Morgunblaðið - 26.06.2019, Side 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Mótorhjól
Piaggo Vespa LX125
Piaggio Vespa LX125. Himinblá, árg.
2008. Ekin 12.600 km. Kr. 190.000.
Upplýsingar í síma 694 7777.
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir
Eyrarlækur 4a, Sveitarfélagið Árborg, ehl. gþ., fnr. 235-9808, þingl.
eig. Sunneva Lind Ármannsdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf.,
þriðjudaginn 2. júlí nk. kl. 09:10.
Mýrarkot, Grímsnes- og Grafnhr, fnr. 220-6959, þingl. eig. Gullbrá
ehf., gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 2. júlí nk. kl. 10:00.
Mýrarkot lóð, Grímsnes- og Grafnhr, fnr. 220-7883, þingl. eig. Björk
Baldursdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 2. júlí nk.
kl. 10:05.
Björk 1, Grímsnes- og Grafnhr, fnr. 211337, þingl. eig. Meltuvinnslan
ehf., gerðarbeiðendur Hömlur ehf. og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.,
þriðjudaginn 2. júlí nk. kl. 10:35.
Sandskeið 9-5, Bláskógabyggð, ehl. gþ., fnr. 234-6817, þingl. eig. Pétur
Friðriksson Ottesen, gerðarbeiðandi Tryggingamiðstöðin hf., þriðju-
daginn 2. júlí nk. kl. 11:30.
Birkiflöt, Bláskógabyggð, fnr. 220-4334, þingl. eig. Birkiflöt ehf.,
gerðarbeiðandi Arion banki hf., þriðjudaginn 2. júlí nk. kl. 12:35.
Hraunbú, Skeiða- og Gnúpvhr., fnr. 220-2766, þingl. eig. Mön ehf.,
gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Landsbankinn hf., þriðjudaginn
2. júlí nk. kl. 14:15.
Mön, Skeiða- og Gnúpvhr., fnr. 223-7087, þingl. eig. Mön ehf.,
gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Landsbankinn hf., þriðjudaginn
2. júlí nk. kl. 14:30.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
25. júní 2019
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni
sjálfri, sem hér segir:
Kárastígur 3, eignarhl. gerðarþola., Svfél. Skagafjörður, fnr. 214-3621,
þingl. eig. Ragnheiður Eiríksdóttir, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á
Norðurlandi vestra, þriðjudaginn 2. júlí nk. kl. 11:00.
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
25. júní 2019
Auglýsing um skipulagsmál í
Rangárþingi ytra
Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 og samþykkt sveitarstjórnar
Rangárþings ytra er hér kynnt tillaga að eftirfarandi deiliskipulagsáætlun
Helluvað 2, deiliskipulag.
Deiliskipulagið nær til um 8 ha landspildu í landi Helluvaðs 2 í Rangárþingi ytra (landnr. 164511) sem í heild er
um 23 ha samkvæmt Fasteignaskrá. Deiliskipulagið tekur til byggingar íbúðarhúss, gestahúss og skemmu. Að-
koma að svæðinu er af Suðurlandsvegi (1) um Þrúðvang í gegn um Hellu og áfram um nýjan aðkomuveg í landi
Ness og að skipulagssvæðinu. Kvöð er á Nesi um aðkomu að Helluvaði 2.
Tillagan liggur frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra,
www.ry.is Tillagan er í samræmi við nýtt aðalskipulag Rangárþings ytra 2016-2028 sem er í lokaferli.
Frestur til að skila inn athugasemdum er til 7. ágúst 2019
Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000
eða með tölvupósti birgir@ry.is
Haraldur Birgir Haraldsson
skipulagsfulltrúi
Rangárþing ytra
Félagsstarf eldri borgara
Boðinn Sundleikfimi kl. 14.30.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring-
borðið kl. 8.50. Hugmyndabankinn opinn kl. 9-16. Listasmiðja opin
kl. 9-16. Salatbar kl. 11.30-12.15. Hádegismatur kl. 11.30. Miðvikufjör kl.
11.50, Svavar Knútur spilar og syngur. Gáfumannakaffi kl. 14.30.
Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790.
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Opið hjá okkur í dag. Heitt á könnunni
fyrir hádegi og nýjustu dagblöðin liggja frammi. Kíkið inn í spjall og
félagsskap til okkar. Hádegisverður frá kl. 11.30-12.30. Göngutúr um
hverfið kl. 13, hittumst í móttökunni við aðalinnganginn. Síðdegiskaffi
kl. 14.30-15.30. Verið velkomin til okkar á Vitatorg, Lindargötu 59,
síminn er 411-9450.
Garðabær Vatnsleikfimi Sjálandi kl. 8. Gönguhópur fer frá Jónshúsi
kl. 10. Brids í Jónshúsi kl. 13.
Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofan kl. 8.30-16. Útskurður með
leiðbeinanda kl. 9-12. Línudans kl. 11-12. Leikfimi Helgu Ben kl. 11-
11.30. Útskurður / pappamódel með leiðbeinanda kl. 13-16. Félagsvist
kl. 13-16. Döff félag heyrnarlausra. Allir velkomnir.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 félagsvist.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og
púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45,
samverustund kl. 10.30 og hádegismatur kl. 11.30. Liðleiki á stólum og
slökun með Önnu kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30.
Korpúlfar Ganga kl. 10 í dag, gengið frá Borgum. Opið hús í dag í
Borgum frá kl. 13 til 16; félagsvist, hannyrðir, spjallhópur og gleðileg
samvera, kaffi á könnunni og kaffimeðlæti. Allir velkomnir. Frá 25.
júní til 28. júní 2019 er samsýning á listaverkum í listasmiðjunni í
Borgum, þar sem m.a. listamennirnir Jóhann Þór, Davíð, Bergsteinn,
Gylfi, Magnús Helgi og fleiri sýna verk sín sem eru til sýnis og sölu.
Opið frá kl. 8 til 16 alla þessa viku og gaman væri að sjá ykkur sem
alllra felst. Kolbrún Lorange verður einnig með á listsýningu, sam-
sýningu Korpúlfa á listaverkum í Borgum í þessari viku frá kl. 8 til 16
alla daga, allir hjartanlega velkomnir í Borgir Spönginni 43.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, viðtals-
tími hjúkrunarfræðings kl. 10-12, upplestur kl. 11, hádegisverður kl.
11.30, félagsvist kl. 13.30, síðdegiskaffi kl. 14.30, Bónusbíllinn kl. 14.40,
heimildarmyndasýning kl. 16.
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á
könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá
kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur
hittist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–5.30. Allir vel-
komnir. Síminn í Selinu er 568-2586.
Atvinnuauglýsingar
Blaðberar
Upplýsingar veitir í síma
Morgunblaðið óskar eftir
blaðbera
mbl.is
alltaf - allstaðar
200 mílur
Unaðslegir hljómar, sem pí-
anóleikur Jóns Möllers töfraði
fram um sína daga, eru þagnaðir
þegar þetta prúða og yfirlætis-
lausa ljúfmenni hefur nú lokið
jarðvist sinni. Jón var undirleik-
ari minn á nokkurs konar árlegri
vetrarvertíð árshátíða og þorra-
blóta fyrir réttri hálfri öld, árið
1969, en það þýddi að við kæm-
um fram með sungna og leikna
skemmtiþætti á hátt á annað
hundruð skemmtunum á fjórum
mánuðum. Þetta kallaði á afar
mikla og nána samvinnu við að
móta prógrammið, breyta því og
bæta, og síðast en ekki síst að
komast yfir allan þvælinginn um
borg og bý, oftast marga staði á
hverju kvöldi um helgar. Iðulega
fólst lausnin við að láta flókin
dæmi ganga upp í spennu og lát-
um, að nota fjölbreytt farartæki
og aðferðir sem reyndu á þolrif-
in. Fjórir mánuðir sýnast ekki
langur tími, en stundum er það
svo að minningar eru þess eðlis
að tíminn týnist ekki þegar þær
spretta fram, heldur vex birta
þeirra með tímanum. Á þessum
mánuðum 1969 átti Jón við veik-
indi að stríða, auk þess sem hann
var svo einstaklega hlédrægur,
feiminn og hógvær, að það sýnd-
ist með ólíkindum að hann gæti
staðið í öðrum eins hasar og
hamagangi og fylgdi því vanda-
sama starfi sem hann hafði með
semingi fengist til að helga sig
þessa eftirminnilegu mánuði.
Þegar litið er til baka var það
ekkert minna en afrek, hvernig
Jón skilaði hlutverki sínu á
hverju sem gekk. Sem dæmi má
nefna einstæða hrakningaferð
okkar á hraðbáti frá Hafnarfirði
fyrir Álftanes og Seltjarnarnes
upp á Akranes á janúarkvöldi í
óhagstæðu veðri og sjólagi til
þess að skemmta þar og komast
aftur sem fljótast á hraðbátnum
til Reykjavíkur til að skemmta
þar líka. Aðeins var hægt að
leysa dæmið með hraðbáti, því
að þá voru engin Hvalfjarðar-
göng. Ekki mátti miklu muna að
Jón drukknaði þegar hann féll í
sjóinn við landtöku á Akranesi.
Já, mikið var á manninn lagt, en
aldrei skipti hann skapi, hvaða
vitleysu sem ég lagði á hann að
leysa. Af þessum ástæðum er
minningin um Jón mér einkar
kær og fögur. En það sem litar
hana fegurst er minningin um
alla dásamlegu hljómana sem
þessi snillingur gat laðað fram í
undirleik sínum. Ég segi hiklaust
eftir 60 ára kynni af fremstu tón-
listarmönnum landsins, að hann
var í fremstu röð hvað þennan
einstaka hæfileika varðaði. Jón
kemur mér ætíð í hug þegar
sögð er setningin „sælir eru hóg-
værir“ og vegna þess hve lítillát-
ur hann var og hlédrægur er lík-
lega ekki mikið til af varðveittum
upptökum af píanóleik hans, sem
hann kom mér svo oft á óvart
með sakir frumleika og sköpun-
argáfu, sem streymdi oft fram af
fingrum hans við píanóið. Bless-
uð sé minning hins góða drengs
og vinar míns, Jóns Möllers.
Ómar Ragnarsson.
Jón Friðrik Möller
✝ Jón FriðrikMöller píanó-
leikari fæddist í
Reykjavík 29. des-
ember 1939. Hann
lést 18. júní 2019.
Foreldrar hans
voru Tage Möller,
kaupmaður og tón-
listarmaður, og
Margrét Jónsdóttir
Möller húsmóðir.
Bróðir Jóns var
Carl Möller píanisti, sem lést árið
2017 og hálfbróðir hans Birgir
Möller, hagfræðingur og forseta-
ritari, en hann lést árið 2012.
Jón var tvígiftur og átti tvö
stjúpbörn, Grím og Ingibjörgu.
Útför Jóns fer fram frá Frí-
kirkjunni í dag, 26. júní 2019,
klukkan 13.
Þá hefur Jón
Möller píanisti
kvatt, síðastur sona
Taage Möllers pían-
ista; hálfbróðirinn
var Birgir, sem blés
m.a. í trompet í
hljómsveit föður
síns, en var þekkt-
astur sem starfs-
maður utanríkis-
þjónustunnar, en
albróðirinn var Carl
píanisti.
Taage Möller vann við kaup-
sýslu jafnframt píanóleiknum og
var löngum með eina af betri
danshljómsveitum Reykjavíkur
og hafa varðveist hljómplötur
með hljómsveit hans frá því um
1946.
Þeir bræður lærðu ungir að
leika á píanó og var það aðalstarf
þeirra alla ævi meðan heilsan
leyfði. Taage var ekki djassleik-
ari þó hann gæti spilað ágæta só-
lóa og væri glettilega góður
skálmpíanisti, en þeir bræður
urðu fyrsta klassa djassleikarar.
Ólíkir voru þeir að allri gerð og
kom það fram í píanóleik þeirra.
Kalli expressjónisti frammí fing-
urgóma og fljótur að grípa harð-
boppið með fönkaðri sálarstemn-
ingunni; Jón íhugulli og
formfastari í leik sínum og
minnti um sumt á eftirstríðs-
bopparana. Ég kynntist Jóni vel
sumarið 1962, er Fylkingin hélt á
Heimsmót WUFDY í Helsing-
fors og hljómsveit Hauks Mort-
hens með í för. Íslendingar höfðu
áður getið sér gott orð á Heims-
mótum, ekki síst er hljómsveit
Gunnars Ormslevs hlaut gull-
verðlaunin í Moskvu 1957. Í
hljómsveit Hauks í Helsinki voru
toppdjassleikarar: Jón á píanó,
Örn Ármannsson á gítar, Sigur-
björn Ingþórsson á bassa og
Guðmundur Steingrímsson á
trommur. Svo fór að þeir Örn og
Bjössi bassi hlutu gullverðlaun
fyrir sólóa sína. Er hátíðinni lauk
var haldið til Leníngrad, en
Haukur var enn vinsæll í Sov-
étríkjunum eftir heimsóknina
1957. Bæði hafði verið gerð kvik-
mynd, þar sem hljómsveitin kom
fram, og hljóðrit fyrir útvarp og
plötu. Í Leníngrad kom sveit
Hauks fram í sjónvarpi og vakti
feikiathygli, ekki síst fyrir að
Haukur tvistaði í sjónvarpssal.
Ferill Jóns var dálítið út og
suður. Hann lék með fjölda
hljómsveita undir eigin nafni og
annarra, svo var hann klassa
dinnerpíanisti. Hann var m.a. pí-
anistinn í verki Gunthers Schull-
ers fyrir djass- og strengjakvar-
tett, sem flutt var á vegum
Musica Nova 1964. Ég man eftir
honum á djammsessjón í Þórs-
café. Ég sat við hliðina á Henna
Rassmuss, píanista og lagahöf-
undi, og var þetta í eina skipti
sem ég hitti hann. Vorum við
sammála um hversu glæsilega
Jón hefði spunnið bíboppið þetta
kvöld.
Jón var ekki sá duglegasti að
koma sér á framfæri og hann
glímdi við erfið vandamál. Því
bar æ minna á honum á djass-
vellinum er árin liðu. Þegar ég
var framkvæmdastjóri RúRek
djasshátíðarinnar fékk ég þá
flugu í höfuðið að setja saman
hljómsveit með tveimur ung-
lingsstrákum úr FÍH-tónlistar-
skólanum og tveimur reynslu-
boltum, sem voru orðnir
sjaldséðir á djassklúbbunum.
Jón Möller var píanistinn og Al-
freð Alfreðsson trommarinn. Svo
blés Gestur Pálsson í tenorsax-
inn, en hann var þá í Stórsveit
FÍH-skólans og Róbert Þór-
hallsson var á bassa. Gestur
hvarf síðan af djassvellinum, en
Róbert er einn öflugasti bassa-
leikari okkar. Þessi tilraun tókst
vel og eru upptökurnar frá Rú-
Rek 1974 til í Ríkisútvarpinu.
Ástvinum Jóns vinar míns
sendi ég samúðarkveðjur.
Vernharður Linnet.