til í að vinna með mér í einhverjar vikur. Og vikurnar urðu að rúm- um áratug. Hún sá um fjölföldun á snældum, síðar lærði hún á vél- ar til þess að framleiða þær og svo tóku geisladiskar við. Stund- um komu til okkar verkefni þar sem krafist var algjörs trúnaðar. Það þurfti aldrei að minna hana á að virða þann trúnað. Gréta var einstaklega þægileg og ljúf í um- gengni en gat látið hvína í sér ef á þurfti að halda og þá tók maður líka eftir því að þessari hæglátu konu var á einhvern hátt misboð- ið. Mér er minnisstætt að einn dag ákvað hún að taka sér sum- arfrí og þá dundu á mér verkefni sem varð að ljúka. Ég rembdist eins og rjúpa við staur og sá fram á stífa vinnu fram undan. Þá birt- ist Gréta, hafði gleymt einhverju, leit á mig og fór úr yfirhöfninni. Ég spurði hvort hún væri ekki í fríi. „Jú, en mér sýnist þú ekki geta klárað þetta einn í dag. Fríið getur alveg beðið.“ Ég varð orð- laus og snéri mér að öðru varð- andi verkefnið. Ég hef oft hugsað um þetta. Samviskusemin hjá henni var einstök og ljúflyndið eftir því. Þau Gréta, Hrafnkell og Skúli sonur þeirra ferðuðust mik- ið og nutu lífsins eins og þau gátu öll þrjú. Skúla voru ekki ætlaðir margir jarðvistardagar og því var um að gera að njóta. Nú hef- ur Gréta kvatt okkur hér og er gengin inn í annan og betri heim. Ég minnist hennar með hlýju og væntumþykju. Við Herdís vott- um Hrafnkeli innilega samúð. Blessuð veri ævinlega minning Grétu Sigríðar Haraldsdóttur. Gísli Helgason. Kær vinkona okkar, Gréta S. Haraldsdóttir, hefur kvatt. Ótal minningar rifjast upp enda hefur vinátta okkar staðið allt frá því snemma á unglingsárum okkar. Og þó að samverustundir á síðari hluta æviskeiðs okkar hafi verið færri en fyrr á árum voru tengsl- in alltaf jafngóð og innileg þegar við hittumst. Grétu og systur hennar kynnt- umst við í æskulýðsstarfi KFUM og K og Kristilegum skólasam- tökum. Vináttubönd bundust og þau bönd hafa haldist alla tíð síðan. Segja má að æskulýðsstarf félag- anna hafi verið – og séu enn – eins konar uppeldismiðstöð fyrir íslenska æsku þar sem ungling- arnir fengu að þroskast og vaxa í mannlegum samskiptum fé- lagslega, andlega og trúarlega. Við tókum sameiginlega þátt í starfi félaganna og Sambands ís- lenskra kristniboðsfélaga, vorum á biblíunámskeiðum og almenn- um mótum Kristniboðssam- bandsins í Vatnaskógi þar sem nokkur hundruð manns hittust undir merkjum Krists. Þar var rætt og sungið um mikilvægi kristniboðs og mannúðarstarfs – alveg ógleymanlegt þegar sung- inn var af miklum krafti í lok samveranna sálmur sr. Friðriks Friðrikssonar: Sterk eru andans bönd sem eru í Guði knýtt … Í starfi Kristilegra skólasamtaka vorum við saman á mörgum skólamótum í Vatnaskógi á vorin og Vindáshlíð á haustin. Þar var alltaf líf og fjör í skemmtilegum félagsskap. Við sungum saman í æskulýðskór KFUM og K og einnig um skeið í litlum sönghópi. Við nutum oft samvista í heima- húsum ásamt fleiri vinum og styrktum þar enn böndin. Ynd- islegar minningar sem ylja. Gréta og Hrafnkell, maður hennar, gengu ekki alltaf feril sinn létt í spori. Veikindi settu mark sitt á þau, þau urðu fyrir þeirri sáru reynslu að eignast fatlaðan son, sem þau misstu svo á fullorðinsaldri. Þau fundu styrk í samveru fjölskyldu og góðra vina og lögðu líf sitt í hendur Guðs. Samheldni þeirra hjóna var alla tíð einstök og alltaf jafn notalegt að hitta þau og reyna hlýtt og glaðlegt viðmót þeirra. Við þökkum Grétu innilega fyrir samfylgdina og vottum Hrafnkeli samúð okkar, sem og Sigrúnu og ástvinum þeirra. Guð blessi minningu Grétu. Rúna Gísladóttir og Þórir S. Guðbergsson. Gréta Sigríður Haraldsdóttir Elskuleg eiginkona og móðir okkar, dóttir, systir, tengdadóttir og mágkona, ÓLÖF BJARNADÓTTIR, Gilsbakka 24, Hvolsvelli, lést í faðmi fjölskyldunnar á heimili sínu sunnudaginn 23. júní. Útförin fer fram frá Selfosskirkju laugardaginn 29. júní klukkan 13. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast Ólafar er bent á styrktarreikning fyrir dætur hennar og Lárusar Viðars, 0308-22-823 kt: 150580-3909. Lárus Viðar Stefánsson Fanndís Lilja Kara Kristín Bjarni Jónsson Kristín Bragadóttir Bragi Bjarnason Eygló Hansdóttir Unnur Lilja Bjarnadóttir Stefán Friðrik Friðriksson Valdís Bjarnadóttir Ragna Finnsdóttir Mikael Reynir Tryggvason Stefán Lárusson Anton Kristinn Stefánsson Bryndís Björk Reynisdóttir Anna Fanney Stefánsdóttir Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN THEODÓRSDÓTTIR, Fögruhlíð 5, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 19. júní. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 28. júní klukkan 15. Theodór K. Ómarsson Ágústa Ólafsdóttir Marta Gígja Ómarsdóttir Höskuldur Ragnarsson barnabörn og langömmubörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.