Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Síða 2
Hvernig liggur á þér í dag?
Það liggur ágætlega á mér; ég var að vakna núna upp úr hádegi.
Ég var í stúdíóinu í nótt og kom seint heim þannig að maður fær
að sofa út.
Hvað ertu að gera í stúdíóinu?
Vinna að músík, fyrir mig og aðra. Tónlistin mín er R&B hipphopp.
Þetta er full vinna og hefur verið það í tvö ár. Maður giggar og semur;
það er hægt að láta það ganga upp.
Hvernig leggst Secret Solstice í þig?
Ég hef spilað þar tvisvar áður. Það leggst vel í mig. Ég hef alltaf elskað
Secret Solstice og hún hefur verið uppáhaldsútihátíðin mín, burtséð frá
allri pólitík í kringum hana. Þetta er ein skemmtilegasta tónlistarhá-
tíðin og gaman að vera úti í sólinni.
Hverju mega áhorfendur búast við? Ertu með eitt-
hvað nýtt?
Kannski, ég er kannski með eitthvað nýtt. Ég ætla að taka sama „sjó“
og ég tók á útgáfutónleikum mínum. Fólk má búast við einhverju
skemmtilegu og orkumiklu „sjói“ eins og ég hef alltaf gefið. Syngja,
hoppa og hafa gaman.
Er mikið að gera í sumar?
Já, það er það, ég er nýlega kominn heim en ég var úti að spila fyrir út-
skriftarkrakka á Krít og svo í Króatíu. Svo mun ég spila á Þjóðhátíð
sem verður rosalega gaman. Þetta er í fyrsta sinn sem ég verð á stóra
sviðinu þar. Það er ekki hægt að hafa fleiri Íslendinga saman í brekku
en þarna. Svo ætla ég bara að sofa út, njóta lífsins og hafa það kósí.
Ég næ svo sjaldan að gefa sjálfum mér tíma.
Morgunblaðið/Eggert
FLÓNI
SITUR FYRIR SVÖRUM
Syngja, hoppa
og hafa gaman
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.6. 2019
Langar þig í ný gleraugu!
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC
Það er ekki alltaf (og raunar mjög sjaldan) tekið út með sældinni aðvera feiminn og hafa innhverfan persónuleika. Á seinni árum hefég þó tekið þessa bölvun í sátt og hef oft mjög gaman af eigin
óförum.
Fyrir stuttu var ég staddur á heimavelli „innhverfans“: rólegri bóka-
búð. Eftir að ég hafði notið rólegheitanna í dágóða stund og valið mér
nokkrar bækur til að taka með heim dundu ósköpin yfir mig. Á leið að
afgreiðslukassanum hitti ég fyrrverandi skólafélaga minn. Hann gerði sig
líklegan til að gefa mér heljarinnar knús, sem mér þótti heldur óvenju-
legt því aldrei hafði ég knúsað manninn fyrr og þekkti lítið. Ég spilaði þó
með og við tók eitt óþægilegasta
knús allra tíma, þar sem ég reyndi
einhverra hluta vegna að snerta
manninn sem minnst.
Næst tek ég eftir því að kona
stendur við hliðina á Knúsaranum
og horfir tortryggilega á mig. Ekki
bætir úr skák að hún er með sól-
gleraugu innandyra! (Ég sem hélt
að Bubbi Morthens væri sá eini
sem mætti það.) Ég geri heiðar-
lega tilraun til að brosa og heilsa
en fæ ekki hið minnsta bros til
baka. Er ég að segja þetta eitt-
hvað vitlaust? Knúsarinn kynnir
þá konuna sem kærustu sína. Enn ekkert bros. Ég heyri ekkert hvað
hann segir hana heita því svitinn er farinn að perla af enninu, undir aug-
unum og jafnvel af efri vörinni. Nú vil ég fátt frekar en að losna úr þess-
um hræðilegu aðstæðum. Ég fer að óttast að svitinn sem er að safnast
upp í lófunum á mér muni eyðileggja bækurnar sem ég held á.
Knúsarinn spyr hvað ég sé að gera í lífinu og ég segist vinna hjá
Morgunblaðinu í sumar. Þá bendir hann á að ég gæti orðið svona „hetju-
blaðamaður“. Ég veit ekkert hvað maðurinn er að tala um en brosi og
jánka. Svona eins og Tinni, segir Knúsarinn og ég er enn týndari en
áður. Hver var aftur Tinni? Já, þunnhærða teiknimyndafígúran. Var
hann blaðamaður? Ég hafði ekki hugmynd um það. Ég held áfram að
brosa og segist sammála Knúsaranum í einu og öllu. Á meðan hann held-
ur áfram átta ég mig á því að ég þurfi að spyrja hann hvað hann sé að
gera í lífinu, til að launa greiðann. Hvers þarf ég að gjalda? Þetta samtal
varð of langt fyrir löngu og sér ekki fyrir endann á því. En sem betur fer
kveður Knúsarinn og heldur leiðar sinnar ásamt Sólgleraugnakærust-
unni. Hættan er liðin hjá en svitinn situr eftir.
Óþægindasviti
Pistill
Böðvar Páll
Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
’Ég spilaði þó með ogvið tók eitt óþægileg-asta knús allra tíma, þarsem ég reyndi einhverra
hluta vegna að snerta
manninn sem minnst.
Sigríður Vala Þórarinsdóttir
Já, helst austur á land í tjald, ef
spáin verður góð.
SPURNING
DAGSINS
Ætlar þú í
útilegu í
sumar?
Jóhann Bjarnason
Já, á morgun. Hina árlegu útilegu
Harmonikkufélagsins í Skagafirði.
Vöfflur, kaffi og dansiball.
Oddný Svava Steinarsdóttir
Já. Vík í Mýrdal í tjald.
Snorri Egilsson
Mögulega en ekkert mjög langt.
Örugglega einhverja mennta-
skólaútilegu.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Árni Sæberg
Tónlistarmaðurinn Flóni, eða Friðrik Jóhann Róbertsson
eins og hann heitir fullu nafni, mun troða upp á Secret
Solstice á sunnudagskvöld. Upplýsingar og miða inn á
hátíðina má finna á secretsolstice.is.