Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2019, Síða 11

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2019, Síða 11
16.6. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11 knattspyrnunni árið 1996. Aumingja leikmenn- irnir voru þó saklausir enda réðust úrslitin víst þegar vofa Nelsons flotaforingja gekk af göfl- unum í stjórnarherbergi Blackpool. Nelson heitinn var í þessu samhengi sagður hafa verið áhangandi Bradford og kunni því illa að eikarp- anellinn í stjórnarherberginu hafi komið úr flaggskipinu hans. Það dregur aðeins úr trú- verðugleika þessarar sögu að Bradford City var ekki stofnað fyrr en 98 árum eftir andlát Nelsons. En mögulega var það vofan sem batt sitt trúss við félagið. Fyrsta veturinn sem leikstjórnandinn Vinny Testaverde lék með Tampa Bay Buccaneers í NFL-deildinni komust andstæðingar liðsins 35 sinnum inn í sendingar kappans. Ekki var þó við Testaverde sjálfan að sakast, heldur þá staðreynd að hann er litblindur. Ansi óheppi- legt fyrir íþróttamann sem þarf að greina með- herja frá mótherjum á sekúndubroti. Mögu- lega hefði Testaverde átt að velja annað sport. Menn koma sjaldan að tómum kofunum hjá Norður-Kóreubúum og eftir að kvennalið þjóð- arinnar laut í gras gegn Þjóðverjum á HM 2011 tjáði þjálfarinn blaðamönn- um að ástæðan fyrir slakri frammistöðu leikmanna í seinni hálfleik væri sú að þeir hefðu allir sem einn orðið fyrir eldingu meðan á æfingaleik stóð í Pyon- gyang um mánuði fyrr. Viðstaddir tóku þessu með fyrirvara minnugir þess að hinn mikli leið- togi Norður-Kóreu, Kim Il-sung, var á sínum tíma sagður hafa farið ellefu holur í höggi á ein- um og sama golfhringnum. Hjátrú er snar þáttur í íþróttum. Bæði hjá íþróttamönnunum sjálfum og ekki síður áhang- endum þeirra. Hitt er þó sjaldgæft að heilt fé- lag hafi áratugum saman getað kennt hjátrú um ógengi sitt. William nokkur Sianis móðgað- ist heiftarlega þegar hann var beðinn um að yf- irgefa heimavöll hafnaboltaliðsins Chicago Cubs árið 1945 vegna þess að öðrum áhorfend- um þótti gælugeitin hans lykta illa. „Cubs eiga aldrei eftir að vinna aftur,“ gall í honum á leið- inni út. Í 71 ár gátu leikmenn Cubs falið sig sig á bak við geitarbölvunina enda vonlaust við hana að eiga, að því er virtist. Það breyttist árið 2016 þegar Cubs varð loks Bandaríkjameistari í hafnabolta og bölvuninni var aflétt. Meiddist við dádýrsburð Íþróttamenn geta að sjálfsögðu orðið fyrir meiðslum utan vallar sem innan og þá ríður á að þenja út hugmyndaflugið til að friða þjálf- arann. Og kalla jafnvel fram smá samúð. Hafnaboltamaðurinn Clint Barmes gaf einu sinni þá skýringu þegar hann mætti meiddur á æfingu hjá liði sínu, Colorado Rockies, að hann hefði orðið fyrir hnjaski þegar hann bar mat- vörur í þar til gerðum poka í hús. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að Barmes hafði í raun verið að rogast með dádýrsskrokk sem liðsfélagi hans hafði gefið honum. Þekkt er að lifandi dádýr geta valdið miklu tjóni og jafnvel meiðslum þegar ekið er á þau en hitt er líklega fátíðara að dauð dádýr slasi mann. Hvað þá stríðþjálfaðan íþróttakappa. Hafnaboltamaðurinn Jeff Kent hélt því einu sinni fram að hann hefði úlnliðsbrotnað við það að þvo bílinn sinn. Í raun og veru hafði hann slasast við að prjóna á vélhjóli sem var klárt brot á samningi hans við liðið. Kent til ama þá gáfu nokkrir sjónarvottar sig fram og hann var sektaður. Hér er að lokum ein ósönn hnjasksaga – en of góð til að sleppa henni. Árið 1990 fór frétt þess efnis að hafnaboltamaðurinn John Smoltz hefði brennt á sér bringuna þegar hann var að strauja skyrtuna sína meðan hann var klæddur í hana eins og eldur í sinu um heimsbyggðina. Blaðið Atlanta Journal Constitution vitnaði meira að segja beint í Smoltz: „Ég trúði þessu ekki. Ég hef gert þetta fimm eða sex sinnum áður án þess að þetta hafi gerst.“ Smoltz bar söguna seinna til baka. Kannaðist ekki við að hafa beitt straujárninu með þessum frumlega hætti. Smitaður af kókaíni Árangursbætandi lyf hafa löngum verið plága í heimi íþróttanna og iðulega er það sama sagan þegar menn eru nappaðir; þeir koma af hæstu fjöllum. Spretthlauparinn Justin Gatlin var sem frægt er gómaður fyrir lyfjamisnotkun þegar ferill hans stóð sem hæst. Að sjálfsögðu var ekki við hann sjálfan að sakast. „Ég notaði ekki lyf – skemmt var fyrir mér. Nuddarinn bar testósterónkrem á fæturna á mér án minn- ar vitneskju.“ Ekki var hlustað á þær röksemdir en tennis- leikaranum Richard Gasquet gekk betur að sannfæra dómendur eftir að kókaín fannst í blóði hans árið 2009. Eftir að hafa verið upp- haflega dæmdur í bann var þeim úrskurði hnekkt þegar Gasquet hafði gert hreint fyrir sínum dyrum. Kappinn hafði sumsé villst inn á strípibúllu og lent í frönsku kossaflensi við eina dansmærina sem hafði verið svo ósvífin að neyta kókaíns fyrr um kvöldið. Þess vegna var hann með efnið í blóðinu. Ha, haugalygi? Nei, þetta er sönn saga! Hjólreiðamaðurinn Alberto Contador var heldur ekki í vafa þegar hann mældist með ólögleg efni í líkamanum og var dæmdur í bann. „Ég borðaði mengað kjöt!“ Árið 1983 fannst striknín í blóði hollenska hjólreiðakappans Adri van der Poel en í smáum skömmtum getur eitrið haft örvandi áhrif. Van de Poel kom að vonum af fjöllum en lét þess getið að hann hefði skömmu áður borðað yfir sig af dúfnaböku tengdaföður síns. Hráefnið í bökuna voru víst bréfdúfur sem hlytu, að sögn hjólreiðakappans, að hafa verið á strikníni. Já, já, þetta er líka satt. Fyrir ykkur sem misstuð ekki þráðinn þegar dúfnabökuna bar á góma. Þegar lyfjapróf leiddi í ljós að spretthlaupar- inn Dennis Mitchell var með of mikið testóster- ón í blóðinu árið 1998 gaf hann þá skýringu að hann hefði hvolft í sig nokkrum bjórum kvöldið fyrir prófið og notið í framhaldinu ásta í fjór- gang með eiginkonu sinni. Spurður nánar um þau hraustlegu rekkjubrögð svaraði Mitchell: „Hún átti afmæli og ég vildi gera vel við hana.“ Þyki mönnum það svar frumlegt, skoðið þá þetta: Þekkt er að blóðgjöf örvar súrefnisflæði og getur haft góð áhrif fyrir keppni. Þegar blóð- prufa leiddi í ljós blóð í æðakerfinu sem ekki var úr honum sjálfum gáfu menn sér að hjól- reiðamaðurinn Tyler Hamilton hefði beitt þess- ari aðferð. Svo var ekki, alltént ef marka má Hamilton sjálfan. Þannig er mál með vexti að hann hafði misst tvíburabróður sinn í móður- kviði og eitthvað af frumum hans orðið eftir í blóðinu. Blóðið var sumsé ekki úr Hamilton sjálfum, heldur tvíburabróður hans sem aldrei fæddist. Eins ótrúlega og það hljómar þá getur þetta í raun og veru gerst en er á hinn bóginn ofboðs- lega sjaldgæft. Nógu sjaldgæft til þess að lyfja- eftirlit Bandaríkjanna dæmdi Hamilton í tveggja ára keppnisbann. Það tengist ekki beint íþróttum en árið 2007 var vatnsflaska tekin af ruðningskappanum Michael Wick á flugvellinum í Miami. Ástæðan var sú að á henni var leynihólf sem tollvörðum þótti anga af marjúana. Engin fíkniefni fundust þó í flöskunni og Wick fékk að fljúga sína leið. Síðar hélt hann því fram að leynihólfið hefði verið til þess fallið að geyma skartgripi – svo að hann týndi þeim ekki. Fann ekki fyrir fótunum Eins og gengur valda íþróttamenn andstæð- ingum sínum annað slagið skaða og oftar en ekki er ásetningurinn víðsfjarri. „Ég datt,“ sagði úrúgvæski knattspyrnu- maðurinn Luis Suárez sem frægt var eftir að hann beit Ítalann Giorgio Chiellini á HM 2014. Fáir keyptu þá skýringu enda aðferðin þekkt úr vopnabúri Suárez. Ndamukong Suh, varnarmaður Detroit Lions í NFL-deildinni, steig fyrir nokkrum ár- um illa á ökklann á andstæðingi sínum sem lá flötum beinum á vellinum. Í framhaldinu var hann dæmdur í leikbann en því var aflétt af áfrýjunardómstóli eftir að Suh gerði grein fyrir máli sínu. Það var hávetur og fimbulkuldi með þeim afleiðingum að hann fann ekki fyrir fótum sínum og gat fyrir vikið ekki gert greinarmun á grasinu og fæti mótherjans. Já, það getur borgað sig að malda í móinn. ’Mér leið aldrei vel íþessari byggingu.Fann ekki innri frið.Fann ekki áruna mína. Einar Vilhjálmsson var á heimsmæli-kvarða í spjótkasti á níunda áratugnumog fór með Gleðibanka-væntingar heillar þjóðar á herðunum inn á Ólympíu- leikana í Los Angeles 1984 (og það áður en Gleðibankinn var saminn). Hann náði sjötta sæti á leikunum, sem var sannarlega frábær árangur og mun betra en sextánda sæti, en var þó nokkuð frá sínu besta. Í samtali við fjöl- miðla að keppni lokinni gat Einar þess að gríð- arlega erfitt hefði verið að átta sig á því hvern- ig útkastshornið átti að vera. Menn, leika sem lærða, greinir ennþá á um það hvort hér hafi verið á ferðinni skýring eða afsökun en það breytir ekki því að frasinn fór á mikið flug hér í fásinninu og dæmi um að framhalds- skólanemar hafi notað hann til að útskýra/ afsaka slælega frammistöðu á prófum. „Út- kastshornið hentaði ekki!“ Annar spjótkastari, Ásdís Hjálmsdóttir, náði sér engan veginn á strik á Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016; enda ekki við því að búast, hún var nefnilega í formi lífs síns. „Þetta er nátt- úrulega voðalega svekkjandi. Það er bæði já- kvætt og neikvætt við þetta að ástæðan fyrir því að ég er að gera þessi köst ógild er [að ég er] svo hroðalega fersk og hröð núna,“ sagði Ásdís við Ríkisútvarpið. Á móti sól Uppkast dómarans réð úrslitum þegar KR tap- aði knattspyrnuleik fyrir Val árið 2014, 1:2. „Mjög slæm byrjun á leiknum skipti sköpum. Það er eiginlega hægt að segja að á svona dög- um þá er mjög slæmt að tapa uppkastinu, því það var rosalega erfitt að spila á móti sólinni hérna í fyrri hálfleik. Við náðum aldrei nein- um takti og það var mjög erfitt að horfa bara fram á við,“ sagði Baldur Sigurðsson, fyrirliði KR, eftir leik. Í leik sömu liða fyrir meira en hálfri öld áttu Valsmenn á brattann að sækja, voru 7:0 und- ir, segir sagan. Þegar Árni Njálsson, hinn grjótharði bakvörður Vals, hreinsaði hátt í loft upp svo minnstu munaði að tuðr- an færi á spor- baug um jörðu skammaði sam- herji hann: „Hættu þessu, við verðum að halda boltanum niðri og spila!“ Árni var á öðru máli og svaraði um hæl: „Nei, þeir skora ekki á meðan!“ Of mikið magn af karlhormónum Hjalti Árnason, gjarnan nefndur Úrsus, féll á lyfjaprófi eftir að hafa orðið heimsmeistari í kraftlyftingum árið 1991. Hann sór þó alltaf og sárt við lagði að hann hefði aldrei neytt ólöglegra lyfja. Testósterón í honum væri á hinn bóginn meira en gerist og gengur. „Þetta eru óskaplega flókin mál og menn greinir mjög á um gildi þessara lyfjaprófa. Þar á ég ekki við það þegar ólögleg lyf finnast í mönn- um heldur þegar of mikið magn af karlhorm- ónum finnst hjá íþróttamönnum eins og í mínu tilfelli. Það er leyfilegt að vera með ákveðið hlutfall, upp í 6, af karlhormónum í líkaman- um og ég mældist með 9. Var aðeins 3 yfir leyfilegum mörkum. Ég veit um mikil karl- menni sem hafa mælst með hlutfallið 50 í lík- amanum. Færustu vísindamenn heims standa ráð- þrota frammi fyrir þessu máli,“ sagði Hjalti í samtali við DV. Lyfjanefndin tók þær röksemdir ekki gildar og Hjalti var dæmdur í þriggja ára keppnisbann. Loks var það Carl J. Ei- ríksson skotmaður, eftir að hann lenti í 50. sæti á móti. „Ég fékk mikinn hjart- slátt, mun meiri en ég er vanur. Það getur verið af miklum hita, ég er alltaf sveittur hér. Þessi mikli hjartsláttur var aðalástæðan fyrir því að mér gekk ekki betur.“ Útkastshornið vann ekki með Einari Vilhjálmssyni. Morgunblaðið/Eva Björk Erfitt að átta sig á útkastshorninu Hjalti „Úrsus“ Árnason lenti í klandri vegna of mikilla karlhormóna. Morgunblaðið/Eggert Ásdís Hjálms- dóttir var í of góðu formi á ÓL í Ríó. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Baldur Sigurðsson átti í basli með að horfa upp í alla sólina.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.