Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2019, Qupperneq 10
AFSAKIÐ
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.6. 2019
H
ún getur verið hárfín, línan á
milli eðlilegra útskýringa og
hreinna afsakana þegar eitt-
hvað fer úrskeiðis í þessu lífi
og ekki alltaf gott að greina
þar á milli. Það á við í íþróttum eins og á öðrum
sviðum mannlífsins. Síðan getur þessi ágæta
lína auðvitað alls ekkert verið svo fín; menn
grípa nefnilega á köflum til undarlegustu afsak-
ana í örvæntingu sinni sem enginn trúir – og
mögulega ekki einu sinni þeir sjálfir. Menn
tapa, gera slæm mistök í hita leiksins, falla á
lyfjaprófi og þar fram eftir götunum og bera
ekki nokkra ábyrgð á því sjálfir. Og þegar kem-
ur að þessum afsökunum þá virðist hugmynda-
flugi manna engin takmörk sett, ef marka má
lauslega úttekt Sunnudagsblaðsins.
Tapsárir íþróttamenn eru þjóðflokkur út af
fyrir sig og af einhverjum ástæðum virðast þeir
alltaf vera með munninn fyrir neðan nefið. Gott
dæmi um það er sambíski tennisleikarinn
Lighton Ndefwayl. Eftir að hafa lotið í leir
gegn Musumba nokkrum Bwayla árið 1992
gerði hann upp leikinn í samtali við fjölmiðla:
„Bwayla er illa gefinn og afleitur leikmaður.
Hann er nefstór og rangeygður. Stúlkur hafa
ímugust á honum. Hann vann mig vegna þess
að pungbindið mitt var of þétt og út af því að
hann rekur við þegar hann gefur upp; það varð
til þess að ég tapaði einbeitingunni, sem ég er
víðfrægur fyrir í gjörvallri Sambíu.“
En sú ósvinna!
Það eru ekki bara pungbindin.
Þegar krikketlandslið Sri
Lanka tapaði úrslitaleik gegn
Pakistan árið 2001 var það alls
ekki getuleysi leikmanna að kenna
– heldur þeirri staðreynd að bún-
ingarnir voru of þröngir. Ekki
fylgdi sögunni hvort hönnuðurinn var
látinn taka pokann sinn í framhaldinu.
Rangur skíðaáburður
Finnum var spáð góðu gengi á Skíðaleik-
unum í Svíþjóð árið 1955 en það fór á annan
veg. „Því var almennt spáð að finnsku stúlk-
urnar myndu verða sigursælar eins og und-
anfarin ár en svo brá við að þær urðu síðastar.
Er því kennt um að bæði þær og eins karlarnir
hafi notað rangan skíðaáburð og því hafi farið
sem fór. Kom þetta mjög á óvart, en því er spáð
að þetta hendi tæpast öðru sinni í bráð,“ sagði í
Þjóðviljanum en þessi „skýring“ átti eftir að
heyrast aftur, meðal annars hjá íslenskum
skíðagöngumönnum og fróðir menn hafa tjáð
greinarhöfundi að sitthvað sé til í henni.
„Kærastan mín truflaði mig,“ sagði Iker
Casillas, markvörður spænska knattspyrnu-
landsliðsins, um sigurmark Svisslendinga í
upphafsleiknum á HM 2010. Mönnum þótti það
mátulega trúverðug skýring en þetta kom þó
ekki að sök því Spánverjar hömpuðu heimsbik-
arnum í mótslok, í fyrsta og eina sinn.
Sir Alex Ferguson var jafnan með svör á
reiðum höndum, þá sjaldan Manchester United
lék illa undir hans stjórn. Þegar liðið gekk til
búningsherbergja í leikhléi gegn Southampton
árið 1996, þemur mörkum undir, lét hann það
skipta um búninga. Þeir fyrri, sem voru gráir,
gerðu það nefnilega að verkum að leikmenn
United sáu meðherjana seint og illa. Klippt og
skorið.
Aðra goðsögn, Bill Shankly, sem stýrði Liv-
erpool um árabil, rak heldur ekki í vörðurnar
eftir að lið hans tapaði 7:2 fyrir Tottenham.
„Hefði Jimmy Greaves ekki skorað fernu þá
hefðum við ekki tapað svona stórt.“
Erfitt að andmæla því.
Blindaðist af skallanum
Chris Mooney, sem varði um tíma mark enska
knattspyrnuliðsins Rotherham, fékk einu sinni
á sig ægilegt klaufamark. Eins og hann hafi
fengið við það ráðið! Sólin endurvarpaðist
nefnilega á þessu afdrifaríka augnabliki af sam-
herja hans, Nick Smith, sem var nauðasköllótt-
ur, og blindaði aumingja Mooney.
Johnny Weir, listdansari á skautum,
komst ekki á verðlaunapall á Ólymp-
íuleikunum 2006 og leitaði ekki langt
yfir skammt að sökudólgi – skauta-
höllinni. „Mér leið aldrei vel í
þessari byggingu. Fann ekki
innri frið. Fann ekki áruna
mína.“
Árans vandræði.
Hafnaboltamaðurinn Dock
Ellis mætti í annarlegu ástandi
til leiks með liði sínu, Pittsburgh
Pirates, árið 1970, og stóð sig í
samræmi við það. Seinna viður-
kenndi hann að hafa verið á
LSD. Og hvernig gat það gerst á
leikdegi? Ekki stóð á svari frá
Ellis: „Ég ruglaðist á dögum!“
Árið 2010 tapaði New York
Knicks fyrir Oklahoma City
Thunder í NBA-deildinni.
Leikmenn liðsins báru
þó enga ábyrgð
á óförunum, heldur
afturgöngur sem léku
lausum hala á hóteli
liðsins nóttina fyrir
leikinn og héldu vöku
fyrir logandi hrædd-
um leikmönnunum
sem hjúfruðu sig
svefnvana hver upp að
öðrum.
Foxillur flota-
foringi
Talandi um drauga þá
tapaði Blackpool afar
mikilvægum leik fyrir
Bradford City í ensku
Ryan Giggs átti litla möguleika á að koma auga
á David Beckham félaga sinn í Manchester
United í frægum leik gegn Southampton 1996.
Sky Sports
Sara Carbonero, þáverandi kærasta og nú-
verandi eiginkona, hefur ætíð verið Iker
Casillas hugleikin, innan vallar sem utan.
Afturganga Horatios Nelsons flotafor-
ingja blandaði sér óvænt í knattspyrnu-
leik Blackpool og Bradford um árið.
Illa gefinn,
nefstór og
rangeygður
Vofur, geitur, dádýr, eldingar, nefstórir andstæðingar, litblinda,
straujárn, strípimeyjar, rangur áburður, útkastshorn, dúfnabök-
ur og blóð úr tvíbura sem aldrei fæddist eru á meðal skýringa/
afsakana sem íþróttamenn hafa gripið til gegnum tíðina í því
skyni að bera blak af sér vegna ófara – innan vallar sem utan.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Hjólreiðakappinn Tyler Hamilton
kvaðst vera með blóð úr tvíbura-
bróður sínum sem aldrei fæddist.
Þessar urðu allar fyrir
eldingu árið 2011.
AFP
Johnny Weir
fann sig illa í
skautahöllinni á
ÓL 2006.
Hinn móðgunargjarni William Sianis og geitin góða
sem lögðu álög á Chicago Cubs. Álögin stóðu í 71 ár.
Strípimær „smitaði“ Richard
Gasquet af kókaíni.
Nuddarinn
gerði Justin
Gatlin grikk.
AFP
AFP
Dock Ellis mætti á sýrutrippi til leiks.
Fór dagavillt, blessaður.