Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2019, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16.6. 2019
LÍFSSTÍLL
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Elskaðu. Lifðu. Njóttu.
FEMARELLE REJUVENATE
• Minnkar skapsveiflur
• Stuðlar að reglulegum svefni
• Eykur orku
• Eykur teygjanleika húðar
• Viðheldur eðlilegu hári
Égmæli hiklaust með Femarelle.
Þegar ég var 45 ára fór ég að finna fyrir hitaköstum bæði á daginn og einnig á nóttunni, sem
var mjög skrítið því mér var venjulega alltaf svo kalt. Þegar þetta ágerðist fór ég að spá í því
hvað væri í gangi. Ég las um Femarelle sem konur á mínum aldri væru að taka með góðum
árangri og ákvað að prófa. Ég fann strax mikinn mun á c.a. þremur vikum þannig að hef
haldið áfram að taka Femarelle og það stendur ekki til að hætta að taka það.
Get því hiklaust mælt með því.
Þórunn Elfa Magnúsdóttir.
Ef fjárhagurinn leyfir gerir það
ferðalög alltaf þeim mun eft-
irminnilegri að gista á framúrskar-
andi hótelum með merkilega sögu. Í
Kambódíu er valið þá ósköp einfalt:
Raffles.
Lífskúnstnerar ættu að þekkja
Raffles-hótelin vel, en fyrsta hótelið
með þessu nafni hóf rekstur í Singa-
púr seint á 19. öld. Undanfarna ára-
tugi hefur Raffles-merkið breitt úr
sér og eignaðist árið 1997 tvö sögu-
fræg hótel í Kambódíu: Grand Hotel
d’Angkor í Siem Reap og Hotel Le
Royal í Phnom Penh.
Bæði kambódísku hótelin búa yfir
einstökum töfrum, og hafa hýst gesti
á borð við Charlie Chaplin, Jackie
Kennedy Onassis, Charles de Gaulle
og Michelle Obama. Þá hefur kamb-
ódíska konungsfjölskyldan ræktað
náið samband við hótelin, og t.d.
býður veitingastaðurinn í Siem Reap
upp á margréttaða veislumáltíð eftir
uppskrift sem fengin var að láni frá
sumarhöll konungsins.
Er óhætt að mæla með kon-
unglegu máltíðinni á Restaurant Le
Grand í Siem Reap –hún er ein af
þessum sjaldgæfu matarupplifunum
sem sprengja alla skala og hleypa
svo miklum gleðihormónum af stað
að gesturinn er í móki lengi á eftir. Í
Phnom Penh er það aftur á móti
helgar-brönsjinn þar sem kampavín-
ið, gæsalifrarkæfan, wagyu-
nautakjötið og humarhalarnir flæða.
Í báðum tilvikum er um að ræða há-
punkta þess sem veitingastaðir
borganna hafa upp á að bjóða, og
verðskulda sérstaka ferð ef fólk gist-
ir annars staðar.
Helst ættu lesendur, ef þeir eiga
þess kost, að reyna að taka frá eins
og einn dag á hvorum stað til þess
eins að njóta hótelsins, panta einn
eða tvo kambódíska kokkteila, fá
nudd við sundlaugarbakkann og
gæla við skilningarvitin – því aðra
eins meðferð er erfitt að finna ann-
ars staðar, nema þá á margfalt
hærra verði.
Blaðamaður gisti á Raffles í boði
hótelkeðjunnar AccorHotels.
Flestir mektarmenn og -konur sem heimsótt hafa landið hafa valið að gista hjá Raffles.
Raffles starfrækir sögufræg lúxushótel
bæði í Siem Reap og Phnom Penh.
Barinn á Raffles í Phnom Penh er með fallegri rýmum í borginni til að fá sér drykk.
Umvafin lúxus og
sjarma nýlendutímans
HVAR Á AÐ GISTA?
geta hótelin í bænum komið í kring
ferð með einkaleiðsögumanni og túk-
túk fyrir lítið. Þykir ágætis dagspakki
að sjá aðalmusterið, sem Angkor
Wat-svæðið er nefnt eftir, Bayon-
musterið, þar sem stór andlit hafa
verið höggvin út í steininn, og loks Ta
Prohm – sem sumir kalla Tomb Rai-
der-musterið, eftir að atriði í sam-
nefndri mynd Angelinu Jolie var tek-
ið þar upp. Í Ta Prohm hefur
viðgerðum af ásetningi verið stillt í
hóf svo gestir geti séð hvernig trjá-
gróðurinn tók svæðið yfir eftir að
mannfólkið hvarf.
Gesturinn ræður ferðinni og getur
leyft leiðsögumanni og ökumanni að
snúast í kringum sig eins og honum
hentar, en þó er gert ráð fyrir hádeg-
ishléi til að hvílast og matast og er þá
ekið stuttan spöl að jaðri mustera-
svæðisins þar sem sæmilegur matur
er í boði á ágætum og snyrtilegum
veitingastöðum.
Að öðru leyti er ekki margt að sjá í
Siem Reap, en í miðbænum má finna
þyrpingu veitingastaða, öldurhúsa og
verslana með túristavarning, og þökk
sé stöðugum straumi bakpokaferða-
langa er stutt í gleðina á kvöldin.
Svo miklu meira en musteri
Tilviljun réð því að í Phnom Penh
gafst tækifæri til að taka stutt viðtal
við kambódíska prinsessu. Hennar
hátign Sita Norodom er frænka sjálfs
konungsins og sölustjóri á hótelinu
þar sem gist var. Hún vildi endilega
nota tækifærið þegar hún komst á
snoðir á um að blaðamaður væri kom-
undan er skilinn Vattanac-turninn
sem gnæfir yfir borginni og var opn-
aður árið 2014. Þessi nútímalegi turn
er nokkuð vel heppnaður og á efstu
hæðunum má finna smekklega hann-
aða veitingastaði að ógleymdum bar á
stórum svölum með útsýni í allar átt-
ir.
Leifar stórveldis
Frá Phnom Penh liggur leiðin til
Siem Reap, og best að fara með flugi.
Rútuferðir eru í boði, en taka hálfan
daginn og ekki svo dýrt að setjast í
staðinn upp í flugvél í 30 mínútur. Í
báðum borgum eru flugvellirnir smá-
ir og auðveldir við að eiga.
Þó svo töluverður fjöldi ferða-
manna heimsæki Angkor Wat er
sjaldan þvaga á svæðinu, enda breiða
musterin úr sér um risastórt svæði.
Fyrir vikið er upplifunin mjög ekta
og hægt að komast í einstakt návígi
við söguna. Byggingar sem áður voru
eflaust aðeins aðgengilegar kon-
ungum og æðstuprestum eru í dag
staðir þar sem gestir frá öllum heims-
hornum gapa af undrun yfir nákvæm-
um lágmyndum af æsilegum orr-
ustum og hverfa á vit löngu liðinna
tíma innan um steinsúlurnar.
Þeir sem kæra sig um geta hæg-
lega varið heilli viku í að rannsaka
Angkor Wat. Svæðið spannar rösk-
lega 160 hektara og hafa fornleifa-
fræðingar fundið meira en 70 stór
musteri innan um frumskógargróð-
urinn og alltaf er eitthvað nýtt að
koma í ljós.
Flestum dugar samt einn dagur og
inn á svæðið. Sita segir umheiminn
nefnilega vera rétt að byrja að upp-
götva töfra Kambódíu og mikils virði
fyrir landsmenn ef þeir ná að laða að
fleiri góða gesti.
„Það er margt fleira að sjá en
musterin umhverfis Angkor Wat og
nú síðast eru ferðamenn farnir að
venja komur sínar til musterisins
Preah Vihear í norðurhluta landsins.
Ástand vega var áður þannig að erfitt
var að komast að musterinu öðruvísi
en í gegnum Taíland, en núna er leið-
in greið,“ segir prinsessan. „Svo höf-
um við einstaka náttúru og dýralíf og
mikil upplifun að sjá t.d. Kratie-
höfrungana sem lifa í Mekong-
fljótinu. Með því að fræða veiðimenn
hefur tekist að vernda þennan við-
kvæma stofn og ferðalangar heim-
sækja staði á borð við Kong Kracheh
bæði til að upplifa náttúruna og kom-
ast í návígi við hefðbundið líf lands-
manna.“
Prinsessunni þykir miður að meiri-
hluti ferðamanna skuli aðeins staldra
stutt við og verja yfirleitt ekki meira
en einum eða tveimur dögum í Siem
Reap, og sjá þannig rétt varla nema
yfirborðið á heillandi samfélagi, fjöl-
breyttu lífríki og stórbrotinni nátt-
úru. „Og vilji ferðalangar láta gott af
sér leiða má benda á samtök á borð
við Nginn Karet (www.nkfc.org) sem
bæði halda á lofti fornri hefð helgi-
dansa með reglulegum sýningum í
Siem Reap samhliða því að fræða og
þjálfa ungt fólk sem býr við þröngan
kost og bæta velferð samfélaganna á
svæðinu með ýmsum hætti.“
Það er erfitt, en um leið mikilvægt, að heimsækja S-21 fangelsið.
Ljósmynd / Wikipedia - Paul Man
Angkor Wat-svæðið er risavaxið.
Ljósmynd /Ásgeir Ingvarsson
Eitt af undrum veraldar og staður engum öðrum líkur: Angkor Wat.
Ljósmynd /Ásgeir Ingvarsson