Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.06.2019, Síða 32
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 2019
TRATTO model 2811
L 207 cm Áklæði ct. 70 Verð 335.000,-
L 207 cm Leður ct. 10 Verð 439.000,-
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
MENTORE model 3052
L 201 cm Áklæði ct. 70 Verð 389.000,-
L 201 cm Leður ct. 10 Verð 459.000,-
ESTRO model 3042
L 198 cm Áklæði ct. 70 Verð 269.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
STAN model 3035
L 206 cm Áklæði ct. 86 Verð 359.000,-
L 206cm Leður ct. 15 Verð 419.000,-
JEREMY model 2987
L 202 cm Áklæði ct. 86 Verð 495.000,-
L 202 cm Leður ct. 30 Verð 669.000,-
49 árum eftir að hann stóð á sviði Laugardalshallarinnar með
hinni goðsagnakenndu hljómsveit sinni, Led Zeppelin, verður
söngvarinn Robert Plant aftur mættur í Laugardalinn og treður
upp ásamt hljómsveit sinni, The Sensational Spaceshifters, á
Secret Solstice-hátíðinni á sunnudaginn eftir viku.
„Robert hefur mjög skemmtilega sviðsframkomu, hleypur
fram og aftur um sviðið, sveiflar hljóðnemanum í kringum sig og
skekur sig allan á æsandi hátt. Enda var hann fljótur að vinna
hylli unglinganna, sem fyrir hljómleikana höfðu flestir mestan
áhuga á Jimmy Page. En Robert er ekki bara æsingasöngvari,
hann getur líka sungið róleg lög af innlifun, sem er jú reyndar
æsandi líka, þegar allt kemur til alls,“ sagði í umfjöllun Morgun-
blaðsins um tónleikana sumarið 1970. Fróðlegt verður að sjá og
heyra hvað gagnrýnendur segja nú og hvort Plant hleður ekki
örugglega í „Íslandslagið“ fræga, Immigrant Song.
Robert Plant í essinu
sínu í Laugardals-
höllinni árið 1970.
Morgunblaðið/Kristinn Benediktsson
Plantar sér enn í Laugardal
Plant hélt síðast tónleika á Íslandi árið 2005. Þeir
fóru að sjálfsögðu fram í Laugardalshöllinni.
Morgunblaðið/Sverrir
Robert Plant syngur á Secret Solstice-
hátíðinni sem fram fer um næstu helgi.
„Þess hefur verið getið í blöðum
undanfarið, að hjer í bænum
væru manna á meðal klám-
myndir, sem teknar mundu vera
á Keflavíkurflugvellinum.“
Þessi ógnvekjandi tíðindi flutti
Morgunblaðið landsmönnum á
baksíðu á þessum degi fyrir sjö-
tíu árum, 16. júní 1949.
Grunurinn reyndist þó byggð-
ur á sandi en í fréttinni, sem
unnin var upp úr fréttatilkynn-
ingu sem dómsmálaráðuneytið
fann sig knúið til að senda frá
sér, kom ennfremur fram að
rannsóknarlögreglan hefði nú
rannsakað hvernig í þessu máli
lægi „og hefur sannast, að
myndirnar, sem voru í höndum
nokkurra manna hjer í bænum,
voru ekki teknar hjer á landi“.
Þvert á móti höfðu íslenskir
menn, sem voru við nám erlend-
is, náð þar í myndir þessar og
komið með þær hingað til lands.
Á sömu blaðsíðu var ljósmynd
af „helecopterflugvjel“ sem
reynd hafði verið á Reykjavík-
urflugvelli fyrr í vikunni. Í
myndatexta kom fram að „hele-
copterflugvjelin“ væri að taka
sig upp. Til allrar hamingju fann
einhver síðar upp orðið „þyrla“.
GAMLA FRÉTTIN
Ekkert
klám í
Keflavík
„Helecopterflugvjelin“ tekur sig upp á Reykjavíkurflugvelli árið 1949.
Morgunblaðið/Ól. K.M.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Sif Konráðsdóttir
lögmaður
Mette Frederiksen
verðandi forsætisráðherra Dana
Nicol Leigh Mosty
fyrrverandi alþingismaður