Morgunblaðið - 26.06.2019, Page 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019
FRJÁLSAR
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
FH-ingurinn Valdimar Hjalti Erlends-
son sló piltamet sitt í kringlukasti þeg-
ar hann fagnaði sigri í flokki 19 ára og
yngri á Vormóti ÍR á Laugardalsvelli í
gærkvöld. Mótið fór þá fram í 77. sinn.
Valdimar Hjalti er einn af þeim átta
efnilegu Íslendingum sem keppa
munu á hinu sterka unglingamóti Bau-
haus Junioren Gala í Mannheim í
Þýskalandi um næstu helgi. Hann ætti
að halda á mótið með byr í seglunum
eftir gott gengi í júní en hann setti nýtt
piltamet í kringlukasti (þar sem notast
er við 1,75 kg kringlu) snemma mán-
aðar með 56,73 metra kasti. Í gær-
kvöld kastaði hann svo enn lengra eða
57,54 metra í sinni fjórðu tilraun.
Auk Valdimars fara til Mannheim
Íslandsmethafarnir Elísabet Rut Rún-
arsdóttir og Guðbjörg Jóna Bjarna-
dóttir, og þau Erna Sóley Gunn-
arsdóttir, Birna Kristín
Kristjánsdóttir, Hinrik Snær Steins-
son, Tiana Ósk Whitworth og Þórdís
Eva Steinsdóttir. Valdimar og Erna
Sóley kepptu í Laugardalnum í gær og
vann Erna Sóley ein af 16 gull-
verðlaunum ÍR-inga með því að kasta
14 metra slétta í kúluvarpi í sinni
þriðju tilraun.
Af öðrum úrslitum má nefna að ól-
ympíufarinn Guðni Valur Guðnason
kastaði 56,53 metra í kringlukasti full-
orðinna og vann það af öryggi, en það
er þó níu metrum frá hans besta ár-
angri sem hann náði í fyrra. Guðni Val-
ur vann einnig kúluvarpið með 17,30
metra kasti.
Vigdís Jónsdóttir vann sleggjukast
kvenna með 57,54 metra kasti og
Hilmar Örn Jónsson, liðsfélagi hennar
úr FH, vann sleggjukast karla með
70,01 metra kasti. Í spretthlaupunum
voru ÍR-ingar sigursælir en Agnes
Kristjánsdóttir vann 200 metra hlaup
á 25,14 sekúndum og Ívar Kristinn
Jasonarson sömu grein hjá körlunum
á 22,18 sekúndum. Dagur Andri Ein-
arsson vann 100 metra hlaup karla á
11,24 sekúndum en í 100 metra hlaupi
kvenna kom Dóróthea Jóhannesdóttir
úr FH fyrst í mark á 12,31 sek.. Öll úr-
slit má finna á fri.is.
Valdimar með
nýtt piltamet
Vormót ÍR í frjálsum haldið í 77. sinn
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fljótust Dóróthea Jóhannesdóttir fagnaði sigri í 100 metra hlaupi í gær.
Sleggja Hilmar Örn Jónsson kastaði sleggjunni yfir 70 metra í gær.
Íslenska karlandsliðið í handknatt-
leik mætir Svíum í tveimur vináttu-
leikjum í október en þeir eru liður í
undirbúngi liðsins fyrir Evrópu-
mótið sem haldið verður í Svíþjóð,
Noregi og Austurríki í janúar.
Fyrri leikurinn fer fram í Kristi-
anstad 25. október og síðari leik-
urinn verður í Karlskrona tveimur
dögum síðar.
Á föstudaginn verður dregið í
riðla fyrir Evrópumótið en þar
verður Ísland í þriðja styrkleika-
flokki en Svíþjóð í fyrsta styrk-
leikaflokki. gummih@mbl.is
Mæta Svíum í
tveimur leikjum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Þjálfarinn Guðmundur Þórður Guð-
mundsson ræðir við sína menn.
Haukar staðfestu í gær frétt mbl.is
frá því í apríl, þegar félagið greindi
frá því á fréttamannafundi að Lovísa
Björt Henningsdóttir muni leika
með Haukum á næstu leiktíð. Lovísa
gerði eins árs samning en hún hefur
leikið með bandaríska háskólaliðinu
Marist undanfarin ár. Þá kom fram
að Þóra Kristín Jónsdóttir, Magda-
lena Gísladóttir, Eva Margrét Krist-
jánsdóttir, Rósa Björk Pétursdóttir,
Bríet Lilja Sigurðardóttir og Sigrún
Björg Ólafsdóttir hefðu allar fram-
lengt samninga sína. Sjá viðtal við
Lovísu á mbl.is/sport.
Lovísa samdi við
Hauka til eins árs
Morgunblaðið/Bjarni Helgason
Heimkoma Lovísa Björt Hennings-
dóttir er komin til Hauka. Miðvörðurinn Teitur Magnússon
skrifaði í gær undir tveggja ára samn-
ing við danska knattspyrnufélagið OB.
Teitur er 18 ára gamall en hann kem-
ur til félagsins frá FH í Hafnarfirði
þar sem hann er uppalinn. Teitur lék
einn leik með FH í úrvalsdeild karla
sumarið 2017 og þá á hann að baki
sextán landsleiki fyrir yngri landslið
Íslands. Hann eyddi hluta síðasta
tímabils á láni hjá Þrótti í Reykjavík
þar sem hann kom við sögu í sex
leikjum með liðinu og skoraði eitt
mark í 1. deildinni.
Gísli Sveinbergsson og Bjarki Pét-
ursson hefja í dag leik á Evrópumóti
áhugamanna í golfi sem haldið verður
á Diamond Country-vellinum í Aust-
urríki. Leiknir verða fjórir hringir á
mótinu sem lýkur á laugardaginn.
Geir Sveinsson, fyrrverandi lands-
liðsþjálfari, verður áfram þjálfari Þórs
(áður Akureyri handboltafélag) í
handbolta karla á næstu leiktíð en
þeir Halldór Örn Tryggvason hafa ver-
ið ráðnir til að stýra liðinu. Geir tók
við liðinu í byrjun þessa árs af Sverre
Jakobssyni en tókst ekki
að forða því frá falli úr
efstu deild. Halldór
hefur þjálfað
yngri flokka
Þórs und-
anfarin ár og
er öllum
hnútum
kunnugur hjá
félaginu.
Ákveðið var að
breyta nafni
liðsins úr Ak-
ureyri í Þór í
sumar.
Eitt
ogannað
Þróttur R. vann öruggan 3:0-sigur
á ÍA í toppslag í 1. deild kvenna í
fótbolta í gærkvöld. Þar með skilja
fjögur stig liðin að þegar þau hafa
leikið þriðjung leikja sinna í sumar
en Þróttur er með 15 stig á toppn-
um. FH skaut sér upp í 2. sæti með
2:1-sigri í grannaslagnum við
Hauka og er með 13 stig.
Linda Líf Boama, sem Þróttur
fékk frá HK/Víkingi í vetur, hefur
heldur betur reynst Þrótturum vel
og hún skoraði fyrsta markið í sigr-
inum á ÍA í gær með laglegum
hætti. Hún hefur nú þegar skorað
sjö mörk í deildinni í sumar. Sú eina
sem toppar það er norður-írska
landsliðskonan Lauren Wade sem
skoraði hin tvö mörkin fyrir Þrótt í
gær og hefur því skorað átta mörk í
sex deildarleikjum, og alls 13 mörk
í 9 leikjum í sumar ef bikarleikir
eru taldir með.
Haukar klúðruðu víti í fyrri hálf-
leik gegn FH í gær og í staðinn kom
Selma Dögg Björgvinsdóttir FH yf-
ir. Birta Georgsdóttir jók muninn
um miðjan seinni hálfleik en Elín
Björg Símonardóttir minnkaði
muninn fyrir Hauka. sindris@mbl.is
Linda og Wade sáu
um ÍA í toppslagnum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Mark Þróttarar fagna einu marka sinna gegn ÍA í Laugardalnum í gær.