Morgunblaðið - 26.06.2019, Síða 24

Morgunblaðið - 26.06.2019, Síða 24
24 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019 Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686 Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði beint í ofninn Glæný stórlúða Glæný smálúða Stór humar Túnfiskur Klausturbleikja Humarsúpa 7. UMFERÐ Andri Yrkill Valsson yrkill@mbl.is Ef einhver var enn að efast um að aðeins tveggja liða barátta yrði um Íslandsmeistaratitil kvenna í knatt- spyrnu í ár verður sá hinn sami sennilega að láta af þrjóskunni. Hins vegar stefnir enn frekar í ógnar- spennandi botnbaráttu í Pepsi Max- deildinni þar sem ómögulegt er að spá um gengi fimm neðstu liðanna. Nýliðar Keflavíkur stálu senunni aðra umferðina í röð með því að bursta Stjörnuna, 5:0, eftir að hafa unnið KR 4:0 þar á undan. Eftir fimm tapleiki í röð í byrjun mótsins hafa Keflvíkingar minnt hressilega á sig, komist upp úr fallsæti og eru með langbestu markatöluna af lið- unum í neðri hluta deildarinnar. Gott sjálfstraust er gulls ígildi í fallbar- áttu og Keflvíkingar hafa það fram yfir liðin í kringum sig sem eru öll í hnút á þessari stundu. Keflavík er með sex stig eins og HK/Víkingur en Selfoss og Fylkir hafa aðeins stigi meira eftir jafntefli sín á milli í umferðinni. Stjarnan er svo alls ekki langt frá með níu stig og er að sogast neðar eftir þrjá tapleiki í röð og skellinn gegn Keflavík. KR er með fjögur stig á botninum eftir jafnteflið fyrir norðan og augljóst að mestu sviptingarnar í deildinni í ár verða í fallbaráttunni. Hvert feilspor getur vegið þungt. Á toppnum mega Breiðablik og Valur hins vegar ekki heldur við því að misstíga sig á meðan bæði halda áfram að hala inn öll stig sem í boði eru. Blikarnir voru reyndar ansi ná- lægt því að tapa fyrstu stigunum eft- ir ótrúlegan sigur á HK/Víkingi, þar sem sigurmark Öglu Maríu Alberts- dóttur með nánast síðustu spyrnu leiksins tryggði 2:1 sigur og þrjú stig. Blikar áttu 28 tilraunir að marki andstæðingsins í leiknum, þar af 18 á rammann, og er því ekki að ástæðulausu að Audrey Baldwin, markvörður HK/Víkings, var fyrst á blað í lið umferðarinnar hjá Morgun- blaðinu. Blikarnir fóru því í rússíbanareið á meðan Valur vann þægilegan 3:1- sigur á ÍBV í umferðinni. Valskonur hafa aðeins einu sinni skorað minna en þrjú mörk í leik í sumar en Blikar hafa unnið tvo nauma sigra í röð. Uppgjör toppliðanna í næstu umferð verður því í meira lagi áhugavert og mun segja mikið til um framhaldið í titilbaráttunni. Ýtir frekar undir umræðuna Í uppgjöri blaðsins eftir 6. umferð- ina fyrr í mánuðinum var því velt upp hvort besti leikmaður deild- arinnar í ár, a.m.k. úr hópi varnar- manna, væri Natasha Moraa Anasi úr Keflavík. Hún ýtti undir það með stórleik þegar Keflavík vann 5:0- sigur á Stjörnunni. Markatala nýlið- anna er 9:0 í síðustu tveimur leikjum og á Natasha stóran þátt í því að binda saman varnarleikinn en ekki síður að skora og leggja upp mörk. Hún var besti leikmaður 7. umferðar að mati Morgunblaðsins. Natasha er 27 ára gömul og er að spila sitt þriðja tímabil með Kefla- vík, en missti þó reyndar nánast af öllu sínu fyrsta tímabili 2017 vegna barneigna. Hún kom gríðarlega sterk inn í fyrra, skoraði 13 mörk í 18 leikjum þegar Keflavík hafnaði í öðru sæti 1. deildar og leikur nú á meðal þeirra bestu í fyrsta sinn í ára- tug. Natasha kom fyrst til ÍBV frá Bandaríkjunum árið 2014 og spilaði þrjú tímabil í Eyjum, alls 44 leiki í efstu deild og skoraði í þeim sex mörk. Hún hefur nú bætt við sjö leikjum og fjórum mörkum í efstu deild með Keflvíkingum. Sveindís gerir það áfram gott Keflvíkingar eiga skilið sviðið í uppgjörinu eftir 7. umferðina og er Sveindís Jane Jónsdóttir, sem ný- lega fagnaði 18 ára afmæli sínu, besti ungi leikmaður umferðarinnar að mati blaðsins. Hún er þar með valin aðra umferðina í röð, en Sveindís fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í 5:0-sigrinum gegn Stjörnunni rétt eins og eftir 4:0-sigur liðsins á KR. Hún skoraði eitt mark (sem var ranglega skráð á annan leikmann í blaðinu í gær) og lagði upp tvö. Sveindís er þrátt fyrir ungan ald- ur að spila sitt fimmta tímabil með meistaraflokki en aðeins 15 ára göm- ul skoraði hún 27 mörk í 19 leikjum fyrir Keflavík í 1. deildinni. Hún á alls að baki 64 deildarleiki með Keflavík í efstu og næstefstu deild og hefur í þeim skorað 45 mörk. Sögulegur leikur Breiðabliks  Breiðablik lék sinn 600. leik í efstu deild þegar liðið vann 2:1-sigur á HK/Víkingi í umferðinni og varð fyrsta félagið sem nær þeim áfanga.  Sesselja Líf Valgeirsdóttir, leikmaður ÍBV, spilaði sinn 100. leik í efstu deild þegar Eyjakonur töpuðu fyrir Val, 3:1. Hún hefur leikið 45 þessara leikja með ÍBV, 45 með Aft- ureldingu og 10 með Þrótti R.  Fjórir leikmenn léku sína fyrstu leiki í efstu deild í umferðinni. Það voru þær Hafdís Bára Höskulds- dóttir, ÍBV, Kyra Taylor, Fylki, og Keflvíkingarnir Una Margrét Ein- arsdóttir og Amelía Rún Fjeldsted.  Dröfn Einarsdóttir, Keflavík, og Svanhildur Ylfa Dagbjartsdóttir, HK/Víkingi, skoruðu sín fyrstu mörk í efstu deild í umferðinni. Lið umferðarinnarEinkunnagjöfi n 2019 Þessar eru með fl est M í einkunnagjöf Morgunblaðsins. Gefi ð er eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir mjög góðan leik og þrjú M fyrir frábæran leik. Cloé Lacasse, ÍBV 11 Elín Metta Jensen, Val 10 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 9 Natasha Moraa Anasi, Kefl avík 9 Sveindís Jane Jónsdóttir, Kefl avík 8 Hildur Antonsdóttir, Breiðabliki 6 Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 6 Ásdís Karen Halldórsdóttir, KR 5 Birta Guðlaugsdóttir, Stjörnunni 5 Emma Kelly, ÍBV 5 Hlín Eiríksdóttir, Val 5 Ída Marín Hermannsdóttir, Fylki 5 Stephany Mayor, Þór/KA 5 Alexandra Jóhannsdóttir, Breiðabliki 4 Andrea Mist Pálsdóttir, Þór/KA 4 Anna María Friðgeirsdóttir, Selfossi 4 Aníta Lind Daníelsdóttir, Kefl avík 4 Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Breiðabl. 4 Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, Þór/KA 4 Elín Metta Jensen, Val 9 Stephany Mayor, Þór/KA 8 Agla María Albertsdóttir, Breiðabliki 7 Cloé Lacasse, ÍBV 7 Margrét Lára Viðarsdóttir, Val 5 Hlín Eiríksdóttir, Val 5 Markahæstar Breiðablik 39 Valur 39 Kefl avík 36 ÍBV 34 HK/Víkingur 28 Þór/KA 26 KR 23 Selfoss 23 Stjarnan 23 Fylkir 22 Leikmenn: Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið umferðarinnar 23-4-3 Audrey Baldwin HK/Víkingi Andrea Mist Pálsdóttir Þór/KA Hlín Eiríksdóttir Val Sophie Groff Kefl avíkÍda Marín Hermannsdóttir Fylki Katrín Ómarsdóttir KR Sveindís Jane Jónsdóttir Kefl avík Guðný Árnadóttir Val Natasha Moraa Anasi Kefl avík Agla María Albertsdóttir Breiðabliki Anna María Friðgeirsdóttir Selfossi 7. umferð í Pepsi Max-deild kvenna 2019 Lið: 62 2 2 2 2 4 Clara Sigurðardóttir, ÍBV 4 Dóra María Lárusdóttir, Val 4 Gígja V. Harðardóttir, HK/Víkingi 4 Katrín Ómarsdóttir, KR 4 Kristín Dís Árnadóttir, Breiðabliki 4 Keflavík er á allra vörum  Nýliðarnir eiga besta leikmann 7. umferðar og líka besta unga leikmanninn  Sviptingarnar verða í botnbaráttunni  Uppgjör toppliðanna næst á dagskrá Ljósmynd/Víkurfréttir Nýliðarnir Fyrirliðinn Natasha Anasi, leikmaður umferðarinnar, er fremst og Sveindís Jane Jónsdóttir, besti ungi leikmaðurinn, er í efri röð til hægri. KNATTSPYRNA Inkasso-deild kvenna Þróttur R – ÍA ...........................................3:0 Linda Líf Boama 9., Lauren Wade 28., 57. Haukar – FH .............................................1:2 Elín Björg Símonardóttir 70. – Selma Dögg Björgvinsdóttir 42., Birta Georgsdóttir 68. Staðan: Þróttur R. 6 5 0 1 22:4 15 FH 6 4 1 1 18:8 13 ÍA 6 3 2 1 8:5 11 Tindastóll 5 3 0 2 14:12 9 Grindavík 5 2 2 1 5:5 8 Afturelding 5 2 1 2 7:7 7 Haukar 6 2 0 4 6:6 6 Augnablik 5 2 0 3 5:6 6 Fjölnir 5 0 2 3 3:11 2 ÍR 5 0 0 5 2:26 0 HM kvenna 16-liða úrslit: Ítalía – Kína...............................................2:0 Valentina Giacinti 15., Aurora Galli 49. Holland – Japan........................................2:1 Lieke Martens 17., 90. (víti) – Yui Hase- gawa 43. Í átta liða úrslitunum mætast: Noregur – England Frakkland – Bandaríkin Þýskaland – Svíþjóð Ítalía – Holland Svíþjóð AIK – Norrköping ....................................0:2  Kolbeinn Sigþórsson átti að vera á vara- mannabekk AIK en virðist hafa meiðst í upphitun fyrir leik því hann var tekinn út úr leikmannahópnum rétt áður en leikurinn hófst.  Guðmundur Þórarinsson lék allan leik- inn fyrir Norrköping en Alfons Sampsted var ekki í leikmannahópnum Staðan: Malmö 13 9 3 1 25:9 30 Djurgården 12 7 3 2 21:10 24 AIK 13 7 3 3 16:11 24 Gautaborg 12 6 3 3 20:12 21 Häcken 12 6 3 3 17:10 21 Norrköping 13 5 6 2 20:15 21 Hammarby 12 5 4 3 20:16 19 Elfsborg 12 4 5 3 16:17 17 Örebro 12 4 2 6 15:20 14 Östersund 12 3 5 4 13:18 14 Kalmar 12 2 7 3 10:12 13 Sirius 12 4 1 7 16:21 13 Sundsvall 13 2 4 7 15:20 10 Helsingborg 12 2 4 6 12:19 10 Falkenberg 12 1 4 7 9:21 7 Eskilstuna 12 1 3 8 9:23 6 KNATTSPYRNA Mjólkurbikar karla, 8-liða úrslit: Hásteinsvöllur: ÍBV – Víkingur...........18.00 Inkasso-deild karla: Framvöllur: Fram – Þróttur R ............19.15 Inkasso-deild kvenna: Hertz völlur: ÍR – Fjölnir .....................19.15 Kópavogsv.: Augnablik – Afturelding.19.15 3. deild karla: Fagrilundur: Augnablik – Reynir S ....20.00 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.