Morgunblaðið - 26.06.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 2019
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Ljósmyndir Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir ökuskírteinið,
passann, ferilskrána o.fl.
Góð passamynd
skiptir máli
Engar tímapantanir
Skjót
og hröð
þjónusta
2001
KATRÍN ÓLÍNA PÉTURSDÓTTIR OG MICHAEL
YOUNG
Þau Katrín Ólína Pétursdóttir og Michael Young
hönnuðu tréð upphaflega árið 2001 sem bakgrunn fyr-
ir kynningarbás á hönnunarsýningu. Þar vakti nánast
tvívítt tréð athygli framleiðanda sem endaði þannig að
gripurinn fór í framleiðslu sem fatahengi hjá sænska
hönnunarfyrirtækinu Swedese árið 2003.
Tréð er einn af merkisberum framsækinnar nor-
rænnar hönnunar í dag og er enn í framleiðslu. Trén
er hægt að fá stór eða lítil og frístandandi á fæti, eins
og þau sem Hönnunarsafnið á, eða með veggfestingu.
Íslensk hönnun - Hönnunarsafn Íslands
Ljósmynd/Anna María Sigurjónsdóttir/Sigríður Sigurjónsdóttir skráði
Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt ís-
lenskrar menningarsögu sem lýtur að hönnun, einkum frá aldamótunum
1900 til samtímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og erlenda
muni, sem margir hafa mikla menningarsögulega þýðingu. Safnkosturinn
fer sístækkandi, enda æ fleiri hönnuðir sem hasla sér völl og koma fram
með vandaða gripi sem standast alþjóðlegan samanburð og eru hvort
tveggja nytjamunir og/eða skrautmunir.
Í tilefni af aldarafmæli fullveldis Íslands setti safnið upp sýninguna
100ár100hlutir á Instagram þar sem 100 færslur eru birtar á jafnmörgum
dögum af hönnunargripum í eigu safnsins frá árunum 1918 til 2018.
Bakgrunnur varð
að fatahengi
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Mikið líf var í Iðnó á dögunum
þegar nokkrar þeirra hljómsveita
og tónlistarmanna sem náðu langt
í síðustu Músíktilraunum hittu og
léku fyrir lykilaðila í íslensku tón-
listarlífi. Viðburðurinn var lokahóf
Hitakassans, námskeiðs fyrir það
tónlistarfólk sem komst á úrslita-
kvöld Músíktilrauna. Námskeiðið
var haldið af Tónlistarborginni
Reykjavík í samstarfi við Hitt hús-
ið og Útflutningsskrifstofu ís-
lenskrar tónlistar, ÚTÓN. Hljóm-
sveitirnar og tónlistarmennirnir
átta sem léku í Iðnó voru Flamm-
eus, Caravan Kids, Eilíf sjálfsfró-
un, Parasol, Dread Lightly, Gugus-
ar, Blóðmör og Konfekt en alls
tóku ellefu þátt í námskeiðinu. Í
Hitakassanum var farið yfir allt
það helsta sem tónlistarfólk ætti
að vita um tónlistariðnaðinn með
léttum fyrirlestrum, pallborðs-
umræðum, vettvangsheimsóknum
og hagnýtum verkefnum. María
Rut Reynisdóttir, verkefnastjóri
Tónlistarborgarinnar, segir það
hafa verið markmið Hitakassans að
hafa fræðsluna skemmtilega.
Fræða ungar hljómsveitir
„Fyrir það fyrsta fannst okkur
vanta að ungar hljómsveitir sem
eru að stíga sín fyrstu skref
fræðist aðeins um þennan tónlist-
ariðnað sem þær eru að stíga inn í.
Hann getur oft verið mjög flókinn
og snýst ekki bara um að semja og
spila tónlist. Það er til dæmis við-
skipta- og markaðssetningarhlið á
tónlistinni sem er mikilvægt að
kunna skil á,“ segir María.
Þetta er í fyrsta sinn sem nám-
skeið af þessu tagi er haldið og
segir María að stefnan sé að halda
annað að ári. „Við viljum gefa
ungu tónlistarfólki á einu bretti
fræðslu um allt það helsta sem er
gott að vita þegar maður er að
stíga sín fyrstu spor. Við viljum
valdefla þessa krakka svo þeir séu
betur í stakk búnir til þess að taka
góðar ákvarðanir varðandi sinn
feril.“ María nefnir einnig að nám-
skeiðið megi auðveldlega nýta til
fræðslu fyrir aðra hópa innan tón-
listargeirans.
Á meðal þess sem fjallað var um
í Hitakassanum var réttur höfunda
og flytjenda, skráning verka, for-
leggjarar, útgáfumál, hinir fjöl-
mörgu samningar sem hljómsveit
getur þurft að gera á ferlinum,
gerð tæknilista, styrkir og styrk-
umsóknir, fréttatilkynningar, sam-
félagsmiðlar, geðheilsa í tónlist,
hvernig maður kemur lagi í spilun
í útvarpi, verkaskipting innan
hljómsveita, hin ýmsu hugtök og
hlutverk í tónlistariðnaðinum sem
gott er að kunna skil á, samtök í
tónlist, ímynd og sviðsframkoma
og tengslamyndun.
Gestir deildu reynslu sinni
„Við þekkjum það öll sem stönd-
um að baki þessu verkefni að ís-
lenski tónlistariðnaðurinn er tölu-
vert einfaldari en sá erlendi þannig
að þegar hljómsveitir hyggja á út-
rás þá þekkja þær ekki viðskipta-
hlið tónlistarinnar eða þessi hugtök
sem eru notuð.“
Í Hitakassanum var mikil
áhersla lögð á að efla tengsl þátt-
takenda við annað íslenskt tónlist-
arfólk og fagfólk í tónlist. Viðburð-
urinn í Iðnó var liður í því að í
skapa slík tengsl auk þess sem
margir gestir heimsóttu nám-
skeiðið til að deila reynslu sinni og
þekkingu með tónlistarfólkinu
unga.
María segir námskeiðið hafa
gengið afar vel. „Krakkarnir
mættu samviskusamlega dag eftir
dag og tóku virkan þátt. Þau voru
mjög áhugasöm og ég held ég geti
fullyrt að þau hafi verið mjög
þakklát.“
Námskeiðið Hitakassinn haldið í fyrsta sinn fyrir Músíktilraunahljómsveitir Farið yfir það sem
tónlistarfólk ætti að vita um tónlistariðnaðinn Hljómsveitirnar léku fyrir gesti á lokahófi í Iðnó
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Tónleikar Flammeus, ein þeirra hljómsveita sem tóku þátt í Hitakassanum, spilaði fyrir áhorfendur í Iðnó í síðustu
viku. „Krakkarnir mættu samviskusamlega dag eftir dag og tóku virkan þátt,“ segir verkefnastjórinn María.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Tengslanet Á námskeiðinu Hitakassinn var mikil áhersla lögð á að efla
tengsl þátttakenda við annað íslenskt tónlistarfólk og fagfólk í tónlist.
Vilja valdefla ungt tónlistarfólk