Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.06.2019, Qupperneq 20
Brakandi ferskt í allt sumar Nú er tíminn til að bera fram léttan, hollan og ferskan mat og er flott salat tilvalið á matborðið, bæði sem aðalréttur sem og meðlæti. Gott getur verið að fá nýjar hugmyndir og fékk því Morgunblaðið nokkra íslenska matgæðinga til að deila með lesendum uppskriftum að fallegum og frumlegum salötum sem svíkja ekki bragðlaukana. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Fyrir 4 500 g humar, skel- flettur og hreins- aður 3 msk. ólífuolía 2 msk. tamari-sósa 2 msk. lífrænt hun- ang, t.d. lífrænt akasíuhunang 4 stk. hvítlauksrif ½ stk. rautt chili 3 cm ferskt engifer 200 g blandað salat ½ stk. gúrka 1 askja litlir tómatar 2 msk. ristuð gras- kersfræ lúka fersk basilíka ½ krukka fetaostur Þíðið humarinn. Pressið hvítlauk- inn. Skerið chili frekar smátt. Rífið engiferið niður. Látið olíuna, tamari-sósuna og hunangið í skál. Bætið kryddinu saman við og hrærið vel saman. Bætið humrinum út í og látið hann marinerast í leg- inum í u.þ.b. fimm mínútur. Hitið pönnuna. Takið humarinn úr marineringunni og steikið á vel heitri pönnunni í tvær mínútur. Lát- ið marineringuna renna vel af. Gott að nota t.d. gata- spaða (fiskispaða). Skerið tómatana og gúrkuna niður. Blandið salatinu, gúrkunni og tóm- ötunum saman í stórri skál. Dreifið humrinum, gras- kersfræjunum, fetaostinum og basilíkunni ofan á salatið. Hellið rest- inni af marinering- unni yfir. Frá grgs.is. Humarsalat Fyrir 2 ca. 120 g blandað salat (t.d. ruccola, spínat, rauðkálsblöð) 5-6 míní-paprikur í blönduðum lit, skornar í sneiðar 1 stórt avókadó, skorið í bita 2 stórar kúlur buffalo mozzarella, tættar í sundur með fingrunum ca. 300 g kokteiltómatar á kvisti, skornir í tvennt 100 g parmaskinka pestó Setjið salatið á botninn á breiðum diski og bætið svo paprikunnni út á salatið. Því næst skal bæta við avókadó, svo mozzarella og tómötum. Að lokum er parmaskinkan skorin niður og henni dreift yfir salatið ásamt pestói. Berið fram með góðu brauði, t.d. steinofnsbökuðu súrdeigsbrauði. Frá eldhussogur.com Mozzarella- og tómatasalat með pestósósu og parmaskinku 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.6. 2019 LÍFSSTÍLL Geggjað grískt kartöflusalat Meðlæti fyrir 4-8 900 g kartöflur sjávarsalt 100 g svartar ólífur 150 g kirsuberjatóm- atar 70 g fetaostur, mulinn DRESSING 2 msk. sítrónusafi 1 msk. óreganó ½ tsk. sjávarsalt ½ tsk. svartur pipar 60 ml jómfrúar- ólífuolía Afhýðið kartöflurn- ar og skerið niður í bita og sjóðið í potti þar til þær eru farnar að mýkjast en ekki mauksoðn- ar. Takið vatnið frá og skolið kartöfl- urnar með köldu vatni. Setjið kartöflurn- ar í skál ásamt ólíf- um, kirsuberja- tómötum og fetaosti. Saltið. Útbúið dress- inguna með því að hræra saman sí- trónusafa, óreganó, salti og pipar. Hrær- ið saman og hellið ólífuolíunni smátt og smátt saman við og hrærið allan tím- ann þar til dress- ingin hefur blandast vel saman. Hellið dressingunni yfir sal- atið, magn eftir smekk. Frá gerumdaginn- girnilegan.is. Landslag kr. 5.400 Snúrusnilld kr. 2.000 Hreðkuskálar kr. 2.900-13.500 Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.