Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Qupperneq 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Qupperneq 10
VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.6. 2019 Það var vorið 2000, þegar hljómsveitinDikta, skipuð fjórum sautján ára göml-um félögum úr Garðabæ og Álftanesi, steig á svið á Músíktilraunum í Tónabæ. Kynnir kvöldsins, Ólafur Páll Gunnarsson, kynnti hljómsveitina á svið og lýsti henni sem „alveg örugglega hefðbundinni rokkhljómsveit“. Með- limir sveitarinnar stilltu hljóðfæri sín og gerðu sig tilbúna. Skúli Z. Gestsson á bassa, Jón Þór Sigurðsson – eða Nonni kjuði, eins og hann hafði kallað sig í kynningarmyndbandi sveit- arinnar – á trommur, Jón Bjarni Pétursson á gítar, og söngvari sveitarinnar, Haukur Heiðar Hauksson, spilaði einnig á gítar. Söngvarinn gerði tilraun til að spjalla léttilega við áhorf- endur með litlum undirtektum og sveitin hóf leik sinn. „Þetta var stórmerkilegt,“ rifjar Haukur Heiðar upp í samtali við blaðamann Sunnudags- blaðsins. „Ég hafði aldrei komið fram með þeim áður, en þetta gekk vel og við komumst í úrslit.“ Sveitin hafði verið stofnuð árið áður og keppt í Músíktilraunum 1999, þá með söngkonuna Rakel Guðmundsdóttur í fararbroddi. Haukur Heiðar tók við sem söngvari þegar Rakel yfir- gaf sveitina og uppröðunin hefur haldist óbreytt síðan, í heila tvo áratugi. Dikta heldur 20 ára afmælistónleika í Eld- borgarsal Hörpu hinn 16. júní, en sveitin heldur einnig upp á tíu ára afmæli vinsælustu plötu sinnar, Get It Together. „Ef maður fagnar ekki þessum áfanga, hvenær fagnar maður þá?“ seg- ir Haukur og hlær. „Við urðum að gera eitthvað skemmtilegt úr þessu.“ 600 eintök af fyrstu plötu Tveimur árum eftir framkomu sína á Músík- tilraunum gaf Dikta út sína fyrstu plötu, Andar- tak. „Við vildum vera alvöruhljómsveit, og al- vöruhljómsveitir gefa út plötur. Svo við fórum að taka upp,“ segir Haukur. „Við gáfum út plöt- una með okkar eigin útgáfufyrirtæki, Mistak Hljómplötur. Hún var gefin út í heilum 600 ein- tökum, sem eru uppseld og verða aldrei gefin út aftur.“ Þótt aðdáendur hljómsveitarinnar hafi lengi kallað eftir endurútgáfu plötunnar tekur Haukur fyrir þann möguleika. „Við tókum þá afstöðu að platan kæmi bara út í 600 eintökum og þeir eiga hana sem eiga hana.“ Á sama tíma og sveitin vann að upptökum á plötunni Andartak þreytti Haukur Heiðar klás- uspróf inn í læknadeild Háskóla Íslands, en hann starfar í dag sem heimilislæknir á heilsu- gæslunni á Sólvangi í Hafnarfirði. „Þetta var oft ströggl,“ segir Haukur, „þetta er mikið sam- keppnisnám, svo það var víst að ég þyrfti að hella mér út í námið um haustið. En svo kom í ljós að ég gat ekki slitið mig frá þessu.“ Haukur segir það oft hafa verið krefjandi að finna jafn- vægi á milli námsins og tónlistarferilsins. Hinir meðlimir sveitarinnar hafa heldur ekki setið auðum höndum utan tónlistarinnar. Jón Þór trommuleikari starfar í dag sem flugmaður hjá Icelandair, Skúli Z bassaleikari hefur starf- að sem tónmenntakennari og stundar nú dokt- orsnám í tónlistarfræðum við háskólann í Washington og Jón Bjarni gítarleikari er kenn- ari við Flataskóla í Garðabæ. Organískur áratugur „Allt á fyrstu tíu árum hljómsveitarinnar var voðalega organískt,“ segir Haukur. „Við héld- um ekki mikið stóra fundi til að ákveða næstu skref, boltinn bara rúllaði. Við höfðum mikinn tíma, æfðum mikið, spiluðum á tónleikum. Við héldum bara áfram að ota okkar tota og þá byrjaði kontaktinn við [útgáfufyrirtækið] Smekkleysu.“ Árið 2005 hóf Dikta samstarf við upptöku- stjórann og gítarleikarann Martin „Ace“ Kent, meðlim bresku rokksveitarinnar Skunk An- ansie. Ace stjórnaði upptökum á annarri plötu Diktu, Hunting for Happiness, sem gefin var út af Smekkleysu og hlaut afar góðar viðtökur. Platan fékk fimm stjörnur af fimm mögulegum hjá Morgunblaðinu, þar sem rýnir fór um plöt- una fögrum orðum. „Hér sprettur fram þrosk- uð hljómsveit með fullburða verk sem stenst fyllilega samanburð við það allra besta sem er að gerast í heiminum í dag,“ skrifaði Höskuldur Ólafsson í Morgunblaðið í desember 2005. Fjöldi tækifæra fylgdi velgengni Hunting for Happiness og vinsældir sveitarinnar jukust. Platan var gefin út í Danmörku og Bretlandi og sveitin hóf að spila utan landsteinanna í aukn- um mæli. Auk þess höfðu meðlimirnir lært margt á að vinna með Ace. „[Ace] var mjög op- inn og duglegur að kenna okkur. Hann sýndi okkur margt og fór með okkur í gegnum ferlið á meðan við vorum að taka upp þessa plötu,“ seg- ir Haukur, en sveitin ákvað að nýta sér reynsl- una til að framleiða þriðju plötu sveitarinnar sjálfir. „Og það gekk,“ bætir Haukur við og hlær. Troðfylltu NASA Í aðdraganda þriðju breiðskífu hljómsveitar- innar fundu meðlimir fyrir breytingu. „Við tók- um eftir því að fleiri og fleiri voru að mæta á tónleika,“ útskýrir Haukur. „Fyrstu árin hafði þetta verið mjög hægvaxandi velgengni, en síð- an gáfum við út Get it Together. Þá fór allt mjög hratt upp á við. Við byrjuðum að fylla NASA, og troðfylla NASA, miklu fleiri en máttu vera þar inni. Og svo gerðum við það aft- ur. Þetta var nokkuð sem okkur dreymdi ekki um tveimur árum áður.“ Platan varð gríðarlega vinsæl á Íslandi og víðar. Vart mátti kveikja á útvarpi á árunum 2009 og 2010 án þess að heyra lög plötunnar berast á öldum ljósvakans. Platan seldist afar vel og fékk hljómsveitin platínu- plötu fyrir vikið. „Þetta var svolítið erfitt ferli,“ segir Haukur. „Við vorum að túra rosa mikið og urðum mjög vinsælir. Við héldum áfram að semja, en ein- beitingin fór í það að túra og vera í útlöndum.“ Platan var gefin út víða um heim og mikil vinna fór í að kynna hana í Þýskalandi, Austurríki og Sviss. „Svo voru liðin tvö ár og það var komin pressa að gefa út nýja plötu, bæði frá okkur og fleirum sem við vorum að vinna með. En við átt- um ekki nóg af lögum.“ Sumarið 2011 sögðu meðlimir sveitarinnar upp störfum sínum og einbeittu sér að upptöku nýrrar plötu, sem átti eftir að fá nafnið Trust Me. „Þetta var allt öðruvísi upplifun að semja þessa plötu,“ segir Haukur. „Við eyddum öllum dögum saman og við fundum fyrir mikilli pressu frá okkur sjálfum. Eftir á að hyggja hefði ég viljað hafa meiri tíma. Leyfa lögunum að meltast og koma meira út. En þannig var það ekki.“ Hljómsveitin hélt til Þýskalands til að taka upp næstu breiðskífu ásamt upptökustjóranum Sky van Hoff, sem hefur einnig stjórnað upp- tökum á plötum þýsku sveitarinnar Ramm- stein. Platan, sem ber nafnið Easy Street, var gefin út 2015. Fara yfir ferilinn Á dögunum gaf Dikta út nýtt lag, með þeim við- eigandi titli Anniversary, en lagið er nú í spilun á öllum helstu útvarpsstöðvum landsins. „Bransinn hefur breyst mikið. Fólk er ekki lengur að bíða eftir plötum heldur lögum. Við höfum verið að vinna í nokkrum lögum sem munu líka koma út, en það er spurning um hve- nær og í hvaða formi,“ segir Haukur. Dikta í tuttugu ár Tveir áratugir eru liðnir frá stofnun hljómsveitarinnar Diktu og að gefnu tilefni mun sveitin halda afmælistónleika í Hörpu í vikunni. Haukur Heiðar, söngvari Diktu, sest niður og rifjar upp feril einnar ástsælustu hljómsveitar landsins. Pétur Magnússon petur@mbl.is Haukur Heiðar hefur verið söngvari Dikta síðan 1999. Morgunblaðið/Eggert Dikta hefur lengi verið ein vinsælasta hljómsveit lands- ins og munu halda 20 ára afmælistónleikum í Hörpu. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.