Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Síða 28

Morgunblaðið - Sunnudagur - 09.06.2019, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9.6. 2019 LESBÓK KVIKMYNDIR Leikarinn Hugh Grant segist sjá eftir mörgum af þeim kvikmyndum sem hann lék í á sínum tíma. „Hver ein- asta ákvörðun mín var líklega röng,“ segir hjartaknúsarinn í samtali við Hollywood Reporter. „Ég hefði átt að leika í áhuga- verðari kvikmyndum og gera fjölbreyttari hluti. Í staðinn gerði ég það sama svona 17 sinnum í röð.“ Hann segist aldrei hafa losað sig við hugarfar atvinnulausa leikarans. „Ég sam- þykkti allt. Því verra sem það var, þeim mun fljótari var ég að samþykkja.“ Grant, sem hefur að mestu leikið í rómantískum gamanmyndum á ferli sín- um, segist þrátt fyrir allt hafa notið þess að leika í myndunum og ástæða þess að hann geri minna af því nú sé einföld. „Ég er orðinn of gamall, ljótur og feitur.“ Því verra því betra AFP SJÓNVARP Fimmta þáttaröð óhugnanlegu framtíðarþáttanna Black Mirror kom út á streymisveitunni Netflix í liðinni viku. Þætt- irnir eru þrír talsins sem er talvert færra en aðdáendur þáttanna hafa átt að venjast. Þætt- irnir nýju hafa fengið misjafna dóma en gagn- rýnandi BBC telur fyrsta þáttinn vera þann besta en hina tvo ekki standa undir vænting- um. Þættirnir hafa á síðustu árum safnað stórum hópi aðdáenda með áhugaverðum en um leið óhugnanlegum sögum um samband mannskepnunnar við tækniframfarir í bæði nánustu og fjarlægri framtíð. Hafa þættirnir vakið marga til umhugsunar um slíkt. Ný þáttaröð Black Mirror Anthony Mackie í Black Mirror. IMDB Beyoncé leikur ljónynju. Konungleg stikla KVIKMYNDIR Það styttist óðum í að ný kvikmynd um konung ljón- anna komi út. Hérlendis kemur hún út hinn 17. júlí næstkomandi en ný stikla var frumsýnd á dögunum. Þar geta netverjar heyrt rödd söngkonunnar Beyoncé Knowles í hlutverki ljónynjunnar Nölu og má gera ráð fyrir því að hún leiki stórt hlutverk í myndinni. Hinn fjölhæfi Donald Glover, betur þekktur sem Childish Gambino, fer með hlut- verk Simba í myndinni sem beðið er með eftirvæntingu. Aðra sem fara með hlutverk í myndinni má nefna Seth Rogen, James Earl Jones og Chiwetel Ejiofor sem ljá Púmba, Múfasa og Skara raddir sínar. Hver er kostnaður lyga? Hanner ekki sá að við munumtaka þeim sem sannleik. Hin raunverulega hætta er sú að ef við heyrum nógu margar lygar þekkj- um við ekki lengur sannleikann. Hvað gerum við þá?“ Á þessum orðum hefst ný þáttaröð úr smiðju HBO. En nei, hér er ekki fjallað um falsfréttir á öld samfélagsmiðla heldur um kjarn- orkuslysið í Tsjernóbíl árið 1986. Olli miklum skaða Rétt rúm 33 ár eru frá því að spreng- ing varð í kjarnakljúf nr. 4 í kjarn- orkuverinu Tsjernóbíl í Sovétríkj- unum, þar sem Úkraína er nú. Varð það til þess að kjarni kljúfsins eyði- lagðist og gífurlegu magni geisla- virkra efna var sleppt út í andrúms- loftið, sem bárust m.a. til Vestur-Evrópu. Kjarnorkuslysið er það alvarlegasta í sögunni. Slysið átti sér stað við öryggispróf innan kljúfsins í skjóli nætur, nánar tiltekið þegar klukkan hafði gengið 23 mínútur og 40 sekúndur í tvö að stað- artíma, hinn 26. apríl 1986. Valdur slyssins var bæði röng uppsetning kljúfsins fyrir prófið sem og gallar í hönnun hans. Ekki eru enn öll kurl komin til grafar er varða afleiðingar slyssins og enn deila menn um eðli þeirra. Ljóst þykir að mikill fjöldi bæði starfsmanna kjarnorkuversins sem Sannleikurinn mun ná þér Síðasti þátturinn í þáttaröð um slysið í kjarn- orkuverinu í Tsjernóbíl kom út á mánudag. Þætt- irnir draga upp ljóta mynd af viðbrögðum stjórn- valda sem einkenndust af afneitun og lygum. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Margir hættu lífi sínu við hreinsun á svæðinu eftir slysið. IMBD Höfundur þáttanna um slysið í Tsjernóbíl er Bandaríkjamaðurinn Craig Mazin. Ferill hans sem handritshöfundur í Hollywood hefur til þessa markast af tiltölulega slöppum grínmyndum. Það kemur því þeim sem þekkja til á óvart að hann skuli framleiða og skrifa jafn dramatíska þætti og þessa. Mazin er líklega hvað þekktastur fyrir skrif sín fyrir myndirnar Hangover Part II og Part III. Sjálfur segist Mazin hafa fengið áhuga á slysinu þegar hann komst að því að Valerí Legasov, stjórnandi sovésku nefndarinnar sem rannsakaði slysið, framdi sjálfsmorð tveimur árum eftir slysið, upp á dag. Hann hafi ekkert vitað um slysið annað en að kjarnorkuverið hafi sprungið, þegar hann hóf að afla sér upplýsinga fyrir gerð þáttanna. Ef marka má það lof sem þættirnir hafa fengið má gera að ráð fyrir að Mazin láti að sér kveða í gerð dramatískra þátta á næstunni. Úr þynnkunni yfir í Tsjernóbíl Craig Mazin er höfundur þáttanna. Hugh Grant var afar vinsæll á árum áður. SÉRBLAÐ Grillblað • Grillmatur • Bestu og áhugaverðustu grillin • Áhugaverðir aukahlutirnir • Safaríkustu steikurnar • Áhugaverðasta meðlætið • Svölustu drykkirnir • Ásamt fullt af öðru spennandi efni fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 14. júní PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagsins 11. júní. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Jón Kristinn Jónsson Sími 569 1180, jonkr@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.