Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.6. 2019
Þ
að gerðist ekki mikið á 90 ára afmæli
Sjálfstæðisflokksins og reyndar var
engu líkara en að afmælið brysti
óvænt á og það þrátt fyrir óvænta
heiðursgesti, formann VG, formann
Framsóknarflokksins, þá sömu sem
vildu draga fyrrverandi formann flokksins, Geir H.
Haarde, fyrir Landsdóm í þeim yfirlýsta tilgangi að
koma honum á bak við lás og slá.
Af hverju fámenni?
Fyrsti heiðursgestur flokksins var nýbúinn að lýsa
því yfir að hún vildi að sett yrðu lög sem heimiluðu
konum að ákveða að farga ófæddu barni sínu allt þar
til komið væri að fæðingu þess eftir 9 mánaða með-
göngu.
Það er enginn vafi á því að væru almennir sjálf-
stæðismenn spurðir um þessa draumsýn formanns
VG þætti yfirgnæfandi meirihluta þeirra þetta fjar-
stæðukennd afstaða ef ekki beinlínis óhugguleg.
Þá mun varaformaður Samfylkingar einnig hafa
verið í hópi útvalinna heiðursgesta. Samfylkingar-
forystan kallar barn sem kona gengur með „frumu-
klasa“ allt að fæðingu eins og fram hefur komið.
Varla er hægt að kenna vali á heiðursgestum í
þessu afmæli um það hversu illa samkundan var
sótt, þótt vorsólin blíða léti sitt ekki eftir liggja og
einhverjir hoppukastalar til taks.
En af hverju þurfti að læðast með veggjum með
þetta afmæli? Það er vissulega megn óánægja í
flokknum og þá ekki síst meðal kjósenda hans og
hugsanlegra kjósenda með óskiljanlega framgöngu
flokksins í orkupakkamálinu, þar sem hiklaust er
byggt á blekkingum, sem raunar eru fjarri því að
vera lofsverðar. Það hefur birst í fjölda aðsendra
greina í blaðinu, sem eru hófstilltar og málefnalegar:
Grein Jóns
Grein Jóns Hjaltasonar var óvænt, hárbeitt og hitti
beint í mark. Jón talar í grein sinni beint til forystu
Sjálfstæðisflokksins er hann segir:
„Nú um stundir sýnist mér sem flokksforystunni
þyki helst við hæfi að hnýta í þann formann sem
verið hefur þjóðinni og flokknum drýgstur og best-
ur. Mér stendur stuggur af ykkur því ég hefi þungar
áhyggjur af flokknum. Ég hef rætt við hundruð fé-
lagsmanna sem hugnast ekki ferðalag ykkar og
hyggjast ekki slást í þá för.
Ég stikla aðeins á stóru er ég nefni nokkur atriði
sem eru núverandi forystu til vansa, svo vægt sé til
orða tekið.
Þið hafið nánast ekkert gert til að tálga niður þá
ofurskatta sem Steingrímur lagði á þjóðina því „það
varð hér hrun“.
Þið hafið ekkert gert til að afnema hinn þrepa-
skipta tekjuskatt þeirra Steingríms og Jóhönnu þótt
við hefðum áður verið með skattkerfi sem aðrar
þjóðir öfunduðu okkur af.
Þið dragið óendanlega lappirnar með að lækka
tryggingagjaldið.
Þið réðuð Má Guðmundsson sem seðlabanka-
stjóra, ekki einu sinni heldur tvisvar. Þið svikust
undan merkjum með því að samþykkja Icesave.
Þið hafið þrátt fyrir langa stjórnarsetu heykst á að
afturkalla ESB-umsóknina. Þið hyggist gegn vilja
flokksins og meirihluta þjóðarinnar troða inn á okk-
ur orkupökkum framtíðarinnar.
Þið takið fullan þátt í stimpilpúðaafgreiðslu alþing-
is á öllu sem frá ESB kemur. Ekki er annað að sjá
en ætlun ykkar sé að troða okkur þar inn bakdyra-
megin, þvert á vilja flokks og þjóðar. Þið gerið ekk-
ert til að slá á þá gerræðislegu hugmynd að færa
Reykjavíkurflugvöll.
Þið gerið heldur ekkert til að hamla brautargengi
hinnar fáránlegu Borgarlínu. Þið gerið ekkert til að
koma böndum á borgina sem á örfáum árum hækkar
fasteignagjöld um tæp 50% auk þess að vera með út-
svarið uppi í rjáfri
Þið styðjið nánast takmarkalausar fóstureyðingar
og kallið það „að móta framtíðina“.
Þið gerið ekkert til að koma böndum á fjársóun og
fáránleika í heilbrigðisráðuneytinu.
Þið gerið ekkert til að koma a.m.k. einhverju
skikki á opingáttarflæði hælisleitenda. Þið köstuðuð
fyrir róða eina ráðherranum sem sýnt hefur stað-
festu, þor og dug.
Þið hafið tekið ríkan þátt í að þenja út ríkisbáknið
og hítina þá, þrátt fyrir allt önnur fyrirheit. Enginn
flokkur annar hefur verið lengur og oftar við völd
undanfarna áratugi. Það hefur ekki verið skortur á
tækifærum til að efna eitthvað af loforðunum um að
minnka fitulagið á bákninu.
Þið takið fullan þátt í að reka kaupfélag í Leifsstöð
þrátt fyrir gömlu góðu heitin um einkarekstur og
einstaklingsframtak.
Þið berið mesta ábyrgð allra flokka á RÚV en haf-
ið hvorki kjark né döngun til að kveða niður þá
ósvinnu sem þar ríður húsum. Þið eruð um þessar
mundir með áætlun um að afnema millifæranleg
skattþrep milli hjóna þótt fjölskyldan og velferð
hennar hafi frá upphafi verið eitt grunnstefja flokks-
ins.
Ég velti fyrir mér hvort ekki væri farsælla að þið
færuð frá flokknum en að flokkurinn fari frá ykkur.“
Símtalið
Það hringdi pýðilegur áskrifandi, en það má segja
um þá alla, daginn sem grein Jóns birtist. Hún bað
um samtal við þann sem þetta ritar. „Hvað finnst
þér um grein Jóns í morgun?“ „Meira máli skiptir
hvað þér þykir,“ sagði ritstjórinn. „Mér finnst hún
hrikaleg.“ „Og hvað þykir þér hrikalegast við hana?“
„Hún er svo sönn. Hrikalega sönn. Og það sem enn
lakara var að ég sem fylgist ekkert mjög vel með
gat í sjónhendingu bætt fjölda atriða við þennan
lista.“
Miðað við samræmdar árásir sem leyna sér ekki
og spunameistarar halda utan um og Jón nefnir í
upphafi sinnar greinar er rétt að taka fram að rit-
stjórar Morgunblaðsins hafa ekkert heyrt um stefnu
eða rökstuðning þingmanna Sjálfstæðisflokksins.
Morgunblaðið er borgaralegt blað og þótt það lúti
ekki fjarstýringum utan úr bæ frá flokkum eða ein-
staklingum lætur að líkum að blaðið ætti oftar en
ekki að geta átt góða samleið með flokknum ef hann
er sjálfum sér samkvæmur og heill í fögrum fyrir-
heitum sínum.
Allt lá fyrir
Hvað orkupakkamálið varðar gat enginn ætlað ann-
að. Landsfundur flokksins hafði lagt línuna: „Sjálf-
Það er ástæðulaust að
tala niður til flokks-
manna eins og gert er
’Það hringdi pýðilegur áskrifandi, enþað má segja um þá alla, daginn semgrein Jóns birtist. Hún bað um samtal viðþann sem þetta ritar. „Hvað finnst þér
um grein Jóns í morgun?“ „Meira máli
skiptir hvað þér þykir,“ sagði ritstjórinn.
„Mér finnst hún hrikaleg.“ „Og hvað
þykir þér hrikalegast við hana?“ „Hún er
svo sönn. Hrikalega sönn.“
Reykjavíkurbréf07.06.19